Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1993, Page 17
16
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1993
Iþróttir
Kristín best
Einvigi Chicago og Phoenix um NBA-titOinn hefst í nótt:
Jordan og Barkley
í aðalhlutverkum
- fyrsta beina sendingin á Stöð 2 klukkan eitt í nótt
hjákonunum
í Haf narfirði
Opna Catineu kvennamótið í
golé var haldið á laugardaginn á
Hvaleyrarvelli í Hatnarfirði.
Keppt var í tveimur flokkum. í
forgjöf 0-28 sigraöi Kristín Páls-
dóttir, GK, á 67 höggum. Guörún
Guðmundsdóttir varð í Öðru sæti
með 69 högg og Hrafhhildur Ey-
steinsdóttir, GK, varð þriöja með
69 högg. Kristín Pálsdóttir var
meö besta skor, 79 högg. Með
forgjöf 29-36 sigraði Hrafnhildur
Þórarinsdóttir, GK, á 64 höggum.
Lilja Karlsdóttir, GK, lék á 67
höggum og Þuríöur Sölvadóttir
hafnaði í þriöja sæti, lék á 67
höggum. -GH
Unekerer
tábrotinn
Gary Lineker, fyrrum fyrirliði
enska landsiiðsins í knattspyrnu,
tábrotnaöi í leik með Grarapus
Eight í japönsku atvinnudeild-
inni um síöustu helgi. Hann verö-
ur minnst sex vikur frá keppni
og það er áfall fyrir Grampus
Eight sem er næstneðst í deild-
inni. -VS
Meistararnir
ekkimeðá
Wimhledon?
Hætta er á aö hvorugur meist-
aranna frá síðasta Wimbledon
tennismóti geti varið titil sinn
þegar þetta frægasta tennismót
heims hefst í London eftir tvær
vikur. Andre Agassi og Steffi
Graf, sem sigruðu í einliðaleik
karla og kvenna í fyrra, eiga bæði
við meiðsli að stríða og tvísýnt
er um þátttöku beggja. Það yröi
í fyrsta skipti í sögu mótsins sem
það færi fram án meístara síöasta
árs. -VS
Uvingston
tapaðiáfrýjun
Breski spretthlauparinn Jason
Livingston náði ekki aö hnekkja
fjögurra ára keppnisbanni sem
hann var dæmdur í vegna
meintrar notkunar ólöglegra
lyfja. Áfrýjun hans var tekin fyr-
ir á fóstudaginn og var felld. Li-
vingston féll á lyfjaprófi á ólymp-
íuleikunum í Barcelona síðasta
sumar og verður í keppnisbanni
þar til í júlí 1996.
-VS
Allirmega
farainná
Á sf ðasta ársþingi KSÍ var sam-
þykkt tillaga þess efnis að í 4.
delld karla og 2. deild kvenna í
knattspyrnu væri heimilt aö
skipta inn á öllum fimm vara-
mönnunum. Þessi breyting virð-
íst ekki hafa komist til skila til
allra félaga og dómara enn sem
komið er.
-VS
iKópavogi
Tennisklúbbur Kópavogs held-
ur tennisdag á laugardaginn
kemur, 12. júlí, við Kópavogs-
skóla frá klukkan 13 til 17. Þar
verður sýndur tennis og byijend-
um leiöbeint, félagar í TFK leika
tennismaraþon á einum vallanna
til styrktar félaginu og meirihluti
bæjarstjórnar Kópavogs mætir
minnihlutanum í léttum tennis-
leik. Sá leikur hefst um klukkan
14. Nokkrir helstu-tennisspilarar
landsirts verða á staðnum og seld-
ar veröa léttar veitingar.
-VS
í nótt hefst slagurinn sem margir
hafa beðið eftir - einvígi Chicago
Bulls og Phoenix Suns um banda-
ríska meistaratitihnn í körfuknatt-
leik. Þessi frábæru hð tryggðu sér
deildatitlana um síðustu helgi, Pho-
enix í vesturdeildinni og Chicago í
austurdeildinni.
Eins og fram kom í DV í gær verða
ahir leikir höanna sýndir beint á
Stöð 2 og'hefst sá fyrsti klukkan eitt
í nótt að íslenskum tíma.
Chicago hefur orðið meistari tvö
undanfarin ár og fór á sannfærandi
hátt í gegnum úrsíitakeppnina -
vann þar 11 leiki en tápaði aöeins
Drazen Petrovic frá Króatíu, fræg-
asti körfuknattleiksmaöur Evrópu
og einn sá besti í bandarísku NBA-
dehdinni, lést í bílslysi í námunda
við Munchen í Þýskalandi á mánu-
daginn. Petrovic var 28 ára gamall
og lék með New Jersey Nets.
New Jersey var slegið út af Cleve-
land í fyrstu umferð úrslitakeppni
NBA-deildarinnar í vor og þá hélt
Petrovic til Króatíu og hóf æfingar
með landsliðinu. Hann var á leið frá
Þýskalandi til Zagreb á mánudaginn
þegar hann ók í gegnum vegahindr-
un og lenti í árekstri við vörubifréið.
Stigahæsti leikmaður
New Jersey í vetur
Petrovic var stigahæsti leikmaður
New Jersey í vetur og gerði aö meðal-
tali 22,3 stig í leik. Hann var ein besta
3ja stiga skytta deUdarinnar og New
Jersey hafði gert honum tilboð sem
hefði gert hann að öðrum launa-
hæsta leikmanni NBA-deildarinnar
tímabihð 1993-94. Petrovic var ekki
búinn að taka ákvörðun um hvort
hann léki áfram í Bandaríkjunum
tveimur, fyrstu leikjunum gegn New
York Knicks í úrshtum austurdeUd-
arinnar.
Phoenix hefur hins vegar aldrei
orðið meistari en skartar nú Charles
Barkley sem segist vera kominn til
að sjá og sigra. Phoenix var 1 meiri
vandræðum í úrshtakeppninni en
Chicago, vann 11 leUd en tapaði 6
sinnum.
Bandaríska blaðið USA Today
sagði í gær að ekki hefði verið hægt
að hugsa sér betri úrslitaleiki. Þar
mættust tveir frægustu leikmenn
heims, Michael Jordan og Charles
Barkley, sem bæði væru harðir
keppinautar og miklir vinir og spU-
eða færi tíl Evrópu á ný.
Með Cibona Zagreb
og Portland
Petrovic lék fyrst með Sihemik og
síðan með Evrópumeisturum Cibona
Zagreb í heimalandi sínu. Portland
TraU Blazers keypti hann árið 1986
og þar lék hann tíl ársins 1991 en
náöi sér aldrei verulega á strik. Eftir
að hann fór tU New Jersey fóru hlut-
imir að ganga og framan af nýhðnu
tímabih var hann með bestu nýtingu
í 3ja stiga skotum í NBA-deildinni,
hitti úr nær 50 prósent skota af því
færi sem er einstök hittni.
Yngsti skorari
í Júgóslavíu
Petrovic var á sínum tíma yngsti
leikmaður sem skoraði í meistara-
flokksleik í Júgóslavíu, þá 15 ára
gamall. Hann var í aðalhlutverki í
landshði Króatíu sem hlaut silfur-
verðlaunin á ólympiuleUíunum í
Barcelona í fyrra og var lengi áður
lykilmaður í hinu frábæra landshði
Júgóslava. -VS
uöu tíl dæmis iðulega golf saman í
frítímum.
Barkley er sigurviss að vanda og
segir að Chicago sé vissulega fráhært
hð. „En ég veit að við getum umúð
þá og það munum við gera,“ segir
hann.
Pat RUey, þjálfari New York
Knicks, er hins vegar viss um að
úrshtin verði á hinn veginn.
„Chicago er á toppnum á réttum tíma
og ég sé ekkert hð sem á möguleika
á að vinna meistarana í 7 leUija ein-
vígi,“ segir RUey.
Chicago og Phoenix mættust tvisv-
ar í NBA-deUdinni í vetur og lögðu
þá hvort annað á útivelh. Chicago
vann í Phoenix, 111-128, og þá gerði
Jordan 40 stig en Barkley 22. Phoen-
ix vann síðan í Chicago, 109-113, og
þá skoraði Jordan 44 stig en Barkley
26.
Liðin leika fyrstu tvo leikina í Pho-
enix, þrjá næstu í Chicago, og tvo
síðustu, ef með þarf, í Phoenix. I töflu
yfir leikina í DV í gær víxluðust leik-
ir númer fimm og sex.
Hér fyrir neðan má sjá Usta yfir
leikmenn hðanna tveggja, númer,
nöfn, stöðu, hæð, þyngd og hve lengi
þeir hafa leUdð í deUdinni:
-sv/vs
Keilulandsliðið valið
- íslendingar keppa á EM í Svíþjóð í dag
íslendinga taka þátt í Evrópu-
mótinu í keUu sem hefst í Svíþjóð
í dag. 22 þjóðir taka þátt í mótinu.
Landshð Islancfs í karlaflokki er
þannig skipað: t
Amar Sæbergsson, KGB, Ásgeir
Þórðarson, KGB, Hahdór Ragnar
Hahdórsson, KR, Jón Helgi Braga-
son, KFR, Sigurður Lámsson, KFR,
og Valgeir Guðbjartsson, KFR.
Liðsstjóri er Þórir Haraldsson.
Landshð kvenna er þannig skip-
aö:
Ágústa Þorsteinsdóttir, KFR, El-
ín Óskarsdóttir, KFR, Guðný
Gunnarsdóttir, KGB, Guðný
Hauksdóttir, KFR, Jóna Gunnars-
dóttir, KFR, og Ragna Matthías-
dóttir, KFR. Liðsstjóri er Sigurður
Guðbjömsson.
-RR
0 Phoenix Jerrod Mustaf. framherji Su 2,08 m ns 122 kg 3.áríNBA
3 Frank Johnson bakvörður 1,91 m 92 kg 10. ár í NBA
7 Kevin Johnson bakvörður l,86m 95 kg 6.áríNBA
9 DanMajerle hakv/framh. 1,98 m HOkg 5. ár í NBA
21 RichardDumas framherji 2,01 m 102 kg 2. ár í NBA
22 Danny Ainge bakvörður 1,96 m 92 kg 12.áríNBA
23 Cedric Cabahos iramherji 2,03 m 105 kg 4.áríNBA
24 Tom Chambers iramherji 2,08 m 115 kg 12. ár í NBA
25 OUver Miher miðheiji 2,06 m 150 kg l.áríNBA
32 Nigel Knight bakvörður 1,86 m 91 kg 3.áríNBA
34 Charles Barkley framheiji 1,98 m 131 kg 9.áríNBA
41 Mark West miðheiji 2,08 m 123 kg lO.áríNBA
Drazen Petrovic var án efa besti leikmaöur júgóslavneska landsliðsins i
körfubolta. Petrovic lék einmitt stórt hlutverk með landsliðinu á siðustu
ólympiuleikum og hér sést hann i leik gegn Spánverjum í Barcelona i síð-
ustu ólympíukeppni. Petrovic var 28 ára gamall þegar hann lést í hinu hræði-
lega bilslysi á mánudag. Reuter-mynd
Chicago Bulls
5 JohnPaxson bakvörður 1,88 m 92 kg lO.áríNBA
6 TrentTucker bakvörður 1,96 m 100 kg 12.áríNBA
10 B.J. Armstrong bakvörður 1,88 m 92 kg 4.áríNBA
12 Corey Wilhams bakvörður 1,88 m 95 kg l.áríNBA
21 StaceyKing framh/bakv. 2,11 m 120 kg 4.áríNBA
22 Rodney McCray framherji 2,03 m 124 kg ll.áríNBA
23 Michael Jordan hakvörður 1,98 m 99 kg 9.áríNBA
24 BhlCartwright miðheiji 2,16 m 122 kg 14. áríNBA
32 WillPerdue miðherji 2,13 m 120 kg 5. ár í NBA
33 ScottiePippen bakv/framh. 2,01 m 110 kg 6.áríNBA
42 ScottWhhams miðherji 2,08 m 115 kg 3.áríNBA
54 Horace Grant framherji 2,08 m 117 kg 6.áríNBA^
Petrovic látinn
- lést í hörmulegu bílslysi á mánudag
i
MIÐVIKÚDAGUR 9. JÚNÍ1993
33
Magnús Gylfason, Stjörnumaður, í baráttu við ÍR-ing i leik liðanna í bikarnum í gærkvöldi. Magnús skoraði sigurmark Stjörn-
unnar í leiknum á lokamínútunum. DV-mynd GS
Mjólkurbikarkeppni KSÍ - 2. umferð:
Stjörnumenn áfram
á elleftu stundu
- unnu ÍR í Mjódd og Leiftur skoraði 16 mörk gegn Austra
2. umferð Mjólkurbikarkeppni KSÍ fór
fram í gærkvöldi og þá voru leiknir 11
leikir.
Einn aðalslagurinn var viðureign 2.
dehdar hða ÍR og Stjömunnar í Mjódd.
Stjörnumenn sigruðu, 1-2, í æsispenn-
andi leik. Bjarni Benediktsson skoraði
fyrst fyrir Stjömuna en Þorri Ólafsson
jafnaði metin fyrir Breiðhyltinga. Á
lokamínútu leiksins skoraði Magnús
Gylfason sigurmark Garðbæinga og
tryggði þeim sæti í 3. umferð keppninn-
ar.
Breiðablik, sem leikur í 2. deild, átti í
vandræðum með 4. dehdar Uð Aftureld-
ingar í Kópavogi. Blikar sigruðu, 2-0, og
skoraði Jón Þórir Jónsson bæði mörk
Blikanna úr vítaspymum sitt í hvorum
hálfleik.
Það var æsispenna í Þorlákshöfn þar
sem Grótta vann Ægi eftir vítaspymu-
keppni. Staöan var 3-3 eftir venjulegan
leiktíma. Grótta hafði yfir 1-3 meö mörk-
um Ámunda Sigmundssonar, Ingólfs
Gissurarsonar og Sigurðar Más Harðar-
sonar en tvö mörk frá Sveinbirni Ás-
grímssyni jöfnuðu leikinn en áður höfðu
Gróttumenn gert sjálfsmark. Ekkert
mark var gert í franúengingu en mark-
verðir hðanna voru í aðalhlutverkinu í
framlenginunni og vörðu samanlagt 7
vítaspymur. Ægismönnum tókst aðeins
að nýta eina vítaspymu en Gróttumenn
skoraðu í tvígang og tryggöu sér sigur,
4-5.
Það var önnur rafmögnuö vítakeppni
á ísafirði þar sem 3. deUdar hö HK sló
2. deUdar hð BÍ út úr keppninni. Leikur-
inn var geyshega spennandi og hæði lið
léku mjög fast. Ekkert mark var skorað
í venjulegum leUítíma en í framlengingu
náðu ísfirðingar forystunni með marki
Gunnars Björgvinssonar. HK-menn
náðu að jafna úr vítaspymu og var þar
aö verki Zoran Ljubicic. í vítaspymu-
keppninni fengu Isfirðingar tækifæri á
að tryggja sér sigur en þeim Emi Torfa-
syni og Gunnari Björgvinssyni brást
bogahstin og HK-menn tryggðu sér sig-
urinn með því að skora úr síðustu tveim-
ur spymum sínum.
Fjölnismenn, sem leika í 4. deUd fengu
skeh fyrir 3. deUdar höi Hauka 4-0, á
gervigrasinu á ÁsvöUum. Óskar Theód-
órsson og Jóhann Sigurðson skoraöu
fyiir Hauka en tvö markanna vora
sjálfsmörk.
Víðir vann Þrótt, 2-1, eftir framlengd-
an leik í Garði.
Leiftursmenn
í markastuði
Leiftursmenn voru heldur betur í mark-
astuði er þeir möluðu Austra frá Raufar-
höfn, 16-0. Pétur Jónsson gerði 5 mörk
fyrir Leiftur, þeir Gunnar Már Másson
og PáU Guðmundsson 4 hvor, Pétur
Marteinsson 2 og Sindri Bjarnason 1
mark. Yfirburðimir vora gríðarlegir
eins og tölurnar gefa til kynna.
KA vann sannfærandi sigur á Neistan-
um, 7-0. Björn Pálmason gerði þrennu,
Jóhann Amarson skoraði tvívegis, Hall-
dór Kristinsson og Hermann Karlsson
eitt hvor.
Völsungur vann óvæntan sigur á 2.
deUdar hði Tindastóls, 5-2, eftir fram-
lengingu. Húsvíkingar komust í 2-0 en
Bjarki Pétursson skoraði tvívegis undir
lok leiksins og jafnaði. í framlenging-
unni tóku heimamenn öU völd og unnu
sannfærandi. Sigþór Ómarsson skoraði
þijú mörk fyrir Völsunga og þeir Axel
Vatnsdal og Róbert Skarphéðinsson eitt
hvor.
Hvöt vann KS, 0-2, á Siglufirði mmeð
mörkum Þormóðs Baldurssonar og Ax-
els Guðmundssonar.
Höttur vann Einheija, 1-2, eftir fram-
lengingu á Vopnafirði. Jón Albertsson
skoraði fyrst fyrir Hött en Hahgrímur
Guðmundsson jafnaði fyrir Einheija. í
framlengingunni skoraði Grétar Eg-
gertsson sigurmark Hattar.
Leik Austra og Hugins, sem fara átti
fram á Eskifiröi, var frestað vegna vah-
arskUyrða.
-RR/ÆMK/GÞ/HK/MJ/SH
íþróttir
Ennþá rautt
Ijós á Guðna
Guðni Bergsson bíður enn eftir Tottenham en þar er ekki enn Jjóst
grænu ijósi frá félagi sínu, Totten- hver tekur viö stjórn hösins. Ég
ham, um aö fá að skipta í Val og verð alia vega laus frá félaginu 1.
leUca með Hlíðarendaliöinu í Get- júh en ég hef gert mér vonir um
raunadeildinni í knattspyrnu. aðlosnafyrroggetabyijaðaðleika
Guðni hefur æft á fullu með Vals- með Val,“ sagði Guðni Bergsson í
mönnum en er ekki löglegur með samtah við DV í gærkvöldi.
Uðinu fyrr en Tottenham hefur gef- Ekki er vitað hver tekur við sem
ið leyfi. framkvæmdastjóri Tottenham. Al-
an Sugar, formaöur Tottenham,
VSrðast ekki ætla hefur lýst því yfir að hann vUji fá
að gefa mig lausan Ossie ArdUes, fyrram leikmann
„Það hefur enn ekkert róttækt liösins, til að taka við stjórn liðsins
gerst í málinu. Valsmenn eru að en Ardiles er nú stjóri hjá WBA og
reyna hvað þeir geta tU að fá mig hefur gert góða hluti þar á bæ.
lausan og hafa veriö í sambandi við Glenn Hoddle var einnig nefndur
forráðamenn Tottenham. Þeir líklegur sem stjóri hjá Tottenham
virðast ekki ætla að gefa mig laus- en hann tók þess í stað við Uði
an, alla vega ekki fyrr en öU mál Chelsea á dögunum.
eru komin á hreint í herbúöum -RR
EM kvenna í handbolta:
íslendingar mæta
liði Portúgala
íslenska kvennalandshðið mætir
Portúgölum í Evrópukeppninni nk.
sunnudag. Leikurinn fer fram í
Porto.
„Mér hst vel á leikinn gegn Portúg-
ölum' Viö töpuðum að vísu fyrir
þeim í fyrra en ég held að við séum
með sterkara Uð núna og í hetri æf-
ingu en þá. Við ætlum okkur alla
vega ekkert annað en sigur gegn
þeim,“ sagði Erla Rafnsdóttir lands-
hðsþjálfari í spjalh viö DV í gær.
Eftir leikinn gegn Portúgölum á
sunnudag tekur liðiö þátt í sterku
móti í Lissabon þar sem auk íslands
og Portúgals keppa Þýskaland, Lit-
háen og Rússland.
„Við vitum ákaflega Utið um þessi
hð, ég býst ekki við að Rússar og
Þjóðveijar sendi sín sterkustu lið.
Mér líst annars mjög vel á þetta og
þetta verður góð reynsla fyrir Uðið,“
sagði Erla ennfremur.
Islenska hðið er skipað eftirtöldum
leikmönnum:
Andrea Atiadóttir, ÍBV, Auður
Hermannsdóttir, Selfossi, Fanney
Rúnarsdóttir, Gróttu, Guðný Gunn-
steinsdóttir, Stjömunni, Haha Helga-
dóttir, Víkingi, Hulda Bjarnadóttir,
Selfossi, Inga Lára Þórisdóttir, Vík-
ingi, Laufey Sigurðardóttir, Gróttu,
Ósk Víðisdóttir, Fram, Ragnheiður
Stephensen, Stjörnunni, Sigrún Más-
dóttir, Stjömunni, Una Steinsdóttir,
Stjörnunni, Valdís Birgisdóttir, Vík-
ingi, Heiða Erhngsdóttir, Selfossi,
Svava Sigurðardóttir, Víkingi, Hjör-
dís Guðmundsdóttir, Selfossi, og Vig-
dís Bjarnadóttir, KR. -RR
Erla Rafnsdóttir þjálfar islenska
kvennalandsliöiö.
Gunnar Már Másson skoraði 4 mörk
fyrir Leiftur i stórsigri gegn Austra.
Jón Þórir Jónsson gerði bæði mörk
Blikanna.
Browntekur
viðlndiana
Larry Brown var í gær ráðinn
þjálfari bandaríska körfubolta-
Uðsins Indiana Pacers. Brown
kemur frá LA CUppers, en hafði
áður þjálfaö hð Denver, New
Jersey og San Antonio Spurs. „Ég
vona að þetta sé síðasta skipting
mín á milli félaga en ég hef nú
reyndar sagt það áður. Þegar ég
fór til Spurs hélt ég að það væri
framtíðarstarfið, en það gekk
ekki upp,“ sagði Brown að ráön-
ingunni lokinni.
-SV/VS
Vikingur mætir
Þóríkvöld
Fjórða umferð Getraundeildar-
innar í knattspymu hefst í kvöld.
Þá mætast Víkingur og Þór á Vík-
ingsvelh í Stjömugróf. Bæði hðin
þurfa á mikilvægum stigum að
halda í kvöld. Víkingar era í
neðsta sæti með aðeins eitt stig
og Þórsarar hafa hlotið þijú stig.
Leikur Uðanna hefst klukkan 20.