Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Blaðsíða 50
LAUGARDAGUR 16. JANtJAR 1993.
Afmæli
Sigurður Jóhannsson
Sigurður Jóhannsson, mat-
reiðslumaður og bakarameistari,
Amarhrauni 4, Hafnarfirði, verður
fimmtugur á mánudaginn.
Starfsferill
Sigurður fæddist í Hafnarfirði og
ólst þar upp. Hann stundaði nám í
Flensborg en lærði svo bakaraiðn
hjá Jóni Snorra Guðmundssyni í
Snorrabakaríi og lauk sveinsprófi
frá Iðnskóla Hafnarfjarðar 1965.
Næstu tvo vetur nam Sigurður í
Matsveina- og veitingaþjónaskólan-
um og lauk þaðan prófi 1967.
Sigurður var lengi á sjó, við síld-
veiðar, loðnuveiðar o.fl. Arið 1976
flutti hann svo til Blönduóss þar
sem hann bjó næstu átta árin. Þar
starfaði hann í tvö ár hjá Þorsteini
Húnfjörð í brauðgerðinni Krútt og
svo í nær sex ár hjá Sölufélagi Aust-
ur-Húnavatnssýslu. Fyrst rak hann
mötuneyti félagsins og síðan var
hann hótelsfjóri Hótel Blönduóss.
Árið 1984 flutti Sigurður aftur í
Hafnarfjörð og fór til sjós á kaup-
skipum, fyrst hjá skipafélaginu Ok
og svo hjá Eimskip, síðast á ms.
Selfossi.
Um síðustu áramót hóf Sigurður
svo að starfa við hafnarvörslu hjá
Hafnarfjarðarbæ þar sem hann
starfarídag.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 6.10.1962 Huldu
Dóru Jóhannsdóttur, f. 25.11.1943,
bókaverði í Bókasafni Hafnarfjarö-
ar. Hún er dóttir Jóhanns Ágústs-
sonar, rakarameistaraí Kópavogi,
og Kristjönu Sveinbjamardóttur.
Böm Sigurðar og Huldu em:
Steinþóra, f. 1961, hárgreiðslumeist-
ari, gift Ásmundi Ingvarssyni, f.
1960, verkfræöingi, þau búa í
Reykjavík og eiga Ingvar, f. 1988, og
Emmu, f. 1990; Bryndís, f. 1962, hús-
móðir, gift Þresti Ingvarssyni, f.
1963, sjómanni, þau búa í Hafnar-
firði og eiga Sigurð Þór, f. 1989, og
Ingvar, f. 1992. Fyrir átti Bryndís
Huldu Dóru Eysteinsdóttur, f. 1981,
og Helgu Þóru Eysteinsdóttur, f.
1984; og Jóhann Páll, f. 1972, starfar
hjá Skipasmíðastöðinni Dröfn í
Hafnarfirði, býr í heimahúsum.
Systkini Sigurðar eru: Halldóra,
f. 1944, handavinnuleiðbeinandi
eldri borgara í Hafnarfirði, gift Ein-
ari Gíslasyni kennara og eiga þau
þijár dætur og þrjú barnabörn; El-
ínborg, f. 1951, sjúkraliði á Hrafnistu
í Hafnarfirði, gift Oddi Helga Odds-
syni, trésmíðameistara hjá Álftár-
ósi, og eiga þau þrjú böm; og Jóhann
Þórir, f. 1954, rafeindavirki hjá Ör-
tölvutækni, kvæntur Ragnheiði
Kristjánsdóttur, og eiga þauíjögur
börn.
Foreldrar Sigurðar eru Jóhann
Lámsson, f. 1920 í Gröf í Eyrar-
sveit, múrarameistari, og Steinþóra
Guðlaugsdóttir, f. 1924 í Hafnarfirði,
húsmóðir. Þau búa í Hafnarfirði.
Ætt
Jóhann var sonur Lárusar, út-
vegsb. og síöar verkamanns í Gröf,
Jónssonar, skipstjóra og b. að Ósi á
Skógarströnd, Lárussonar og k.h.,
Helgu Gróu Sigurðardóttur Hjalta-
lín frá Stóru-Ásgeirsá, Þorkels-
hólshr., V-Hún. Kona Lámsar var
Halldóra ljósmóðir Jóhannsdóttir,
b. og smiðs, Pumpu og Kvemá á
Skerðingsstöðum, Dagssonar, út-
vegsb. í Eyrarsveit, Þórarinssonar.
Móöir Halldóm var Halla, ljós-
móöir frá Hallbjamareyri, Jónat-
ansdóttir, b. Mýrum og síðar Vind-
ási, Jónssonar og k.h., Halldóru
Daníelsdóttur, b. Haukabrekku,
Skógarströnd, Sigurðssonar.
Steinþóra er dóttir Guðlaugs frá
Haugshúsum á Álftanesi, Gunn-
laugssonar af Álftanesi, Jónssonar
og k.h., Jakobínu Þorsteinsdóttur
frá Haugshúsum. Foreldrar Jakob-
ínu vom Þorsteinn Jónsson, Jóns-
sonar og Kristín Guðmundsdóttir
frá Húsafelh, Jakobssonar og k.h.,
Álfheiðar Ásgrímsdóttur.
Móðir Steinþóm var Jóhanna Sig-
Sigurður Jóhannsson.
urðardóttir, b. Hvammi í Skorradal,
Jóhannessonar b. Beinakeldu,
Björnssonar, Þorvaldssonar og k.h.
Sigurbjargar Jömndsdóttur,
Björnssonar. Kona Siguröar Jó-
hannessonar var Guðríður Jóns-
dóttir, Þorsteinssonar, Jónssonar og
k.h. Guðríðar Jónsdóttur.
Sigurður tekur á móti gestum í
Haukahúsinu við Flatahraun í dag,
laugardag, eftir kl. 20.
Sviðsljós
Shelley Long og Corbin Bernsen leika bankastjóra í Sæðisbanka.
Laugarásbíó - Krakkar í kuldanum: ★★
Græðgi og
glasaböm
Frozen Assets er nokkuö fyndin gamanmynd um
framagjaman framkvæmdastjóra (Corbin Bemsen),
sem heldur til smábæjar í Oregon til aö taka við banka-
stjórastöðu í því sem hann veit ekki að er sæðis-
banki. Víkjandi bankastjóri er hörkuduglegur læknir
(Shelley Long) sem hefur meiri áhuga á að gleðja bam-
laus hjón en græða peninga. Samband þeirra byriar
að sjálfsögðu mjög illa.
Handritið er dæmigerð vitleysis-kómedía en það er
meira um góðar hugmyndir en slæmar. Þónokkrir
brandarar laumast aftan að áhorfandanum en húmor-
inn er mestur í kringum tilstandið í sæðisbankanum
og keppnina „Foli ársins 1992“ sem bankastjórinn held-
ur til þess að auka innlegg í bankann en sá vinniu- sem
er með mest af litlu halafrumunum.
Bemsen og Long em bæði frambærilegir gamanleik-
arar en ástarsaga þeirra er frekar klén. Persónur
þeirra vom bestar hvor í sínu lagi.
Sviðsgrínistinn Larry Miller stelur senunni sem
snarklikkaður gaur sem vingast við bankastjórann og
fær vinnu þjá honum. Menn muna kannski eftir Mill-
er sem verslunarstjóranum í Pretty Woman sem var
sífellt að spyija Richard Gere hvað hann ætlaði sér
að eyða miklu. Hann fær miklu stærra hlutverk hérna
og nýtir sér það til hins ýtrasta.
Því miður heldur myndin ekki uppi dampi til enda-
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
loka heldur leiðist út í dæmigerðan ofurgleðilegan
amerískan endi. Það breytti þó ekki því að myndin
var dágóð skemmtun.
Þess má til gamans geta að keppni um „Fola árs-
ins“ var haldin í alvöm vestra í haust til að auglýsa
upp myndina og vakti upp mikla og almenna hneyksl-
an, nokkuð sem kemur sér alltaf vel fyrir bíó.
Frozen Assets (Band. 1992) 93 min.
Handrit: Don Klein, Tom Kartozian.
Leikstjórn: George Miller (Man from Snowy Rlver).
Leikarar: Shelley Long (Don’t Tell Her It's Me), Corbin Berns-
en (Major League), Larry Miller (Pretty Woman), Doody Good-
man, Matt Clark.
Merming
90 ára 60ára
Steingrímur Sigurðsson, Vigfús Dagnýsson,
Skólabrú 2, Höfti í Hornafirði. Lindargötu 60, Reykjavík.
80 ára Sighvatur A. Karlsson, Berjarima 1, Reykjavík. Hilmar Guðbrandsson, — Hraunbæ 132, Reykjavík. Jcns Líndal Bjarnason, Blikahólum 8. Revkiavík.
Stefán Þórarinsson, Eyrarvegi 7, Akureyri. —
Gunnar Valgeirsson, Rfl ára
Hrísateigi 24, Reykjavik.
Þorkell Sigurðsson, HuldaElma Guðmundsdóttir,
Kleppsvegi 2, Reykjavík. Mýrargötu 27, Neskaupstað.
Jón Guðmundur Jónsson, Kristin Þorsteinsdóttir,
Reynimel 74, Reykjavík. Brekkustíg 5, Bakkafirði.
75 ára 40 ára Finnur Egilsson,
Magnús Guðmundsson, Víðihlíð 31, Reykjavík.
Stóragerði 8, Reykjavik. Strandgötu 40, Neskaupstað.
70ára Haraldur Hermannsson, Háaleitisbraut 47, ReyKjavík. Þórir Steindór Njálsson, Nesbala 100, Seltjarnarnesi.
Ingi Lúðvík Þórisson,
Elsa Bjarnason, Stóragerði 38, Reykjavik. Jón Pétur Jónsson,
Hörgsdal 1, SkaftárhreppL Beykihlíö 31, Reykjavík.
Mick Jagger og Jerry Hall fengu sér að borða á Inter-Continental hótelinu
í London fyrir skömmu. Eftir því var tekið sérstaklega að þau voru alger-
lega til friðs og fúkyrði siðustu mánaða voru gleymd og grafin. Jerry er
því greinilega búin að fyrirgefa Jagger heimsóknir hans til ítölsku fyrirsæt-
unnar Cörlu Bruni en hversu lengi rokkarinn heldur sig á mottunni er önn-
ur saga.