Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1993, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1993, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 1993 Fréttir „Sýslumannsmálið“ á Siglufirði: Þagnarmúr yf irvalda en sögusagnirnar blómstra - sýslumaðurinn neitar að ræða málið í flölmiðlum Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyii' „Ég vil ekki ræöa þetta mál viö fjölmiðla að svo komnu máli,“ segir Erlingur Óskarsson, sýslumaður á Siglufirði, sem reyndar hefur verið leystur frá því starfi á meðan rann- sókn á meintri aðild hans að smygh á reiðtygjum og áfengi í hestakerru stendur yfir. Sem kunnugt er hefur þetta mál einnig leitt til þess að yfir- lögregluþjónninn á Siglufirði hefur verið leystur frá störfum um stund- arsakir. Þannig eru tveir æðstu embættis- menn lögreglunnar á Siglufirði nú utan starfa sinna en þeim gegna ann- ars vegar sýslumaðurinn á Sauðár- króki og utanaðkomandi lögreglu- þjónn sem settur hefur verið í emb- ætti yfirlögregluþjóns til þriggja mánaða. Sýslumaður Siglfirðinga er sakað- ur um aðild að smygli á reiðtygjum og áfengi sem uppvíst varð um fyrir skömmu. Þá er vitað að rannsókn málsins beinist einnig að sams konar málum sem talin eru hafa átt sér stað á tveimur síðustu árum. Auk þess hefur Ríkisendurskoðun kannað all- ar fjárreiður sýslumannsembættis- ins. Yfirlögregluþjónninn, sem er yf- irmaður tollgæslunnar, hefur verið sakaður um vanrækslu í starfi. Þagnarmúr Algjör þagnarmúr hefur verið reistur utari um þetta mál innan „kerfisins" og er sama hvar borið er niður, allir aöilar, s.s. innan Rann- sóknarlögreglu ríkisins, Ríkisendur- skoðunar og dómsmálaráðuneytis- ins, neita aö tjá sig um máhð. Þetta hefur auðvitaö orðið til þess að alls kyns sögusagnir, sem DV hefur sannreynt að sumar a.m.k. eiga ekki við rök að styðjast, hafa komist á kreik. Og á Siglufirði er þetta auðvit- að aðalumræðuefni fólks hvar sem það hittist. „Ég vil ekki ræða þetta mál, ekki eitt einasta orð,“ sagði Bjöm Valdi- marsson, bæjarstjóri á Siglufirði, er DV bar það undir hann hvort það setti ekld sinn svip á mannlífið í bænum. Sömu sögu var aö segja er Kristján Möller, forseti bæjarstjóm- ar, var spurður þess sama: „Þetta mál ræði ég ekki opinberlega." Aðrir sem DV ræddi við á Siglu- firði sögöu að óneitanlega setti málið slæman svip á bæinn. „Það er ekki nóg með að alls kyns sögusagnir gangi hér í bænum, sumar a.m.k. uppspuni frá rótum, heldur hefur þetta mál skaðað bæjarlífið hér á Siglufirði, umræðan er mjög nei- kvæð fyrir bæinn," sagði einn við- mælenda DV og aðrir sem rætt var við sögðu máhð aht setja mjög leiðin- legan svip á bæjarlífið. Reikningur vegna matar björgunarmanna, sem leituðu tveggja vélsleðamanna, veldur deilum: Enginn vill borga fyrir matinn „Þegar ég fór að grennslast fyrir um reikninginn sem ég sendi lögregl- unni þá mætti ég lokuöum dyrum þar. Þeir vitnuðu í greinargerð þar sem fram kom að þeir hefðu ekki pantaö matinn heldur einhver ann- ar,“ sagði Magnús Páh Halldórsson, veitingamaður í Bláfjöllum. Magnús Páh var kahaður út til að elda mat ofan í leitarmenn á vegum Landsbjargar sem leituðu tveggja drengja sem farið höfðu á vélsleðum í Bláfjöh 11. janúar síöasthðinn og komu ekki fram á tilsettum tíma. Hann byijaði á því að senda Blá- fjallanefnd reikninginn, að upphæð 90.078 kr., sem endursendi reikning- inn. Þá sendi hann lögregluembætt- inu í Reykjavík reikninginn en þeir neituðu að borga reikninginn á sömu forsendum. Svavar Geirsson, svæðisstjóri hjá Landsbjörg, sem stóð að leitinni segir að menn hafi verið þreyttir þessa nótt og leitin hafi verið búin að standa lengi því hafi verið tekin ákvörðun um að senda eftir veitinga- manninum til að elda ofan í þá tæp- lega 90 menn sem voru á svæðinu. „Þegar ég frétti af því að Magnús hefði ekki fengið reikninginn greidd- ann hjá Bláfjallanefnd þá sagði ég honum að senda reUminginn fil lög- reglunnar og gaf honum upp nafnið á lögregluþjóninum sem leitaöi með okkur. Lögreglan sagði að það væri ekki á þeirra höndum að fæða né klæða björgunarsveitamenn sem er sjónarmið sem ég skU ósköp vel. Það endar sennUega með því að við borg- um þetta sjálfir. Það verður senni- lega að fara fram söfnun meðal björg- Deilur standa um 90 þúsund króna reikning vegna fæðiskostnaðar við björg unaraðgerð í Bláfjöllum í janúar. unarsveitanna tíl að borga upphæð- lögreglunni reikning fyrir þennan ina en við erum ákveðnir í að senda ákveðna lögreglumann sem var meö okkur á svæðinu. Þeir verða aö taka þátt í að borga þetta líka,“ sagði Svavar. Um 200 hjálpar- og björgunarsveit- armenn tóku þátt í leitinn að drengj- unum tveimur, sem fundust eftir sól- arhrings leit. Beinn kostnaður við leitina var um 1 mUljón og er þá ekki talið meö vinnutap leitarmanna, sht á tækjum og fleira. Ef þaö væri tekið með í reikninginn má ætla að kostn- aðurinn væri vel á 5. milljón. Þannig að sjá má að 90 þúsundkróna reikn- ingurinn er ekki stór fjárhæð í sam- anburði við heUdarkostnaðinn. Einn af viðmælendum DV sagði að í svona tilvikum^þar sem deUur stæðu um reUming vegna leitarað- gerða ætti aö senda hann til þeirra sem ohu vandanum. -PP I dag mælir Dagfari____________________ Útvarpið drepur íhaldið Samkvæmt því sem skoðanakann- anir segja hefur fylgi Sjálfstæðis- flokksins hrapað niöur í fjórðung atkvæða. Framsóknarflokkurinn er stærsti flokkur þjóðarinnar samkvæmt þessum sömu skoðana- könnunum en íhaldið heldur ennþá öðru sæti. Skammt er þó í það að aUabahar nái því í keppninni um annað sætið og hefur vegur Sjálf- stæðisflokksins aldrei verið minni og lakari en einmitt um þessar mundir. TU að byija með var það hald manna að fylgishrun Sjálfstæðis- flokksins væri byggt á misskUningi og þannig var það þegar DV birti skoðanakönnun fyrir nokkrum mánuðum með Sjáhstæðisflokkinn í 26%, þá var hreinlega ekki tekið mark á þeirri könnun. En svo kom hver spáin á fætur annarri og nú síðast hjá Félagsvísindastofnun sem framkvæmdi könnun fyrir Morgunblaöiö og enn og af'tur var Sjálfstæðisflokkurinn fastur í tutt- ugu eg fimm prósentunum. Þetta hefur orðið til þess að lærð- ir og leikir hafa velt því fyrir sér af nokkurri skynsemi og af fullri alvöru hvað sé að gerast með fylgi Sjálfstæðisflokksins. Hefur flokk- urinn tapað fótfestu? Er hann á rangri leið? Hafa kannske bölvaðir kommamir gert íhaldinu þann óleik að draga frá því fylgi meö þvi að hætta að vera tíl. íhaldsmenn ahra landa fógnuðu því ákaft þegar sovéska heimsveldið félí af stalh og heimskommúnisminn datt upp fyrir. Gósentíiriar voru fram undan sögðu menn og hoppuöu hæð sína. Staðreyndin hefur hins vegar orðið sú að eftir aö óvinurinn hvarf af sjónarsviðinu hefur íhaldið á ís- landi alls ekki náð sér á strik. Fylg- ið er hrunið og farið veg ahrar ver- aldar. Eða svo sýnist í skoðana- könnunum. Margir mundu ætla að hér væri fleira sem hefði gerst. Efnahagserf- iðleikar, lánleysi við stjóm lands- ins, svikin loforð, sérhagsmuna- gæsla og eöa léleg forysta sem ekki höfðaði til almennings. Allt kemur þetta til greina, enda þekktar ástæður fyrir misjöfnu gengi stjórnmálaflokka. Þannig hmndi fylgið af Mitterrand Frakklands- forseta vegna spihingar og mis- heppnaðrar valdstjómar. IUa geng- ur Uka hjá Major í Bretlandi sem tvístígur í vandræðagangi í hveiju máhnu á fætur öðra. Bush Banda- ríkjaforseti féh og í síðustu forseta- kosningum vegna þess að hann vanrækti afskipti sín af innanríkis- málum og þjóðina sjálfa. Davíð Oddsson forsætisráðherra og formaöur Sjálfstæðisflokksins hefur hins vegar allt aðrar og ger- ólikar skoðanir á þvi hvers vegna fylgi Sjálfstæðisflokksins mæhst ekki meira í könnunum hér heima. Skýringar Davíðs era þær að fylg- ishrunið sé Ríkisútvarpinu að kenna. Sérstaklega fréttastofum þeirra og raunar hggur sökin sömuleiöis hjá Stöð tvö sem hefur ekki látið sitt eftir hggja í rógsher- ferö gegn Davíð vegna Hrafnsmáls- ins. Nú er rétt að minna á að Ríkisút- varpið er ekki í póhtík og býður ekki fram. Ríkisútvarpið fær fyrir vikið ekki eitt atkvæði í kosning- um, hvað þá í skoðanakönnunum og Ríkisútvarpið hefur lýst því sjálft yfir að vinnubrögð þess séu afar vönduð og njóti virðingar. En það er alveg sama hvað Ríkis- útvarpið segir og hvað fóUúnu finnst sem tekur þátt í skoðana- könnunum. Davíð veit betur og þaö er ekki. því að kenna að hann stjórni Ula eða íhaldið hafi bragðist trausti þjóöarinnar. Sökin hggur í róginum um Hrafnsmáhð sem al- menningur hefur trúað. Ef ekki væri fyrir þetta Hrafnsmál og róg- inn í kringum það stæði Sjálfstæð- isflokkurinn vel að vígi og Davíð sjálfur með vinsælh mönnum. Það er alveg ljóst að mati formannsins. Það er alveg makalaust hvað Rík- isútvarpið getur komiö Ulu tíl leið- ar. Og hversu miMl áhrif þessi stofnun hefur. Ekki er þaö kom- múnisminn sem drepur íhaldið, ekki er það stefna eða störf flokks- ins sem leiða Sjálfstæðisflokkinn í ógöngur, ekki er það forystan sem hefur glataö trú og trausti. Nei, það er Ríkisútvarpið af öhum mönnum sem hefur grafið undan besta og mesta og stærsta flokki þjóðarinn- ar á röngum og upplognum for- sendum. Það er gott að Krammi er kominn þangað til starfa. Hann hlýtur aö geta reddað fylginu til baka. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.