Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Page 33
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993.
41
Bill Wyman, rúm 29 ár með The
Rolling Stones áður en þolin-
mæðina brast.
Rolling Stones:
Tekur
nokkur
vlð afBill
Wyman?
Bill Wyman haíði ekki fyrr tíl-
kynnt að hann væri endanlega
hættur að leika á bassagítar með
The Rolling Stones en leit hófst
að eftirmanni hans. Sannast aö
segja hafa fáir enn verið til nefnd-
ir. Og ailnokkrir eru þeirrar
skoðunar að enginn verði ráðinn
i stað hans.
Upptökur næstu plötu Stones
eiga að byrja í mars ef allt fer
samkvæmt áætlun. Sömu áæti-
anir gera ráö fyrir aö hljómsveit-
in fari í hljómleikaferö til að
fylgja plötunni eftir seint á þessu
ári eða í byrjun þess næsta. Pyrr
verður vart þörf á manni til að
fylla í skarð Wymans.
Rolling Stones hefur nefnilega
aldrei veriö á flæðiskeri stödd
hvað bassaleikara varðar. Keith
Richards hefur nokkrum sinnum
annast bassaleikinn í lögum
hijómsveitarinnar. Sömuleiðis
Ron Wood eitir aö hann bættist í
hópinn. Ron er fyrrverandi
bassaleikari hljómsveitarinnar
Faces og því síður en svo ókunn-
ugur hfjóðfærinu.
Bill Wyman vantaði tæpt ár upp
á að hafa leikið íþrjá áratugi með
The Rolhng Stones. Hann spilaöi
iyrst opinberlega með fdjóm-
sveitinni í Putney Church Hall í
London 2. desember 1963. Hinsið-
ari ár var hann talsvert upp á
kant við aðra liðsmenn hljóm-
sveitarinnar. Þeir kunnu honum
til að mynda litlar þakkir fyrir
að hafa ritað bókina Stone Aione.
í plötugagnrýni var því meira að
segja haldið fram að bassaleikur
Wymans heföi verið hijóöbland-
aður mun oftar en góðu hófi
gegndi á hljómleikaplötunni
Flashpoint þvi að Mick Jaggerog
Keith Riciiards vildu ná sér niðri
á honum vegna bókarinnar. Sé
sú raunin hefur verið meira en
Iitið að í hljómsveitinni og senni-
lega fátt annað til ráða hjá Bill
Wyman en að þakka fyrir sam-
starfið og láta sig hverfa.
Kolrassa krókríðandi, sígurvegarar Músíktilrauna í fyrra.
Músíktilraunir
'93 komnar
á koppinn
Skráning hljómsveita í Músíkth-
raunir 1993 er hafin. Keppnin fer
fram í félagsmiðstöðinni Tónabæ í
Reykjavík sem endranær. Undanrás-
ir verða háðar fimmtudagskvöldin
18. og 25. mars og 1. apríl. Hljómsveit-
irnar, sem fá nægilega mörg stig til
að keppa til úrslita, koma síðan sam-
an og reyna með sér fóstudagskvöld-
ið annan apríl.
Músíktilraunir eru opnar öllum
upprennandi hljómsveitum alls stað-
ar af landinu. Aðstandendur keppn-
innar ætla að reyna að létta hljóm-
listarmönnum af landsbyggðinni
ferðakostnaðinn með því að reyna
að útvega þeim afslátt á flugfari.
Búast má við að fleiri hljómsveitir
skrái sig en komast að. Sú var að
minnsta kosti raunin í fyrra. Þá varð
að neita tíu sveitum um þátttöku en
24 fengu að vera með. Því er vissast
að skrá hljómsveitirnar tímanlega til
leiks. Það verður gert í Tónabæ alla
virka daga til 5. mars.
Elleftu tilraunimar
Músíktilraunir voru fyrst haldnar
í Tónabæ vorið 1982. Síðan hafa þær
verið haldnar árlega nema hvað árið
1984 féll út. í fyrra sigraði kvenna-
hljómsveitin Kolrassa krókríðandi.
Hún sendi einmitt frá sér plötu fyrir
síðustu jól.
Kolrassa kemur frá Keflavík. Eftir-
tektarvert er þegar hstinn yfir sigur-
hljómsveitimar er skoðaður að sig-
urvegaramir em yfirleitt af lands-
byggðinni, hvaöa ályktun sem má
draga af þeirri staðreynd.
Margir þekktir tónhstarmenn létu
fyrst til sín taka í Músíktilraunum.
Máni Svavarsson, lagahöfundur og
hljómborösleikari í Pís of keik, var
til að mynda innanborðs í Dans-
hljómsveit Reykjavíkur og nágrennis
sem sigraði í fyrstu tilraununum.
Jóhannes Eiðsson, söngvari Loðinn-
ar rottu, var söngvari Gipsy sem
sigraði 1985, Karl Örvarsson var
söngvari sigursveitarinnar 1987,
Stuðkompanísins. Guðmundur Pét-
ursson komst aö vísu ekki í loka-
keppnina með Bláa bílskúrsbandinu
1987 en vakti fyrst athygh í keppn-
inni það ár fyrir mikla fingrafimi og
góða tækni miðað við aldur og
reynslu. Og þannig mætti lengi telja
upp þá sem hafa fyrst vakiö athygli
á Músíktilraunum.
Á Músíktilraunum í fyrra var
dauðarokkið svonefnda mest áber-
andi stefnan. Um það bil helmingur
hljómsveitanna sem tóku þátt í til-
raununum hélt sig við þá stefnu.
Dauðarokkið fór ekki hátt á síðasta
ári þannig að spennandi verður að
heyra á Músíkthraimum í ár hvaða
tónhst höfðar fyrst og fremst til
ungra tónhstarmanna um þessar
mundir. Og að sjálfsögöu til áheyr-
endanna sem væntanlega munu
flykkjast á keppnina sem endranær.
Helgarpopp
Clinton
pfniy Ý'll
rokk-
hljóm-
leika
Senn h'ður að forsetaskiptum í
Bandaríkjunum. Biti Clinton ætl-
ar að halda upp á forsetavigsluna
með pomp og prakt. Meðal ann-
ars efnir hann til hljómleika þar
sem mörg stórstjarnan lætur í sér
heyra. Aðalhljómsveit hljómleik-
anna verður Fleetwood Mac.
Clinton fékk nefhilega slagorðið
sitt fyrir kosningamar aö láni úr
Umsjon
Ásgeir Tómasson
texta af plötunni Rumours. Það
er að segja úr laginu Don’t Stop
þar sem segir: Don’t stop thinking
about tomorrow eða Hættu ekki
aö hugsa um morgundaginn.
Meðal annarra sem skemmta á
hljómleikum Chntons verða Bob
Dylan, Elton John, Aretha
Franklin, Barbra Streisand, Los
Lobos og reggaehljómsveítin
Steel Pulse. Þá er stefht að því
að smala saman þekktum djass-
leikurum sem spila af fingrum
fram. Og hver veit nema forset-
inn sjálfur mæti með saxófóninn
og fái að blása nokkrar nótur
með. Bill Cosby veröur kynnir á
hljómleikunum.
Los Lobos verður meöal hljóm-
sveita á tónleikum Clintons.
R.E.M. leggur til lagið Drive á nýju Grænfriðungaplötuna.
Ný plata til styrktar Grænfriðungum:
Öll lögin hljóð-
rituð með sólarorku
Ný Grænfriöungaplata er í smíð-
um. Þegar hefur verið leitað til ah-
margra hstamanna og hljómsveita
um tónhst á plötuna. Fjórmenning-
amir í R.E.M. hafa þegar brugðist
jákvætt viö og ætla að leggja til
hljómleikaútgáfu lagsins Drive. Það
var tekiö upp á óauglýstum hijóm-
leikum R.E.M. í heimabæ hljómsveit-
arinnar, Aþenu í Georgíuríki í
Bandaríkjunum, í nóvember síðast-
Uðnum.
Drive uppfylhr væntanlega grund-
vallarskilyrðiö sem sett er fyrir þeim
lögum sem fara eiga á plötu Græn-
friðunga. Rafinagnið, sem knýr upp-
tökutækin, verður að koma frá sólar-
orku!
Síðast var gefin út plata til styrktar
Grænfriðungum árið 1989. Hún kom
út á merki sovésku ríkishijómplötu-
útgáfunnar Melodia. Mikið tilstand
var við útkomu plötunnar. Til dæmis
var efnt til blaðamannafundar vegna
hennar í Moskvu. Meðal þeirra sem
áttu lög á þeirri plötu voru Eurythm-
ics, Thompson Twins, Peter Gabriel
og hljómsveitin U2.