Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Page 51
LAUGARDAGUR 16. JANOAR 1993.
59
Afmæli
Ásgeir Guðmundsson
Ásgeir Guömundsson, forstjóri
Námsgagnastofnunar, Einarsnesi
30, Reykjavík, er sextugur í dag.
Starfsferill
Ásgeir fæddist að Hvanneyri í
Borgarfirði. Hann lauk kennara-
prófi frá Kennaraskóla íslands 1952
og frá íþróttakennaraskóla íslands
1953, stundaði nám í uppeldis- og
kennslufræði við Kennaraháskól-
ann í Kaupmannahöfn 1955-56 og
við Kennaraháskólann í Stokk-
hólmi 1964-65. Auk þess hefur hann
setið fjölda námskeiða og fariö
námsferðir m.a. til Bretlands,
Bandaríkjanna, Danmerkur, Nor-
egs, Svíþjóðar og Skotlands.
Ásgeir var kennari vö Laugarnes-
skólann í Reykjavík 1953-60, yfir-
kennari Hlíðaskóla í Reykjavik
1961-69 og skólastjóri þar 1969-80,
forstöðumaður Kennslufræðideild-
ar Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur
1972-74 og forstjóri Námsgagna-
stofnunarfrál980.
Ásgeir sat í barnaheimila- og leik-
vallanefnd Reykjavíkur 1956-70, var
formaður stjórnar Bamavinafélags-
ins Sumargjafar 1962-74, einn af
stofnendum félagsins Kennslutækni
1968 og formaður þess fyrstu árin,
formaður Fimleikasambands ís-
lands 1970-77, formaður Félags
skólastjóra og yfirkennara á grunn-
skólastigi 1976-81 og sat um tíma í
stjórn Félags forstöðumanna í ríkis-
stofnunum.
Fjölskylda
Ásgeir kvæntist 19.9.1953 Sigríði
Jónsdóttur, f. 20.8.1933, kennara og
námsstjóra í menntamálaráðuneyt-
inu. Foreldrar hennar voru Jón
Loftsson stórkaupmaöur, sem lést
1958, og Brynhildur Þórarinsdóttir.
Börn Ásgeirs og Sigríðar eru
Brynhildur, f. 5.12.1954, kennari,
gift Þorsteini Guðnasyni hagfræð-
ingi og eiga þau þrjú börn, Sigríði
Söru, Guðna Þór og Hildi; Ingibjörg,
f. 25.4.1958, kennari, gift Guðmundi
Ásgeiri Geirssyni kaupmanni og eru
böm þeirra Ásta og Ásgeir; Mar-
grét, f. 15.11.1966, námsmaður, gift
Agnari Birgi Óskarssyni fulltrúa og
er sonur þeirra Gunnar Smári.
Systkini Ásgeirs: Jón Ólafur, f.
10.11.1927, nú látinn, deildarstjóri
bútæknideildar við Hvanneyri, var
kvæntur Sigurborgu Ágústu Jóns-
dóttur; Sigurður R. Guðmundsson,
f. 6.7.1930, fyrrv. skólastjóri Heiðar-
skóla, kvæntur Katrínu Árnadótt-
ur; Sólveig Gyða, f. 17.7.1946, hús-
móöir, gift Gunnari Ólafssyni.
Foreldrar Ásgeirs voru Guðmund-
ur Jónsson, f. 2.3.1902, fyrrv. skóla-
stjóri á Hvanneyri, og kona hans,
Ragnhildur María Ólafsdóttir, f.
16.2.1896, d. 1980, húsmóður.
Ætt
Meðal foðurbræðra Ásgeirs eru
Jónas, fyrrv. fræðslustjóri, faðir
Ögmundar, formanns BSRB og
Björn, veðurfræðingur og læknir,
faöir Guðmundar verkfræðings.
Guðmundur er sonur Jóns, b. á
Torfalæk á Ásum, hálfbróður Páls
Kolka læknis. Jón var sonur Guð-
mundar, b. á Torfalæk, bróður Sig-
fúsar, langafa Ingimundar Sigfús-
sonar í Heklu. Guðmundur var son-
ur Guðmundar, b. í Nípukoti, Jóns-
sonar, bróður Sveins, langafa Guö-
mundar Bjömssonar, læknapró-
fessors. Móðir Jóns var Sigurlaug
Jónsdóttir, b. á Sauðanesi, Sveins-
sonar.
Móðir Guðmundar skólastjóra var
Ingibjörg, systir Guðmundar land-
læknis. Ingibjörg var dóttir Bjöms,
b. á Marðarnúpi í Vatnsdal, Guð-
mundssonar. Móðir Bjöms var Guð-
rún Sigfúsdóttir Bergmanns, b. á
Þorkelshóli, ættfoður Bergmanns-
ættarinnar. Móðir Ingibjargar var
Þorbjörg Helgadóttir, systir Sigurð-
ar, afa Sigurðar Nordal.
Meðal móðursystkina Ásgeirs:
Jón, hrl. og forstjóri Andvöku, Sig-
urrós og Elínborg, húsmæður í
Reykjavík. Ragnhildur var dóttir
Ólafs, b. í Brimnesgerði í Fáskrúðs-
firði, Finnbogasonar, b.jjar Jóns-
sonar. Móðir Ólafs var Olöf Ás-
mundsdóttir, b. á Borg, Indriðason-
Ásgeir Guðmundsson.
ar, bróður Ólafs, prófasts og skálds
á Kolfreyjustað, föður Jóns ritstjóra
og Páls skálds. Móðir Ólafar var
Sigríöur Finnbogadóttir.
Móðir Ragnhildar Maríu var Ingi-
björg Sigríður Bjamadóttir, bók-
bindara á Eskifiröi, Ásmundssonar,
og Sigríðar Ásmundsdóttur, systur
Indriöa, afa Gísla í Skógargerði, fóð-
ur Indriða cand. mag., fóður Emu
fréttamanns. Systir Sigríðar var Ól-
öfíBrimnesgerði.
Ásgeir og Sigríður taka á móti
gestum í Félagsheimilinu á Seltjarn-
amesi kl. 19.00 í dag, laugardag.
Friðrik Ingólfur Helgason
Friðrik Ingólfur Helgason, fyrrv.
verslunarmaður, Dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi, verður áttræður á
morgun, sunnudag.
Starfsferill
Ingólfur fæddist að Kverngrjóti í
Saurbæ, Dalasýslu, en ólst upp í
Gautsdal í A-Baröastrandarsýslu.
Ingólfur stundaði nám í héraðs-
skólanum að Núpi í Dýrafirði í tvo
vetur, gerðist svo bóndi í Gautsdal
og stundaði þar búskap næstu tutt-
ugu árin.
Áriö 1959 fluttist hann síðan til
Akraness og gerðist verslunarmað-
ur, fyrst hjá HB & Co og síðan hjá
Málningarþjónustunni þar sem
hann starfaöi þar til hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir.
Fjölskylda
Ingólfur kvæntist 17.6.1939 Ólafíu
Elísabetu Guðjónsdóttur, f. 28.10.
1911, húsmóður. Hún er dóttir Guð-
jóns M. Ólafssonar, f. 4.6.1888, d.
1970, og Margrétar Gísladóttur, f.
7.10.1879, d. 1966, húsmóður. Þau
bjuggu að Þórustöðum í Bitrufirði.
Synir Ingólfs eru: Helgi, f. 30.10.
1941, rafvirki á Akranesi, kvæntur
Sigríði Gróu Kristjánsdóttur, f. 4.10.
1943, sjúkraliða, og eiga þau Krist-
ján, f. 20.6.1962, Ólafíu Margréti, f.
27.2.1965, Og Ingólf, f. 4.10.1967; Og
Maggi Guðjón, f. 30.5.1949, trésmið-
ur á Akranesi, kvæntur Sigrúnu
Valgarðsdóttur, f. 9.5.1949, hjúkrun-
arfræðingi, og eiga þau Björn Val,
f. 18.8.1976, og Amþór Snæ, f. 19.1.
1980.
Fóstursonur Ingólfs og Ólafíu er
Hiörtur Ágúst Magnússon, f. 4.8.
1939, trésmiður í Reykjavík, kvænt-
ur Sigurlín Jónu Sigurðardóttur, f.
11.5.1943, umsjónarmanni, og eiga
þau Ingu Kolbrúnu, f. 18.7.1966, og
Sigurð Ágúst, f. 21.7.1969. Bama-
barnaböm Ingólfs em fjögur talsins.
Ingólfur átti fimm alsýstkini.
Tveir bræður em á lífi í dag. Systk-
inin era: Sigrún, f. 1898, nú látin;
Ólafur, f. 1903, búsettur í Hafnar-
firði; Karl, f. 1904, nú látinn; Björn,
f. 1910, nú látinn; og Helgi, f. 1914,
búsettur á Blönduósi. Hálfsystir
Friðrik Ingólfur Helgason.
Ingólfs, samfeðra, er Margrét, f.
1915, búsett á Selfossi.
Foreldarar Ingólfs voru Helgi
Helgason, f. 21.11.1871, d. 1945, b. í
Gautsdal, og Ingibjörg Friðriksdótt-
ir, f. 30.6.1874, d. 1967, húsmóðir.
Ingólfur tekur á móti gestum á
heimili sonar síns og tengdadóttur,
Brekkubraut 7 á Akranesi, á milli
kl. 14 og 18 á afmælisdaginn.
Sviðsljós
Margrét að útskýra verk sin fyrir Ásdisi, t.v., og Harpa Rut og Karólína Thor að grandskoða eitt verk-
Helgu, t.h., en dóttir listamannsins, Berglind, hafði anna. DV-myndirÞÖK
öllu meiri áhuga á Ijósmyndaranum.
GalleríÚmbra:
Blönduð tækni
Margrét Birgisdóttir sýnir blandaðri tækni. er fyrsta einkasýning hennar en
myndverk í Gallerí Úmbm um Margrét stundaði nám í Mynd- Margrét hefur áður tekið þátt í
þessar mimdir. Verkin vann lista- lista- og handíðaskóla íslands og samsýningum heima og erlendis.
konan á síðustu tveimur árum með lauk námi úr graíikdeild 1985. Þetta
90 ára
Anna Hansen,
Kleppsvegi 64, Reykjavík.
Ragnhildur EinarsdóHir,
Lönguhlið 3, Reykjavík.
. januar
Árelíus EngilbergHarðarson,
Vesturbergi
124, Reykjayík.
EiginkonaÁr-
elíusarer
SteinunnJóns-
dóttir. Þau taka
ámótigestumí
Félagsheimili
múrara, Síðu-
múla
Reykjavík, á milli kl. 17 og 19 á af-
mælisdaginn.
70 ára
Guðbrandur Loftsson,
Hveravík, Kaldrananeshreppi.
Valdknar Hjartarson,
Njálsbúö, V-Landeyjahreppi.
60 ára
Friðrik Björn Guðmundsson,
Hólmagrund 10, Sauöárkróki.
Jón Vilberg Karisson,
Hala, Djúpárhreppi.
50 ára
Birgir B. Aspar,
Fálkagötu 15, Reykjavík.
Sigriður Friðþjófsdóttir,
Glæsibæ 14. Reykjavík.
Friðrik G. Friðriksson,
Ásvallagötu 19, Reykjavík.
40 ára
Elísabet Andrésdóttir,
Hvolsvegill, Hvolsvelli.
Jón Ingi Theódórsson,
Jöldugróf20, Reykjavik.
Auður I>órey Marinósdóttir,
Hlíðarhjalia 9, KópavogL
EUasGunnarsson,
Sólvallagötu 5, Reykjavík.
Þorsteinn J. Þorsteinsson,
framkvæmda-
stj. ogforni.
knattspyrnu-
doildar FyJkis í
Reykjavík,
Hraunbæ88,
Reykjavlk.
EiginkonaÞor-
steins er
Sigríður Hafdís Þórðardóttir for-
stöðumaöur. Þau taka á móti gest-
um í dag, laugardag, í FRAM-
heimilinu á milli kl. 17 og20.
Heiga K. Vilhjálmsdóttir,
GmndargarðiS, Husavlk.
Baldur Guðni Jónsson,
Hraunási 5, Hellissandi.
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum skorar hér með á gjald-
endur, sem hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti til og
með 40. tímabili með eindaga 5. desember 1992, og stað-
greiðslu til og með 11. tímabili, með eindaga 15. desemb-
er 1992, ásamt gjaldföllnum og ógreiddum staðgreiðslu-
og virðisaukaskattshækkunum, að greiða þau nú þegar
og ekki síðar en innan 15 daga frá dagsetningu áskorðun-
ar þessarar.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum
eftirstöðvum gjaldanna að liðnum 15 dögum frá dagsetn-
ingu áskorunar þessarar.
Vestmannaeyjum, 14. janúar 1993.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
(