Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1993
3
Forstjóri Reykjalundar segir aöeins standa á rekstrarfé:
Húsið hentar vel
fyrir gjörfatlaða
- hverfermetrikostarl42þúsundkrónur
Húsið umdeilda á Reykjalundi. Hver fermetri kostar 142 þúsund krónur.
DV-mynd GVA
DV
Landsbankinn:
Til stendur aö Rekka um 138
stöðugildi í Landsbankanum á
þessu ári. Raett hefur veriö um
að haflst verði handa viö fækkun-
ina á næstunni, jafnvel nú um
mánaðamótin, að sögn Helgu
Jónsdóttur, formanns Starfs*
mannafélags Landsbankans. Aö-
geröimar eru liður í spamaöará-
ætlun sem hefur verið í mótun í
bankanum frá því á síðasta ári.
Helga var boðuð ó fund með
bankastjórunura vun þessi mál
nú í morgun.
Hagræðing í rekstri var sett
sem skilyrði þegar ríkisstjómin
veitti bankanum Qárhagsaðstoð
til að standast kröfur um eigin-
fjárhlutfall. Það sem þykir koma
til greina samkvæmt heimildum
DV til að ná fram spamaði er að
loka nokkrum útibúum á lands-
byggðinni, stytta afgreiðslutíma,
fækka vinnustundum, bjóða
hlutastörf í stað í'ullrar vinnu og
fá íólk til að hætta fyrr vegna
aldurs. Þrátt fyrir þessar aðgerð-
ir mun verða nauðsynlegí að
segja upp nokkrum tugum starfs-
fólks.
Ari Guðmundsson, yflrmaður
starfsmannasviðs Landsbank-
ans, vildi ekki tiá sig um máiið í
gær og heldur ekki Kjartan
Gunnarsson, formaöur banka-
ráös Landsbankans. Ekki náðist
í bankastjóra Landsbankans.
„Yfirlýsing um að húsnæðið henti
ekki gjörfótluðum einstaklingum er
ekki frá okkur komin, hún er vænt-
anlega ættuð frá sérfræðingum á
vegum heilbrigðisráðherra. Vanda-
máhð er að það vantar peninga til
rekstursins á fjárlögum þessa árs.
Það er hið hörmulegasta mál. En eft-
ir því sem ég best veit stendur til að
taka húsið í notkun á næsta ári og
þá verður það fyrir gjörfatlaða ein-
staklinga. Þeir sérfræðingar, sem við
höfum hér á Reykjalundi, meta þetta
hús mjög gott fyrir þá,“ sagði Björn
Ástmundsson, forstjóri Reykjalund-
ar, við DV.
Bjöm segir þá á Reykjalundi ekki
hafa sóst eftir því að taka að sér bygg-
ingu þessa húss. „Við gerðum það
fyrir þrábeiðni þáverandi heilbrigð-
isráðherra og tókum við söfnunar-
fénu að beiðni Lionshreyfingarinnar.
Okkur fmnst við aö ósekju dregnir
til ábyrgðar í máhnu.“
- Ættu ekki 34 milljónir að duga í
hús fyrir 7-8 einstaklinga?
„í húsinu eru 7 sérhannaðar íbúðir
með mjög fullkomnum innrétting-
um. Sameign er hka nokkuð stór.
Síðan er bílskúr sem ætlaður er fyrir
rafmagnsbíl sem flutt getur hjóla-
stóla. Við höfum þegar lýst okkur
reiðubúna til að hefja rekstur í hús-
inu en peningana vantar."
Húsið er 550 fermetrar að stærð og
kostaði 79,9 milijónir króna. Hver
fermetri kostar þannig 141.636 krón-
ur. Sem viðmiðun má taka stóra ný-
byggingu undir skrifstofur og sér-
hæfða starfsemi þar sem fermetrinn
kostar rúmar 90 þúsund krónur.
Bjöm sagöi skiptar skoðanir uppi
um hverjir ættu að vistast í húsinu.
Upprunalega hefðu menn séð fyrir
sér fólk sem lakast var sett varðandi
fótlun og aðstöðuleysi. „Það er
spurning hvort þetta fólk gerir sér
grein fyrir því, vegna heilaskemmda,
við hvaö það býr og hvort það sé jafn-
vel betur komið inni á venjulegum
sjúkrastofum. Við emm með marga
fjölfatlaða kandídata í þetta hús á
Reykjalundi. Það er matsatriði hvort
ekld eigi aö vista þar þá einstaklinga
sem gera sér grein fyrir aðstöðunni
og geta nýtt sér hana. En vistun ein-
staklinga fer fyrst og síðast eftir þeim
fjármunum sem fást til rekstursins."
-hlh
Fréttir
Guðmundur Bjamasom
Eftirlitvar
ekkiá
hendi ráðu-
neytisins
„Hönnun eða eftirlit með bygg-
ingarframkv’æmdinni var ekki á
hendi ráöuneytisins og ábyrgð
þess því engin nema ef vera
skyldi að það lét draga sig of iangt
varöandi kostnaðinn. Það gerð-
um við aöeins þar sem þörfin fyr-
ir þetta búsnæði var mjög brýn.
Lionshreyfingin sá um bygging-
arframkvæmdirnar og undirbjó í
samráði við Reykjalund þar sem
staösetning á húsinu var fyrir-
fram ákveðin. Það voru þó gefin
fyrirheit af hálfu heilbrigöisráðu-
neytisins að það yrði greitt sem á
vantaði til að húsiö yrði reist,“
sagði Guðmundur Bjamason sem
var heilbrigöisráðherra þegar
bygging hússins fyrir fjölfátlaöa
hófst á Reykjalundi.
Guðmundur segir að ráðuneyt-
ið hafi verið með byggingarnefnd
i gangi þegar söfnun Lionsmanna
fór af stað. Var hún að undirbúa
svipaða byggingu við Grensás-
deild Borgarspítala enda þörf fyr-
ir húsnæði af þessu tagi. „Það
mál lenti aftur fyrir þar sem söfn-
unarféö var skilyrt með þeim
hætti að húsið risi við Reykja-
lund. Við heíðum gjarnan viljað
fá söfnunarféð til að setja í það
verkefni sem þegar var í gangi
af hálfu ráöuneytisins."
-hlh
miðað við efnahagshorfur!
LADA • LADA • LADA • LADA
Frá 418.000,- kr.
104.500,- kr. út
og 10.051,- kr.
í 36 mánuði
Frá 498.000,- kr.
124.500,- kr. út
og 11.974,- kr.
í 36 mánuði
Frá 523.000,- kr.
131.000,- kr. út
og 12.568,- kr.
í 36 mánuði
Frá 798.000,-
200.000,- kr. út
og 19.172,- kr.
í 36 mánuði
Tökum notaða bíla sem greiðslu upp í nýja og bjóðum ýmsa aðra greiðslumöguleika.
Tekið hefur verið tillit til vaxta í útreikningi á mánaðargreiðslum.
AFAR KAl .VII.I I I K HOSTIIR:
BIFREIÐAR &
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 68 12 00
BEINN SÍMI: 3 12 36