Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1993, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 1993
7
Sandkom
Fréttir
AfunrtiSam-
bands ungra
sjálfstæðis-
mannaog
Heimdallarsl.
fimmtudags-
kvöldmeð4
ráöhcmun
Sjálfstæðis-
ilokksins komu
nokkrargóðar
fynrspurnir
framípall-
borðsumræð-
um að loknum framsiiguerindum
ráðherra. Þorsteinn Pálsson var
spurður um barneignastefnu flokks-
ins og minntur á urnmæh sín á fundi
fyrir nokkrum árum að Íslendíngar
þyrftu aö vera duglegri að fjölga sér.
Pyrirspytjandi sagði ástandið vera
orðiö uggvænlegt nú þegarmarm-
fólkið væri orðið allt of margt um
allt offáa þorska. Þorsteinn var
; spurður hvort hann héldi etm við '
fjölgunarstefnuna. SjávarúU'egsráð-
herra s varaði því til að mannauður-
inn væri onn mesta auðlind þjóðar-
innar.
Megrunarkúrinn
Ásamafundi
ilutti Kriörik
Sophusson
ijánnálaráð-
herragagn-
merkt eriiidi
umstöðuþjóö-
arbú.-.insog
framtíðarhorf-
ur.Þegarhann
ra;ddi um
auknarbyrðar
almcnmngs
likti hann því
við að eriitt væri fyrir mann, nýkom-
imi úr megrun, aðfara i megranar-
kttr aftur. Eftir jtessi orö Friðriks sló :
þögn á salinn og nokkru síðar braust
út mikill hlátur. Friðrik velti þvíþá
fyrir sór h vort einhver í salnum tæki
orðin til sin cn Davíð Oddsson sat
rétt hjá Friðriki og var meðal þeirra
fyrstu sem skelltu upp úr.
Burtu með bitling-
Afundinum
hófgamal-
reyndurog
sigldurtlokks-
maðurSjálf-
stæðisflokksms
uppraustsína
ogskammaði
ráöhetrana
fyriraövcra
ekkinógu
sparsamaog
■ tjárlagahalliim
værialltofmik-
ill. Hann vildi að sparnaðurinn kæmi
að ofan en það væri ætið þannig að
enginn vildi spara. Hann vildi byrja
á því að fækka þingmönnmn um
þriðjung, fækka ráðhen-um imi
helmingog segja upp öllmn aðstoöar-
mönnum ráðherranna, eða „þessum
bitlingum“ eins og hann orðaði það.
Effarið værimeira eftirþessttm
röddum er ekki að efa að fjárlaga-
halli rikisins væri eitthvað minni en
hanneridag.
StunuráByigj-
unm
: :: Hluslendum
Bylaimnarbrá
heldm-betm-i
hrún i hadeg-
inuáhvxta-
smtnudag.
Ercttalesiii var
lokiðog síöan
kom nokkurra
míuútnaþögn.
Skyndilegavar
þögnin rofln
meöþreytu-
legristunuþess
fréttamanns sem háfðilesið fréttim-
ar. í kjölfarið komu nokkrar setning-
ar sem greiniiega voru ekki ætlaðar
hlustendum en Sandkornsritara
fannst þessi útsending öl valin til-
breyting frá auglýstri dagskrá. Síðan
var gamanið búið þegar fréttamaöur-
inn uppgötvaði mistök sín og síbyljan
tók viö en viö viljum meira af þessu
og ekki verra ef stunur fylgja með!
Umsjón: Björn Jóhann Björnsson
Fjoldi innbrota er
svipaður og í fyvra
\ - öflug löggæsla í samvmnu við íbúa skilar árangri sums staðar
Fyrstu 4 mánuðina í ár hafa verið
framin 422 innbrot og þjófnaðir í
samanburði við 477 í fyrra. Að sögn
Ómars Smára Armannssonar hjá
forvamadeild lögreglunnar eru þess-
ar tölur ekki vísbending um aö færri
innbrota sé að vænta í ár en í fyrra
því í þessum mánuði hefur ný inn-
brota- og þjófnaðaralda riðið yfir
höTuðborgarsvæðið.
í ár hafa verið framin samtals 66
innbrot og þjófnaðir á svæði sem
markast af Vatnsmýrarvegi, Snorra-
braut, Grettisgötu og Lækjargötu en
í fyrra voru 43 sams konar glæpir
framdir á sama svæði. Næstflest mál
af sama toga komu upp í miðbænum
eða 45 en það er 13,5% fækkun frá
því í fyrra. 23 innbrot voru framin í
vesturbænum og er svipaða sögu aö
segja í ár.
Fjölgun í Mosfellsbæ
Tölur fyrir Mosfellsbæ og nágrenni
eru nokkuð sláandi, þar fjölgar inn-
brotum og þjófnuðum úr 8 í 25. Stór
hluti þessara mála tengist sumarbú-
stöðum utan við bæinn. Má þar nefna
innbrot og skemmdarverk í sumar-
bústaði við Meðalfellsvatn. í Grafar-
vogi voru 20 þjófnaðir og innbrot
framin fyrstu fjóra mánuðina í fyrra
en nú eru þau aðeins 13. Á síðasta
ári var sett á fót svokölluð nágranna-
varsla í samvinnu við hverfastöð lög-
reglunnar í Grafarvogi og hefur inn-
brotum þar fækkað talsvert síðan. í
Breiðholti fækkaði þeim brotum sem
hér eru til umfjöllunar úr 55 í 38 og
munar þar mest um færri innbrot í
geymslur íjölbýlishúsa.
Ömar Smári segir að mikil umfjöll-
un um árangur lögreglunnar í Breið-
holti fæli þjófa frá innbrotum í því
hverfi.
Á Seltjamamesi fækkaöi innbrot-
um úr 18 í 3. Því er að þakka að lög-
reglunni tókst að uppræta þjófagengi
sem stundaði innbrot í bíla og hús-
næði á svæðinu. Svipaða sögu er að
segja af Fossvoginum þar sem 14 inn-
brot vom framin í fyrra en eftir að
RLR náði að upplýsa nokkur innbrot
hefur aðeins 1 mál komið upp fyrstu
4 mánuði þessa árs.
Fátt stoppar þessa drengi
„Innbrotsþjófar vinna mjög svæð-
isbundið, oft út frá heimili sínu,
þannig að innbrotsþjófar sem eru
vmkir og kannski með einhverja hirð
í kringum sig eru virkastir á svæði
umhverfis sinn dvalarstað. Það sést
nú best í Þingholtunum þar sem hvað
mest er um innbrot,“ segir Ómar
Smári.
„Kerfið verður að geta tekið við
þeim einstaklingum sem brjóta ítrek-
aö af sér og séð til þess að þeir fái
viðundandi vistun. Það þarf að
bregðast fljótt og vel við þvi það er
fátt sem stoppar þessa drengi. Þeir
gjörþekkja kerfið og hafa komist upp
með að vaða uppi dag eftír dag og
viku eftir viku og valda mörgum
tjóni á meðan verið er að bíða eftír
aðgerðum," segir Ómar Smári.
-PP
5undirtvítugu
teknir úr umferð
Lögreglan á Blönduósi svipti einn
ökumann ökuréttindum fyrir að aka
á 143 km hraða um helgina.
Þá voru fjórir ökumenn grunaðir
um ölvunarakstur og þeir teknir úr
umferð. Allir ökumennirnir voru um
eða undir tvítugu.
-PP
BIGA
Eldhús - Eldhús
Afmælisveisla
[pyl
Af því tilefni að Biga eldhúsinn-
réttingar hafa verið seldar á ís-
landi í 5 ár bjóða Biga verk-
smiðjurnar nokkrar innréttingar
á sérstöku afmælisverði.
Notaðu þetta einstaka
tækifæri til að eignast nýtt
Biga eldhús á hagstæðu verði.
Tilboðið gildir aðeins í
nokkra daga.
FYRSTI
kaupandi fær
40% AFSLÁTT
ANNAR
kaupandi fær
35% AFSLÁTT
ÞRIÐJI
kaupandi fær
30% AFSLÁTT
4.-6.
kaupandi fær
25% AFSLÁTT
7.-10.
kaupandi fær
20% AFSLÁTT
Nýja Trim og Lux fataskápalínan okkar með rennihurðum í
öllum regnbogans litum á sérstöku kynningarverði afmælisdag-
ana.
Nýbýlavegi 12, sími 44011