Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Síða 30
38 LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993. AC-Mllan, ítalska stórveldið í knattspymu: Leggur veð - bankana í rúst Metin halda áfram að faUa hjá knattspymuliðinu AC-Milan á ftaJ- íu, liðinu sem án efa er sterkasta félagslið heims um þessar mundir. Sumir vilja jafnvel halda því fram að hðið sé það sterkasta sem nokk- um tíma hafi komið fram á sjónar- sviðið. ítalska deildin er jafnan spiluð á sunnudögum og síðastliðinn sunnudag þurfti lið Cagliari að bíta gras í viðureign sinni gegn AC- Milan. Sá leikur var sá 50. í röðinni sem Milan lék án taps og það í sterkustu knattspymudeild heims. Síðasti tapleikur Milan-liðsins er að hverfa í minningum flestra þeirra sem fylgjast með liðinu, en hann var gegn hði Bari í maí árið 1991! Stefna á meistaratitilinn Á árinu 1992 komst hð AC-Milan fyrst ítalskra Uða taplaust í gegn- um heilt keppnistímabil og nýja árið hófst með enn einu metinu. Þá vann AC-Milan 7. útisigur sinn í röð. Keppnistímabilið 1992-93 er nú rösklega hálfnað og Uðiö virðist ekki neitt frekar líklegt th að tapa leik á þessu keppnistímabiU. Það hefur 8 stiga forystu á næsta Uð og er nánast öruggt um titiUnn. Þessi velgengni hefur eyðhagt aha spennu varðandi veðbanka á ítaUu. Vaninn er að veðjað sé háum fjárfúlgum um það hvaða Uð muni hampa titUnum í lok tímabUsins en á þessu tímabiU viU enginn veðja á annað Uð en AC-MUan. Ýmsir aðUar knattspymuhreyf- ingarinnar þarlendis hafa miklar áhyggjur af þessari þróun. í blöð- um hafa komið fram hugmyndir um að setja þak á þær fjárhæðir sem ítölsk Uð mega eyða í erlenda leikmenn. Einnig hefur verið reif- uð sú hugmynd að taka upp svipað kerfi og notað er í bandaríska körfuboltanum. í hvert sinn sem fram koma efnhegir ungUngar í knattspymu verði lakari Uðunum gefinn fyrsti valréttur. Það ætti að geta orðið til þess að minnka styrk- leikamuninn milU Uða í ítalska boltanum. Nægirpeningartil Aðstandendur AC-Milan Uðsins era ekki hrifnir af þessum hug- myndum. MargmiUjónarinn Ber- lusconi, eigandi AC-MUan og mikU aðsókn á leiki Uðsins (meðaltal 70.000) tryggir geysisterka fiár- hagsstöðu Uðsins. Hún gerir AC- MUan stórveldinu kleift að kaupa bestu og dýmstu leikmenn heims. Liðið hefur nú á að skipa 6 erlend- um leikmönnum í heimsklassa en þó mega, samkvæmt ítölskum regl- um, aðeins þrír þeirra vera inni á leikveUinum í einu. Berlusconi, sem er eigandi sjón- varpsstöðvar og stórrar verslun- arkeðju, er ekki hrifinn af þeim breytingarhugmyndum sem fram hafa komið. „Eins og aUir vita er knattspyman sveiflukennd og þó að AC-MUan sé á toppmnn núna mun velgengnin taka enda og þá munu gagnrýnisraddimar þagna,“ sagði Berlusconi í blaðaviðtaU í síð- ustu viku. „Sagt er að við höfum drepið niður keppnina í ítalska boltanum en þegar við töpum tveimur leikjum í röð verður skrif- að um stórveldið sem féU.“ : v: | Leikmenn AC-Milan liðsins hafa haft ríka ástæðu til að fagna á undanförnum árum. Hér fagna þeir sigri í leik gegn Suður-Ameríkumeisturunum Atletico National frá Kólumbíu sem fram fór í Tokyo og unnu þar með til nafnbótarinnar besta félagslið heims. Margar gagnrýnisraddimar hafa komið frá Uðum sem hafa í raun eytt jafnmiklum peningum og AC- Milan í kaup á leikmönnum. Mun- urinn er sá að fiárfestingar AC- MUan og góö sfióm skUa árangri, en ekki hjá öðmm ítölskum stórUð- um. Hollenska þríeykið Berlusconi tók við Uðinu á miðj- um níunda áratugnum. Hann réð sem þjálfara Arrigo Sacchi, sem hafði Utla reynslu, en hann stóð svo sannarlega undir vaUnu. TU Uðsins vora fljótlega keyptar þrjár stórsfiömur frá HoUandi, Ruud GuUit, Marco van Basten og Frank Rijkaard. Sacchi tók upp nýja leikaðferð, fiögurra manna flata vöm með hreyfanlegum miðjumönnum sem reyna að eyði- leggja miðjuspU mótherjanna. Sú leikaðferð gafst einstaklega vel og Uðið varð ítalskur meistari árið 1988 og síðan Evrópumeistari næstu tvö árin á eftir. HoUenska tríóið var á þeim tíma undirstaðan í Uðinu. Árið 1991 vann Uðið hins vegar engan titil. Sacchi hætti sem þjáif- ari og við tók CapeUo sem eitt sinn Marco van Basten, hollenski framlinumaðurinn i liði AC-Milan, hefur þrisvar sinnum verið kosinn knattspyrnumaður Evrópu. var leikmaður í ítölsku knattspyrn- unni. Undir hans stjóm hefur AC- MUan aðeins tapað einum leik, gegn Juventus í deUdarbikar- keppni í undanúrsUtum í apríl á síðasta ári. Fleiri stórsfiömur vom keyptar til Uðsins. LandsUðsmennirnir ít- ölsku, Stefano Eranio, Gianlugi Lentini, Fernando de NapoU og sömuleiðis franska markamaskín- an Jean-Pierre Papain. Einnig voru Savisevic og Boban keyptir frá fyrrum Júgóslavíu. Þessi mikla breidd liðsins hefur gert því kleift að stilla nánast alltaf upp ósigrandi Uði, án tUlits til meiðsla. Stofnun Evrópudeildar Þessi sérstaða AC-MUan mun eflaust ýta undir stofnun sérstakr- ar EvrópudeUdar úrvalsUða sem lengi hefur verið í deiglunni því verðugir andstæðingar liðsins virðast ekki finnast orðið á ítaUu. Spurningin er bara sú hvort eitt- hvert annað lið í Evrópu sé þess megnugt að veita stórUðinu AC- MUaneinhverjakeppni? -ÍS Byggt á frétt Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.