Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1994, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1994
Fréttir
Stuttar fréttir dv
Fjöldi krata ráðinn í æðstu stöður á árinu 1993:
Opinberar toppstöður
á pólitísku færibandi
~ Guðmundur Ami vanhæfur verði stjóm Ríkisspítala kærð til ráðuneytisins
Ráðningar og
stöðuveitingar Alþýðuflokksins
ian.t
Jan. <■
i
í
Jún.[
i
JÚI.t
t
t
Júl.1
t
Ág-t
i
i
Ág.t
i
i
Sept. [
t
Nóv. t
t
t
Des.1
Guömyndi
aöstoöarm. J.
Ráögjafanefnd
FTA í Genf
Magnús Jónsson :—
veöurfræöingur
Jón Sigurösson,.
fyrrv. viðskiptaráöh.
Guöfinnur Sigurvinsso
fyrrv. bæjarstj. 1 Keflavík
Eiöur Guönason,
fyrrv. umhvérftsráöh.
Þorkeíl He gason,
fyrrv. áðstoöarm.
Signvats Björg' inssonar
Björn Friöflnnsson,
ráðuneytisstj. ion. og viö.
^ Veðurstofustjóri
(Elöur Guönason)*
f Seölabankastjóri
ghvatur Björgvlnsson)*
. /
Skrífstofustj, Flugmálastj.
á Keflavíkurflugvelli
(Jón B. Hannlbalsson) *
ndíherra í Noregi
Jón B. Hannlbalsson) *
Ráöuneytisstj. í iönaóar-
og viöskiptaráöun.
(SlghvaWr BJörgvlnson)*
Eftir
EFT/,
itss
Karl Stéínar Guðnason
alþing smaöur
Gottskálk Olafssi
deildarstjóri
Jón H. Karlsson, ______j
aðstoöarmíéuÖíTTcmtfsr
Forstjóri
stofnuna
itofnun
Genf
Try
n
gginga-
íkisins
(Guömunriur Á nj Stefánsson)*
Aðaldeildarstjóri
Tollgæslunnar í Keflav.
kannlbalsíon)-
ar Ríkisspítalanna
(Guömunriur Árnl Stefénsson)*
* Vlökomandl ráöberra aem rœöur í stööuna eöa veltlr hana
A gamlársdag ákvað Guðmundur
Árni Stefánsson heilbrigðisráðherra
að skipa Jón H. Karlsson sem for-
mann stjórnarnefndar Ríkisspítal-
anna. Jón er mágur Guðmundar
Árna auk þess að vera flokksfélagi
hans og aðstoðarmaður í ráöuneyt-
inu. Tímasetning skipunarinnar hef-
ur vakið athygh því samkvæmt nýj-
um stjómskipunarlögum, sem tóku
gildi um áramótin, má ráðherra ekki
hafa afskipti af málum sem snerta
venslamenn hans.
Að mati ýmissa lögspekinga leikur
vafi á því að skipun Jóns sé lögleg
jafnvel þótt ný stjórnskipunarlög
hafi ekki tekið gildi fyrr en daginn
eftir. Guðmundur Árni fullyrðir hins
vegar að skipunin sé lögleg. Máli
sínu til stuðnings vísar hann til álits
lögfræðings heilbrigiðsráðuneytisins
þess efnis að skipunin stangist ekki
einu sinni á viö ný stjórskipunarlög.
Þetta staðfesti Dögg Pálsdóttir, lög-
fræðingur ráðuneytisins, í samtali
við DV. Rök hennar eru aö nefndar-
skipan sé ekki það sama og skipan í
starf og að ekki geti talist óeðlilegt
að ráðherra skipi aðstoðarmann sinn
W pólitískrar nefndarsetu, jafnvel
þótt hann sé mágur hans.
„Það er hins vegar enginn vafi á
því að ef til þess kemur að ákvörðun
stjómar Ríkisspítalanna verði kærð
til ráðuneytisins þá mun heilbrigðis-
ráðherrann Guðmundur Árni vera
vanhæfur til að úrskurða þá kæru
meðan formaðurinn er Jón H. Karls-
son. Þá munu vanhæfisreglur stjórn-
sýslulaganna gera það að verkum aö
skipa verður seturáðherra."
Kratar pota krötum
Skipan Jóns H. Karlssonar til
stjórnarformennsku hjá Ríkisspít-
ölunum er af mörgum talin enn eitt
dæmið um pólitíska ráðningu hjá
krötum. í fyrra voru kratar gagn-
rýndir harkalega fyrir pólitískar
stöðuveitingar sínar. Mýmörg dæmi
eru um slíkar ráðningar sem vakiö
hafa athygh.
I byrjun ársins fékk Guðmundur
Einarsson, aðstoðarmaður Jóns Sig-
urðssonar, toppstöðu hjá Ráðgjafa-
nefnd EFTA í Genf. Á þeim tíma
hafði Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra veruleg ítök innan
EFTA eftir að hafa gegnt for-
mennsku þar. Um svipað leyti ákvað
Eiður Guðnason, þá umhverfisráð-
herra, að ráða kratann Magnús Jóns-
son sem veðurstofustjóra.
í sumarbyrjun hætti Jón Sigurðs-
son sem viðskiptaráðherra og var
umsvifalaust ráðinn seðlabanka-
stjóri af Sighvati Björgvinssyni sem
tók við af Jóni í viðskiptaráðuneyt-
inu. Stuttu síðar ákvað Jón Baldvin
að ráða Guðfinn Sigurvinsson, fyrr-
verandi bæjarstjóra í Keflavík, sem
skrifstofustjóra hjá Flugmálastjóm á
Keflavíkurflugvelli. Þá ákvað Eiður
Guðnason að hætta sem umhverfis-
ráðherra og þiggja stöðu sendiherra
í Noregi úr hendi Jóns Baldvins.
í ágúst ákvað Sighvatur Björgvins-
son, þá nýskipaöur iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, að gera aðstoðar-
mann sinn, Þorkel Helgason, að
ráðuneytisstjóra. Þorkell tók við
stöðunni af Birni Friðfmnssyni scm
fengið hafði starf hjá EFTA.
Umsækjendur blekktir
Stuttu síðar varð ein umdeildasta
krataráðning ársins 1993. í ágúst
ákvað Guðmundur Árni að ráða
flokksfélaga sinn, Karl Steinar
Guðnason, forstjóra Tryggingastofn-
unar ríkisins. Þrátt fyrir að búið
hafl veriö að ákveða fyrir löngu aö
ráða Karl Steinar var staðan auglýst
og alls sóttu 13 um hana.
í nóvember ákvað síðan Jón Bald-
vin að hækka einn flokksfélaga sinn
í tign í tollinum á Keflavíkurflug-
velli - Gottskálk Ólafsson deildar-
stjóri var allt í einu orðinn yflrdeild-
arstjóri. Og eins og áður segir ákvað
Guðmundur Árni Stefánsson á gaml-
ársdag að skipa Jón H. Karlsson
formann stjórnar Ríkisspítalanna.
-kaa
Forstjóri Landheigisgæslunnar
segist tílbúinn að flytja starfsem-
ina til Suðumesja sé þaö til hags-
bóta. Tíminn greindi frá þessu.
Stefntáöruggtsæti
Ólafúr F. Magnússon, læknir
og varaborgarfulltrúi, stefnir á á
6.-7. sætið á lista Sjálfstæðis-
flokksins í próíkjöri vegna kosn-
inganna í vor.
Olíuleit i Öxarf irði
•Jaröfræðingur frá Orkustofnun
á í viöræðum við dönsku jarð-
fræðistofnunina um leit að olíu
og gasi í Öxarfirði. Að sögn Morg-
unbiaösins.hafa Danimir einkum
áhuga á gerö tölvulikans af set-
lagadældinni í flrðinum.
Toyota*viðræður
Toyota í Noregi hefur sýnt
áhuga á að kaupa hlut í P. Samú-
elssyni, umboðsaðila Toyota á
íslandi. Samkvæmt Morgunblað-
inu mun niðurstaða fást i viöræö-
urnar innan skamms.
Áætlunarflug fellt niður
íslandsflug hefur ákveðið að
hætta áætlunarflugi á Rif vegna
skorts á farþegum. Að sögn Al-
þýðublaðsins verður síðasta
áætlunarflugið á sunnudaginn.
Fimmtungurdó
Um fímmtungur heimilis-
manna á elli- og hjúkrunarheim-
ilinu Gmnd dóu á síðasta ári. Af
256 heimilismönnum létust 55.
Tlminn greindi fra'þessu.
Sameinaðurvörulager
Borgarspítali og Landakotsspít-
ali sameinuöu vörulager og inn-
kaupadeildir sínar um áramótin.
Vörulagerinn verður í framtíð-
inni í Borgarspítalanum sem
jafnframt tekur að sér reksturinn
og greiðslur.
Vörugföld i stað tolla
Vörugjöld koma í stað tolla-
lækkanna á heimilistækjum.
RÚV segir í undirbúningi að láta
Eftirlitsstofnun EFTA kanna
hvort íslenska ríkið sé að brjóta
gegn EES með gjaldtökunni.
-kaa
Sólheimar notuöu Qóröung rekstrarframlags 1993 til að borga skuldir:
Tilef ni til úttektar
- segir Bragi Guðbrandsson, aðstoöarmaður félagsmálaráðherra
„Ef fullyrðing Sólheimamanna um
skuldastööuna er rétt þá hefur þeim
á síðasta ári tekist að lækka skuldir
sínar um 20 milljónir með rekstrar-
framlagi ríkisins. Annað hvort eru
þeir að segja ósatt eða þeir hafa kom-
ist af með þrjá fjórðu rekstrarfram-
lagsins. Sé þetta satt tel ég komið til-
efni til að fram fari opinber úttekt á
íjárreiðum heimilisins," segir Bragi
Guðbrandsson, aöstoðarmaður fé-
lagsmálaráðherra.
Stjórn Sólheima í Grímsnesi hefur
mótmælt ásökunum félagsmálaráðu-
neytisins um að hafa sniögengið lög
með framkvæmdum og breytingum
á rekstrarfyrirkomulagi. Rangt sé að
Sólheimar eigi viö vanda að stríða
vegna fjárfestinga og framkvæmda.
Langtímaskuldir heimilisins séu um
880 þúsund krónur og langtíma-
skuldirnar um 2 milljónir. Langtíma-
skuldir Styrktarsjóðs Sólheima, sem
fjármagnar framkvæmdir, séu 69
milljónir og greiðslubyrðin rúmar 3
milljónir á ári.
Að sögn Braga vekja þessar upplýs-
ingar furðu. í árslok 1992 hafi
skammtímaskuldir Sólheima sam-
kvæmt ársreikningi verið 21,4 millj-
ónir og langtímaskuldir 931 þúsund.
Á árinu 1993 var rekstrarframlagið
81 milljón.
í yfirlýsingu frá stjórn Sólheima
segir að deilan við félagsmálaráðu-
neytið snúist um gerð þjónustu-
samnings vegna rekstrarins. Deilt sé
um hvort greiða eigi framlag til að
standa undir launum vistmanna,
hvort launakjör starfsmanna eigi að
vera sambærileg og á öðrum stofn-
unum og hvort framlag skuh greitt
vegna afskrifta húsnæðis.
Að sögn Braga er það rétt að um
þetta hafi aðilar málsins rætt áöur
en slitnaði upp úr viðræðum þeírra.
í upphafi hafi Sólheimamenn krafist
25 til 30 milljóna vegna þessara þátta.
í lok viðræðnanna var þessi tala
komin niður í 8 milljónir. Bragi segir
þá upphæð hærri en svo að ráðuneyt-
ið hafi getað fallist á hana, enda
óréttmæt.
-kaa
Unnið í Rússafiski í Eyjum
Haukur Halldórsson með fána Ásatrúarfélagsins fremstur við athöfnina i
gær. DV-mynd Sigurður
Allsherjargoðinn kvaddur
Sigurður Sverrissan, DV, Akranesi:
Sveinbjörn Beinteinsson var
kvaddur frá safnaðarheimilinu
Vinaminni á Akranesi í gær. Eftir
athöfnina þar var haldiö að Saurbæ
á Hvalíjarðarströnd þar sem alls-
herjargoöinn var lagður í moldu. Jón
Einarsson prófastur jarðsöng. Fjöl-
menni var á báðum stöðum.
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannnaeyjum:
í Vinnslustööinni í Vestmannaeyj-
um gera menn sér vonir um að geta
haft vinnu fyrir fastráðna fólkið með
Rússafiski. Millijóla og nýárs bárust
250 tonn og von er á öðrum 250 tonn-
um. Þetta á að nægja til að halda úti
vinnu út mánuðinn að sögn Sighvats
Bjarnasonar framkvæmdastjóra.
Verkfall sjómanna hefur nú staðið
á sjötta sólarhring og er nánast allur
Eyjaflotinn bundinn við bryggju.
Lausráðið fólk í fiskvinnslustöðv-
unum hefur setið heima frá því fyrir
áramót og um helgina fer fastráðið
fólk hjá ísfélaginu af launaskrá. Að
sögn Sigurður Einarssonar fram-
kvæmdastjóra verða hátt í 200 starfs-
menn fyrirtækisins án atvinnu ef
ekki nást samningar.
Eldur kom upp í ruslagámi við íspennistöðsemstóðviðhliðrusla-
verslun Bónuss við Iðufell í gær- gámsins.
kvöld.Engarskemmdirurðunema Grunur leikur á að kveikt hafl
á ruslagáminum. Allt tiltækt lið verið í gámnum eða að kviknaö
slökkviliðs var kallað á vettvang hafi í út frá ilugeldi.
þar sem óttast var aö eldur bærist -pp