Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1993, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 1993
25
Veiðivon
Leikhús
Smáauglýsingar - Sími 632700 Þverholti 11
Laxveiðitímabilið hófst í gær:
Kuldi setti mark
sitt á veiðina
„Veðrið er að breytast og það er
farið að hlýna aðeins, næstu dagar
gætu orðiö góðir, mjög góðir,“ sagði
Friðrik Þ. Stefánsson, formaður
Stangaveiðifélags Reykjavíkur, í
gærkvöldi við Norðurá.
„Við fengum fjóra laxa fyrsta dag-
inn, þijá á flugu og einn á maðk.
Tveir laxanna veiddust. á Brotinu
fyrir neðan Laxfoss. Einn á Stokk-
hylsbrotinu og svo laxinn á maðk í
Konungsstreng. Ég veiddi einn,
Kristján Guðjónsson einn, HaUdór
Þórðarson einn og Ólafur G. Karls-
son veiddi maðkfiskinn. Það er gott
að fá fjóra fiska þegar vatnið er rétt
3 gráður. Laxamir voru 8 og 9 punda.
Það sáust laxar á Stokkhylsbrotinu
í kvöld svo þetta gæti orðið gott í
fyrramálið. Magnús Jónasson var á
Munaðamessvæðinu en náði ekki
neinum fiski. Hann sá 10-12 laxa á
Munaðamessbreiðunni en þeir vom
famir þegar átti að renna á þá. Við
veiðum fram að hádegi á fimmtudag
og eigum ömgglega eftir að bæta við
löxum,“ sagði Friðrik ennfremur.
Halldór Þórðarson á heiðurinn af
fyrsta laxinum á þessu sumri, 8
punda fiskur. Halldór veiddi sinn
fisk 27 mínútur yfir sjö í gærmorgun
á Stokkhylsbrotinu. En rétt á eftir
kemur lax Friðrik Þ. Stefánssonar, 8
punda, og þriðji laxinn á land er lax
Vilhjálms Vilhjálmsson í Þverá, 14,5
punda fiskur á maðkinn.
Friðrik og Ólafur fagna fyrsta laxi
sumarsins á eftirminnilegan hátt.
DV-myndir G.Bender
Friðrik Þ. Stefánsson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, og Ólafur
H. Ólafsson varaformaður með 8 punda lax Friðriks á flugu.
Tveir laxar
veiddust í Ásunum
Tveir laxar komu á land í Laxá á
Ásum fyrsta hálfa daginn sem veitt
var og voru fiskarnir 12 og 14 punda.
Það er mjög gott í Ásunum svona í
byijun veiðitímans.
Vilhjálmur
veiddi fyrsta laxinn
Vilhjálmur Vilhjálmsson veiddi
fyrsta fiskinn í Þverá í Borgarfirði á
þessu sumri á maðkinn. Fiskinn
veiddi Vilhjálmur í Myrhyl og var
hann 14,5 pund. Þetta var eini laxinn
sem veiddist í Þverá þennan fyrsta
veiðidag.
„Þetta var eini lax þennan fyrsta
veiðidag í Þverá, en það spáir betra
og hlýrra veðri næstu daga,“ sagði
Óh Hrútfjörð, kokkur í veiðihúsinu,
við Þverá í gærkvöldi.
„Ég held að þetta komi þegar veð-
urfarið batnar,“ sagði Óli ennfremur.
-G.Bender
■ Bílar til sölu
Torfærubíll - ferðabill. Benz Unimog
’57, 6 cyl., 280 Benz bensínvél, nýleg
dekk, nýyfirfarinn, skoðaður ’93, bíll-
inn er m/sve£haðstöðu og í góðu lagi.
Tilboð. S. 670063 á daginn og 643019.
Benz 303, árg. ’80, til sölu, 34 sæta,
vel með farin rúta. Upplýsingar í síma
91-684099 og eftir kl. 20 í síma 91-33705.
Nissan Primera SLX 2000, árg. 1991,
ljósblár, ekinn 30 þús., sjálfskiptur,
vökvastýri, samlæsing, rafinagn í
rúðum o.fl. Verð 1.250.000, skipti á
ódýrari koma til greina. Upplýsingar
í síma 91-667711.
Pontiac Grand Am 1987. Til sölu er
Pontiac Grand Am LE, árg. 1987, 4
cyl. vél, 2,3 1, sjálfskiptur, með öllu,
sumar- og vetrardekk, ekinn 100 þús.
km, mest erlendis, skoðaður 1993; í
góðu standi. Verð 590.000 kr. Uppl. í
síma 91-666280 eða 91-813330.
Til sölu Ford Econoline E 350, ferðabíll,
árg. ’86,6,91 dísil, 4 capt. stólar, svefn-
bekkur, sílsabretti, ný dekk o.fl. Uppl.
í síma 91-624945 e.kl. 16.
Antik. Chevrolet Corvair Corsa, árg.
1966, óskar eftir að komast í hendur
á laghentum manni fyrir lítinn
pening. Uppl. í síma 91-44263 í kvöld.
Benz 190E, árg. ’88, ekinn 83 þús.,
sjálfsk., topplúga, grámetalik, litað
gler. Uppl. í síma 91-610430.
■ Jeppar
Terrano ’92. Til sölu Nissan Terrano,
2,4i, ekinn 27 þús. Verð 1950 stgr.
Uppl. í síma 91-650672.
T
■ Ymislegt
Motocross keppni verður haldin
sunnud. 6. júní við Sandskeið. Einnig
verður keppt á léttum þifhjólum.
Skrán. verður í húsnæði L.I.A, Bílds-
höfða 14,3. og4. júní kl. 10-15. V.Í.K.
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Stóra sviðið kl. 20.00:
KÆRA JELENA
eftir Ljúdmílu Razumovskaju.
Mið.9/6, fim.10/6.
Aðeins þessar 2 sýningar.
KJAFTAGANGUR
eftirNeil Simon.
Á morgun öriá sæti laus, fös 4/6, upp-
selt, lau. 12/6, uppselt, sun. 13/6, örfá
sæti laus.
Síðustu sýningar þessa leikárs.
MY FAIR LADY söngleikur
eftir Lerner og Loeve.
Ath. Aðeins þessar 2 sýningar eftir:
Lau. 5/6, næstsiðasta sýning, fös. 11/6,
siðasta sýning.
DÝRIN í HÁLSASKÓGI eftir
Thorbjörn Egner.
Sun. 6/6 kl. 14.00, nokkur sæti laus, sun.
6/6 kl. 17.00, nokkur sæti laus.
ATH. SÍÐUSTU SÝNINGAR
ÞESSA LEIKÁRS.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
Aðgöngumiðar greiðist viku fyrir sýningu
ellaseldiröðrum.
Miðasala þjóöleikhússins er opln alla
daga nema mánudaga frá 13-18 og fram
að sýningu sýningardaga. Miðapantanir
frá kl. 10.00 virka daga i sima 11200.
Greiðslukortaþj. - Græna linan 996160.
LEIKHÚSLÍNAN 991015.
Þjóðleikhúsiö - góða skemmtun.
Tilkyimingar
Heiðmörk
í kvöld klukkan 20.00 verður farið í Heið-
mörk á vegum Ferðafélagsins. Fyrst
verður unnið að umhirðu reitsins en kl.
21.15 verður ratleikur fyrir börn, ungl-
inga og að sjálfsögðu alla fullorðna líka.
Rútuferð verður frá BSÍ, austanmegin,
kl. 20 og þátttökugjald er ekkert.
Helgarferð FÍ í Þórsmörk
Brottför laugardagsmorgun kl. 8.00. Frá-
bær gistiaðstaða í Skagfjörðskála.
Gönguferðir. Hagstætt verð. Uppl. og
farmiðar á skrifstofunni í Mörkinni 6.
Vinafélagið
verður með country- og spilakvöld í
Templarahöllinni v/Eiríksgötu kl. 20.00
fimmtudaginn 3. júni.
Leikfélag Akureyrar
jjCsðurÍi íztkzm
Óperetta
Tónlist
Johann Strauss
Fös. 4. júni kl. 20.30, næstsiðasta sýning.
Lau. 5. júní kl. 20.30, allra siðasta sýning.
Gestaleikur frá Remould Theatre i Hull.
TOGAÐÁ
NORÐURSLÓÐUM
eftir Rupert Creed og Jim Hawkins.
Leikrit með söngvum um lif og störf
breskra togarasjómanna á fiskimið-
um út af íslandi,
Grænlandi og Rússlandi.
Miðvikudag 2. júní kl. 20.30.
Fimmtudag 3. júní kl. 20.30.
AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR.
SUNNUKÓRINN Á
ÍSAFIRÐI
ásamt kór Glerárkirkju.
Kórstjóri: Beáta Joó
Einsöngvarar: Guðrún Jónsdóttir,
sópran, og Reynir Ingason, tenór.
Laugardaginn 5. júní kl. 16.00.
Miðasala er í Samkomuhúsinu,
Hafnarstræti 57, alla virka daga
nema mánudaga kl. 14 til 18 og sýn-
ingardaga frá kl. 14 og tram aö
sýningu.
Símsvari fyrir miðapantanir allan
sólarhringinn.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími i miðasölu:
(96) 24073.
Miðstöð fólks í
atvinnuleit
Á morgun, fimmtudaginn 3. júní kl. 15.00,
heldur Guðmundur Tómasson tölvuráð-
gjafi fyrirlestur. Ræðir hann um yfir-
standandi tölvuvæðingu á Ráðningar-
stofu Reykjavíkur.
Húnvetningafélagið
Félagsvist verður í kvöld í Húnabúð,
Skeifunni 17. Allir velkomnir.
Arabískt-íslenskt
kvöld
Félagið Ísland-Palestina heldur arabískt-
íslenskt kvöld fimmtudaginn 3. júní kl.
19.00 að Klapparstíg 28, 2. hæð (Félags-
heimih heymarlausra). Arabískir kokk-
ar bjóða upp á arabíska rétti, Einar
Kristján Einarsson leikur á gitar, Linda
Vilhjálmsdóttir les eigin ljóð og Jóhanna
Kristjónsdóttir segir frá ferð til Jemen í
máh og myndum. Verð 1000 kr. fyrir full-
orðna, ókeypis fyrir börn.
Tónleikar í
Norræna húsinu
í kvöld, miðvikudaginn 2. júní, mun Sin-
fóníuhljómsveit Skelleftá.sem er sinfón-
íuhljómsveit með 45 manns, leika í Norr-
æna húsinu. í hljómsveitinni er ungt fólk
sem stundar eða hefur stundað nám við
tónlistarskólann í Skelleftá í N-Sviþjóð.
Efnisskráin er Qölbreytt, þýskir marsar,
djass og kammertónhst. Einnig verður
frumflutt verk eftir Svíann Thomas Lilje-
holm sem hann samdi sérstaklega fyrir
sinfóniublásarasveit og klarinett. Ein-
leikari á klarinett er íslendingurinn Her-
mann Stefánsson. AUir eru velkomnir og
er aðgangur ókeypis.
Uppboð
á óskilamunum
Að beiðni lögreglunnar í Kópavogi verða ýmsir óskilamunir, aðallega reið-
hjól, seldir á uppboði sem haldið verður við lögreglustöðina í Kópavogi,
Auðbrekku 10, miðvikudaginn 9. júní 1993 kl. 16.30.
Þeim sem gætu átt óskilamuni í vörslu lögreglunnar í Kópavogi er bent á
að hafa samband í síma 41200 eða koma á lögreglustöðina fyrir uppboðið.
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Hafnir
Nýr umboðsmaður
Frá 1. júní ’93
Anna Lind Steinarsdóttir
Seljavegi 1 - s. 16962