Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Síða 35
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993. 43 Panta rei (allt flýtur) Grískur heimspekingur að nafni Herakleitos átti heima í borginni Efesus fyrir um 2500 árum. Hann sagði alla náttúruna vera á hreyf- ingu. Ekkert er með kyrrum kjör- um. „AHtflýtur," „pantarei," sagði Herakleitos til að leggja áherslu á rótið í tilverunni. Enginn dagur er öðrum líkur, ekkert er eins og það var fyrir sekúndubroti. Allt mann- legt líf er eins og ólgandi fljótið sem streymir áfram og breytist í sífellu. „Það er ekki hægt að stinga sér tvi- svar til sunds í sömu sundlaugina," sagðiHerakleitos. Eitthvað gerist sífellt Sumir menn trúa ekki á kenning- ar Herakleitosar um sífelldar breyt- ingar tilverunnar. Þeir leita stöðugt að kyrrð og ró. Lífið á að vera eins og skemmtileg framhaldssaga og mótastaf hamingju, stöðugleika, velsæld, heilbrigði og velfamaði. Þar gengur allt sinn vanagang án áfalla eða erfiðleika. Þeir krefjast eilífrar æsku, öruggrar vinnu, ham- ingjusams hjónabands og stöðugra sigra. En heimurinn er á sífelldri hreyfmgu eins og Herakleitos gamli sagði og á degi hverjum gerist eitt- hvað nýtt. Vandamálið er að atburð- um líðandi stundar má skipta í fjóra flokka. 1. Það sem við búumst við, 2. það sem búumst ekki við, 3. eitthvað skemmtilegt, 4. og eitthvað leiðinlegt og óþægi- legt. Mörgum finnst lífið einungis skemmtilegt meðan eitthvað unaðs- legt gerist og fólk býst við. Ást, sigr- ar, gott kynlíf og hrós gefa lífinu gildi. En á hveijum degi gerist þó eitthvað sem enginn býst við og stundum sitthvað leiðinlegt og óþægilegt. Þeir sem þola það ekki lenda í stöðugum árekstrum við ósveigjanleika tilverunnar. Slíku fólki finnst það hafa gert samning við almættið um blásandi meðbyr og gjöfula fiskigengd á ölium úthöf- um og vötnum mannlegrar tilveru. Brotsjóir og sker eigi aö falla öðrum í skaut. Þeir bregðast vonsviknir við hverri einustu ágjöf með reiði og dapurleika enda um gróft samnings- rof að ræða frá hendi forsj ónarinn- ar. Örlaganornirnar eiga að slá á Á læknavaktinm vefstólana gleðibragi og skemmti- söngva og vefa þeim dúka úr ham- ingjugarni. Þegar snurða hleypur á þráðinn er allt ómögulegt og glatað. Daglýsing Maður nokkur lýsti ósköpvenju- legum degi á þennan hátt: „Ég vakna á morgnana í ágætu skapi fullur af krafti og vinnugleði, fæ mér kaffi og held til starfa. Flestir dagar gætu haldið áfram að vera ágætir en leiöinlegt og vitlaust fólk er stöðugt að gera vitleysur, pirra mig og áreita á aUan mögulegan hátt. Ef mér á að líða vel verður fólk að hætta slíku." Hann taldi alla sína vanlíðan stafa af þessu fólki sem ekki gæti hagað sér sómasam- lega. Ef ekkert óþægilegt og óvænt gerðist væri allt í besta lagi. Margir eru þeir sem þjást af „bara ef'' veik- inni. Þeir telja hamingju sinni ágæt- lega borgið, „bara ef ‘ hlutimir væru dulítið öðruvísi, þeir hefðu aðra vinnu, ættu annan maka, duglegri böm, meiri peninga og öðruvísi nef. Fuiiir tortryggni taka þeir öllu sem að höndum ber. Alls konar fólk og margvíslegir atburðir stjóma líðan þeirraíhvívetna. Ljós í myrkrinu En sumir halda ró sinni og lífs- gleði ágætlega í umróti daglegs lífs. Áðurnefndur maður taldi að það ætti sér einfalda skýringu. „Þeir hafa verið heppnir með maka og vinnu. Bara ef ég hefði verið svona heppinn líka væri ég ömgglega líka hamingjusamur og glaður. Lykill- inn að eilífri hamingju hlýtur að vera góður maki og ágæt vinna án einhverra vitleysinga." Með öðrum orðum; líðaninni er stjómað af öðr- um. Sjálfur trúi ég því reyndar hka að þetta fólk eigi sér leyndarmál. En það er ekki einhver óvenjuleg heppniheldurervítttilveggjaog v hátt til lofts í bústöðum sálariimar. Þar er nægilegt rými fyrir allt sem þægilegt er og búast má við en þar er líka rúm fyrir margt óþægilegt, dapurlegt og óskemmtilegt sem að höndum ber. Þeir steyta á skeijum eins og allir aðrir en sálarstyrkur þeirra er slíkur að alltaf tekst að komast á flot á nýjan leik. Lífið mun halda áfram að bjóða upp á mótlæti og erfiðleika. Enginn semur upp á eilífa æsku, ævarandi heilbrigði, hamingju og óendanlegan léttleika tilverunnar. Ef sálarrýmið er nægi- legt má taka við öllu sem gerist, bæði því sem maður býst við og eins því óvænta. Sumir telja sig einungis hafa pláss fyrir yndisleikann í til- verunni. Þegar lífið sýnir þeim skuggahliðar sínar lenda þeir í miklum vandræðum og verða þá skuggalegir ásýndum bæði að utan og innan. Risaeðlan dó út fyrir mörgum árum. Henni tókst ekki að aðlagast síbreytilegum heimi. Þær manneskjur sem ekki geta lagað sig að lífinu sjálfu, meðbyr og mótlæti, lenda á sömu villigötum og risaeðl- an. Þær deyja út tilfinningalega og enda ævina með útbrunna sál þar sem beiskjan situr í öndvegi með öfundina sér á vinstri hönd en reið- inaáþáhægri. LYSTIGARÐUR ATLANTSHAFSINS - MADEIRA Ein vika firá 350 enskum pundum fyrir tvo. Hafið samband við Hörpu Hauksdóttur, sími 91 -24595 eða faxnr. 91 -17175. BORÐMÚSIK - DANSMÚSIK NÆTURGALAR HLJÓMSVEIT FYRIR FLESTA ALDURSHÓPA UPPLÝSINGAR I SÍMA 641715 (SKÚLI) Aukablað um tölvur Miðvikudaginn 27. janúar nk. mun aukabiað um tölvur fylgja DV. Blaðið verður flölbreytt og efhismikið en í því verður Qallað um flest það er viðkemur tölvum og tölvu- notkun. í blaðinu verða upplýsingar um bæði hugbúnað og vél- búnað, þróun og markaðsmál. Má hér nefha verðkönnun á einkatölvum, greinar um viðskiptahugbúnað, notkun tölva við auglýsingagerð, tölvunotkun um borð i fiskiskip- um, nýja og einfaldari gerð forritunarmála ásamt smáfrétt- unum vinsælu. Þeim sem vilja koma á framfæri nýjungum og efni í blað- ið er bent á að senda upplýsingar til ritstjómar DV, isaks Sigurðssonar, fyrir 19. janúar nk. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa i þessu aukabiaði, vinsamlega hafi samband við Sonju Magnús- dóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 63 27 22. Vinsamlegast athugið að siðasti skiladagur auglýsinga er fimmtudagurinn 21. janúar. ATH.i Bréfasimi okkar er 63 27 27. Almennir flokkar (frístundanám) í Miðbæjarskóla og Gerðubergi Verklegar greinar: Fatasaumur, bútasaumur, skrautskrift, postulínsmálun, bókband, teikning, málun, módelteikning, mónóþrykk, teikning og litameðferð fyrir unglinga 13 ára og eldri, vélritun, trimm (skokk fyrir alla). Bóklegar greinar: íslenska (stafsetning og málfræði), ís- lenska fyrir útlendinga I, II, III (í I. stig er raðað eftir þjóð- erni nemenda), danska, norska, sænska, enska, þýska, hollenska, franska, ítalska, ítalskar bókmenntir, spænska, spænskar bókmenntir, latína, gríska, pólska, portúgalska, hebreska, tékkneska, búlgarska, rússneska, japanska, (byrj- enda- og framhaldsnámskeið). Danska, norska, sænska fyrir börn 7-10 ára - til að við- halda kunnáttu þeirra barna sem kunna eitthváð fyrir í málunum. Aðstoð við skólafólk: Stærðfræði á grunnskóla- og fram- haldsskólastigi. Stafsetning fyrir framhaldsskólanema sem bæta þurfa kunnáttu í íslenskri stafsetningu. í almennum flokkum er kennt einu sinni eða tvisvar í viku. Ýmist 2, 3 eða 4 kennslustundir í senn í 11 vikur. Kennslugjald fer eftir stundafjölda og greiðist við innritun. Kennsla fer fram í Miðþæjarskóla og Gerðuþergi. Kennsla hefst 27. janúar. Innritun fer fram í Miðbæjarskóla, Frikirkjuvegi 1, dagana 20. og 21. janúar kl. 16.30-19.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.