Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1993, Page 9
FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993
9
Udönd
Einn maður grunaður um hrottalegt morð á konu 1 Kaupmannahöfh:
Sá lík konunnar en
neitar öllum sökum
- Kaupmannahafnarlögreglan gllmir við 7 óupplýst morð eftir kynferðisglæpi
Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur
handtekiö einn mann grunaðan um
að hafa nauðgað og myrt Ingu Nor-
gaad Jensen, 36 ára gamla einstæða
móður, í borginni um síðustu helgi.
Lík konunnar fannst þá illa útleikið
í skemmtigarði.
Lögreglan segir að ekki fari milh
mála að sjúkur kynferðisglæpamað-
ur hafi verið að verki. Hinn hand-
tekni verður átta daga í gæsluvarð-
haldi en hann neitar öllum sakargift-
um. Hann sást á morðstaðnum en
sannanir skortir fyrir sekt hans.
Þrátt fyrir handtöku mannsins lít-
ur lögreglan svo á að enn sé. málið
óupplýst sem og morð á sex öðrum
konum í borginni á síðustu árum. í
flestum tilvikum hafa kynferðisaf-
brot tengst morðunum og lögregluna
grunar að trúmál komi einnig við
sögu.
011 eru morðin óupplýst en margt
bendir til að sami maður hafi veriö
að verki í öll skiptin og hann geti enn
látið til sín taka nema hinn seki hafi
náðst nú.
É1. Marcela Mieres
Hún var 17 ára, fædd i Chile en bjó
í Ishsj. Hún var kyrkt eftir nauðgun
í Mávagarðinum nóttina fyrir 10.
*7*r tSS Hún var 23 ára gömul vændiskona.
ir * „fli Skorin á háls með eldhúshníf í
íbúð sinni á Norrebro á nýársdag
3. Stine Geisler
Átján ára gömul menntaskólastúlka
sem var pínd með hnífi og síðan
kyrkt í búri veitingastaðar í gömlu
miðborginni þann 21. ágúst 1990.
4. Anette Just Olesen
Hún var 28 ára gömul, ritari að at-
vinnu. Stungin til bana á leiðinni inn
í íbúð sína á Amager þann 21. ágúst
1990.
Miðborgin
Christianshavn
Brondbyern
Amager
Kastrup
5. Lene Buchardt Rasmussen
Kennari, fertug að aidri. Hún var kyrkt
með eigin fatnaði á göngu um Fas-
anaskóginn á Amager 29. ágúst
1990.
6. Rikke Hansen
Hún var 19 ára nemi. Stungin til
bana með oddhvössu verkfæri þann
9. júní 1991. Morðinginn sparkaði upp
hurð á íbúð hennar.
7. Inga Norgaard Jensen
Einstæð móðir, 36 ára að aldri.
Henni var misþyrmt kynferðislega í
kjarri við Strandesplanaden 25. mars
1993.
DV
Færeyjar:
Landstjórninfær
fresttil hádegis
Jens Dalsgaaxd, DV, Færeyjum;
Færeysku verkalýðsfélögin
hafa gefið landstjórnlnxú frest til
hádegis í dag að ákveða hvort
fallið verður frá hugmyndum um
lækkun atvinnuleysisbóta og
hækkun iögjalda.
Hugmyndin er að lækka
greiðslur úr sjóðnum úr 70% af
launum í 60% til að foröa sjóðn-
um frá gjaldþroti. Þetta geta
verkalýðsfélögin ekki sætt sig við
og hóta allsherjarverkfalli ef ekki
verður fallið frá þessum hug-
mynúum. Verkfalliö hefst nú á
miðnætti ef ekki veröur breyting
á afstöðu landstjórnar í dag.
Ingeborg Vinther, formaöur
Alþýðusambandsins, segir að
ástæðulaust sé að verkalýðsfélög-
in skipi menn í stjóm atvinnu-
leysitrygginga því landstjórnin
ætli sér að ráða öllu um reglur
fyrir sjóðinn.
Noregur:
Morðinginní
Tistedal iík-
lega sænskur
Flest bendir nú til að morðinginn,
sem hefur líf fjögurra gamalmenna í
Tistedal í Noregi á samviskunni, sé
sænskur. Upplýst er aö Volvo lang-
bakur, skráður í Svíþjóð, sást við
heimili Pers Röd skömmu áður en
hann hvarf.
Per Röd var síðasta fórnarlamb
morðingjans. Lík Pers var grafið upp
úr garðinum við hús hans nú í vik-
unni. Hans hafði þá verið saknað í
sjö mánuði.
Sama haglabyssan var notuð við
að myrða Per og tvo fullorðna karl-
menn og eina konu í Tistedal á síð-
asta ári. Tahð er að sami maöur hafi
verið að verki í öll skiptin enda var
gengið frá öllum líkunum með sama
hætti.
Morðvopnið er sænsk Husquarna
haglabyssa. Lögreglan er að öðm
leyti engu nær um hver hinn seki er.
NTB
Benidorm - Benidorm
- Aukaferð -
Páskaferd til Benidorm
7. apríl, 16 dagar.
Aóeins 9 vinnudagar.
I/erd frá kr. 50 220
á m ann í tvibýli og kr. 45.220
á maiw, mióaó vió 2 fiillordna
or/ 2 born. 2ja til 15 ára.
Gisting á Los Jazmines
á besta staó vió strondiiia.
stinho eóa ibtidir.
Adeins 4 sæti lans
Benidorm
5 vikna vorferð til Benidorm
Aukaferð 22. apríl
Frábært verð frá kr. 59.300, 2 í íbúð, eða
kr. 56.400 ef ferðin er staðgreidd.
Njóttu vorsins á Spáni
Góðir gististaðir - beint leigufiug - íslensk
fararstjórn - skemmtilegt mannlíf - góðir
veitingastaðir - skoðunarferðir
- Benidorm er fyrir atla
Hafðu samband strax - örfá sæti laus
Föst gjöld: kr. 3.450 f. fullorðna, kr. 2.225 f. börn, 2ja—11 ára
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJA VÍKUR
Aðalstræti 16, sími 621490
rdam
Flug og gisting.
Mögulelki á lengri
dvöl um páskana.
Flug og gisting.
Möguleiki á lengrl
dvöl um páskana.
Flug og gisting.
Möguleiki á lengri
dvöl um páskana.
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn
um allt land, ferðaskrifstofurnar eða f síma 690300
(svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8 -18.)
* Verð á manninn m.v. 2 fullorðna i herbergi. Flugvallarskattar á
íslandi og I því landi sem flogið er til eru innifaldir í verðinu.
Forfallagjald .
FLUGLEIÐIR
Traustur íslenskur ferðafélagi
frá
25.450 l<r.*
2 nætur á
Sheraton Aerogolf
frá 9.4-11.4
frá
32.380 kr
4 nætur á
Hotel Pulítzer.
frá 9.4-13.4
frá
28.720 kr.
2 nætur á
Hotel 71 Nyhavn.
, frá 9.4-11.4