Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Page 53
LAUGAKDAGUR 16. JANÚAR 1993.
Úr Útlendingnum.
Útlendingur-
inn á Akureyri
Leikfélag Akureyrar sýnir nú
leikritiö Útlendinginn eftir
Bandaríkjamanninn Larry Shue.
Verkið þykir í senn spennandi
og gamansamt en það íjallar um
Bretann Charlie sem ferðast til
Bandaríkjanna og finnst þægilegt
að vera álitinn útlendingur sem
Leikhús
ekkert skilur. Þá er hann látinn
í friði og því er hann ekkert að
flíka enskukunnáttunni.
Larry Shue fékk hugmyndina
að verkinu þegar hann var á
ferðalagi um Japan en þar sá
hann að hann komst upp með
ýmislegt í því landi aðeins vegna
þess að hann var útlendingur.
Útlendingar eru jú alltaf skrítnir
og verða það alltaf. Þeir þekkja
ekki landið, tungumálið, fólkið
eða siðina.
Það er Sunna Borg sem leik-
stýrir en þýðingu gerði Böðvar
Guðmundsson. Með helstu hlut-
verk fara Aðalsteinn Bergdal,
Þráinn Karlsson, Sigurveig Jóns-
dóttir, Jón Bjami Guðmundsson,
Bryndís Petra Bragadóttir, Bjöm
Karlsson og Sigurþór Albert
Heimisson.
Sýningar í kvöld
My Fair Lady. Þjóðleikhúsið.
Drög að svínasteik. Smíðaverk-
stæðið.
Ríta gengur menntaveginn. Þjóð-
leikhúsið.
Heima hjá ömmu. Borgarleikhús-
iö.
Platanov. Borgarleikhúsið.
Vanja ffændi. Borgarleikhúsiö.
Hræðileg hamingja. Hafnarhús-
iö.
Útlendingurinn. Leikfélag Akur-
eyrar.
Ráðvið
timbur-
mönn-
um
Ef menn em helteknir af sekt
og vilja refsa sjálfum sér eftir
fyllirí er drukkinn einn tvöfaldur
af kínversku hrísgrjónabrenni-
víni en þaö er svo vont að ólík-
legt er aö viðkomandi hafi lyst á
meira áfengi sama dag.
Blessuð veröldin
Saltsíld og egg
Annað gott ráð er að fá sér einn
einfaldan af brennivíni, sem
skvett er í sig, og éta saltsíld á
eftir. Saltið í síldinni vekur þorsta
sem hjálpar til viö að vekja upp
nauðsynlegan þorsta. Einnig er
gott að fá sér einn írskan Guinn-
ess bjór með hráu eggi hrærðu
útí.
Austankaldi
Á höfuöborgarsvæðinu verður suð-
austankaldi eða stinningskaldi og él
í dag. Frost 2 til 5 stig.
Veðrið í dag
Búist er við stormi á Vestfjarða-
miðum, norðausturmiðum, austur-
miðum, suðausturmiðum, norður-
djúpi, austurdjúpi, Færeyjadjúpi og
suðausturdjúpi.
í dag má búast við austan- og suð-
austankalda víða um land með élj-
um, einkum sunnanlands og vestan.
Frost verður á bilinu 0 til 10 stig,
kaldast í innsveitum norðvestan-
lands.
Milli íslands og Noregs er 954 mb.
lægðarmiðja og önnur álíka um 150
km suðaustur af Homafirði, hreyfast
báðar norðaustur. Langt suðsuðvest-
ur í hafi er vaxandi 970 millíbara
lægð sem hreyfist norðaustur og
verður milli íslands og Skotlands í
kvöld.
Veðrið kl. 12 á hádegi í gær
Akureyrí snjókoma -9
EgilsstaOir snjókoma 0
Galtarviti skýjað -2
HjarOames snjókoma 0
Kefla víkurflugvöUur alskýjað -3
Kirkjubæjarklaustur snjókoma 0
Raufarhöfn alskýjað 0
Reykjavík alskýjað -1
Vestmannaeyjar skafrenn- ingur -1
Bergen rigning 4
Helsinki léttskýjað 1
Kaupmannahöfn skýjað 4
Ósló rigning 4
Stokkhólmur skýjað 3
Þórshöfn skýjað 6
Amsterdam rigning 10
Barcelona mistur 13
Berlín skýjað 4
Chicago snjókoma 6
Feneyjar þokumóða 12
Frankfurt skýjað 5
Glasgow haglél 6
Hamborg rigning 9
London rign/súld 12
Lúxemborg skýjað 5
Madríd þokumóða 9
Malaga mistur 15
MaUorca skýjað 15
Montreal snjókoma -12
New York snjókoma 0
Nuuk léttskýjað -6
Orlando alskýjað 14
París skýjað 11
Róm þokumóða 16
Valencia mistur 13
Vín léttskýjað 7
Winnipeg heiðskirt -25
Byggt á gögnum y
frá kl. 15 í gær.
7
Veðrið kl. 12áhádegi
Þaö verður mikiö íjör á Tveim
vinum í kvöld en þá mætir hljóm-
sveitin Vinir Dóra og skemmtir
gestum og gangandi.
Síðasta ár var viöburðaríkt hjá
hljómsveitinni en þá voru teknir
upp Qórir tónlistarþættir íyrir
sjónvarp. Þá fékk hljómsveitin hin
viöurkenndu Clio-verðlaun fyrir
tönlist i auglýsingu fyrir Chicago
Bulls körfuboltaliöið og hljóm-
sveitin var fulltrúi íslands á blús-
hátíð.
Það þarf ekki að efa að þessi virta
hljómsveit á eftir að halda uppi
góðu fjöri i kvöld eins og þeim er
lagið.
Myndgátan
Lausn gátu nr. 525:
Sýnir sinn innri mann
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi
61
Kötturinn Tommi.
Tommi
og Jenni
Regnboginn sýnir nú myndina
Tommi og Jenni mála bæinn
rauðan. Þeir félagar verða heim-
ilislausir og verða því að standa
Bíóíkvöld
saman úti í hinum stóra, vonda
heimi. Þeir kynnast Utlu stúlk-
unni Rósu en foður hennar er
saknað eftir snjóflóð í Tíbet.
Tommi og Jenni hjálpa henni að
leita pabba síns og lenda í miklum
ævintýrum. Tónlistin er eftir
margfaldan óskarsverðlauna-
hafa, Henry Mancini.
Undir forystu Jóns Ólafssonar
hefur Regnboginn verið duglegur
að talsetja bamakvikmyndir.
Tommi hefur rödd Amar Áma-
sonar, Sigrún Edda Bjömsdóttir
lánar Jenna rödd sína og Stein-
unn Ólina Þorsteinsdóttir talar
fyrir Rósu. Af öðrum röddum má
nefna Egil Ólafsson, Ladda og
Sigurð Sigurjónsson.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Forboðin spor
Laugarásbíó: Krakkar í kuldan-
um
Stjömubíó: Heiðursmenn
Regnboginn: Síðasti móhíkaninn
Bíóborgin: Aleinn heima 2
Bíóhöllin: Lífvörðurinn
Saga-bíó: Eilífðardrykkurinn
Gengið
Gengisskráning nr. 9.-15. jan. 1993 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 64,080 64,220 63,590
Pund 98,299 98,513 96,622
Kan. dollar 50,014 50,123 50,378
Dönsk kr. 10,2095 10,2318 10,2930
Norsk kr. 9,3122 9,3325 9,3309
Sænsk kr. 8,8609 8,8802 8,9649
Fi. mark 11,8711 11,8970 12,0442
Fra. franki 11,6551 11,6806 11,6369
Belg. franki 1,9171 1,9213 1,9308
Sviss. franki 43,1501 43,2443 43,8945
HolLgyllini 35,1133 35,1900 35,2690
Vþ. mark 39,4812 39,5675 39,6817
(t. lira 0,04271 0,04281 0,04439
Aust. sch. 5,6100 5,6222 5,6412
Port. escudo 0,4382 0,4391 0,4402
Spá. peseti 0,5558 0,5570 0,5593
Jap. yen 0,50926 0,51037 0,51303
Irskt pund 103,906 104,133 104,742
SDR 88,0389 88,2312 87,8191
ECU 77,4503 77,6195 77,6243
Enska og
annað
sport
í dag verour einn leikur í 1.
deild íslandsmótsins í handknatt-
leik kvenna. Þá mætast hð Fylkis
og Vals í Austurbergi klukkan
16.30. í annarri deild karla mæt-
íþróttir í dag
ast hö Fylkis og ÍH á sama stað
klukkan 15.15.
Bein útsending er frá leik Old-
ham og Blackburn í ensku knatt-
spymunni klukkan 14.55. Bjami
Felixson lýsir leiknum.
2. deild karla:
Fylkir-ÍH kl. 15.15.
1. deild kvenna
Fylkir-Valur kl. 16.30.