Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Page 38
46
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993.
Skák
DV
Allt getur gerst í einvígi
Timmans við Short
Nokkurs taugatitrings hefur gætt i fyrstu skákum áskorendaeinvígis Shorts við Timman enda til mikils að
vinna. Sigurvegarinn öðlast rétt til að skora á heimsmeistarann Garrí Kasparov.
Taugaspenna á báða bóga hefur
einkennt fyrstu skákir áskorenda-
einvígis Nigels Shorts við Jan Tim-
man í smábænum San Lorenzo de
Escorial, nálægt Madrid. Eftir
þijár skákir af fjórtán var staöan
jöfn en fjórðu skákina átti að tefla
í gær og þá fimmtu í dag, laugardag.
Tíðindum þykir sæta að tveir
stórmeistarar frá Vestin'-Evrópu
skuli bítast um réttinn til að skora
á heimsmeistarann, eftir áratuga
einokun skákmanna úr austurvegi.
Þetta er tvímælalaust mikilvæg-
asta keppni þeirra til þessa. Verð-
launafé er hærra en þeir hafá fram
að þessu getað látið sig dreyma um,
eða tæplega 13 milljónir ísl. króna.
Þar við bætist aö fyrir fimm árum
hét þýska Mephisto-fyrirtækið
fyrsta skákmanninum frá Vestur-
Evrópu, sem tefldi um heimsmeist-
aratitilinn, mifljón svissneskum
frönkum (um 43 millj. ísl. króna).
Þar á bæ hafa menn dregiö í land
„vegna endaloka kalda stríðsins"
en samningar hafa tekist í staðinn
við kappana tvo um myndarlegan
íjárstyrk næstu tvö árin sem nem-
ur a.m.k. fimm millj. ísl. kr. á mann
hvort árið.
Takist Timman að sigra verður
hann fyrstur Hollendinga til þess
að tefla um heimsmeistaratitiflnn
síðan Max Euwe mætti Aljekín ár-
in 1935 og 1937. Englendingur hefur
hins vegar aldrei teflt um heims-
meistaratitiflnn í skák. Yfirdómari
einvígisins á Spáni er Guðmundur
Amlaugsson og er þetta ekki í
fyrsta sinn sem honum hlotnast
slíkur heiður. Guömundur er með-
al virtustu skákdómara heims.
Fyrsta einvígisskákin er athygl-
isverðust þeirra skáka sem tefldar
hafa verið fram að þessu en þar
gekk á ýmsu þar til taflið leystist
að endingu upp í jafntefli. Framan
af tafli hafði Timman undirtökin,
síðan afar vænlega stöðu en þá
snerust vopnin í höndum hans.
Short náði yfirhöndinni um tíma
en missti af bestu leiðinni.
í 2. og 3. skák skiptust kapparnir
á að leika af sér á einfaldasta hátt.
Short var sleginn skákbflndu í 2.
skákinni og missti mann fyrir borð
og í 3. skákinni féll Timman í ein-
falda gildru eins og við sáum í DV
í gær.
Lítum á 1. og 3. skákina en þar
varð sama byijunarafbrigði uppi á
teningnum.
Fyrsta einvígisskákin:
Hvitt: Jan Timman
Svart: Nigel Short
Drottningarbragð
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 RfB 4. Bg5
Be7 5. e3 0-0 6. Rf3 h6 7. Bh4 b6 8.
Be2 Bb7 9. BxfB Bxf6 10. cxd5 exd5
ll.b4 c612.0-0 He813. Db3 a514. b5
Þessa stöðu gat Timman auðveld-
lega séð fyrir er hann lék sinn fyrsta
leik - eftirlætisafbrigði Shorts er á
borðinu. Síðasti leikur Timnians er
tilraun til þess aö endurbæta tafl-
mennsku hvíts. Karpov lék 14. a3
Rd7 15. b5 gegn Short í Amsterdam
1991 en eftir 15. - c5! 16. Rxd5 Bxd4!
hélt Short sínu. Annar möguleiki
er 14. bxa5 Hxa5, eins og tefldist í
skák Hulak við Short á EM lands-
liða 1 Debrecen í vetur.
14. - c5 15. dxcð bxc5
Hangandi peð á miðborðinu en
staöan er óvenjuleg að því leyti að
b-peð hvíts hefiir laumast framhjá
víglínunni. Sterkt tromp í endatafli
en í miötaflinu ætti virk staöa
svarts og tök á miðborðsreitunum
að gefa honum ákjósanleg færi.
16. Hacl Bxc3!
Svartur verður að hafa reitinn
fyrir framan frelsingjann (b6) á
sínu valdi og má ekki leyfa Ra4.
17. Dxc3 Rd7 18. Hc2 Db6 19. Hdl
He7 20. h3 Hae8 21. Db2 a4!?
Tvíbentur leikur en Short ætlar
sér bersýnilega stóran hlut í þess-
ari skák.
22. Kfl Da5 23. Da3 d4?!
Djörf framrás, sem á ekki fylfl-
lega rétt á sér, eins og Timman
tekst að sýna fram á.
24. exd4 Be4 25. Dc3!
E.t.v. hefur Short aðeins reiknað
með 25. Hcd2 sem svarað er sterk-
lega með 25. - c4! er hvítur á í
vanda. Ef 26. Bxc4? Bxf3 og nú 27.
Dxf3 Dxd2!, eða 27. gxf3 Dc7 og
næst 28. - Dh2. Þessi miflileikur
Timmans setur strik í útreikning-
ana.
25. - Da8 26. Hcd2 cxd4 27. Hxd4 RfB
28. Da3?
Kemur drottningunni undan
hugsanlegu riddaraáhlaupi en
þama er drottningin dálítið utan-
gátta - betra er að geta svarað 28.
- Rd5 með 29. Dd2 og valda f4-
reitinn. Auk þess að hóta a-peðinu
virðist megjntilgangur leiksins að
hóta brellunni 29. Dxe7! Hxe7 30.
Hd8+ og skipta í unnið endatafl.
í Mbl stingur Margeir upp á 28.
Kgl!? og vikja kóngnum frá hættu-
svæði. Svartur hefur ekki tök á að
nýta sér óvaldaðan biskupinn á e2
og þótt hann eigi vissa festu á mið-
borðinu er ólíklegt að staðan sé
peðsins virði.
28. - Db7 29. Hd8
Þótt uppskipti séu hvítum í hag
er hrókurinn á d4 sterkur auk þess
sem hvítur tapar dýrmætum tíma.
Mögulegt var aö hirða a-peðið með
29. Dxa4 (ekki 29. Hxa4? Bc2) en 29.
- Bd5! (29. - Rd5 er svarað með
30. Db3 Rf4 31. Bc4) 30. H4d2 Re4!
31. Hc2 Rc3 32. Hxc3 Hxe2 gefur
svörtum virk gagnfæri.
29. - Rd5 30. Hxe8+ Hxe8
Svartur undirbýr Rd5-f4 og færin
eftir hvítu hornalínunni gefa hon-
um öflugt mótvægi fyrir peðið.
Hvítur á úr vöndu að ráöa en
Timman er ekki af baki dottinn.
Umsjón
Jón L. Árnason
Hann tekur ákvörðun sem að
mörgu leyti er dæmigerð fyrir
„óheflaðan" skákstíl hans og
hleypir tafflnu upp.
31. Bc4!
Sókn er besta vömin! Þess ber
að geta aö við 31. g3? er 31. - Rb4!
afar óþægilegt svar.
31. - Hc8?
Betra er 31. - Rf4 sem Timman
svarar trúlega best með 32. Hd4.
32. Re5! Bxg2+ 33. Kgl
Ekki 33. Kxg2? Re3+, hrókur fell-
ur og staðan hrynur.
33. -Be4
Og nú gengur ekki 33. - He8, eins
og stungið er upp á í Mbl, vegna
34. Dd6! með vinningsstöðu.
34. Hd4! Rf6
Ef 34. - Rf4 35. De3 og 35. - Bhl
36. f3 kemur engu til leiðar.
35. Bxf7+ Kh8 36. Kh2?
Eftir þvingaða atburðarás stend-
ur Timman með pálmann í hönd-
unum en leikur þá skákinni niður
á einfaldan hátt. Nú fellur peðið á
b5 bótalaust og opin kóngsstaða
hvíts segir til sín. Á hinn bóginn
hefði 36. Bc4 gefið hvítum vænlega
stöðu.
36. - Dxb5 37. Dg3 Dbl
Hvítur gat svarað 37. - Dfl með
38. Dgl en nú yrði 38. - Hcl bráð-
drepandi. Timman grípur til örþrif-
aráða.
38. Hxe4 Dxe4?
Svartur á góð vinningsfæri eftir
38. - Rxe4! en nú nægir óvænt mót-
spil hvíts til að halda í horfinu.
39. Bg6 Dd4 40. Rf7 + Kg8 41. Rxh6+!
Kf8 42. Rf5 Dc5 43. Rxg7! Kxg7 44.
Bf5+ Kf8 45. Bxc8 Dxc8 46. Da3+
Kg7
- Og jafntefli samið því að síöasta
peð svarts fellur í næsta leik.
Þriðja einvígisskákin:
Hvitt: Jan Timman
Svart: Nigel Short
Drottningarbragð
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Rf6 4. Bg5
Be7 5. e3 0-0 6. Rf3 h6 7. Bh4 b6 8.
Be2 Bb7 9. Bxf6 Bxf6 10. cxd5 exd5
11. 0-0 He8 12. b4 c6 13. Db3 a5 14.
b5 c5 15. dxc5 bxc5 16. Hacl Bxc3 17.
Dxc3 Rd7 18. Hfdl
Tartakower-afbrigði drottningar-
bragðs aftur á dagskrá og enn snýst
umræðan um þessa stöðu. Timman
hagræðir taflmennsku sinni lítil-
lega með þessum leik en það er eins
og hann hafi ekki unniö heima-
vinnuna nægilega vel.
18. - Db6 19. Bfl Hac8 20. h3 Rf6 21.
Rd2c4!
Þessi leikur væri ekki inni í
myndinni ef hvítur væri tilbúinn
að stökkva með riddara sinn á d4.
22. a4 He6! 23. Hc2
Svarið við 23. Rf3 yrði 23. - Re4
ásamt 24. - Hf6 sem festir riddar-
ann a.m.k. tímabundið. Þetta kom
þó til greina og eins 23. g3 Hce8 24.
Kh2 (ekki 24. Bg2? vegna 24. -
Hxe3!).
23. - Hce8 24. Rf3 Re4 25. Dal HfB
26. Hd4??
Afleikur af einföldustu gerð.
8 1 &
7 111 i 1 á
6 m I k
5 á A 1
4 A 3 ÍÍIIÍ i I 4 A A
2 S A A
ABCDE FGH
26. - Hxf3! 27. gxf3 Dg6+ 28. Bg2
Ef 28. Khl Rg3+ 29. fxg3 Dxc2
með vinningsstöðu og 28. Kh2 er
svarað á sama hátt og í skákinni.
28. - Rg5 29. Hcl Rxf3 + 30. Kfl Rh2+
31. Kgl Rf3+ 32. Kfl Rxd4 33. Dxd4
Df5
Svartur á yfirburðastöðu en Tim-
man flýtir fyrir ósigrinum með því
að halda áfram að tefla veikt.
34. Kgl(?) He5 35. Da7(?) Dc8 36. Kfl
Hg5 37. Dd4 Df5 38. f4 Hg6 39. KÍ2
Kh7 40. Hdl Dc2+ 41. Hd2 Dxa4 42.
b6 Db4 43. Hb2 De7 44. Ha2 Dh4 +
- Og Timman gafst upp.
Að tafli hjá
Hemma Gunn
Á morgun, sunnudag, verður
sjónvarpað beint frá úrslitaeinvigi
Landsbanka - Visa mótsins, at-
skákmóts íslands, og hefst útsend-
ing kl. 14. Hermann Gunnarsson
mun stýra dagskránni og verður
þar vafalítið bryddað upp á ýmsu
spaugilegu eins og honum einum
er lagiö.
í úrslitakeppninni tóku 16 skák-
menn þátt en fyrsta umferð hennar
var tefld í gærkvöldi. Tefldar eru
tvær 30 minútna skákir en standi
leikar þá jafnir eru tefldar 10 mín-
útna skákir þar til annar liggur í
valnum.
Keppendalistinn lítur þannig út:
1. Jóhann Hjartarson
2. Margeir Pétursson
3. Jón L. Árnason
4. Helgi Ólafsson
5. Hannes Hflfar Stefánsson
6. Friðrik Ólafsson
7. Karl Þorsteins
8. Héðinn Steingrímsson
9. Helgi Áss Grétarsson
10. Gylfi Þórhallsson
11. Ágúst Sindri Karlsson
12. Arnar Þorsteinsson
13. Áskell Öm Kárason
14. Bragi Halldórsson
15. Siguijón Sigurbjömsson
16. Hrannar Baldursson
Teflt er eftir svonefndu Wimble-
don-kerfi, sem skákmenn hafa
fengið að láni frá samnefndu tenn-
ismóti. í fyrstu umferð teflir rás-
númer 1 við 16, 2 við 15 o.s.frv. og
sami háttur er hafður á til loka. í
2. umferð teflir númer 1 því við
númer 8,2 við 7 o.s.frv. Verði óvænt
úrslit og keppandi sem aftar er í
röðinni vinnur þann sem framar
er, tekur hann númer hans.
Mótinu verður fram haldið í Faxa-
feni 12 í dag kl. 14 og tefldar tvær
umferðir. Þá kemur í ljós hveijir
munu heyja einvigið í sjónvarpssal
á mprgun. Núverandi atskákmeist-
ari íslands er Karl Þorsteins.