Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1993, Qupperneq 26
42
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1993
Afmæli
Jón Gunnar Zoéga
Jón Gunnar Zoöga, hæstaréttarlög-
maöur og formaður knattspymufé-
lagsins Vals, Reynimel 29, Reykja-
vík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Jón fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp. Hann lauk stúdentsprófi frá
VÍ1965, lögfræðiprófi frá HÍ1971,
varð hdl. 1974 og hrl. 1985. Jón var
stundakennari við Hagaskólann
1966-73, framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins 1971-74 og hefur
rekið lögmannsstofu með Jón Emi
Ingólfssyni frá 1974.
Jón var ritsjóri Úlfljóts, blaðs
laganema, 1969-70, varaformaður
Orators, félags laganema, 1969-70,
varaformaður Heimdallar 1973-75,
sat í byggingarnefnd Lögbergs
1969-73, formaður knattspyrnu-
deildar Vals 1970-72 og formaður
knattspyrnufélagsins Vals frá 1988.
Jón samdi kennslubók í bókfærslu
sem gefin var út árlega frá 1969-91.
Hann hefur verið sæmdur gull-
merki Vals, KSÍ, ÍSÍ og KRR.
Fjölskylda
Jón kvæntist 15.1.1966 Guðrúnu
Björnsdóttur, f. 6.7.1945. Hún er dótt-
ir Bjöms Guðmundssonar, húsa-
smíðameistara í Reykjavik, og konu
hans, Sigrúnar Kristjónsdóttur.
Synir Jóns og Guðrúnar em
Björn, f. 16.4.1964, læknir í Reykja-
vík, kvæntur Hörpu Ámadóttur,
sagnfræðingi og myndhstarmanni,
og er sonur þeirra Árni Bergur, f.
30.9.1990; Sveinn, f. 23.10.1971, nemi;
Gunnar, f. 12.2.1975, nemi.
Systur Jóns eru Hanna, f. 25.9.
1939, skrifstofumaður í Garðabæ,
gift Guðmundi Á. Jónssyni sím-
smíðameistara; Anna Sigríður, f.
3.2.1946, hjúkrunarfræðingurí
Reykjavík; Nanna Guðrún, f. 24.9.
1951, háskólanemi, gift Lárusi John-
sen Atlasyni, flugvélstjóra og full-
trúa hjá Flugmálastjóm.
Foreldrar Jóns: Sveinn Zoéga, f.
8.10.1913, d. 4.12.1989, fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík, og kona
hans, Guðrún Sigríður Zoöga, f. 8.1.
1918, húsmóðir.
Ætt
Sveinn var sonur Jóns Zoéga, tré-
smíðameistara í Reykjavík, bróður
Bjargar, ömmu Garðars Cortes. Jón
var sonur Jóhannesar, trésmiðs í
Reykjavík, bróður Geirs Zoega,
kaupmanns og útgerðarmanns í
Reykjavík. Jóhannes var sonur Jó-
hannesar Zoéga, útgerðarmanns í
Nýjabæ, bróður Tómasar á Akra-
nesi, langafa Geirs HaUgrímssonar
forsætisráðherra, föður Hallgríms,
stjórnarformanns Árvakurs, og
langafa Jóhannesar, fyrrv. hita-
veitustjóra, föður Guðrúnar Zoéga
borgarfulltrúa. Jóhannes var sonur
Jóhanns Zoéga glerskera, Jóhann-
essonar. Móðir Jóns Zoéga var Guð-
rún Jónsdóttir, smiðs í Starkaðs-
húsum í Flóa, Ingimundarsonar, b.
á Amarstöðum í Flóa, Jónssonar.
Móðir Ingimundar var Guðrún
Snorradóttir, b. í Kakkarhjáleigu,
Knútssonar, og Þóru Bergsdóttur,
ættföður Bergsættarinnar, Stur-
laugssonar. Móðir Guðrúnar Jóns-
dóttur var Sigríöur Sigurðardóttir,
skipasmiðs á Hjallalandi, Sigurðs-
sonar, og Guðrúnar Jónsdóttur, ætt-
föður Bíldsfellsættarinnar, Sigurðs-
sonar.
Móðir Sveins var Hanna Sveins-
dóttir, trésmiðs í Reykjavík, bróður
Hallgríms, biskups og alþingis-
manns, og Elísabetar, móöur Sveins
Björnssonar forseta og Ólafs rit-
stjóra, afa Ólafs B. Thors, forstjóra
Sjóvá-Almennar. Hálfsystir Sveins
var Sigríður, langamma Hallgríms
tónskálds og Sigurðar, fyrrv. stjóm-
arformanns Flugleiða, Helgasonar,
og Sturlu Friðrikssonar erfðafræð-
ings en Sigriður var einnig móðir
Haralds Níelssonar prófessors, föð-
ur Jónasar Haralz. Sveinn var son-
ur Sveins, prófasts á Staðastað, Ní-
elssonar. Móðir Hönnu var Kristj-
ana Hoffmann, dóttir Hans Hoff-
mann, á Bakkafit við Búðir, sonar
Péturs, faktors að Búðum, ættföður
Hoffmannsættarinnar á íslandi.
Guðrún Sigríður er dóttir Jóns,
skósmiðs og kaupmanns í Reykja-
vík, Brynjólfssonar, b. á Hreða-
Jón GunnarZoéga.
vatni, Einarssonar, hreppstjóra á
Hreðavatni, Bjarnasonar, b. á Arn-
bjargarlæk, Einarssonar, b. í Örn-
ólfsdal, Bjarnasonar. Móðir Brynj-
ólfs var Valgerður Brynjólfsdóttir.
Móðir Jóns var Guðrún Hannes-
dóttir, b. í Skrapatungu, Jónssonar,
hreppstjóra í Balaskarði, Einars-
sonar, b. á Efri-Mýrum, Marteins-
sonar. Móðir Guðrúnar Sigríðar var
Guðrún Jósefsdóttir, verkamanns í
Reykjavík, Magnússonar.
Jón tekur á móti gestum í Akoges-
salnum, Sigtúni 3, milh kl. 17.00 og
19.00 á afmælisdaginn.
Jon Ingi Ragnarsson
Jón Ingi Ragnarsson málarameist-
ari, Holtagerði 54, Kópavogi, er
fimmtugurídag.
Starfsferill
Jón Ingi fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp til tíu ára aldurs en hefur
síðan búið í Kópavogi. Hann lauk
námi í málaraiðn frá Iðnskólanum
í Reykjavík 1963, öðlaðist meistara-
réttindi og hóf sjálfstæðan atvinnu-
rekstur 1966 en tók við rekstri fé-
lagssvæðis Breiðabliks 1991.
Jón Ingi lék með meistaraflokki
Breiðabliks um tíu ára skeið, var
þjálfari félagsins í nokkur ár, hefur
starfað í stjórnum félagsins í 35 ár
og verið formaður knattspyrnu-
deildar og varaformaður aðalstjórn-
ar sl. sjö ár. Hann hefur starfað fyr-
ir UMSK og unniö að undirbúningi
landsmóta ungmennafélaganna. Þá
sat hann mörg ár í stjórn MMFR,
m.a. sem varaformaður og gegndi
formennsku í ár. Hann átti einnig
sæti í stjórn Meistarasambands
byggingamanna.
Jón Ingi er félagi í Rotaryklúbbi
Kópavogs og Bridgefélagi Kópavogs.
Hann hefur hlotið fjölda viðurkenn-
inga fyrir félagsstörf, s.s. gullmerki
ÍSI, KSÍ og Breiðabliks, silfurmerki
UMFÍ og starfsmerki UMSK.
Fjölskylda
Jón Ingi kvæntist 1.6.1963 Öldu
Sveinsdóttur, f. 12.3.1945, deildar-
stjóra í dagdvöl aldraðra í Sunnu-
hlíð. Hún er dóttir Sveins A. Sæ-
mundssonar blikksmíðameistara og
Ingibjargar G. Kristjánsdóttur.
Böm Jóns Inga og Öldu eru: Ragn-
ar, f. 26.21963, málari, í sambúð með
Eybjörgu B. Hansdóttur lækni og
eiga þau eina dóttur; Ingibjörg
Hrönn, f. 6.3.1966, líffræðingur, í
doktorsnámi í lífeðlisfræði í Gauta-
borg; Linda Dröfn, f. 23.3.1974, nemi.
Bræður Jóns Inga em: Steinar, f.
15.8.1946, prentari hjá DV, kvæntur
Katrínu Kristínu Söebech og á hann
þrjú böm og þrjú stjúpbörn; Jó-
hannes, f. 30.12.1949, bifvélavirki,
kvæntur Guðrúnu Guðmundsdótt-
ur og eiga þau fjögur börn. Hálf-
bróðir Jóns Inga, sammæðra, er
RagnarÞór Bogason, f. 13.8.1958,
sjómaður, og á hann eina dóttur.
Jón Ingi er sonur Kristins Ragnars
Jóhannessonar, f. 28.12.1913, d. 19.8.
1954, og Ragnheiðar Magnúsdóttur,
f. 14.3.1916, d. 29.4.1969.
Ætt
Hálfsystir Ragnars var Sigríður,
amma Elíasar Snæland, aöstoðar-
ritstjóra DV. Ragnar var sonur Jó-
hannesar, b. í Skarfanesi, bróður
Jóns á Sámsstöðum, langafa Guð-
mundar Ingólfssonar píanóleikara.
Jóhannes var sonur Magnúsar, b. í
Skarfanesi, Jónssonar, og Sigríðar,
sem er talin dóttir Bjama Thorar-
ensens, skálds og amtmanns.
Móðir Ragnars var Ingveldur
Jónsdóttir, b. í Eystra-Geldinga-
holti, Ólafssonar, b. á Baugsstöðum,
bróður Sigríðar, langömmu Ingi-
gerðar, móður Guðrúnar Helgadótt-
ur, fyrrv. ráöherra. Móðir Ólafs í
Eystra-Geldingaholti var Ingunn,
Eiríksdóttir, hálfsystir Vigdísar í
Miðdal, langömmu Vigdísar forseta
og ömmu Guðmundar frá Miðdal,
föður Errós. Móðir Ingunnar var
Ingveldur, systir Ófeigs á Fjalli, föð-
ur Trygga útgerðarmanns, föður
Páls Ásgeirs sendiherra, föður
Tryggvabankastjóra. Ingveldur var
dóttir Ófeigs, ríka og ættföður
Jón Ingi Ragnarsson.
Fjallsættarinnar Vigfússonar og
Ingunnar Eiríksdóttur, ættföður
Reykjaættarinnar Vigfússonar.
Ragnheiður er dóttir Magnúsar,
bílstjóra í Reykjavík, Ólafssonar, b.
í Þormóðsdal í Mosfellssveit, Þor-
steinssonar. Móðir Ólafs var Anna
Ólafsdóttir frá Hvammi í Ölfusi.
Móðir Önnu var Inghildur, systir
Jóns, langafa Halldórs Laxness. Ing-
hildur var dóttir Þórðar, b. á Vötn-
um í Ölfusi, Jónssonar og Ingveldar
Guðnadóttur, b. í Reykjakoti, Jóns-
sonar, ættföður Reykjakotsættar-
innar. Móðir Magnúsar bílstjóra var
Ingibjörg Magnúsdóttir, b. í Ártún-
um, Hermannssonar. Móðir Magn-
úsar var Margrét Grímsdóttir, syst-
ir Helgu, langömmu Þorgríms
Magnússonar, forstjóra BSRB, föð-
ur Sigurgeirs, ættfræðings DV.
Móðir Ingibjargar var Sigríður
Þórðardóttir. Móðir Sigríðar var
Ingibjörg Jónsdóttir, systir Gróu,
ömmu Guðmundar, langafa Hauks
Helgasonar aðstoðarritstjóra DV.
Jón Ingi og Alda taka á móti gest-
um í Félagsheimili Kópavogs milli
kl. 18.00 og 21.00 ídag.
Til hamingju með afmælið 9. júní
90 ára
Jóhannes Jónsson,
Hvammi, Húsavík.
Steingrimur Vithjálmsson,
Hvassahrauní 1, Grindavík.
75 ára
Jenný Sigmundsdóttir,
Skerseyrarvegi 7, Hafnarfiröi.
70 ára
Karl Halldór Karlsson,
Reynihvammi 9, Kópavogi.
60 ára
Sigurður Ólafs Jónsson,
Suöurbyggö 17, Akureyri.
Guðrún Arnórs,
Ásgaröi 4, Reykjavík.
50 ára
Sigraar Jóhannesson,
Egilsbraut 2, horlákshöfn.
Herdís Þorsteinsdóttir,
Urðarvegi 17, ísafirði.
Erla Kjartansdóttir,
Háholti 30, AkranesL
Finnbogi H. Aiexandersson,
Seljabraut 62, Reykjavík.
Rafhhildur Jóhannesdóttir,
Móaflöt 35, Garðabæ.
40 ára__________________________
Áslaug ívarsdóttir,
Grundargerði 5 A, Akureyri.
Ólafur Aðalsteinsson,
Melstað, Borgaröarðarhreppi.
Ragnar Aðalstelnn Tryggvason,
Dverghömrum 32, Reykjavlk.
Magnús Kristinsson,
Austurhlíð I, Biskupstungnahreppi.
Jakob Jónsson,
Hjöllum 21, Patrekshreppi.
Pétur Þórsson,
Hverfisgötu 10, Hafnarfirði.
Gunnar Pétur Másson,
Klapparstíg 37, Reykjavík.
Aitor Eyþór Yraola,
Tómasarhaga 49, Reykjavtk.
Ragnar B. Johansen,
Eyjabakka 13, Reykjavík.
Anna Thorstensen:
Leiðrétting nm gestamóttöku
í afmælisgrein sem birtist um
Önnu Thorstensen, sjötíu og fimm
ára, í blaöinu í gær, féll niður dag-
setning á gestamóttöku. Tilkynn-
ingin um gestamóttökuna er rétt
svona: Anna verður að heiman á
afmælisdaginn en tekur á móti gest-
um, laugardaginn 12. júní nk. í sal
Múrarafélags Reykjavíkur, Síðu-
múla 25, milli kl 16.00 og 18.00.
Viökomandi eru beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Sigurjón Bjömsson
Siguijón Bjömsson, fyrrv. stöðvar-
stjóri Pósts og síma í Kópavogi,
Hrafnistu, Hafnarfirði, verður átta-
tíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Sigurjón fæddist að Hryggjum í
Mýrdal og ólst þar upp til fjórtán
ára aldurs. Þá fluttist hann að Með-
allandi í V-Skaftafellssýslu.
Sigurjón tók próf frá Samvinnu-
skólanum árið 1934 eftir tveggja ára
nám. Hann fluttist að því loknu til
ReyKjavíkur. Næstu fimm ár vann
Sigurjón viö ýmis störf. 1940 réðst
hann til Pósts og síma, fastráðinn
starfsmaður. Var þar vettvangur
hans allt til ársins 1972. Siðustu
íjórtán ár starfsævi sinnar var Sig-
urjón símstöðvarstjóri í Kópavogi.
Siguijón gegndi ýmsum trúnaðar-
og félagsstörfum fyrir Póstmanna-
félag íslands. Sat hann meöal ann-
ars í stjóm þess á tímaþili. Þá starf-
aði Siguijón að stofnun félags póst-
manna á eftirlaunum.
Siguijón áljóðí bókinni V.-skaft-
fellsk ljóð. Á síðari árum hefur hann
einnig fengist við myndlist.
Fjölskylda
Siguijón kvæntist 15.2.1934 Þor-
björgu Pálsdóttur, f. 1.1.1915, d. 12.9.
1987, póstfulltrúa. Hún var dóttir
Páls Pálssonar, b. á Söndum í Meö-
allandi í V-Skaftafellssýslu, og
Margrétar Þorleifsdóttur.
Sigurjón og Þorbjörg eignuðust
níu böm. Þau eru: Sigurrós, f. 1.10.
1934, starfsm. Tryggingastofnunar
ríkisins og form. Sjálfsbjargar, Rvík,
gift Jónasi Gunnari Guðmundssyni
og eiga þau tvö böm; Erla, f. 3.4.
1936, póstfulltrúi í Hafnarfirði, gift
Kristmundi Þorsteinssyni og eiga
þau tvö böm, auk þess sem Erla á
fjögur frá fyrra hjónabandi; Sigur-
björg, f. 19.6.1937, húsmóðir, gift
Haraldi Sumarliðasyni og eiga þau
fimm böm; Páll, f. 19.4.1939, múr-
ari, kvæntur Huldu Pálsdóttur og á
hann eitt bam með fyrri sambýlis-
konu; Jóhann, f. jan. 1942, d. sama
ár; Guðmundur Ármann, f. 3.1.1944,
myndlistarmaður á Akureyri,
kvæntur Hildi Pedersen og eiga þau
fimm böm; Bima, f. 17.9.1946, að-
stoðarskólastjóri, gift Jóni Ólafsyni
og á hún þijú böm með fyrri manni
sínum; Jón Páll, 28.12.1947, skrif-
stofustjóri, kvæntur Steinunni Þor-
steinsdóttur og eiga þau þijú böm;
Sigurður Sigurjónsson, f. 9.9.1950,
prentari.
Alsystur Siguijóns vom Anna
Guðlaug og Sigurbjörg sem báðar
era látnar.
Siguijón er sonur Bjöms Bjöms-
Sigurjón Björnsson.
sonar b., Hryggjum í Mýrdal, og Sig-
þrúðar Dagbjartsdóttur húsmóður.
Siguijón tekur á móti gestum á
Hrafnistu í Hafnarfirði, 5. hæð, milli
kl. 16.00 og 19.00 í dag, afmælisdag-
inn.