Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1993, Page 28
44
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1993
Þokuloft og súld
Össur Skarphéðinsson.
Líkaði vel
í slorinu
„En það er karlinn í brúnni sem
ræður, við erum hásetamir. Ég
er orðinn vanur að vinna í slor-
inu og heíði vel getað hugsað mér
að gera það lengur," sagði Össur
Skarphéðinsson, þingflokks-
formaður Alþýðuflokksins og til-
vonandi umhverfisráðherra, eftir
sögulegan flokksstjómarfund Al-
þýðuflokksins sl. miðvikudags-
kvöld.
Einskis metin!
„Mig hefði frekar dreymt um
það að störf mín undanfarin 15
ár á ýmsum vígstöðvum hefðu
i» verið þess eðlis að nú þætti
mönnum að það væri fengur að
mér á nýjum stað. Það var öðra-
vísi mat uppi á teningnum og það
verður svoleiðis," sagði Rannveig
Guðmundsdóttir eftir að hafa tap-
að fyrir Össuri í atkvæðagreiðslu
um ráðherrastólinn. „Það hefur
verið sagt að formennska í þing-
flokki sé ekki lítið embætti en
menn skoða þau mál mismun-
andi augum,“ sagði Rannveig
ennfremur.
Ummæli dagsins
Enginn óróaseggur!
„Ossur var gerður að formanni
þingflokksins og talsmanni hans
sem tiltölulega nýr maður í
flokknum. Hann hefur að sjálf-
sögðu verið að fullu ábyrgur fyrir
stefnu þeirri sem þingflokkurinn
mótar. Því er ekki hægt að nefha
hann óróasegg," segir Jón Bald-
vin Hannibalsson.
Gæði skóla-
starfsins
Fundur > Landssamtakanna
Heimili og skóli verður haldinn í
Komhlöðunni (bakhús Lækjar-
brekku) í kvöld kl. 20.30.
Fundir í kvöld
Dr. Stefán Baldursson flytur
erindi um gæði í skólastarfi én
að loknum venjulegum aðalfund-
arstörfum verða umræður.
Smáauglýsingar
A höfuðborgarsvæðinu verður norð-
austan gola eða kaldi. Skýjað með
Veðrið í dag
köflum og hiti 9-15 stig.
Á landinu verður austan og norð-
austan kaldi en þó allhvasst á Vest-
fjörðum og annesjum norðvestan-
lands. Þokuloft og súld við norður-
og austurströndina en skúrir suð-
austanlands. Hiti 4-16 stig.
Stormviðvörun: Búist er við stormi
á Vestfjarðamiðum og norðvestur-
miðum.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjað 6
Egilsstaðir súld 4
Galtarviti súld 5
Keílavíkurílugvöllur skýjað 9
Kirkjubæjarklaustur rigning 8
Raufarhöfn rigning 4
Reykjavik hálfskýjað 9
Vestmannaeyjar þoka 8
Bergen skýjað 14
Helsinki léttskýjað 11
Kaupmannahöfn léttskýjað 18
Ósló skýjað 13
Stokkhólmur heiðskírt 15
Þórshöfn alskýjað 9
Amsterdam léttskýjað 18
Barcelona þokumóða 20
Berlín hálfskýjað 16
Chicago leiftur 9
Feneyjar þokumóða 21
Frankfurt léttskýjað 19
Glasgow mistur 13
Hamborg hálfskýjað 16
London mistur 19
Lúxemborg heiðskirt 18
Malaga mistur 19
Mallorca þokumóða 19
Montreal alskýjað 18
New York alskýjað 20
Nuuk alskýjað 7
Orlando heiðskirt 25
París hálfskýjað 21
Róm hálfskýjað 22
Valencia þokumóða 16
Vín léttskýjað 18
Winnipeg skúr 15
íslands-
mótið
'»TTT| *
Og IM dA-
boltinn
í kvöld heldur baráttan áfram
á íslandsmótinu í knattspyrnu.
Víkingur og Þór frá Akureyri
íþróttir í kvöld
mætast á Valbjamarvelli. Heima-
liðið er enn án sigurs en gestirnir
unnu Framara í 2. umferð.
Þá hefst í nótt slagur Chicago
Bulls og Phoenix Suns í úrslitum
NBA-deildarinnar í körfubolta en
Stöð 2 sýnir beint frá öllum úr-
slitaleikjunum.
Valbjarnarvöllur:
Víkingur-Þór Ak. kl. 20
Skák
Friðrik Ólafsson situr nú að tafli í Vín-
arborg, þar sem fram fer keppni „gömlu
meistaranna“ gegn úrvalsliði kvenna.
Með Friðrik tefla Smyslov, Larsen, Gell-
er, Ivkov og Dúckstein gegn Zsuzsu og
Sofíu Polgar, Arakhamíu, Xie og Gallj-
amóvu-Ivantsjúk og Tsibúrdanidze.
í fyrstu umferð gerði Friðrik jafntefli
við Tsíbúrdanidze, fyrrverandi heims-
meistara. Hún haföi hvítt og ætlaði að
koma höggi á Friðrik í þessari stööu:
14. Rb5!? axb5 15. Bxb6 Db8! Þessi leikur
heldur svörtu stöðunni saman og nú eru
öll vandamál að baki. Eftir 16. Hxa8 Dxa8
17. De2 Db7 18. Be3 Re5 19. Hal Bd8 20.
Ra5 Da6 stefnir í þráleik með 21. Rb3 Db7
22. Ra5 o.s.frv. og Tsíbúrdanidze þáði
jafnteflisboð Friðriks.
Jón L. Árnason
Bridge
Bandaríkjamaðurinn Larry Cohen er ís-
lendingum að góðu kunnur en hann sat
í austursætinu í þessu spili í sveita-
keppnileik fyrir skömmu. Cohen var
gestur hér á síðustu bridgehátíð og spila-
félagi Pakistanans Zia Mahmoods. Spihð
byggðist fyrst og fremst á ákvörðun aust-
urs (Marty Bergen) sem ákvað að passa
niður úttektardobl félaga. Sagnir gengu
þannig, suður gjafari og NS á hættu:
♦ 73
V 10872
♦ D1062
+ G104
♦ DG652
V KG4
♦ 8
+ K972
♦ ÁK1098
V D3
♦ K53
+ 853
Suður Vestur Norður Austur
1* Dobl p/h
Austur taldi að hann ætti nægjanlega
mikil spil til þess að hendi norðurs væri
sagnhafa að mestu ónýt í einum spaða.
NS voru á hættu svo að tveir niður í þess-
rnn samningi væri betra en geimsamn-
ingur fyrir AV. Cohen spilaði út einspili
sínu í spaða í upphafi eins og algengt er
að gert sé í samningum sem þessum.
Sagnhafi drap gosa austurs á ás, spilaði
tígli á drottningu og svínaði síðan spaða.
Hann spilaði sig síðan út á laufi. Cohen
og Bergen gerðu engin mistök, Cohen
drap á laufdrottningu, spilaði tígulás og
gaf Bergen stungu í tígli. Síðan voru lauf-
kóngur, hjartakóngur, hjartaás og laufás
tekinn. Þá var suður með 3 tromp eftir
og var neyddur til að trompa næsta slag.
Bergen fékk því einn slag til viðbótar á
tromp og spilið fór 500 niður. Samningur-
inn var 2 grönd á hinu borðinu og Bergen
og Cohen græddu 9 impa á spilinu.
ísak Örn Sigurðsson
Þorvaldur Baldvinsson „hvalkjötssali'':
• r
r
1
• r
„Þaö kom mér mjög á óvart að
lenda inni í þessari hringiðu og
mér finnst að þessí samtök, sem
stóðu að þessu uppþoti, ættu frekar
að snúa sér að náttúruvernd en að
vera að eltast við menn sem sefla
kjöt af hvölum, auðvitað dauöum
hvölum," segir Þorvaldur Bald-
vinsson, kaupmaður í versluninni
Sælandi á Akureyri. Þorvaldur var
á dögunum kærður af Hvalavernd-
unarfélagi íslands fyrir að selja
hvalkjöt í verslun sinni.
„Þorvaldur, sem er fæddur og
uppalinn á Árskógsströnd í Eyjafiröi,
hefur stundað sjóinn alla tið frá 11
ára aidri og man tímana tvenna. „Það
sem slær mig mest i dag er hvað sjór-
inn er orðinn líflaus, þaö sést best á
því að fylgjast með fuglinum sem tek-
ur miklu minna æti úr sjónum en
áður. En það er meira en nóg af hvöl-
Þorvaldur Baldvinsson.
um í sjónum, sérstaklega hrefnu og
hnúfubak."
Þorvaldur segir það engan vanda
aö veiða hrefnur, nóg sé af þeim í
sjónum og hún sé í samkeppni við
manninn um fiskinn í sjónum.
, Jlrefnur og aðrir smáhvaiir koma
alltaf í net sjómanna og ekkert við .
því að gera. Þetta gerist alltí kríng-
um landið og hvað eiga menn að
gera? Á að henda þessum dýram
dauðum í sjóinn aftur, eöa hvað
vilja menn? Er ekkí möguleiki á að
sjómenn fengju á sig kæra fyrir
brot á mengunarlöggjöf ef þeir
gerðu það?
Ég hætti ekki að selja hrefnukjöt
vegna þessara manna, ég læt elcki
tækifærissinna segja mér fyrir
verkum. En ef yfirvöld skipa mér
það þá gegni ég. Þessi svokölluðu
umhverflsverndarsamtök, sem eru
bara dýravemdunarsamtök, hafa
aldrei verið og era ekki hátt skrifuð
hjá mér,“ segir Þorvaldur.
Gylfí Kristjánsson, DV, Akureyri
Myndgátan
Fótagafl
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi.
¥ Á965
♦ ÁG974
-ft. Ánc