Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1993, Page 17
16
ÞRIÐ JUDAGUR 9. FEBRÚAR1993
ÞRIÐ JUDAGUR 9. FEBRÚAR1993
17
íþróttir
ÍBV stef nir
í úrslitin
ÍBV er sama og öruggt með
sæti í úrslitakeppni 1. deildar
kvenna í handknattleik eftir sig-
ur á KR í Eyjum á íöstudags-
kvöldið, 19-18. Staðan í deildinni
er þannig:
Víkingur.,.16 15 1 0 337-244 31
Stjarnan....lö 12 0 4 317-235 24
Fram.......16 11 0 5 284-258 22
Valur......16 10 1 5 353-316 21
Selfoss....16 9 1 6 304-297 19
ÍBV........14 8 1 5 281-273 17
Grótta.....16 7 3 6 289-293 17
KR.........16 5 2 9 276-287 12
FH.........15 5 0 10 258-307 10
Ármann....l6 4 1 11 311-330 9
Haukar.....15 1 1 13 230-307 3
Fylkír.....16 1 1 14 259-352 3
-VS
Dregið í
mjólkurbikar
Dregið hefur verið til 1. umferðar
mjólkurbikarkeppninnar í knatt-
spymu í meistaraflokki karla og
kvenna. Þessi lið leika saman í
karlaflokki: Skallagrímur-ÍR,
Reynir S-Grótta, Víðir-Ármann,
Leiknir R-Haukar, Árvakur-BÍ,
Hvatberar-UBK, HB-Þróttur R,
Fjölnir-Grindavík, Njarðvík-
Ægir, Víkingur Ó-Afturelding,
Snæfell-HK, Selfoss-Stjarnan,
Dalvík-Tindastóll, Hvöt-Magni,
Völsungur-Þrymur, Höttur-Þrótt-
ur N, KBS-Austri, Einherji-
Sindri. KA, Leiftur, KS, Huginn
S, Neisti H og Austri R sitja hjá. í
kvennaflokki leika: KS-Dalvík,
ÍBA-Selfoss, Reynir S-Stjaman,
Þróttur N-UBK, Höttur-Sindri,
ÍBV-FH, KR-Valur, Haukar-ÍA.
-GH
Góð byrjun
hjá Reynolds
Butch Reynolds, bandaríski
heimsmethafinn í 400 metra
hlaupi karla, sigraði á tveimur
fyrstu mótum sínum í rúm tvö
ár um helgina en hann er nýkom-
inn úr tveggja ára banni vegna
meintrar lyfjanotkunar. Reyn-
olds sigraði á móti í New York á
fóstudaginn og í Fairfax í Virgin-
íu á sunnudaginn. Þar náöí hann
mjög góðum tíma, 45,89 sekúnd-
um. Reynolds hefur haldiö fram;
sakleysi sínu í lyöamálinu og
heftir átt í miklu stríði við Al-
þjóöa frjálsíþróttasambandið.
Hann hefur kært sambandið sem
á móti hefur hótað honum frekari
refsingum hætti hann ekki við.
Barnesaftur
íenskahópinn
John Bames frá Liverpool, Tre-
vor Steven frá Rangers og Alan
Smith frá Arsenal eru að nýju í
enska landsliðshópnum í knatt-
spyrnu en Graham Taylor valdi
þá í gær fyrir HM-leikinn gegn
San Marino sem fram fer í næstu
viku.
Þeir Alan Shearer, John Salako
og David Hirst detta út úr hópnum
vegna meiðsla og tvísýnt er með
fyrirliðann Stuart Pearce.
Aðrir í hópnum eru Chris Wo-
ods, David Seaman, Lee Dixon,
David Bardsley, Des Walker, Tony
Adams, Gary Pallister, David
Batty, Carlton Palmer, Paul Ince,
Paul Gascoigne, Paul Merson,
Andy Sinton, Nigel Clough, Ian
WrightogLesFerdinand. -VS
Ovæntur sigur hjá
austurrísku stúlkunni
en stórsvigi karla frestað á HM í Japan 1 morgun
Karin Buder frá Austurríki vann
óvæntan sigur í svigi kvenna á
heimsmeistaramótinu í Morioka í
Japan í morgun. Juhe Parisien frá
Bandaríkjunum varð önnur og Elfi
Eder frá Austurríki þriðja.
Annelise Coberger frá Nýja-Sjá-
landi leiddi eftir fyrri ferðina og virt-
ist síðan ömgg með bronsið þegar
henni hlekktist á rétt áður en hún
kom í markið. Þær Vreni Schneider
frá Sviss, Deborah Compagnoni frá
Ítalíu og Anita Wachter frá Austur-
ríki féllu aUar úr keppni, en búist
var við þeim í baráttu um verðlauna-
sætin.
Keppni í stórsvigi karla var frestað
í morgun að lokinni fyrri ferð, vegna
roks, og verður reynt að ljúka henni
í fyrramálið. Kjetil Andre Ámodt frá
Noregi er með góða forystu eftir fyrri
ferðina. Rainer Salzgeber frá Austur-
ríki er annar og Johan Wallner frá
Svíþjóð þriðji.
Tomba veikur
Alberto Tomba, ítalski skíðakóngur-
inn, hefur legið rúmfastur frá þvi
hann kom til Japans, og hann gat
ekki keppt í stórsviginu í morgun.
Tvísýnt er um þátttöku hans í öðmm
greinum á mótinu og eins víst að
hann fljúgi heim á leið áður en vikan
er úti. Hann haíði ætlað sér stóra
hluti á mótinu og stefndi á sín fyrstu
gullverðlaun á HM.
Slæmar aðstæður
Veðrið hefur leikið heimsmeistara-
mótið grátt en fyrst var keppni frest-
að vegna roks og síðan um helgina
vegna mikillar rigningar. Margir
hafa lýst yfir óánægju með val á
keppnisstað, til dæmis Marc Girar-
delli frá Lúxemborg sem segir að
aðstæður þar séu slakar og hæfi ekki
heimsmeistaramóti.
Langþráð gull Noregs
Sigur Lasse Kjus í alpatvíkeppninni
í gær var svo sannarlega langþráður
fyrir Norðmenn. Þeir höíðu ekki
fengið gullverðlaun á heimsmeist-
aramóti í 39 ár, eða síðan Sten Eriks-
en sigraði í svigi og stórsvigi árið
1954.
Norska „draumaliðið"
Lasse Kjus og Kjetil-Andre Ámodt,
norsku gullverðlaunahafamir í alpa-
tvíkeppninni, ganga undir nafninu
„draumaliðið". Ekki þó endilega
vegna árangursins heldur vegna þess
að þeir þykja iðulega úti á þekju og
gleyma oft skónum sínum, hótellykl-
unum og ýmsu öðru. Þeir segjast
hins vegar muna eftir því sem skipt-
ir máli og gleymi aldrei skíðunum,
stöfunum eða skíðaskónum! -VS
Markalaust
Leeds og Man. Utd. gerðu 0-0 jafn-
tefli í ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu á blautum og þungum vellin-
um á Elland Road í Leeds í gær. Le-
eds var betri aðiiinn í leiknum og
minnstu munaði að Lee Chapman
tryggði Leeds sigur á lokamínútunni
en Peter Schmeichel markvörður
United sýndi stórskostleg tilþrif þeg-
ar hann varði skalla Chapmans.
-GH
Lasse Kjus frá Noregi sigraði í alpatvíkeppni í gær, eins og þá kom fram í
DV. Það voru fyrstu gullverðlaun Noregs á HM í 39 ár. Símamynd/Reuter
Gllma:
Ingibergur
bikarhafi
Ingibergm Sigurösson, Ár-
manni, sigraði í bikarglímu
Reykjavíkur sem fram fór í síð-
ustu viku. Annar í gUmunni varð
Jón B. Valsson, KR, og í þriðja
sæti lenti Orri Björnsson, KR.
Vegna góörar þátttöku í fútlorð-
insfiokki varð að skipta þátttak-
endum í tvo riðla. GUmustjóri var
Ólafur Haukur Ölafsson og Kjart-
an Bergmann afhenti verðlaun í
mótslok. -JKS
íþróttaskóli barna
Síðasta námskeið hefst 13. febrúar. Kennt er í Réttar-
holtsskóla. Aldur þátttakenda 3-6 ár. Verð kr. 2.800
námskeiðið. Nánari upplýsingar í símum 33688,
813245 og 673830.
VÍKINGUR
HANDKNATTLEIKSDEILD
Björnhættur
með ÍR-inga
Bjöm Leósson er hættur störf-
um sem þjálfari 1. deildar liðs ÍR
í körfuknattleik eftir ágreining
við stjórn deildarinnar.
Nýr þjálfari hefur ekki verið
ráðinn en samkvæmt heimildum
DV munu ÍR-ingar meðal annars
hafa rætt við Birgi Guðbjömsson,
sem lék lengi með KR og þjálfaði
liðið um tíma.
ÍR berst við ÍS um annað sætið
í B-riðh 1. deildar sem gefur sæti
í úrslitakeppninni.
-VS
Metjöfnun
Á innanfélagsmóti Ármanns í
frjálsum íþróttum jafnaði Hauk-
ur Sigurðsson, Ármanni, íslands-
metið í 50 m hlaupi í flokki 17-18
ára.
Tíminn var 5,8 sekúndur og
greinilegt að þar er á ferðinni
mikið efni og á Haukur eflaust
eftir að láta rrúkið að sér kveða í
framtíðinni. Á sama móti náði
Jón Oddsson að stökkva 7,14
metra í langstökki.
-JKS
Iþróttir
Ewing
með40
stigínótt
Lakers slapp naumlega gegn Dallas
Patrick Ewing var í miklum
ham í nótt þegar New York
Knicks sigraði Philadelphia
76’ers í framlengdum leik í NBA-
deildinni í körfuknattleik. Ewing
skoraöi 40 stig, hans mesta skor
í vetur, og þar af komu tíu stig
þegar mest lá við í framlenging-
unni.
Þetta var fimmti sigur New
York í röð og liöið styrkti enn
stöðu sína á toppi Atlantshafsrið-
ilsins. Greg Anthony skoraði 17
stig fyrir New York og átti 11 stoð-
sendingar og Anthony Mason
skoraði 15 og tók 18 fráköst, sem
er hans besta á ferlinum. Hersey
Hawkins skoraði 26 stig fyrir Six-
ers.
Úrslitin í nótt urðu þessi:
Philadelphia - New York ....115-120
(eftir framlengingu)
Houston - Washington....100-106
Utah - Orlando..........108-96
LA Lakers - Dallas......108-100
(eftir framlengingu)
Karl Malone skoraði 23 stig og
tók 14 fráköst fyrir Utah í góðum
sigri á hinu vaxandi hði Orlando.
Jeff Malone gerði 22 stig og Tyr-
one Corbin 21. Scott Skiles gerði
25 stig fyrir Orlando og Shaquille
O’Neal skoraði 22, tók 11 fráköst
og blokkaði 4 skot.
Washington vann sinn fyrsta
sigur í Houston í fjögur ár og þar
munaði mest um Larry Stewart
sem skoraði 21 stig, öll í síðari
hálfleik. Harvey Grant skoraði
20. Hjá Houston var Kenny Smith
með 30 stig, Pervis Ellison með
19 stig og 14 fráköst, og Hakeem
Olajuwon skoraði 17 stig og tók
11 fráköst.
Dallas var rétt búið að vinna
sinn fyrsta útisigur en tapaði í
framlengingu gegn LA Lakers.
A.C. Green tryggði Lakers sigur
með 6 stigum í framlengingunni
en Byron Scott skoraði mest, 26
stig, James Worthy 20, Green 16
og Sam Perkins skoraði 16 og tók
14 fráköst en hann jafnaði úr víta-
skotum rétt fyrir lok venjulegs
leiktíma. Derek Harper skoraði
23 stig fyrir Dallas sem var tíu
stigum yfir í hálfleik.
-VS
Ólympíudagar æskunnar í skíðaíþróttum:
Berglind varð í 48. sæti
Berglind Bragadóttir, Reykjavík, varð í 48. sæti í stórsvigi stúlkna í gær á ólympíu-
dögum æskunnar í skíðaíþróttum á Ítalíu. Keppendur í sviginu voru 60.
Kolfinna Ingólfsdóttir, ísafirði, keppti einnig en féll úr keppni. Þeir Gísli Már Helga-
son, Ólafsfirði, og Bjarmi Skarphéðinsson, Ólafsfirði, kepptu í gær i svigi pilta
og féllu báðir úr keppni. Auk áðurnefnda skiðafólksins keppa göngumennirnir
Arnar Pálsson og Hlynur Guðmundsson frá ísafirði á mótinu. Á myndinni hér að
ofan eru keppendurnir ásamt farar- og flokksstjórum.
SK/VS - DV-mynd S
Ásgeir í Fylki?
Yfirgnæfandi líkur eru á því að Ásgeir Már Ásgeirsson, knattspyrnumaður í Fram,
skrifi undir samning viö Fylki í kvöld.
Samkvæmt öruggum heimildum DV er búið að ganga frá skiptunum og ekkert
annað eftir en að skrifa undir. Er ekki að efa að Ásgeir mun styrkja lið Fylkis sem
mætir mikið breytt til leiks í 1. deildina í sumar frá 2. deildinni í fyrra. Ásgeir lék
16 leiki af 18 með liði Fram í 1. deildinni í fyrra og skoraði í þeim eitt mark. Hann á
að baki fjóra landsleiki með landshðinu sem skipað er leikmönnum 21 árs og yngri.
Alls hefur Ásgeir Már leikið 31 leik í 1. deild.
Annar Framari gæti verið á leiðinni til Fylkis en Ómar Sigtryggsson, sem lék sex
leiki með Fram í fyrra, hefur verið orðaður við Árbæjarliðið.
-SK
„Vonandi losna
ég af önglinum“
- litlar líkur á að Alfreð Gíslason verði með á HM
Gylfi Kristjánsscm, DV, Akuieyri:
„Það er ýmislegt sem
mæhr á móti þvi að ég
verði með á HM í Svíþjóð.
Ég get ekki farið suður
núna til æfinga með landsliðinu og
verið frá KA-liðinu fram yfir HM
þegar deildarkeppnin byijar hér aft-
ur,“ segir Alfreð Gíslason, þjálfari
og leikmaður KA, um hugsanlega
þátttöku sína á HM í Svíþjóð í næsta
mánuði.
Alfreð kom sem kunnugt er inn í
landsliðið að nýju á Lottó-mótinu í
Noregi á dögunum, og það fór ekki á
milli mála að hann styrkir liðið veru-
Bolvíkingar standa illa að vígi
á botni l. deildar karla í körfu-
knattleik eftir skell á heimavelli,
51-80, í failslag gegn UFA frá
Akureyri um helgina. Banda-
ríKiamaðurinn Richard Clark er
hættur að leika með Bolvíkingum
og er það skarð fyrir skíldi. Þeir
eru aðeins með 2 stig en UFA er
nú með 6 og Höttur 8.
-VS
lega enda hefur hann verið í geysi-
góðu formi að undanfórnu. En hon-
um finnst ekki forsvaranlegt að hann
fari að taka sæti í HM-liðinu.
„Ég sé ekki annað en það séu nógir
menn í mína stöðu í hópnum, Júlíus
Jónasson, Einar Gunnar og Patrek-
irn. Það er vonandi að þetta fari að
smella saman hjá þeim svo ég geti
farið að losna af önglinum."
Þrýstingur á Alfreð
að leika með á HM
Alfreð segir að nokkur þrýstingur sé
á sig að vera með á HM. „En þegar
maður getur ekki tekið þátt í undir-
búningnum þá er fáránlegt að vera
að hugsa um þetta, og það er heldur
ekki sann-
gjarnt gagn-
vart hinum
strákunum að
ég fari að taka
sæti í liðinu.
Það er líka
þannig að
vegna meiðsl-
anna, sem ég á
við að stríða,
þoli ég ekki að
leika dag eftir dag eins og var í Lottó-
keppninni, ég var í heila viku að
jafna mig eför þau átök,“ segir Al-
freð.
Landsliö Dana í handknattleik:
Ole Andersen
hættur störfum
„Eins og hlutirnir hafa gengið fyrir sig undanfarið á mifii leikmanna
landsliðsins og þjálfarans var ekki um annað að gera en að skipta um
þjálfara," sagði Gunnar Knudsen, formaður danska handknattleikssam-
bandsins í gær. Ole Andersen, landsliðsþjálfari Dana, sagði starfi sínu
lausu í gær.
Brotthvarf Andersens kemur á versta tíma þegar aðeins um mánuöur
er þar til HM byrjar í Svíþjóð. Keld Nielsen, aðstoðarmaður Andersens,
tekurviðliðinu. -SK
Handknattleikur:
-íhópiÞorbergs
Þorbergur Aðalsteinsson,
landshðsþjáifari í handknattleik,
valdi í gær 19 manna hóp til loka-
undh-búningsins fyiái' heims-
meistarakeppnina sem hefst i
Svíþjóð 9. mars.
Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir:
Bergsveinn Bergsveínsson, FH
Guðmundur Hrafnkelsson, Val
Signiar Þröstur Óskarsson, ÍBV
Hornamenn:
Gunnar Beinteinsson, FH
Konráð Olavsson. Dortmund
Valdimar Grimsson, Val
Bjarki Sigurðsson, Víkingi
Línumenn:
Geir Sveinsson, Val
Gústaf Bjarnason, Seifossi
Leikstjórnendur:
Gunnar Gunnarsson, Víkingí
Sigurður Bjartuison, Grosswall-
stadt .
Guðjón Árnason, FH
Dagur Sigurðsson, Val
Skyttur:
Héðinn Gilsson, Dusseldorf
Júlíus Jónasson, Paris SG
Einar Gunnar Sigurftsson, Selfossi
Patrekur Jóhannesson, Stjörn-
unni
Sigurður V. Sveinsson, Selfossi
Magnús Sigurösson, Stjörnunni
Frskkíandsferó
Landsiiðið fer til Frakklands í
næstu viku og tekur þar þátt í
flögurra liða móti, ásamt Tékk-
um/Slóvökum, Svisslendingum
og Frökkum. Síðan verður leikið
við Pólveija hér á lairdi 22. og 23.
febrúar og við Dani þrjá leiki
dagana 26.-28. febrúar. Fariö
veröur til Svíþjóðar sunnudaginn
7. mars, tvehnur dögum fyrir
opnunarleik HM, gegn sænsku
heimsmeisturunum 9. mars.