Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1993, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1993, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1993. 3 Fréttir Einokun Bifreiðaskoðunar fest í sessi með nýrri reglugerð: Strangar reglur sem f áir eða engir geta uppfyllt - segir Jónas Þór Steinarsson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins „Við álítum að hér virðist verið að setja mjög strangar reglur sem fáir eða engir geti uppfyllt og staðlar þeir sem vitnað er tíl, eiga varla við um þessa starfsemi og ekki í samræmi við aðstæður hér á landi. Okkur sýn- ist sem verið sé að gera enn strang- ari kröfur en almennt gerist í Evr- ópulöndum, hvernig sem á því stend- ur,“ sagði Jónas Þór Steinarsson, framkvæmdastjóri Bílgreinasam- bandsins, í samtali við DV. „Eins og þetta mál snýr í dag virð- ist mjög ólíklegt að samkeppni verði um almenna skoðun ökutækja og ekki er ljóst hvert framhald verður á endurskoðun þeirri sem verið hef- ur á verkstæðum nú í mörg ár. Þó að reglugerð um starfshætti þeirra er annast lögboðna skoðun ökutækja hafi verið gefin út 27. apríl á síðasta ári er ekki til staðar nánari útfærsla. Það er ekki búið að stilla þessu raunveruiega upp fyrir þá sem eiga að vinna eftir þessu. Það sem ég hef séð af þeim reglum sem verið er að sníða í nágrannalöndunum eins og Danmörku, Svíþjóð og Hollandi er ekki eins strangt og stefnt er að hér á landi. Mér finnst skrítíð ef við erum að setja okkur strangari staðla en milljónaþjóðir. Orðalag í reglunum, sem gefnar voru út í apríl síðastíiðnum, er mjög loðið. Það stendur meðal annars í þeim að endurskoðun eigi að mestu leyti aö fara eftir þessum stöðlum. Hvernig í ósköpunum á maður að vita hvað „að mestu leyti“ þýðir. Mér sýnist stefna í það að með þessum nýju reglum muni skoðunarstöðum Bifreiðaskoðunar fækka mjög og það er náttúrlega minni þjónusta. Þaö er orðin full þörf á því að nán- ari skilgreining fari að liggja fyrir því reglugerðin gengur í gildi um næstu áramót og nú er komið fram í febrúar. Skemmri getur aðlögunar- tíminn varla verið enda er ekki hægt að hefja aðlögun því ekki er hægt framkvæma það sem engin vitneskja er um hvernig á að framkvæma," sagði Jónas Þór. -ÍS Nánari skilgreining liggur ekki fyrir „Bílgreinasambandið gefur það í skyn að þessi staðall, sem settur hef- ur verið fram hér á landi, eigi ekki við og sé mun strangari en almennt gerist í Evrópu. Ég veit ekki til þess að svo sé en það er þó erfitt fyrir mig að segja um það nákvæmlega þar sem nánari skilgreining á reglunum hggur enn ekki fyrir,“ sagði Guðni Karlsson, fuhtrúi í tæknideild dóms- segir Guðni Karlsson hjá dómsmálaráðuneytinu málaráðuneytisins í samtah við DV. „Miðað við það sem hggur fyrir held ég að það sé enginn vafi að sann- gjarnar og eðlhegar reglur rúmast innan þessa staðals. Lögghdingar- stofan hefur verið aö afla upplýsinga um þessi mál og hún tekur mið af því sem viðgengst annars staðar þar sem svipað kerfi hefur verið sett á fót. LöggUdingarstofan mun þó eðh- lega taka mið af þeim séraðstæðum sem gUda á íslandi. Það hefur mestur tími farið í að afla upplýsinga en væntanlega verður farið að vinna úr þessu mjög fljótlega." - Er sá tími sem nú er eftír þar th reglurnar öðlast gildi ekki of skamm- ur fyrir aðra aðha en Bifreiðaskoðun til undirbúnings? „Ég get hvorki sagt já né nei við þeirri spumingu. Auðvitað er gott að hafa góðan fyrirvara en þeir aöUar vita best um það hvaða tíma þeir þurfa til undirbúnings ef þeir ætla sér aö byrja strax í upphafi næsta árs. Heildarramminn hefur verið gefinn og menn geta tekið mið af honum og gert ýmislegt til undirbún- ings. Þó ekki sé hægt að gera mikið ætti að vera hægt að fara af stað með ýmislegt. Ég væntí þess að Löggild- ingarstofan hraði verkum sínum en ég veit til þess að mikið annríki hefur ríkt hjá þeim undanfarið.“ - Getur ráðuneytið ekki þrýst á LöggUdingarstofuna til að hún hraöi afgreiðslu málsins? „Það gæti vel komið til en við höf- um ekki gert mikið að því enn sem komið er,“ sagði Guðni. -ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.