Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1994, Qupperneq 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994
Stuttarfréttir
Utlönd
Vopnahlé í Bosníu
Leiðtogar Króata og Bosniu-
manna hafi samið um vopnahlé.
Einn markaður
Forseti Króatíu hefur boðið
Bosníu í efnahagsbandalag.
Lok breskra yftrráða
Albert Reyn-
olds, forsætis-
ráðherra ír-
lands, segir að
friðaráætlunin
fyrir Norður-
írland marki
endalok ný-
lendustjórnar Breta þar. Hann
vill friða andstæðinga samninga.
Vantrú hjá ÍRA
Leiötogar ÍRA er enn vantrúað-
ir á samkomulag við Breta.
EfasemdiriÚkrainu
Efasemdir hafa komið fram í
Úkraínu um eyöingu kjarna-
vopna landsins.
Þrjú ríki í bandalag
Þrjú af Asíulýöveldum fyrrum
Sovétríkjanna hafa myndað meö
sér efnahagsbandalag.
Strandiísrael
Ekkert miöar nú í átt til sam-
komulags milli ísraels og PLO.
Þingmaður í braski
Verið er að rannsaka svarta-
markaösbrask norsks þing-
matms meö miöa á ólympíuleik-
ana.
Örlög Holstskelfa
Norskir
fréttaskýrend-
ur segja að ör-
Iög Holst utan-
ríkisráðherra
haíi öðru frem-
ur valdið þvi að
Kaci Kullmann
Five ákvað aö
láta af flokksformennsku.
SkoríðhjáSAS
í næstu viku hefst mikill niður-
skurður útgjalda hjá SAS.
Ráðherrar samþykktir
Lennart Meri, forseti Eistlands,
hefur skipað nýja ráðherra.
Framleiðsla tvöf aldast
Landbúnaðarframleiðsla Eista
tvöfaldaðist á síöasta ári.
RæðahvaliWashington
Norskur sendimaður er á leið
til Washington að ræða hvaiamál.
Norðmenn f á skötusel
Norðmenn fá að veiða 100 tonn
af skötusel í færeyskri landhelgi.
Sexteknirfyrirrán
Óslóarlögreglan hefur handtek-
ið sex manns fyrir rán í pósthúsi.
Milljarðar í stuðning
Norsk stjórnvöld studdu tlótta-
menn og fórnarlömb styijalda
með um tíu milljörðum króna.
Mannskætt biislys
Átján manns fórust þegar rúta
ók út af brú í Suöur-Áfríku.
Clinton í gönguferð
Clfnton
Bandaríkjafor-
setifórígöngu-
ferð um Bruss-
el undir mið-
nætti í nótt eft-
ir vinnufund
hjá NATO og
kíkti m.a. í
glugga fommunaverslunar.
Gamsakhúrdía, fyrrum Georg-
iuforseti, verður jarðsettur í
Tsjetsjeniu þar sem hann bjó.
Reutcr, NTB og ETA
Austur-Evrópu boðin samvinna við NATO og Ukraína kastar kjamavopnum:
Tvö risastór skref í
átt til meira öryggis
- segir BiH Clinton Bandaríkjaforseti á leiðtogafundinum í Bmssel
Bill Clinton Bandaríkjaforseti fékk
stuðning bandamanna sinna í gær
fyrir nýrri stefnu Atlantshafsbanda-
lagsins, NATO, í öryggismálum Evr-
ópu og þá skýrði hann jafnframt frá
því að Úkraínumenn ætluðu að láta
kjarnavopn sín af hendi. Þriðja
stærsta kjarnorkuvopnabúr heims-
ins hefur verið í Úkraínu.
„Við höfum í dag tekið tvö risastór
skref í átt til aukins öryggis Banda-
ríkjanna, Evrópu og heimsins," sagði
CUnton á fundi með fréttamönnum í
Brussel í gær.
Clinton er í fyrstu Evrópuferð sinni
frá því hann tók við forsetaembætt-
inu og situr leiðtogafund NATO.
Hann og hinir leiðtogamir fimmtán
buðu öllum löndum fyrrum Sovét-
blokkarinnar svo og öðrum Evrópu-
ríkjum sem ekki era í NATO til sam-
starfs um hernaðarrnál undir kjör-
orðinu „samvinna um frið“.
Samvinnu þessari er ætlað að búa
lönd Austur-Evrópu undir hugsan-
lega aðild að bandalaginu en henni
er líka ætlað að forðast að einangra
Rússa og vekja andúð þeirra.
Leiötogar Póllands, Tékklands,
Slóvakíu og Ungverjalands hafa allir
gert fyrirvara við áætlun NATO en
Warren Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagöist vona
að þeir myndu allir undirrita hana
þegar Clinton hittir þá í Prag síðar í
vikunni.
Christopher sagði aö leiðtogafund-
urinn sýndi að Bandaríkin væru aft-
ur orðin forystuland og að þetta væri
„leiðtogafundur Clintons forseta".
Reuter
Leitað skjóls hjá NATO
Sjö fyrrum kommúnistaríki
sækjast eftir aðild að
Atlantshafsbandalaginu.
Löndin sjö, sem mörg hver
voru í Varsjárbandalaginu, vilja
sömu vernd gegn Rússlandi og
leiddi til stofnunar NATO eftir
heimsstyrjöldina síðari. NATO
virðist reiðubúið að styðja
„friðarsamvinnu" Clintons
forseta sem býður upp á
takmarkaða aðild en enga
tryggingu fyrir öryggi. í NATO
eru 16 þjóðir.
POLLAND,
TÉKKLAND OG
SLÓVAKÍA
Öll þrjú líta á NATO
sem stöðugleikaafl
sókn sinni til
lýðræðis.
LITHAEN
Óttast
„öryggistómarúm"
ef rússnesk
þjóöernisstefna
kemst aftur á
kreik og reynir að
endurheimta þett§
fyrrum lýðveldi.
UKRAINA
Tilbúin aö láta
kjarnorkuvopn af hendi
en óttast að Rússland
kunpúa&gera kröfur um
eimta stórt
únaöarhérað.
RUSSLAND
Evrópulönd.
í NATO
Fyrrum
Varsjár-
bandalags-
ríki sem
vilja í NATO
UNGVERJALAND
OG ALBANÍA
Bæði sækjast eftir
vernd gegn
útbreiðslu
borgarastríðsi
Júgóslavíu.
Heimild: The MiHtary Balance 1993-94, USA TODAY
Eldamir í Ástralíu í rénun:
Loksins úði úr lofti
Slökkviliðsmenn í Sydney í Ástral-
íu fengu óvænt aðstoð frá almættinu
í baráttunni við skógareldana miklu
í gær. Skyndilega kom demba og í
sama mund lægði vind. Þar með sló
nokkuö á bálið sem ógnað hefur lífi,
limum og eignum manna í suðaust-
anverðri Ástralíu síðustu daga.
Enn logar þó víöa í skógum nærri
Sydney og því fer fjarri að hættan
sé liðin hjá. Herði vind að nýju bloss-
ar bálið væntanlega upp og þá verður
aftur að leggja í baráttuna við ofur-
efli eldsins.
Nú er vitaö aö 190 hús hafa brunn-
ið til grunna og hundruð húsa hafa
skemmst meira eða minna. Engin
leið er enn að meta tjónið en þaö
skiptir þó milljörðum íslenskra
króna. Ef til vill hafa verðmæti upp
á tiu milljarða glatast. Þá eru ótalin
náttúruspjöllin sem eldurinn hefur
valdið. Á þúsundum hektara lands
er aðeins sviðin jörð.
Veðurútlit er heldur slæmt. Spáð
er nýrri hitabylgju á morgun með
vindstrekkingi og ekki er að vita
nema eldurinn hafi aðeins gefið grið
um stundarsakir. Reuter
Slökkviliðsmenn i Sydney réðu sér
ekki fyrir gleöi þegar fyrstu droparn-
ir féllu. Simamynd Reuter
Varnarsamtök húseigenda
Húseigendur í Færeyjum hafa
stofnað vamarsamtök í von um aö
með samstöðunni takist þeim að
rétta hlut sinn í baráttunni við
kreppudrauginn.
Húseigendur segja að landstjórn
hafi brugðist þeim og hugsi einungis
um að bjarga fyrirtækjunum en láti
skuldugan almenning fara á ver-
gang. Nær tvö þúsund húseigendur
eru í samtökunum og þykir það góð
þátttaka.
Margir skulda Fossabankanum
stórfé en hann er nú gjaldþrota og
ætla kröfuhafar að innheimta úti-
standandihúsnæðislán. Ritzau
Bretar og Frakkar á NATO-fundi:
Vilja loftárásir
á Serba í Bosníu
- herflugvélarNATOtilbúnaríslagiiin
Bretar og Frakkar hvöttu ríki Atl- sveitum SÞ í Bosníu.
antshafsbandalagsins til aö hóta Herflugvélar frá NATO fljúga
Serbum í Bosníu loftárásum nema þegar eftirlitsflug yfir Bosníu og
þeir leyfðu aftur flugvélum með eru reiðubúnar að hefja loftárásir
hjálpargögn að lenda á flugvellin-
um í Tuzla og vegurinn tii Sre-
brenica yrði opnaöur fyrir her-
sveitir SÞ.
„Við vöram þá sem myndu vilja
setja sig upp á móti þessum tveim-
ur aðgerðum við því aö gripið verð-
ur tO loftárása," sagði Alain Juppé,
utanríkisráðherra Frakklands, í
viötali við franska sjónvarpið.
Breskir embættismenn sögðu að
tillagan hefði hlotið góðan stuðning
í kvöldverðarboði á leiðtogafundi
Atlantshafsbandalagsins í Brassel
í gærkvöldi. Þrýstingur á aðgerðir
Vesturlanda í Bosníu hefur farið
sívaxandi þar. Embættismennirnir
bresku vora þó ekki vissir um aö
allir bandalagsleiðtogarnir myndu
skrifa upp á áætlunina á lokafund-
inum í dag.
Áætlunin gerir ekki ráð fyrir
loftárásum á sveitir Serba sem sitja
um Sarajevo, höfuðborg Bosníu.
Hér er um mikiivæga stefhu-
breytingu af hálfu Breta aö ræða
þar sem þeir hafa viljað fara var-
lega í sakirnar til að tryggja öryggi
herroanna sinna í friðargæslu-
efþurfaþykir.
Beuter
Alain Juppé, utanríkisráðherra
Frakklands.