Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1993, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1993.
3
Fréttir
Byggðastofnun vill hagkvæmnisúttekt á Amesi:
Stóð fyrir andóf i á hluthafaf undi
- forstjórinn gekk til liðs við Stokkseyringa með hlutabréf ríkisins að vopni
„Vitanlega er þaö stjóm Ámess
sem stýrir. Spumingin stendur hins
vegar um atvinnulffið á Stokkseyri.
Þar er tilbúið stórt og mikið hús sem
getur tekið viö vinnslunni. Nýting
þess gæti verið hagkvæmari og ódýr-
ari heldur en nánast að byggja nýtt
frystihús á Þorlákshöfn," segir Guð-
mundur Malmquist, forstjóri
Byggðastofnunar.
Guðmundur fór með atkvæði
Byggðastofnunar á hluthafafundi
sem stjórn Ámess boðaði til í síðustu
viku. Á fundinum lagðist Guðmund-
ur gegn þeim áformum stjórnar Ár-
ness að leggja niður aUa flskvinnslu
á Stokkseyri og flytja hana tU Þor-
lákshafnar.
AtvinnutryggingadeUd Byggða-
stofnunar á um 21 prósent hlutafjár
í Árbnesi, eða um 92 mUljónir miðað
við sölugengi. Þrátt fyrir andstöðu
og andóf Byggðastofnunar og Stokks-
eyringa samþykkti hluthafafundur-
inn ákvörðun stjómar Ámess með
tveimur þriðju hiuta atkvæða.
Efnt var til fundarins að kröfu
stjómar Byggðastofnunar sem telur
að það stangist á við hluthafasam-
þykkt frá 31. desember 1991 sem allir
helstu hluthafar gerðu með sér. í því
var kveðiö á um að boffiskvinnsla
yrði áfram á Stokkseyri. Stjóm Ár-
ness réttlætir hins vegar ákvörðun
sína með því að hagkvæmast sé að
sameina alla vinnslu í Þorlákshöfn.
Hluthafasamkomulag bindi ekki
hendur stjómar í þvi sambandi.
í kjölfar hluthafafundarins sam-
þykkti stjóm Byggðastofnunar í
fyrradag að fela endurskoðanda að
kanna þau hagkvæmnisrök sem
stjóm Ámess hefur réttlætt ákvörð-
un sína með. Að sögn Guðmundar
Malmquist Uggur ekki fyrir hvemig
stjómin muni bregðast við í fram-
haldinu. Á hinn bóginn bendir hann
á að öU hlutabréf Byggðastofnunar
séu nú til sölu, þar með tatin hluta-
bréfin í Ámesi. -kaa
Loðnan
dreifðog
óveiðanleg
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri;
„Það má segja að það sé búin að
vera bræla á miðunum síðan í lok
nóvember og þetta tíðarfar er með
ólíkindum. Það má segja að það hafi
aldrei náð að slétta sjó á milli þess-
ara lægða,“ segir Bjami Bjarnason,
skipstjóri á loðnubátnum Súlunni
EA-300.
Segja má að engin loðnuveiði hafi
verið það sem af er árinu, aðallega
vegna ótíðarinnar og eins vegna
hegðunar loðnunnar. „Það er engu
líkara en loðnan hafi tekið upp nýtt
hegðunarmynstur, hún er dreifð
norður með allri austurströndinni
og óveiðanleg. Menn telja að þama
sé um talsvert magn að ræða, en það
er reyndar engin leið að segja til um
það,“ segir Bjami.
Hann segir að sennUega verði ekki
hægt að eiga neitt við loðnuna fyrr en
hún kemur alveg upp að landinu, en
það gerist oft um mánaðamótin jan-
úar/febrúar við suðausturhom lands-
ins. „Þá þurfa menn helst að rífa upp
hálfa mifijón tonna á 4-6 vikum og það
er þá eins gott að það verði einhver
tíð til þess. Það er með ótikindum hvað
þetta er búið að vera grautfúlt að und-
anfomu," sagði Bjami.
SigluQöröur:
Margiryfir-
heyrðirvegna
skemmdarverka
Gylfi Kristjánssan, DV, Akuxeyri;
Lögreglan á Siglufirði hefur und-
anfarna daga yfirheyrt um tug
manna vegna endurtekinna
skemmdarverka á bifreið gamals
manns í bænum. Skorin hafa verið í
sundur og eyðUögð 8 dekk undir bif-
reiðinni og eldur borinn að henni
auk þess sem reynt var að kveikja í
bensíntanki.
Gunnar Guðmundsson, yfirlög-
regluþjónn á Siglufirði, segir að lög-
reglan hafi unnið að rannsókn máls-
ins undanfarna daga. „Við emm að
þrengja hringinn um þá menn sem
við höfum fengið vísbendingar um
en ennþá em ekki frekari fréttir af
mátinu," segir Gunnar.
Fyrrum sambýlismaöur:
ættingjanna
Lögreglan í Reykjavík handtók í
fyrradag karlmann fyrir að úða ryð-
vamarefni yfir bU sem ættingjar fyrr-
um sambýliskonu hans eiga.
Maðurinn hefur ítrekað valdiö fyrr-
um sambýUskonu sinni ónæði með
þrálátum símhringingum og hótunar-
bréfum. Konan býr nú hjá foreldrum
sínum og varð heimiUsfólk vart við
ferðir mannsins í nótt þegar hann
óumbeðið ryðvarði bU þess. Lögregl-
an náði manninum. -ból
Tölvur, tölvubúnaður og m.fl. á hlægilegu verði!
HTM 386 tölvur.............. frá kr. 66.995 stgr.m.vsk.
Seagate haröir diskar.... frá kr. 11.980 stgr.m.vsk.
Seikosha tölvuprentarar frá kr. 17.300 stgr.m.vsk.
Genius handskanni................kr. 14.980 stgr.m.vsk
Ricoh faxtæki............... frá kr. 33.900 stgr.m.vsk.
Ricoh Ijósritunarvélar meö allt aö 40%afslætti
CoieFax faxpappír frá kr. 275
Memorex diskettur frá kr. 35
TILBOÐSHORN
200 kr. tilboöshorn
~rr\ 500 kr. tilboðshornj^ í
V L\?50 kr. tilboöshornV * \ J
Utsalan stendur yfir í aöeins eina viku
Ekki sleppa þessu einstaka tækifæri!
SKIPHOLT117 • 105 REYKJAVÍK
SÍMI 91 - 62 73 33 • FAX 91 - 62 86 22
Traust og örugg þjónusta