Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1994, Síða 9
EOSTODAGUR 7. ’ JANÚA'R 1994
9
Stuttarfréttir
Utlönd
BaristíTogo
Stjómvöld íTogosögöuaðskot-
ið heföi veríð á hermenn yflr
landamærin frá Gliana.
Tiiræðismanna leitað
Öryggissveitir í Togo leita
íjölda manna sem reyndu að
myrða Eyadema forseta.
SÞstöðviárásir
Izetbegovic,
forseti Bosníu,
fór fram á þaö
við Öryggisráð
S.Þ. að það
stöðvaði árásir
Scrba á
Sarajevo þar
sem átta
manns féllu og sex tugir særðust
í gær.
Loftárásir hugsaniegar
Clinton Bandaríkjaforseti úti-
lokar ekM loftárásir á Bosníu af
hálfu NATO.
HungiiríBosníu
S.Þ. segjast hafa sannanir fyrir
þ\d að margir borgarar svelti á
átakasvæðum Bosníu.
Föngumsleppt
ísraelsmenn sleppa 101 palest-
ínskum fanga í tileftii áframhald-
andi viðræðna við PLO.
Áhyggjurafaftökum
Bandarískir þingmenn hafa
áhyggjur af fréttum um aftökur
án dóms og laga í bændaupp-
reisninni í Mexíkó.
Mannrání Jemen
Breta og Kanadamanni hefur
verið rænt í Jemen.
Mercourígegn Hoily-
wood
Melina
Mercouri,
menningarráó-
herra Grikk-
lands og fyrr-
um kvik-
myndastjarna,
sagði í gær að
hun mundi
berjast gegn yfirráðum Holly-
wood á kvikmyndamarkaði Evr-
ópu.
Strætóverkfalli lokið
Sættir hafa tekist i strætóverk-
fallinu í Þrándheimi.
Höeg fær verðlaun
Danski höfundurinn Peter Hö-
eg fékk verðlaun danskra bóksala
fyrir bókina De máske Egnede.
Dæmtfyrírofveiði
Norskt útgerðarfyrirtæki hefur
veriö dæmt í 7 milljón króna sekt
fyrir ofveiðar á þorski.
Sendihenratekinn
Þýskur sendiherra hefur verið
handtekinn, grunaður um njósn-
ir fyrir Austur-Þjóðverja.
Stuðningítrén
Nefnd á veg-
um Björns
Wesths, land-
búnaðarráð-
herra Dan-
merkur, vill að
trjáiönaður
landsins fái 200
milljarða ísl-
enskra króna ríkisstyrk til vöru-
þróunar.
Baristvíðskógarelda
Rúmlega sjö þúsund slökkvi-
liðsmenn berjast við 120 skógar-
elda nærri Sydney í Ástralíu, þá
verstu á svæðinu i 50 ár.
Þeir sem ganga með plastúr
eiga á hættu að verða fyrir geisla-
mengun umfram meöallag.
Keuter, NTB, Ritzau
Bandarísk hjón urðu alvarlega ósátt efir 17 ára hjónaband:
Gelti mann sinn
eftir samkvæmi
- hjónin hafa náð sáttum og tekið upp sambúð á ný eftir skllnað
„Þetta er auðvitað atvik sem hefur
gríðarlgg áhrif á líf þeirra beggja en
samt eru þau ásátt um að hefja sam-
búð á ný og gleyma því liðna,“ segir
lögmaður bandarískrar konu sem
seint á síðasta ári reiddist manni sín-
um illa eftir samkvæmi og gelti hann
þegar heim var komið.
Þau hjón heita James og Aureha
Macias og búa í Los Angeles. Aurelía
taldi að maður hennar sýndi annarri
konu óþarfa athygh í samkvæminu
og ákvað að leita hefnda. James var
mjög drukkinn og sofnaði þegar heim
var komið. Þá skar Aurelía undan
honum punginn.
James sleit sambúðinni jafnskjótt
og hann vaknaði úr drykkjurotinu
og kærði konu sína fyrir líkamsmeið-
ingar. Lengi vel stefndi í réttarhöld
sem jafnast hefðu á við klögumáhn
miili Bobbitt-hjónanna í Virginíu.
Það er frægasta mál af þessu tagi á
síðari tímum.
í gær tók mál hjónanna í Los Ange-
les hins vegar aðra stefnu þegar til-
kynnt var að þau heföu sæst og ætl-
uðu að hefja sambúð að nýju þrátt
fyrir það sem á undan er gengið.
Réttarhöld yfir Aurelíu áttu að
hefjast í gær en þegar í réttinn kom
settust þau hjón saman og var sýni-
lega mjög kært með þeim.
Lögmaður hennar las þá upp yfir-
lýsingu um að ekkert yrði úr réttar-
höldum því sættir hefðu tekist. Dóm-
arinn féllst á þessi málalok.
Aurelía átti yfir höfði sér lífstíðar-
fangelsi. Hún er 35 ára gömul og
haföi verið gift James í 17 ára þegar
hún brá hnífnum. Þau eiga einn son.
Bömin verða ekki fLeiri því læknar
sögöu James strax að tilgangslaust
væri að reyna að græða það á sem
af var skorið. Þar skilur á milh ör-
laga hans og Johns Wayne Bobbitt
sem fékk hm sinn ágræddan, með
vafasömum árangri þó. Reuter
Japanskir sundfataframleiðendur eru farnir að kynna hugmyndir sínar um
tískuna á sólarströndum i sumar. Sýningar sem þessar ylja mönnum í
svartasta skammdeginu þegar óralangt virðist til vors. Simamynd Reuter
Þýskaland:
Faðir stakk
f imm börn
sín til bana
Helga M. Óttaisdóttir, DV, Þýskalandi:
Fjölskyldufaðir stakk fimm börn
sín til bana meö eldhúshníf á heimili
sínu aðfaranótt miðvikudagsins. Eft-
ir það kveikti hann í íbúðinni og
svipti sig lífi með hnífnum. Bömin
fimm voru á aldrinum 4 til 13 ára.
Nágranni varð var við reyk frá
íbúðinni og gerði slökkviliði viðvart.
Fyrr um nóttina haíði hann heyrt
mikil hróp og köll frá börnunum.
Harmleikurinn varð á heimili fjöl-
skyldunnar í Osnabruck í Þýska-
landi þar sem íjölskyldan hafði búið
í um töv ár. Maðurinn var Rússi af
þýskum uppruna. Deginum áður
haföi konan yfirgefið heimilið vegna
misþyrminga mannsins.
Talið er að ástæður fyrir verknaði
mannsins hafi verið hjónabands- og
fjárhagsvandi en hann hafði verið
atvinnulaus að undaníornu. Þetta er
enn eitt dæmið sem sýnir hvað inn-
flytjendum í Þýskalandi getur gengiö
illa að aðlagast samfélaginu og hefja
nýtt líf í nýju landi.
Alls em nú 3,7 milljónir manna án
atvinnu í Þýskalandi. í vesturhlutan-
um er 8,1% vinnufærra manna at-
vinnulaust en yfir 14% í austurhlut-
anum. Atvinnuieysið hefur aukist
frá árinu áður en atvinnuleysi hefur
ekki mælst meira frá stríðslokum.
Ekki er útlit fyrir að ástandið batni
á árinu 1994.
AIGoresegir
huggunarorðvið
Austur-Evrópu
A1 Gore,
varaforseti
Bandaríkj-
anna, reyndi í
gær að full-
vissa þjóðir
Austur-Evrópu
um að áætlun
Ciintons for-
seta um nýja friöarsamvinnu
markaði upphafið að mun nánari
tengslum þeirra við NATO.
„Hið nýja NATO verður að snúa
sér að áhyggjum þessara þjóða
sem liggja milli Rússlands og
Vestur-Evrópu þar sem öryggis-
hagsmunir þessara rikja hafa
áhrif á öryggishagsmuni Banda-
ríkjanna," sagði Gore.
Chnton er á leið til Evrópu þar
sem hann mun m.a. sitja leiðtoga-
fund NATO í Brussel.
Danirfá 65 þús-
und krónurfyrir
ónýtu bflana
Dönsk stjórnvöld bjóða nú
hverjum þeim sem losar sig við
gamla bílinn sinn í brotajárn sem
svarar 65 þúsund íslenskum
krónum fyrir vikið í eins konar
umhverfisbónus.
Reglur þar að lútandi gengu í
gildi á mánudag og hefur ekki
linnt látunum hjá þeim sem taka
við gömlum bílum til niðurrifs.
Búist er við að 100 þusund hif-
reiðaeigendur muni notfæra sér
tilboðiö og að 75 prósent þeirra
láti peningana ganga upp í nýjan
eða nýlegan bíl.
Eina skilyrðið sem þarf að upp-
fylla til að fá bónusinn er að bill-
mn sé eldrí en tíu ára og að hon-
um sé komið til viðurkennds
brotajárnssala.
Zhírínovskí
sagðurhafa
fengið KGB-fé
Rússneski
þjóðernisöfga-
maðurinn
Vladimír Zhír-
ínovsld og
hreyfing Iians
fengu hugsan-
lega fjármuni
frá sovésku
leyniþjónustunni KGB sem aust-
ur-þýskir kommúnistar sáu um
að fela i útlöndum.
Þetta sagði Dietmar Bartsch,
gjaldkeri flokksins sem tók við
af kommúnistaílokki Austur-
Þýskalands, 1 gær. Var þaö i ann-
að sinn á tveimur sólarhringum
sem látiö er liggja að því að tengsl
hafi verið milli KGB og flokks
Zhirinovskís. Reuter, Ritzau
102 myrtir í borg á stærð við Reykjavík
„Við hijótum að viðurkenna að
lítið ber á virðingu fyrir mannslíf-
um hér í borginni, Þetta er eins og
vígvöllur,“ segir Thomas Branson
hjá morðdeild lögreglunnar í Gary
í Indiana í Bandaríkjunum.
Engin ástæða er til að saka hann
um ýkjur því á síðasta ári voru
framin 102 morð í Gary. íbúar
þessa staðar náðu þar með metinu
af höfuðborginni Washington í
fjölria morða miðað við fólksfiölda.
í Gary eru 120 þúsund ibúar og er
borgin því litlu stærri en Reykja-
vík.
i Gary voru framin 85,6 morö á
hverja 100 þúsund íbúa. Hliðstæð
tala fyrir ísland er ríflega eitt morö
ef miöað er við síðustu fimm ár.
Baráttan um titilinn „hættuieg-
asta borg Bandaríkjanna" var hörð
og í 24 borgum tókst morðingjum
að bæta við afrek sin frá árinu á
undan. í Bandarikjunum ofbýður
mönnum aö sjá þessar tölur og
verða æ fleiri til að taka undir kröf-
ur um aðgerðir til að takmarka
vqpnaeign almennings.
I Gary segjast heiðvirðirborgarar
ekki lengur þora út fyrir hússins
dyr eftir að skyggja tekur. Ástandið
hefur snarversnað á síðustu þrern-
ur til fiórum árum og kenna yfir-
völd vaxandi atvínnuleysi og eitur-
lyfianeyslu um.
„Hér er að vaxa úr grasi kynslóð
sem þekkir ekki annað en hörku í
mannlegum samskiptum. Hér eru
of margar byssur, of mikið af eitur-
lyfium og of fá störf. Fólkinu líður
Ula," segir Thomas Bames, borgar-
stjóri í Gary.
Lögreglumenn í Gary viður-
kenna að þeir hafi beðið ósigur í
baráttunni við glæpamennina. Nú
þurfi að endurskipuleggja allt starf
lögreglunnar. í þeim efnum hugsa
menn gott til ráðanna sem gripið
var til í Washington á síðasta ári.
Þar var mikil vinna lögð í að auka
samvinnu við borgainna með þeim
árangri að höfuðborgin er ekki
lengur einn hættulegasti staður á
jarðríki.