Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1994, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994
7
Fréttir
Sérstæðu meiðyrðamáli í ísaflarðarsýslu lokið:
Ummæli um frænku
dauð og ómerk
- sveitungar í tveimur hreppum fengu bréf um fólkið að Laugalandi
Mikill snjór hefur fallið á Austurlandi siðustu vikurnar, alhvít jörð var um
jól og áramót, og síðustu daga hefur snjó hlaðið niður. Ófærð er viða og
ekki hefur hvassviðri bætt úr skák. Myndin var tekin á Egilsstöðum.
DV-mynd Sigrún Björgvinsdóttir
Tíu ára drengur á Eskifirði:
Sendur einn heim
úr skóla í óveðrinu
Héraðsdómur Vestíjarða hefur
dæmt dauð og ómerk samtals 23
ummæli Indriða Aðalsteinssonar,
bónda að Skjaldfonn í Nauteyrar-
hreppi í N-ísafjarðarsýslu, sem hann
lét falla í opnu bréfi til náfrænku
sinnar að Laugalandi um hana,
bónda hennar og son. Bæimir standa
sinn hvorum megin Selár í Skjald-
fannardal og eru um 2 km á milli.
í nóvember 1990 sendi bóndinn að
Skjaldfónn opið bréf til frænku sinn-
ar - afrit var sent á þrjú heimili í
Snæfjallahreppi, níu heimih í Naut-
eyrarhreppi og til fjögurra annarra
utan svæðisins. Upphaf bréfsins er á
þessa leið:
„Komdu sæl frænka og þakka þér
fyrir síðast sem var eins og þú eflaust
mannst, frammi í dal 23. október á
vettvangi nýjasta ofbeldis og yfir-
gangs míns gagnvart ykkur á Lauga-
landi. Margt skýrðist þama undir
handarjaðri Jónasar yfirlögreglu-
þjóns og þá ekki síður hér heima er
hann kynnti mér kæru Jóhanns
Þórðarsonar, runna undan þínum
rifjum hafandi það göfuga markmið
að koma mér sem fyrst á bak við lás
og slá. Þó að ég kunni nú að reynast
ykkur sýnd veiði en ekki gefin er
mál til komið að upplýsa sveitunga
okkar og aðra þá er ekki skilja hót í
þessari óöld í Skjaldfannardal, hvaða
saga býr að baki þessu nýjasta tóm-
stundagamni ykkar Laugalands-
fólks."
Indriði reifaði síðan nokkur atriði
sem hann taldi að hefðu spillt áður
ágætum samskiptum fjölskyldnanna
tveggja. Orsakir ósamkomulags og
ósættis rakti hann til slælegra bú-
skaparhátta þeirra síðustu árin á
undan og fór einnig þungum orðum
um trúnaðarstörf bóndans að Lauga-
landi í kjörstjórn og búnaðarfélagi
staðarins. Húsfreyjuna sakaði hann
um fáfræði og illvilja í sinn garð og
annarra sveitunga og vændi bónd-
ann um seinlæti við grenjaleit og að
ganga á bak orða sinna sem starf-
andi grenjaskytta á vegum hrepps-
ins.
í niðurlagj bréfs Indriða sem sveit-
ungarnir fengu var sagt að hætt
væri við því að ærið margir yrðu til
þess að taka undir eftirfarandi erindi
ef húsfreyjan á Laugalandi tæki ekki
undir áskorun sína um að svara bréf-
inu.
„Ég veit ekki af hvers konar völdum
um vitund fer grunur sá
að frænka mín góða hafi
fallið í gildru þá
að artast sem umskiptingur
er undan dagsbirtu fer
laumast í svarta bergið
og lokar á eftir sér“
Lögmaður Laugalandsfólksins
sendi síðan bréf þar sem Indriða var
m.a. sagt að fólkið væri reiðubúið að
sættast ef hann drægi ummælin öll
til baka og hann bæðist afsökunar
og sendi sveitungum sínum yfirlýs-
ingu þess efnis. Indriði kvaöst reiðu-
búinn til þess ef Laugalandsfólkið
svaraði opna bréfinu. Hann taldi að
kæra fólksins á hendur sér haustið
1990 hefði verið til þess fallin að spilla
fyrir stöðu hans og högum, t.d. vegna
ummæla þar sem látið var að því
leggja að hann hefði unnið náttúru-
spjöll við ána. Vestfirska fréttablaðið
fjallaði um þetta leyti um málið þar
sem ásakanir gengu á báða bóga.
Eftir þetta var Indriða stefnt og
þess krafist að ummæli hans sem
skráð voru í 23 liðum yrðu dæmd
ómerk og bóndanum gert að greiða
bætur og þess krafist að hann bæri
kostnað af opinberri birtingu fyrir
forsendum dómsins. Eins og áður
segir voru ummælin dæmd ómerk
en Indriði var sýknaður af öðrum
kröfum. Jónas Jóhannsson, héraðs-
dómari á Vestfjörðum, kvað upp
dóminn. -Ott
„Þetta er náttúrlegatiugsunarleysi
en svona lagaö á alls ekki að geta
komið fyrir,“ segir Rósamunda
Karlsdóttir, móðir tíu ára drengs sem
sendur var einn heim úr gnmnskól-
anum á Eskifirði þar sem skólahald
féll niður vegna óveðurs í gær. Rósa-
munda, sem býr í eins og hálfs kíló-
metra íjarlægð frá skólanum, hafði
ekki heyrt útvarpsfréttir um að skóla
væri aflýst og fékk sonur hennar far
í skólann með nágranna sem á jeppa.
„Við hefðum ekki getað keyrt hann
á okkar bU því það er kolófært. Aðal-
gatan er til dæmis bara fær jeppum.
Það var bylur og hávaðarok. Við
búum í nýju hverfi innst í dalnum
og það er yfir bersvæði að fara. Sem
betur fer fór sonur okkar á vinnustað
nágrannans sem ók honum heim,“
greinir Rósamunda frá.
Hún segir foreldra í hverfinu hafa
beðið um það fyrir nokkrum árum
að fá skólabU en vegna peningaleysis
fékkst hann bara í þijá mánuði á
ári, janúar, febrúar og mars. „En
hann ekur bömunum bara heim eft-
ir skóla síðdegis. Það er enginn
skólabUl á morgnana."
-IBS
VEGNA ALRANGRA
UPPLYSINGA
LAÐAAUGLYSINGUM
l*t
HAPPDRÆTTIS HASKOLANS
SKAL UPPLÝST AÐ:
Happdrætti SÍBS greiddi viöskiptavinum 60% í vinnlnga
af veltu 1993 en ekki 50% eins og fullyrt er í auglýsingu HHÍ.
Heildarvelta ársins 1993 var 208.6 milljónir og 124.7 milljónir
voru greiddar í vinninga til heppinna miöaeigenda
en ekki aðeins 100 milljónir eins og stendur í auglýsingu HHI. Ur
Hæstu vinningar Happdrættis SÍBS falla alltaf
í hlut viöskiptavina - og jafnvel margfaldir.
CDI
Verð miða er aðeins 600 kr. Dregið 12. jatlúar.
Upplýsingar um næsta umboðsmann í síma 91-22150 og 23230
... fyrír lífið sjálft