Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1994, Qupperneq 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994
Fólkífréttum________________
Símon Hallsson
Símon HaUsson, löggiltur endur-
skoðandi, Vogalandi 8, Reykjavík,
hefur tekið við starfi borgarendur-
skoðanda. Sex umsækjendur voru
um starfið og fékk Símon 10 at-
kvæði af 15 þegar greidd voru at-
kvæði um stöðuveitinguna í borgar-
stjórn.
Starfsferill
Símon er fæddur 2.7.1946 í Reykja-
vík og ólst þar upp. Hann gekk í
Melaskóla, Hagaskóla og Verslunar-
skóla íslands og lauk þar prófi 1967.
Símon var í námi í endurskoðun hjá
Þorgeiri Sigurðssyni og lauk því
1974.
Símon rak eigin endurskoðunar-
stofu að loknu námi og fram til síð-
ustu áramóta. Hann hefur nú tekiö
við starfi borgarendurskoðanda
eins og fyrr greinir.
Símon sat í stjóm Félags löggiltra
endurskoðenda í nokkur ár. Hann
söng 1. tenór með Karlakór Reykja-
vikur. Símon hefur gegnt fjölmörg-
um trúnaðarstörfum fyrir Karlakór
Reykjavíkur.
Fjölskylda
Símon kvæntist 20.5.1967 Önnu
Eyjólfsdóttur, f. 2.4.1948, mynd-
höggvara. Foreldrar hennar: Eyjólf-
ur Arthúrsson, f. 7.2.1926, málara-
meistari, og Guðrún Ingimundar-
dóttir, f. 11.4.1929, d. 6.2.1963, hús-
móðir, ættuð úr Asi í Hafnarfirði.
Böm Símonar og Önnu: Eyjólfur,
f. 2.10.1965, nemi í arkitektúr í
Bandaríkjunum, unnusta hans er
Adrianna Maria Bandosz, nemi í
arkitekúr í Bandaríkjunum; HaUur,
f. 29.9.1967, nemi í Samvinnuháskól-
anum á Bifröst, maki Anna Þóris-
dóttir hárgreiðslukona, þau eiga
tvær dætur, Tinnu Lind og Emblu
Sigurást; Guðrún, f. 8.4.1971, banka-
starfsmaður, maki Ólafur Örn Jóns-
son kerfisfræðingur.
Systkini Símonar: Valgarður óm-
ar, f. 17.3.1948, framkvæmdastjóri í
Bandaríkjunum; Hallur, f. 8.5.1951,
fréttamaður hjá Stöð 2, maki Jórunn
Lísa Kjartansdóttir; Ingibjörg Ásta,
f. 13.1.1953, fóstra, maki Benedikt
Ólafsson, gleraugnafræðingúr;
Heba, f. 22.1.1958, aðalbókari hjá
Hörpu, maki Jón Salomon Bjama-
son fiskútflytjandi; Hulda Guðrún,
f. 12.3.1960, danskennari, maki Þor-
steinn Ólafur Þorsteinsson við-
skiptafræðingur. Hálfsystir Símon-
ar, samfeðra: Bima, f. 24.12.1966,
nemi í verkfræði í Þýskalandi, maki
Gunnar Sigurðsson, nemi í arkitekt-
úríÞýskalandi.
Foreldrar Símonar: HaUur Símon-
arson, blaðamaður á DV, og Stefanía
Runólfsdóttir, húsmóðir og fyrrver-
andi starfsmaður Flugleiða.
Ætt
Hallur er sonur Símonar, skip-
stjóra í Reykjavík, Sveinbjömsson-
ar, formanns á Akranesi, Þorvarðs-
sonar, hreppstjóra á Kalastöðum á
Hvalfjarðarströnd, Ólafssonar.
Meðal bræðra Sveinbjörs vom Þor-
varður, prentsmiðjustjóri í Reykja-
vík, tengdafaðir Einars Olgeirsson-
ar alþingismanns, og Óli, faöir Páls
Eggerts prófessors. Móðir Svein-
bjöms var Margrét Sveinbjörns-
dóttir, prests á Staðarhrauni, Svein-
bjömssonar. Móðir Margrétar var
Rannveig, systir Bjarna Thoraren-
sens skálds. Föðuramma Halls var
Margrét Kristjánsdóttir skipstjóra
Símonarsonar, skipstjóra á Dynj-
andi í Amarfirði, Sigurðssonar, sem
fyrstiu- íslendinga á síðari öldum
hélt uppi reglulegum siglingum á
milli Islands og meginlands Evrópu-
um frá 1816. Margir þjóðfrægir ís-
lendingar eiga ættir sínar að rekja
til Símonar á Dynjandi.
Móðir Halls Símonarsonar var
Ingibjörg Sigurást, systir Halls
tannlæknis eldri. Hún var dóttir
Halls, b. á Syðstu-Görðum í Kol-
beinsstaðahreppi, Bjömssonar,
bróður Jósefs, skólastj óra og alþing-
ismannsáHólum.
Móðir Ingibjargar var Valgerður
Simon Hallsson.
Konráðsdóttir frá Svarfhóli í Mið-
dölum. Konráð var bróðir Gísla
Konráðssonar, sagnamanns í
Skagafirði, foður Konráðs Gíslason-
ar Fjölnismanns og afa Indriða Ein-
arssonar, fyrsta ríkisendurskoðana
íslands og leikritaskálds.
Stefanía er dóttir Runólfs Dags-
sonar, b. á Búðum í Staðarsveit og
Öxl í Breiðavíkurhreppi á SnæfeUs-
nesi og síðar sjómanns á Hellis-
sandi, og Guðrúnar Sigm-ðardóttur,
húsfreyju frá Syðri-Tungu í Staðar-
sveit.
Afmæli
Valdimar Aðalsteinsson
Valdimar Aðalsteinsson skipstjóri,
Túngötu 4, Eskifirði, er fertugur í
dag.
Starfsferill
Valdimar er fæddur í Reykjavík
en ólst upp í Kópavoginum fyrstu
fimm árin, þá á Fáskrúðsfirði í þrjú
ár en frá þeim tíma hefur hann ver-
ið búsettur á Eskifirði. Valdimar var
þrjá vetur í Alþýðuskólanum á Eið-
um og lauk þaðan gagnfræðaprófi
1971 og var þar síðan í 5. bekk fram-
haldsdeildar veturinnþar á eftir.
Hann var einn vetur í Iþróttahá-
skólanum í Ollemp á Fjóni í Dan-
mörku og útskrifaðist þaðan sem
sundkennari vorið 1973. Valdimar
lauk 6. bekk framhaldsdeildar við
Iindargötuskóla vorið 1975 en fór
síðan í Stýrimannaskólann og út-
skrifaðist þaðan vorið 1978.
Valdimar stundaði margs konar
störf á unglingsárum. Frá niu ára
aldri var hann á síldarplani og eitt
sumar í sveit að Hlíð í Lóni en
fimmtán ára byrjaði Valdimar á sjó
á m/b Sveini Sveinbjömssyni NK
og var á síldveiðum í Norðursjó
næstu sumur. Hann var eitt sumar
á bílaverkstæði og annað við akstur
langferðabíla. Eftir námið á Fjóni
var Valdimar sundkennari og
íþróttaþjálfari í Jelling á Jótlandi.
Hann var lengi á m/b Sæbergi SU,
fyrst sem háseti og síðar stýrimaður
en skipstjóri frá 1981. Valdimar
keypti ásamt systkinum sínum
helnúngshlut í Sæbergi SU á móti
foreldrum sínum 1985 og var skipið
þá skírt Eskfirðingur SU. Hann var
skipstjóri á því þar til það sökk 1988.
Valdimar var síðan eina loðnuvertíð
með m/b Hörpu RE sem útgerðin
hafði keypt en eftir það á Spáni viö
eftirlit fyrir útgerðina með smíði á
nýju skipi, Vöku SU. Hann tók við
því 1991 og var skipstjóri til 1992 er
Vaka var seld. Frá þeim tíma hefúr
Valdimar starfað fyrir grænlenskt
útgerðarfyrirtæki og verið skip-
stjóri á m/b Ammasat GR sem
stundar loðnuveiðar.
Fjölskylda
Valdimar kvæntist 25.7.1981 Unni
Eiríksdóttur, f. 27.2.1958, húsmóður.
Foreldrar hennar: Eiríkur Ás-
mundsson, d. 1983, og Ingveldur
Stefánsdóttir húsmóðir. Þau bjuggu
lengst af í Neskaupstað þar sem Ei-
ríkur starfaði sem vélstjóri og út-
gerðarmaður og siðar eigandi og
framkvæmdastjóri Bifreiðaþjón-
ustunnar hf. Ingveldur er nú búsett
íReykjavík.
Böm Valdimars og Unnar: Ríkey,
f. 13.1.1982; Aðalsteinn, f. 14.5.1984;
Iðunn Kara, f. 22.5.1993.
Systkini Valdimars: Þorsteinn, f.
1956; Atli Rúnar, f. 1957; Áslaug
Katrín, f. 1959; Aðalsteinn Helgi, f.
1965.
Foreldrar Valdimars: Aðalsteinn
Valdimarsson, f. 24.5.1931, skipstjóri
og útgerðarmaður, og Elínborg Þor-
steinsdóttir, f. 5.10.1928, húsmóðir,
þau eru búsett á Eskifirði.
Valdimar Aðalsteinsson.
Ætt
Aðalsteinn er sonur Valdimars
Ásmundssonar, vélstjóra frá Fá-
skrúðsfirði, og Evu Pétursdóttur frá
Neskaupstað. Þau bjuggu lengst af
á Eskifirði og þar býr Eva enn.
Elínborg er dóttir Þorsteins Páls-
sonar, kaupmanns á Reyðarfirði og
í Kópavogi, og Áslaugar Katrínar
Maack.
Jóhanna Þóroddsdóttir.
Jóhanna er að heiman á afmæhs-
daginn.
Jóhanna Þóroddsdóttir
Jóhanna Þóroddsdóttir húsmóðir,
Kleppsvegi 14, Reykjavík, er sextug
ídag.
Fjölskylda
Jóhanna er fædd að Víkurgerði í
Fáskrúðsfirði og ólst upp þar og á
Búðum. Hún var í Húsmæðraskól-
anum að Varmalandi veturinn
1954-55. Jóhanna hefur auk hús-
móðurstarfa unnið m.a. við síldar-
söltun, í frystihúsi, á sjúkrahúsi og
nú hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Jóhanna giftist 15.6.1955 Helga
Seljan, f. 15.1.1934, félagsmálafull-
trúa og fyrrverandi alþingismanni.
Þau bjuggu lengst af á Reyðarfirði
en síðustu árin í Reykjavík.
Börn Jóhönnu og Helga: Helga
Björk, verkakona á Reyðarfirði,
hennar sambýlismaður var Herbert
Harðarson verkstjóri, en þau slitu
samvistum, þau eiga tvo syni; Þór-
oddur, skólastjóri á Reyðarfiðri,
hans kona er Hildur Magnúsdóttir
kennari, þau eiga tvö börn, Þórodd-
ur átti fyrir eina dóttir; Jóhann
Sæberg, vélvirkjameistari á Reyðar-
firði, hans kona er Ingunn K. Ind-
riðadóttir bankastarfsmaður, þau
eiga tvo syni; Magnús Hilmar, út-
gerðarstjóri á Þórshöfn, hans kona
er Sólveig Baldursdóttir húsmóðir,
þau eiga tvö böm; Anna Árdís, hús-
móðir á Reyðarfirði, hennar maður
er Indriði Indriðason bakari, þau
eigafiögur börn.
Systkini Jóhönnu: Málfríður, lát-
in; Skafti, verkamaður á Fáskrúðs-
firði; Jónína, látin; Sigfríð, starfs-
stúlka í Reykjavík; Björn Kristinn,
látinn.
Foreldrar Jóhönnu: Þóroddur
Magnússon, útvegsbóndi og verka-
maður, og Anna Hildur Runólfsdótt-
ir húsmóðir, þau bjuggu í Víkur-
gerði og síðar á Búðum í Fáskrúðs-
firði en þau em bæði látin.
Ari S. Magnússon
Ari Sigjón Magnússon ferðaþjón-
ustubóndi, Hofi 1 Austurhús, Öræf-
um, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Ari er fæddur á Hofi og ólst þar
upp. Hann gekk í Bama- og ungl-
ingaskólann í Hofshreppi.
Ari var á vertíðum í Vestmanna-
eyjum 1961-64, bæði í landi og til
sjós. Hann vann í Trésmiðjunni
Víði í Reykjavík og viö plötusteypu
hjá Jóni Loftssyni tvö haust. Ari
var á vertíð í Grindavík 1971 og
eitt haust á Seyðisfirði. Hann
stundaði búskap á móti foreldrum
sínum til 1980 og tók þá við búinu.
Ari hefur verið með ferðaþjónustu
frá 1984.
Ari hefur setið í hreppsnefnd
Hofshrepps í yfir 20 ár og var í
stjóm UMFÖ til fiölda ára og síðan
formaður þess. Hann var í stjóm
Slysavamadeildar Öræfa og söng
með Karlakómum Jökli 1973-80.
Fjölskylda
Arikvæntist 26.12.1981 Sigrúnu
Björgu Sæmundsdóttur, f. 21.7.
1957, ferðaþjónustubónda. Foreldr-
ar hennar: Sæmundur Jónsson á
Siglufirði og Jónína G. Braun.
Dætur Ara og Sigrúnar: Þuríður
Halldóra, f. 3.6.1981; Jónína Guð-
björg, f. 9.12.1982; Anna Guðrún,
f. 24.3.1989.
Systkini Ara: Sigrún Steinþóra,
f. 15.1.1948, húsmóðir í Reykjavík,
maki Hafsteinn Ó. Númason múr-
ari, þau eiga þrjú böm; Þorlákur,
f. 9.3.1946, bóndi Svínafelli í Öræf-
um, maki Ragnheiður Magnúsdótt-
ir bóndi, þau eiga eina dóttur; Jón-
ína Sigurbjörg, f. 7.1.1951, húsmóð-
ir í Reykjavík, maki Guðni Guð-
mundsson verktaki, þau eiga tvær
dætur; Sigríður, f. 19.7.1953, bóndi
Stóru-Ásgeirsá, V-Hún., maki Elías
Guðmundsson bóndi, þau eiga þrjú
böm.
Foreldrar Ara: Magnús Þor-
steinsson, f. 7.12.1897, d. 31.10.1987,
bóndi Hofi, og Þuríður Halldóra
Sigjónsdóttir, f. 25.5.1912, d. 14.10.
1979, húsmóðir.
Til hamingju
með afmælið
11. janúar
Lucia Þórarinsdóttir,
Kirkjubraut 40, Höfti í Homa-
firði.
90ára
Kjartan Sigtryggsson,
Hrauni, Aöaldælahreppi.
80 ára
Sigurlaug Sigurðardóttir,
Lyngbergi 51, Hafnarfirði.
Valgerður Stefánsdóttir,
Hvassaleiti 20, Reykjavík.
75 ára
Helgi Sigurjónsson,
Gíerárgötu 18, Akureyri.
70 ára
Jón R. Haraldsson,
Gautsdal, Bólstaðarhlíðarhreppi.
TheódórÁmason,
Æsufelli 6, Reykjavík.
Fjóla Gísladóttir,
Skeiðarvogi 11, Reykjavík.
Jónas Jónsson,
Heiðarvegi 48, Vestmannaeyjum.
50 ára
Sigríður Kristjánsdóttir,
Vatnsendabletti 265, Kópavogi.
Dagný Sigurðardóttir,
Reynivöllum 11, Egilsstöðum.
40ára
Margrét Ingibjörg Ríkarðsdótt-
ir,
Hamarsstíg 6, Akureyri.
Kristján G. Jóhannsson,
Haftiarstræti 7, ísafiröi.
Jón Jónsson,
Prestsbakka, Skaftárhreppi.
Guðrún Ingibjörg Eyþórsdóttir,
Vallarhúsum 8, Reykjavik.
Guðbjörn S. Hjálxnarsson,
Kirkjustræti 2, Reykjavik.
Sólveig Alfreðsdóttir,
Skarðshlíð 36e, Akureyri.
Jóhannes Ottósson,
Heiðarlmidi 8c, Akureyri.
Ásgeir Guðmundsson,
Heiðarbrún 11, Hveragerði.