Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1993, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1993, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 26. MARS 1993 Spumingin Ætlarðu á Norrænu kvik- myndahátíðina? Guðfinna Ýr Jónsdóttir: Það getur vel verið. Elísa Henný Siguijónsdóttir: Kannski. Óli Sigurjónsson: Nei, ég æfia ekki en það gæti verið. , Aron Jóhannsson: Nei, ég held ekki. Þaö er ekkert sem freistar. Auður Arndal: Ef ég hef tíma. Ester Ósk Traustadóttir: Nei, mér hafa alitaf þótt norrænar myndir leiðinlegar. Lesendur Veglegt sjó- minjasafn Sjóminjasafn á heima við Reykjavíkurhöfn þar sem það má tengja við störf og verklega kennslu sjómannsefna, að mati bréfritara. Einar Vilhjálmsson skrifar: Fiskveiði- og sighngaþjóðin íslend- ingar eiga ekki sjóminjasafn sem stendur undir nafni. Vakning er um þessar mundir meðal áhugamanna um þjóðminjar. En hugsun þeirra snýst um húsbyggingu en ekki um safnið sjálft. Nóg er af húsum í opin- berri eigu, aðeins spuming um að nýta þau á skynsamiegan hátt. Hinn óhentugi eldspýtustokka-arkitektúr safnahússins er búinn að kosta of fjár. Allir þessir misháu stokkar, hver með sitt sjálfstæða þak, með skeytingu við lóðrétta steinveggi, valda húsleka og steypuskemmdum. Ráð væri að hækka útveggi hliðar- stokkanna og setja meginhúsiö undir eitt þak. Eðlileg lausn á húsnæöisþörf Þjóð- mipjasafnsins fyrir sjó- og tækni- minjar hefði fengist með húsi Slátur- félagsins og efri hæð Faxaskála, auk útisvæðis fyrir hluta safnmunanna. Iistaskólaruglið, sem lyft var á há- skólastig, á heima á Háskólalóðinni, og mætti hýsa það með litlum til- kostnaði í Safnahúsinu. Þarna þarf að hrókera. Sjóminjadeildin á svo hins vegar heima við Reykjavíkur- höfn þar sem tengja má safnið við sportbátahöfn, verklega kennslu sjó- mannaefna og verðandi yfirmenn við nám í Stýrimanna- og Vélskólanum. Þeir sem ljúka grunnskólanámi ættu að þekkja á áttavita og kunna að nota sjó- og landakort til leiðsagn- ar, svo og að stjórna báti. Viöhald og rekstur skólabáts gæti verið hluti námsins. Siðferðileg skylda hvílir á útgerðum, sjómönnum og samtökum þeirra að leggja þessu máh lið. Ekki má gleyma Reykjavíkurhöfn sem er sjálfkjörin fóstra þessa verðandi óskabarns þjóðarinnar. Ekki þarf að efa rausnarleg framlög farskipafé- laganna þar sem fræðsla og verk- mennt, sem safnið og tengd starfsemi veitti, myndi skila sér margfalt í hæfari starfsmönnum til sjós og lands. Lífeyrissjóðsdæmi Guðna Sörensen Sigurður Gunnarsson skrifar: Eg var á heimleið í bílnum og hlust- aði á Þjóðarsálina. Þar var verið að ræða mál sem brennur á launþegum þessa lands, nefnilega lífeyrissjóðina. Lífeyrissj óðsmálin eru svo viðamik- fil þáttur í ömurlegum kjörum eldra fólks og þeirra sem hætta á vinnu- markaðinum að ekki verður lengur við unað. Þar sem ég ók og hlustaði á Þjóðar- sál og þá sem hringdu til að ræða lífeyrismálin og fleira kom skyndi- lega hlustandi sem hafði fréttir að færa. Ég lagði við hlustir. Sá sem hringdi var maður aö nafni Guöni Sörensen, ef ég man rétt. Hann gaf hlustendum dæmi sem hann hafði látið reikna fyrir sig af ábyrgum að- ila. Fullyrti Guðni að ef launþegar hefðu um 45 ára skeið lagt inn á einkareikning í banka með 5% vöxt- um, þar sem bankinn hefði forgöngu um innheimtu þessara 10% sem tfi- skihn eru í lífeyrissjóðagreiðslu, fengju menn, sem hefðu t.d. haft um 70 þúsund meðallaun á tímanum, nú 75 þúsund krónur í mánaðarleg eftir- laun næstu 30 árin. Fleira kom fram í máh manns þessa sem of langt væri að tíunda hér. Hins vegar fullyrti þessi sami maður að fyrirstöðu gegn því að breytingar næðu fram aö ganga væri einungis að finna hjá forsvarsmönn- um launþegafélaga og lífeyrissjóð- anna. En ef þetta dæmi Guðna bygg- ist á réttum forsendum er hér komið mál sem ekki má láta kyrrt hggja. Ég skora á Guðna að láta birta þessa útreikninga sína og á ábyrga aðila að skoða þetta dæmi aö fullu og birta niðurstöðuna ef það mætti verða til þess að koma hfeyrissjóðsmálunum úr þeim ógöngum sem þau sannar- lega eru í. „Örlaganótt yf ir Eystrasaltslöndum" Hólmfríður Jónsdóttir skrifar: Það hefur gerst í hrinum að fjöl- miðlar hafa dottið í gjömingapott þeirra Wiesenthals-manna þar sem gamli, reiði guðinn, sá sami sem krossfesti Frelsarann okkar, eldar haturssúpuna gegn gömlum eist- lenskum hemámsandstæðingi, Eð- vald Hinrikssyni. íslenskir íjölmiðlar virðast nú ekki hafa vfijað fjalla tun mál Eðvaids þannig að hann yrði dæmdur sekur um eitt eða annað, beinlínis fyrir þeirra tfiverknað. Síður en svo. En þeir gæta bara ekki að því að orða- leppamir, sem þeir þrástagast á úr Wiesenthals-skýrslunum, fela í sér - ekki bara sakfelhngu hvar sem þeir birtast - heldur það sem verra er, þeir dæma hvar sem þeir standa sem spuming. Og það skiptir ekki mál hver spyr. Hringiðísíma 63 27 00 milli kl. 14 og 16-eðaskriíið Nafn og slmanr. verður aófylgjabréfum Orðalepparnir dæma hvar sem þeir standa sem spurning, segir m.a. í bréf- inu. „Örlaganótt yfir Eystrasaltslönd- um“ heitir bók gefm út af AB 1955 í íslenskri þýðingu séra Sigurðar Ein- arssonar í Holti. Höfundur bókarinn- ar er Ants Oras, sem var prófessor við háskóla í Dorpat í Eistlandi frá 1934 þar tfi hann flúði til Svíþjóðar á vordögum 1943. (Bókin heitir á ensku „Baltic Echpse" og á sænsku „Slag- skugga över Balticum.) í inngangsorðum um höfund og bók segir þýöandi m.a.: „Þessi bók er engin skemmtisaga. Hún er þvert á móti átakanleg harmsaga. Hún seg- ir frá því hvemig hámenntuð. at- hafnasöm og farsæl smáþjóð verður ofbeldi, svikum og ótrúlegu grimmdaræði að bráö. Vinkona mín sendi mér þessa bók tfi lestrar. Að hennar mati er bókin sýknurit í máh Eðvalds Hinrikssonar í Wiesenthals-máiinu. Að mínu mati ógildir hún ahan málabúnað byggðan ávitnum og skjölum frá þessum tíma, einfaldlega vegna þess að sekt og sak- leysi em ónýt hugtök yfir þann vem- leika sem þama gerðist fyrir 50 árum. - Ég skora á aha þá sem hafa fylgst með umfjöliun um máhð að verða sér úti um bókina oe lesa hana. DV 4000ummiðjandag Einar skrifar: Ég var aö lesa frétt um að sl. þriðjudag hefðu um 4 þúsund manns farið í Bláfjöll til skíðaiðk- ana eða verið á leið upp i flöllin. Ég spyr sjálfan núg hvaðan þetta fólk komi. Hvar starfai- fólkið? Eða er hér um að ræða helming þeirra 8000 sem sagöir era at- vinnulausir? Ég trúi þvi ekki að skólarnir Iiafi gefiö nemendum frí hefian dag til skíðaiðkana. - Og í aðra sálma. Það virðist ekki vera mikil kreppa í landinu um þessar mundir þegar 4 þúsund manns geta henst á skíði á venju- legum vinnudegi og þúsmidir jeppalinga aka um öræfln þver og endfiöng. Eitthvað kostar nú eldsneytið. Eru nokkur sam- dráttareinkenni sjáanleg? Óvinirlaunþega K.S. skrifar: Er hægt að kalla menn, sem koma fram í fjölmiölum og leggja til við stjórnvöld að gengið verði fellt stóriega, sem þýddi kjara- skerðingu, nokkuð annað en óvini launþega í landinu? Það gerðu nýlega formaður LÍÚ og formaður Vinnuveitendasam- bandsins. Þessir höfðingjar, sem eru sagðir hafa í laun nokkur hundruð þúsund á mánuði, vilja aö fólk með 50 til 70 þús. kr. verði enn lækkað í launum þótt ríkis- stjórnin haft nýlega lækkaö laun ahverulega með gengisfelhngu og hærri sköttum. Furðulegt er að þessir menn skuli komast upp með að mála skrattann á vegginn þótt fiskverð lækki um stund. En þetta allt á e.t.v. bara að hræöa almenning tfi hlýðni. Stórsnjöllvið- brögð Kristinn Einarsson skrifar: Það veröur ekki skafið af nú- verandi forsætisráðherra að hann er íljótur að átta sig á að- stæðum, opinskár og talsvert hreinskiptari en margir fyrir- rennarar hans hér. Fyrirspum á Alþingi um með hvaða hætti rík- isstjórnin hygðist svara tillögum aðila vinnumarkaðarins svaraði forsætisráðherra á þann veg að VSÍ teldi að nú þyrfti að skoða allar efnahagsforsendur á nýjan leik áður en það gengi síðasta skrefið í sínum málum. Sagði Davíð að það væru því ekki efni til þess að ríkisstjómin fyrir sitt leyti spfiaði út sínum hugmynd- umfyrr en gmndvallarforsendur væra Ijósari en nú er. - Auðvitað er þetta rétt mat forsætisráð- herra en það er ekki víst að allir sjái að hér eru lika á ferð stór- snjöll. viðbrögö stjómmála- manns. Þingmeitniritir kiknuðu Stjórnarsinni hringdi: Mikið sárnar manni að lesa um að tveir stjórnarþingmenn skuli hafa kiknað undan ábyrgðinni af aö kj ósa í lagasetningu á Heriólfs- deiluna. Ef þetta reynist rétt að þeir Guömundur og Össur hafi látiö sig hverfa úr þingsölum áð- ur en atkvæðagreiösla hófst eru þeir ekki menn tfi að treysta á. Alveg sama hversu defian kann að snerta þá persónulega. - Svona framkoma er einfaldlega óþol- andi. Þar er ég sammála Páli á Höhustöðum. Helga Sigurðardóttir hringdi: Það er furðulegt að happdrætt- isútdrætti, eins og hjá Lottóinu, skuli ætíaöur staður í dagskrá ríkissjónvarps rétt eins og hveriu öðru dagskrárefni. - Auglýsingar um þetta lottó hafa veriö yfir- genpega heimskulegar. Ekki bætir svo Víkingalottóið, svo heimskulega sem það er auglýst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.