Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1993, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1993, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993 Spumingin Borðar þú páskaegg? Sævar Vídalín Kristjánsson: Já, að minnsta kosti tvö. Þórdís Helga Grétarsdóttir: Já, tvö númer 6. Gunnar Mikael Elmarsson: Já, en ekki stórt. Andri Valur Jónsson: Oftast en ekki þegar ég er megrun. Steinunn Toresdóttir: Já, ég borða Nóa-páskaegg af því að þau eru best. Eva Georgsdóttir: Já, auövitað. Lesendur_________________ Löglegir og „ólög- Ijóskastarar Þessi Ijós eru lifsnauðsynleg fyrir okkur atvinnubílstjóra, segir m.a. í bréfinu. legir" Guðlaugur örn Hjaltason skrifar: Ég er einn þeirra þrælóheppnu flutningabílstjóra sem búa í Húna- þingi. Ekki vegna þess að slæmt sé að búa í Húnavatnssýslum, heldur felst óheppnin í því að lögunum sem gilda um ljósabúnað bíla virðist ein- ungis framfylgt í Húnaþingi. - Löng hefð er fyrir því aö hafa öfluga ljós- kastara fyrir neðan framrúðu flutn- ingabíla eða uppi á toppi. Þessi ljós eru lífsnauðsynleg fyrir okkur at- vinnubílstjóra og aðra vegfarendur. Hvers vegna? Jú, alhr þeir sem ferð- ast úti á landi að vetri til þekkja fyrir- bærið skafrenning sem stendur ekki nema svo sem 60-100 sm frá jörðu. Þetta segir okkur einfaldlega að hin hefðbundnu aðaUjós eru í miðju kóf- inu. Þá koma hin „ólöglegu" ljós til sögunnar og koma sér vel því þau lýsa beint niður á vegstikurnar. Þessi ljós hjálpa okkur til að sjá hvað við erum að fara. - Það er kannski ekki löglegt en bráðnauðsynlegt! Hvergi er meira um hross á vegum en í Húnavatnssýslum, nema ef vera kynni í Skagafirði. Og þá komum við aftur að ljósunum. Með aðstoð þeirra sjáum við skepnurnar fyrr og þannig má koma 1 veg fyrir slys og skemmd- ir á bílum. - Og það er kannski ekki löglegt, en bránauðsynlegt! Þetta veit lögregla landsins (nema í Húnaþingi) og horfir því fram hjá þessari fárán- legu reglugerð. Jepparnir, stórir, dýrir og vel ljós- um búnir eru kallaðir „torfæru- tæki“ og um þá gilda allt aörar regl- ur. Jeppamir mega vera með ljósin hvar sem er. Sem sé; menn sem eru að leika sér mega nota hvaða ljósa- búnað sem er en menn sem eru að vinna eiga helst að nota kertaljós - eða því sem næst. Hinn ofvirki þjónn laganna, sem ég gat um fyrr í bréf- inu, á einmitt svona stórt, dýrt og vel ljósum búið „torfærutæki". Spurningin er nú hvort ég geti skráð bílinn minn t.d. sem „vöruflutninga- torfærutæki" og þannig orðið lögleg- ur með ljósin. Enn er til ein reglugerð og fjallar hún um vinnu- og leitarljós. Ekki er minnst á hvar þessi ljós eiga að vera á bílum. Því get ég sagt að „ólög- legu“ ljósin á mínum bíl séu vinnu- ljós og þar með lögleg. Já, ég er að leita að hrossum. Þannig að hótanir „friðargæsluliðanna" í Húnaþingi um að khppa númer af bílnum mín- um læt ég sem vind um eyru þjóta. - Og með þessum orðum bið ég lög- regluna í Húnaþingi að snúa sér að þarfari verkefnum og sendi þeim bestu kveðjur með von um gott sam- starf í framtíðinni. Kurteisi Keflvíkinga Kristín Halldórsdóttir skrifar: Sunnudaginn 21. mars fór fram í Keflavík körfuboltaleikur milli ÍBK og Skallagríms í Borgamesi. Honum lauk með sigri heimamanna og voru þeir eflaust vel að honum komnir. En eftir á fréttist upp í Borgarnes að ortar voru til þeirra Skallgríms- manna vísur, ef vísur skyldi kalla. Hluta þeirra var sleppt, þegar þær birtust á íþróttasíðu DV 24. mars sl., enda er sá dónaskapur ekki prent- hæfur. - Þessu þótti samt við hæfi að dreifa til áhorfenda í íþróttahús- inu í Keflavík fyrir þennan leik. Manni verður á að hugsa: Er þetta hinn sanni íþróttaandi? Hann er alla- vega ekki svona í Borgarnesi. Annan leik háöu ÍBK og Skallagrímur dag- inn eftir í Borgarnesi. Gestirnir vora boðnir velkomnir, þeim færðar rósir í leikbyrjun og ortur til þeirra vinar- bragur sem reyndar birtist hka ásamt þeim keflvíska í DV. Ég mætti á þennan leik eins og fjöl- margir aðrir Borgnesingar en svo „skemmtilega" vildi til að sæti voru ekki laun nema í návígi við stuðn- ingsmenn ÍBK, sem þeim höfðu fylgt að heiman. Úr þessum hópi heyrðist sá andstygghegi munnsöfnuður með- an á leik stóð að ég hef sjaldan heyrt annan eins og aldrei á leik í Borgar- nesi áður þótt mönnum hitni vel í hamsi á þeim stundum. Þessum leik lauk reyndar með verðskulduðum sigri Skallagríms og það þótti stuðn- ingsmönnum ÍBK greinilega ekki eins gaman. Þegar þetta er ritað er lokið þriðja leik liðanna með sigri Keflvíkinga. Ég óska þeim til hamingju - en stuðn- ingsmönnum þeirra óska ég þess að þeir hætti að verða sér til skammar og leggi af dónaskap við andstæðinga sína. Þeir geta t.d. ýmislegt lært af áhorfendum í Borgamesi og stuðn- ingsmönnum Skallagríms. Burt með ofbeldi og klám í myndefni Páll skrifar: í Bandaríkjunum eru starfandi samtök er nefnast „American Family Association" og hafa þau að undan- fórau eytt himinháum fjárhæðum til auglýsinga, m.a. heilsíðu í hinu þekkta blaði New York Times, til aö mótmæla því ofbeldi sem sýnt er í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum þar vestra. Árangurinn er nú að koma í ljós. Kvikmyndaframleiðend- ur hafa ákveðið að breyta til og draga stórlega úr öhu ofbeldi og klámi í myndum sínum. Skýrslur þar vestra sýndu að u.þ.b. 1,1 milljón stúlkna á aldrinum 15-19 ára verða ófrískar á hveiju ári og 2/3 af öllum börnum þessara stúlkna eru óskflgetin. Vegna ýmissa voðaatburða hér á landi að undanfömu er einmitt tími nú tU að snúa við blaðinu og krefjast þess að einnig á íslandi verði horfið frá að sýna allan þann aragrúa af lélegu myndefni sem flæðir yfir land- ið, bæði í kvikmyndahúsum og sjón- varpi. Með því mætti hugsanlega koma í veg fyrir fleiri stórslys á okk- ar annars efnUegu æsku. DV áskilur sér rétt til að stytta aðsend lesendabréf Það tala allir um að eitthvað verði að gera en enginn eða a.m.k. fáir gera nokkuð sem umtalsvert er. Hvað með Rauða krossinn eða Hjálp- arstofnun kirkjunnar? Hér er verk- efni fyrir þessar stofnanir og ekkert síður en að hafa forgöngu um fata- sendingar t.d. tíl Júgóslavíu, þar sem sendingar komast í hendur óþokk- anna sem valdir eru aö hörmungun- um þar. Það þarf þjóðarvakningu hér á landi um að útrýma ofbeldi og klámi í myndefni sem sýnt er opin- berlega og í sumum tilvikum (eins og í sjónvarpi) þröngvaö inn á fólk sem vUl horfa á allt annað og skemmtUegra eða fræðandi efni. THM HKW TOKK TIMM3. SUNDAY. MAHCH t. mt Shame on movies, records and TV! We Are A GRASSROOTS PETITION TO THE BOARDS OF DIRECTORS OF ENTERTAINMENTINDUSTRY Tell a friend about this ad! Outraged! Help us get one miUion petitions! ( We now have 'l I 803,616 And We’re Not Going To Put Up With It Any Longer! Wc’re • group of motbcr*, f.thcr*, grandpuent* aad othcr dtizcm wbo uc outraged at how today’s movies, TV programa, music videos and records are hurting our children, o«r familie* and our oountry. For example: Wc’re DISMAYED that today 1.1 million girU bntween thc agcs of 15 and 19 get pregnant each year. We’re SHOCKED when we learn that two thirdacfall birtha to 15 and 19-year-old girls are out of wedlock. We’re FRIGHTENED at the way violence and crime are apnading everywhere and threatening our children, our families and our homes. We say it’s time to put the blame wbere we think it belongs: SHAME on the Boards of Directors of music companiea for lctting singen wbo are the idols of our children put out RECORDS and MUSIC VIDEOS which blatantíy encourage acx and ••ay, to our children that aex is proper at any age ... that everyone U 'doing it’ .. . and abstinence is old fashioned. _______ Hér má sjá auglýsinguna úr New York Times sem bréfritari vitnar til. - Við erum ævareiö! segir m.a. I fyrirsögn auglýsingarinnar. Ekkh'verkahring forseta Tómas hringdi: í hádegisfréttum útvarps sl. mánudag var \dtnað í viðtal einn- ar Vigdísar við aðra, þ.e. rithöf- undarins Vigdísar Grímsdóttur við frú Vigdísi Flnnbogadóttur, forseta íslands. Þar komu fram ummæli hennar og ósk um meira aðhald og aga ásamt ósk um að hreinlega yrði kennd kurteisi í skólum landsins. Um þetta atriði er ég innilega sammála. Um hitt atriðiö, að laun kennara séu til vansa, er ég ósamraála og tel ekki í verkahringforseta að tjá sig um slík hitamál sem launamálin í landinu eru. ~ Eða heldur einhver að hærri laun kennara myndu stuðla að betri aga í skólum eða kurteisi almennt? SÍS-topparnirskili Samvinnumaður skrifar: Éger sár og reiður yfir endalok- um Sambands íslenskra sam- vinnufélaga. Mér finnst hér hafa verið staðið ilia að verki. Það er eins og ekkert og enginn hafi spyrnt við fótum þegar halla tók undan fæti i þessum umsvifa- mikla rekstri. Var kannski mein- ingin að láta allt fara yflr um til þess eins aö stjórnendur í topp- stöðunum gætu hremmt síöasta og stærsta bitann í eftirlauna- gi-eiðslur? Tryggt sér og sínum íarborða til æviloka? Þetta virðist einnig stundað í nokkrum öðrum stórfyrirtækjum með góðum ár- angri. Ég tel ekki annaö koma til greina en aö SÍS-topparnir skili herfangi því sem þeir eignuðu sér áður en allt fór á verri veg. EESýtirálífeyris- H.Ó. skrifar: Ekki var það fyrr en EES- samningurinn er á lokastigi að þinpienn hér fóru að hreyfa líf- eyrissjóðsmálunum. Nú era ekki færri en tvö frumvörp í gangi á þingi til breytinga á sjóðunum. i hvorugu er þó gengið nægilega langt og ekki er þar að fmna ákvæði til lækkunar aldurs- marka til lífeyristöku né algjört frelsi í ávöxtun iifeyrisgreiðslna. Hvort tveggja er nauðsynleg breyting. Limbóþátturinn erhneisa Guðríður Jónsdóttir hringdi: Afskaplega var leiðinlegur Limbóþátturinn sem átti að vera skemmtilegur. Þar var ekki sögð ein setning sem hægt var að brosa að, hvað þá meir. Hvað eru líka þessir þáttagerðarmenn sífellt að klifa á sjálfum sér og starfi sínu? Halda þeir að starf þeirra í sjón- varpi sé eitthvað til að lita upp til? Þetta er nauðaómerkilegt starf og ekki þess virði að gera um það þátt, hvað þá skemmti- þátt. Limbóþátturinn er hneisa sem ekki má eyða peningum í. Sýnið frekar gamlar og góðar bíó- myndir, það er ódýrast fyrir Sjón- varpiö. G.Þ. skrifar: Ég hélt satt að segja að við hér í vesturbænum hetðum losnað að fullu og öllu við bannsetta ólykt- ina sem áöur var árviss vegna vinnslu viö bræðslu úti í Örflris- ey. Það var líka búið að setja upp nýja verksmiðju með meiri hátt- ar vöraum gegn slíkri ólykt. - En hvað gerist? Núna í dag, og reyndar áður, gýs þessi fýla upp aftur og nú er ólyktin yfir okkur alveg kæfandi. Þetta veröur um- hvcrfisráðunDytið eða aðrir ábyrgir aðilar að kanna til hlítar á nýjan leik. Lyktln veröur að hverfa fýrir fullt og fast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.