Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1993, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 1993
5
Fréttir
Nefndarálit um fnverslun milli Bandaríkjanna og íslands:
Ávinningur gæti orðið mikill
- segir Þröstur Ólafsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra
„Ávinningurinn af fríverslunar-
samningi við Bandaríkin gæti orðið
mjög mikill. EES-samningimnn
heimilar okkur tollfijálsan innflutn-
ing til Evrópu á vörum sem fram-
leiddar eru hér á landi. Ef sambæri-
legur samningur væri í gildi gagn-
vart Ameríku myndu hér á landi
skapast möguleikar á framleiðslu
Símaskráin:
Sveitabæja-
skráin felld út
„Það hefur verið talsverð aukning
í hópi símnotenda undanfarin ár og
til þess að spara pláss var ýmislegt
fellt út úr skránni sem áður hefur
verið í henni,“ sagði Gústav Arnar,
ritstjóri Símaskrárinnar, þegar DV
hafði samband við hann.
Nokkra athygli hefur vakið að í
nýjustu útgáfu símaskrárinnar hafa
ýmsir kaflar verið felldir út sem áður
hafa verið fastir póstar. Þeirra á
meðal er skrá yfir sveitabæi með sí-
manúmer.
„Bæjartahð var eitt af því sem tók
talsvert pláss og okkur fannst að
notkun þeirrar skrár væri ekki í
samræmi við fyrirferð hennar í
símaskránni," sagði Gústav Amar.
Þess má geta að komið hefur til
tals að Póstur og sími gefi bæjartalið
út í sérprenti, en ákvörðun þar að
lútandihefurekkiveriðtekin. -bm
Humarinn á Höfn:
Skapar115 ungl-
ingum vinnu
Júlia Imsland, DV, Höfn;
Humarvertíðin byijaði um síðustu
helgi og var sunnudagurinn fyrsti
vinnudagur um 115 unglinga á Höfn.
Humarinn, sem á land kom eftir
helgina, var stærri en venjulega í
byijun vertíðar. 34% fóru í 1. flokk
en 55% í annan.
Mest er unnið af slitnum humri
fyrir Ameríku-markað. Humarinn er
unninn hjá þremur fiskvinnslum á
Höfn, - Borgey, sem er með 9 báta í
löndun og þar vinna 89 unglingar,
Faxeyri með 2 báta og 30 manns í
vinnu, mest unglinga, og Skinney
með 2 báta og 40 manns í vinnu. Þeir
eru flestir komnir af unglingsárun-
um og vinna fiskinn þegar ekki er
humar.
Nokkrir aðkomubátar hafa landað
humri hér og er þeim afla ekið til
þeirra heimahafna. Um 30 trillur
landa hjá Borgey en veiði hefur verið
frekar dræm síðustu daga. Unnið er
16 tíma á sólarhring á tveimur vökt-
um í fiskinum hjá Borgey.
SteinarBerg:
Ekkiverðsamráð
„Ég mótmæli þeim fullyrðingum
Birgis Skaptasonar í Japis að um
verðsamráð hafi verið að ræða milli
Steina hf. og Skífunnar. Þær fullyrð-
ingar eru ósannar, tilhæfulausar og
gjörsamlega úr lausu lofti gripnar,"
segir Steinar Berg ísleifsson hljóm-
plötuútgefandi vegna greinar í DV í
síðustu viku.
Steinar segir aö þau vandræði sem
Steinar hf. rötuöu í séu ekki til kom-
in vegna minnkandi markaöshlut-
deildar, hvorki í innlendu útgáfunni
né í innflutningi. Markaðshlutdeild-
in hafi, ef eitthvað er, veriö að eflast.
-Ari
fyrir báðar álfumar. ísland yrði eins
konar brú milli þessara tveggja
stærstu markaða heims. Samhhða
þvi gætum við gert okkur vonir um
að fá aukið erlent fjáirnagn inn í
landið," segir Þröstur Ólafsson, að-
stoðarmaður utanríkisráðherra.
Nefnd embættismanna hefur lagt
til að íslendingar undirbúi viðræður
við Bandaríkjamenn um fríverslun-
arsamning. Nefndin hefur skilað áhti
tíl utanríkisráðherra sem kynna
mun máhð fyrir ríkisstjóminni.
Að sögn Þrastar er alls óvíst hve-
nær af hugsanlegum viðræðum við
Bandaríkjamenn geti orðið. í því
sambandi bendir hann á að fríversl-
unarsamningur mhh Bandaríkj-
anna, Kanada og Mexíkó hafi enn
ekki verið staðfestur. Fyrr en það
verði sé ólíklegt að árangur náist í
samningaviðræðum mihi Bandaríkj-
anna og íslands.
Aöspurður segir Þröstur af og frá
að umræður um fríverslunarsamn-
ing muni blandast inn í fyrirhugaðar
viðræður milh Bandaríkjanna og ís-
lands um framtíð bandaríska varn-
arhðsins hér á landi, en gert er ráð
fyrir að slíkar viðræður fari fram á
næstunni. Þá segist Þröstur ekki eiga
von á-því að Bandaríkjamenn blandi
hugsarhegum hvalveiðum íslendinga
inn í viðræður um fríverslun.
-kaa