Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1993, Qupperneq 26
26
ÞRIÐJUDAGUR9. FEBRÚAR1993
Fólk í fréttum
Dagur Sigurðsson
Dagur Sigurðsson handknatt-
leiksmaður, Efstasundi 82, Reykja-
vík, átti frábæran leik með félögum
sínum í Val er þeir unnu Selfoss í
úrslitaleik á sunnudaginn var og
urðu þar með bikarmeistarar 1993.
Starfsferill
Dagur fæddist í Reykjavík 3.4.
1973. Hann stundar nám við VÍ. Á
sumrin hefur Dagur stundað sölu-
mennsku, einkum hjá Þýsk-íslenska
oghjáSpörtu.
Dagur hefur æft handknattleik
með Val frá sjö ára aldri. Þá keppti
hann með yngri flokkum Vals í
knattspyrnu og með drengjalands-
liðinu. Hann hefur fimm sinnum
orðið íslandsmeistari með yngri
flokkum Vals í handknattleik, fimm
sinnum Reykjavíkurmeistari og
einu sinni bikarmeistari. Hann leik-
ur nú þriðja keppnistímabilið með
meistaraflokki Vals, varð íslands-
meistari með þeim 1991 og nú
Reykjavíkurmeistari og bikarmeist-
ari.
Dagur hefur leikið sex leiki með
landsliðinu auk fjölda leikja með
drengjalandsliðinu og unglinga-
landshðunum. Hann varð Norður-
landameistari með landsliði átján
ára og yngri, var þá valinn leikmað-
ur mótsins, var valinn leikmaður
meistaraflokks Vals í fyrra og þá
jafnframt valinn efnilegasti leik-
maður íslandsmótsins.
Fjölskylda
Unnusta Dags er Ingibjörg Pálma-
dóttir, f. 21.8.1973, nemi. Hún er
dóttir Pálma Hlöðverssonar, stýri-
manns og kennara í Reykjavík, og
Jónu Guðmundu Helgadóttur
sjúkraliða.
Bræður Dags eru Lárus Sigurðs-
son, f. 21.4.1971, nemi og markmað-
ur meistarflokks Þórs í knatt-
spyrnu, búsettur á Akureyri; Bjarki
Sigurðsson, f. 26.9.1980, nemi i for-
eldrahúsum.
Foreldrar Dags eru Sigurður
Hannes Dagsson, f. 27.9.1944,
íþróttakennari og fyrrv. landsliðs-
markmaður í knattspyrnu, og Ragn-
heiður Lárusdóttir, f. 4.4.1949, sölu-
maður hjá Þýsk-íslenska og fyrrv.
landsliösmaður í handknattleik.
Ætt
Kjörforeldrar Sigurðar: Dagur
Hannesson, jámsmiður í Reykjavík,
frá Hólum í Stokkseyrarhreppi, og
Sigfríður Sigurðardóttir húsmóðir
frá Flatey á Breiðafirði en hún er
látin.
Ragnheiður er systir Kjartans,
forstjóra Ferðaskrifstofu íslands.
Hún er dóttir Lárusar Blöndals,
bóksala í Reykjavík, bróður Kristj-
önu, ömmu Einars Guðmundsson-
ar, handknattleiksmanns hjá Sel-
foss-liðinu. Önnur systir Lárusar
var Kristín, móðir Sigríðar Rögnu
Sigurðardóttur dagskrárgerðar-
stjóra. Lárus var sonur Guðmund-
ar, kaupmanns á Selfossi, Guð-
mundssonar, bóksala á Eyrarbakka,
Guðmundssonar, bókbindara á
Minna-Hofi, Péturssonar. Móðir
Lárusar var Ragnheiður Blöndal,
systir Jóseflnu, ömmu Matthíasar
Johannessen skálds. Bróðir Ragn-
heiðar var Haraldur ljósmyndari,
afi Benedikts hæstaréttardómara og
Halldórs landbúnaðarráðherra.
Ragnheiður var dóttir Lárusar
Blöndals, sýslumanns á Komsá,
Bjömssonar, ættfoður Blöndals-
ættarinnar, Auðunssonar. Móðir
Ragnheiðar var Kristín Ásgeirsdótt-
ir, bókbindara á Lambastöðum,
Finnbogasonar, bróður Jakobs, lan-
gafa Vigdísar forseta. Móðir Kristín-
ar var Sigríður, systir Þuríðar,
langömmu Vigdísar. Sigríður var
dóttir Þorvalds, prests og skálds í
Holti, Böðvarssonar.
Móðir Ragnheiðar er Þórunn,
systir Bimu, móður Júlíusar Haf-
Dagur Sigurðsson.
stein, formanns Íþróttaráðs Reykja-
víkur. Þórunn er dóttir Kjartans,
skrifstofumanns í Reykjavík, Kon-
ráðssonar. Móðir Kjartans var Elín
Zoega, dóttir Jóhönnu Zoega, systur
Geirs Zoöga rektors, afa Geirs Hall-
grímssonar. Móðir Þórunnar var
Áslaug, systir Péturs, foður Njarðar
P. Njarðvík rithöfundar og systir
Indíönu, langömmu Ingva Hrafns
Jónsonar fréttastjóra og Óla Tynes
fréttamanns. Áslaug var dóttir Sig-
urðar Þórðarsonar, verkamanns á
Akureyri.
Afmæli
Þóra Böðvarsdóttir
Þóra Böðvarsdóttir húsmóðir,
Leifsgötu 6, Reykjavík, er 75 ára í
dag.
Starfsferill
Þóra fæddist í Bíldudal en ólst upp
á Bakka í Amarfirði. Hún hefur
búið í Reykjavík frá árinu 1939.
Þóra stundaði nám heima við og
að Núpi í Dýrafirði veturinn
1934-35. Hún hóf störf í miðasölu
Þjóðleikhússins skömmu eftir opn-
un þess 1951 og starfaði þar allt þar
til hún fór á eftirlaun árið 1985, eða
Íein34ár.
Fjölskylda
Þóra giftist 13.1.1940 Ásgeiri
Markúsi Jens Guðmundssyni, f.
28.2.1916, d. 6.5.1950, húsasmíða-
meistara í Reykjavík. Hann var son-
ur Guðmundar Helgasonar, húsa-
smíðameistara í Reykjavík, og Jakó-
bínu Ásgeirsdóttur, húsmóður í
Reykjavík.
Þóra og Ásgeir eignuöust tvö börn,
þau eru: Böðvar Páll, f. 11.2.1941,
húsasmíðameistari í Garðabæ,
kvæntur Grétu Maríu Sigurðardótt-
ur, starfsmanni Menningarstofnun-
ar Bandaríkjanna á íslandi, og eiga
þau Þóra Brynju, líffræðing í Kaup-
mannahöfn, Ásgeir Baldur, húsa-
smíðameistara í Reykjavík, Þórunni
Sif, hárskerameistara í Reykjavík,
og Sigurð Arnar, húsasmið í Lille-
hammer; Jakóbína Ragnheiður, f.
7.8.1943, húsmóðir í Gig Harbor í
Washingtonfylki í Bandaríkjunum,
var gift Russel Duren sölustjóra og
eignaðist með honum Tinu Lor-
raine, nemanda í University of Was-
hington. Seinni maður Jakóbínu er
Kim Hansen kennari.
Þóra átti tvö alsystkini sem nú em
látin. þau eru: Páll, f. 6.12.1919, d.
23.8.1921, og Auöur, f. 19.8.1922, d.
9.5.1982, bókavörður í Reykjavík,
var gift Héðni Finnbogasyni, f. 10.5.
1923, d. 23.2.1985, lögfræðingi í
Reykjavík, frá Hítardal, og eignuð-
ust þau Lilju, kennara í Hafnar-
firði, Bolla, hagfræðing í Reykjavík,
Sverri, f. 1957, d. 1964, Sigríði, kaup-
mann í Reykjavík, og Böðvar, við-
skiptafræðing í Reykjavík.
Foreldrar Þóru voru Böðvar Páls-
son, f. 12.2.1889, d. 20.2.1982, b. á
Bakka í Arnarfiröi og síðar kaupfé-
lagsstjóri í Bíldudal, og Lilja Árna-
dóttir, f. 26.5.1895, d. 8.2.1965, hús-
móðir frá Tjaldanesi í Auðkúlu-
hreppi. Þau bjuggu lengst af á Bakka
í Arnarfirði en síðar á Bíldudal og
í Reykjavík.
Ætt
Föðurætt Þóru var viö Djúp og
nefnd Vatnsfjarðarættin. Foreldrar
Böðvars voru Páll, prófastur á
Þóra Böðvarsdóttir.
Prestsbakka í Hrútafirði, Ólafsson
og Arndís, dóttir Péturs Friðriks-
sonar Eggertz, kaupfélagsstjóra og
b. í Akureyjum á Breiöafirði, Frið-
rikssonar og Jakobínu Pálsdóttur
Melsteð amtmanns, Þórðarsonar.
Séra Páll var af ættum Síðupresta
í beinan karllegg, sonur séra Ölafs
Pálssonar, prests og prófasts í
Vatnsfírði ogfyrrv. dómkirkju-
prests, Pálssonar, prests í Ásum og
í Guttormshaga, Ölafssonar. Kona
séra Ólafs í Vatnsfirði var Guðrún
Ólafsdóttir Stepensen í Viðey Magn-
ússonar.
Þóra dvelur hjá sonardóttur sinni
og alnöfnu í Kaupmannahöfn á af-
mælisdaginn.
Til hamingju með daginn 9. febrúar
90 ára
Sigurfinnur Ketilsson,
Dyrhólum 1, Vik í Mýrdal.
Lydía Kristóbertsdóttir,
Hrafnhólum 2, Reykjavík.
Árbjöm Magnússon,
Svínaskálahliö 5, Eskifirði.
75 ára 40ára
Þóra Böðvarsdóttir,
Leifsgötu 6, Reykjavík.
Oddrún S. Halfdórsdóttir,
Njálsgötu3,
Reykjavík.
Oddrúntekurá
mótigestumí
Ármúla 40,11.
hæö, á milli kl.
17og201augar-
daginn 13. fe-
brúar. _______
Marta Pétursdóttir,
Fjólugötu 19a,Reykjavík.
Einar Astvaldur Jóhan nsson,
Sólvallagötu 40h, Keflavík.
Guðmundur Benediktsson,
Dalsbyggð 15, Garðabæ.
Sigurjón Guðmundsson,
Brekkutanga 17, Mosfellsbæ.
Kristinn Alex Sigurðsson,
Sjávargötu 1, Bessastaöahreppi.
PáiISólnes,
Hjarðarhaga24, Reykjavík.
Garðar Geir Sigurgeirsson,
Hjarðarholti 2, Akranesi.
Benedikt Þórisson,
Furulundi 4f, Akureyri.
Hafdís Þórðardóttir,
Kollslæk, Hálsahreppi.
Jón Haukur Björnsson,
Svínaskálahlið23, Eskifirði.
, Egill Ólafsson,
60 ára Grettisgötu8,Reykjavík.
--------------------------------- Stefón Daníel Franklín,
Einar Skafti Eyleifsson, Efstasundi 46, Reykjavík.
Laugarbraut 25, Akranesi. Simon Már Gissurarson,
Brynjólfur Kristinsson, Brúnalandi 26, Reykjavík.
Furugerði 9, Reykjavík. Gróa Ingólfsdóttir,
Öldugeröi 17, Hvolsvelli.
Sigurður H. Sverrisson,
Jöklatúni 5, Sauöárkróki.
50ára
Guðbjörg Októvía Andersen,
Bröttugötu 8, Vestmannaeyjum,
Sviðsljós
Sjálfsagt myndu fáir karlmenn leggjast gegn
svona klæðaburði kvenþjóðarinnar.
DV-myndir GVA
íslandsmótið í hárgreiðslu og hárskurði:
Fimm klukkustundir að
undirbúa sig fyrir „ball"
- sé farið í klippingu, blástur og líkamsförðun
Flíkurnar voru margar efnislitlar og senni-
lega henta þær ekki mjög vel í íslenskum
vetrarveðrum.
„Þetta var mjög skemmtilegt og tókst í
alla staði vel en við bættum við tveimur
nýjum keppnisgreinum, parakeppni og hug-
arflugi. í svona keppni koma alltaf fram
ýmsir nýir straumar og svo var einnig nú.
Aðsóknin var ágæt en nokkur hundrað
manns komu og skoðuðu það sem nálægt
fimmtíu keppendur höfðu fram að færa,“
sagði Sigurpáll Grímsson, einn dómaranna
á Islandsmótinu í hárgreiðslu og hárskurði
sem var haldið á Hóteli íslandi sl. sunnudag.
Keppnin var tvískipt en meistarar og
sveinar reyndu með sér í kvöldgreiðslu,
mótuðu formi, listrænni útfærslu og tískul-
ínu. Nemar reyndu einnig með sér í tveimur
síðasttöldu greinunum og kvöldgreiðslu
ungu konunnar að auki. I parakeppni og
hugarflugi, sem minnst var á hér að fram-
an, átti förðun, hárgreiðsla og fatnaður aö
vera í samræmi.
Samband hárgreiðslu- og hárskerameist-
ara hélt keppnina j samvinnu við Sveinafé-
lagið og Félag íslenskra snyrtifræðinga en
meðlimir þess síðamefnda vora allt að fjór-
ar klukkustundir að farða sín módel. Til
viðbótar gat tekið liðlega klukkustund að
klippa og blása sama módel og því ljóst að
nærri fimm klukkustundir getur tekið að
undirbúa sig þegar „skroppið" er á ball.