Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1994, Blaðsíða 32
- Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
3.000 krónur.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANUAR 1994.
Stærsti
kókaín- og
heróínfundur
á Vellinum
- Hollendlngur í haldi
38 ára gamall Hollendingur, sem
tekinn var á Keflavíkurílugvelli með
94 grömm af kókaíni, tæp tvö grömm
af heróíni og 20 methadon-töflur síð-
astliðinn föstudag, hefur verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 31.
janúar.
Eins og greint var frá í DV í gær
fannst efnið við fíkniefnaleit á mann-
inum á Keflavíkurflugvelli. Þetta er
mesta magn af kókaíni sem Tollgæsl-
an á Keflavíkurflugvelli hefur fundið
*—i einu. Sömu sögu er að segja af heró-
íninu. Maðurinn hefur haldið því
fram við yfirheyrslur að efnið sé til
eigin nota en hann ætlaði að dvelja
hér í sex daga.
Að sögn Bjöms Halldórssonar, yf-
irmanns fíkniefnadeildar, sagðist
maðurinn við yfirheyrslur vera he-
róín- og kókaínneytandi og að efnið
væri ætlað til eigin nota. Methadon-
töflurnar eru einmitt vinsælar meðal
heróínneytenda sem nota þær til að
„trappa" sig niður.
Ekki hafa fengist frekari skýringar
á því hvers vegna maðurinn var með
svo mikið magn af kókaíni á sér en
ljóst er að það er meira en einn mað-
ur ætlar til neyslu á sex dögum. Á
meðan ekki hafa fengist frekari upp-
lýsingar er ekki talið að maðurinn
séburðardýr. -pp
Norðurland:
Snjóflóð og
vegir ófærir
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Flestar helstu leiðir á Norðurlandi
voru lokaðar í gær, ýmist vegna veð-
urs eða mikilla snjóa, og leiðin til
Grenivíkur í Eyjafirði lokaðist af
snjóflóði um miðjan daginn.
Ekki var fært um Fljót til Siglu-
fjarðar og ófært var á Öxnadalsheiði
og í Öxnadal. Leiðin frá Akureyri til
Dalvíkur og Ólafsfjarðar var illfær,
Víkurskarð var ófært, sömuleiðis all-
ir vegir austan Húsavíkur og í Mý-
vatnssveit var nánast allt ófært
vegna veðurs.
____þj
*Te
Veðrið gekk yfirleitt niður í gær-
kvöldi og í morgun var hafist handa
af fullum krafti við snjómokstur
iannig að reiknað er með að helstu
eiðir verði orðnar færar síðdegis í
dag.
22 hus skemmd eftir
ofsaveður á Siqluf irði
Gyifi Ktísjánsson, DV, Akureyii
„Það eru hvorki meira né rainna
en 22 hús skemmd eftir þennan
hvell.
Þökin fóru alveg af tveimur hús-
anna og fólk varð að flyfja úr öðru;
í þremur tilfellum fóru þökin af að
stórum hluta en í hinum tilfellun-
um er þetta minna,“ sagði Ólafur
.Jóhannsson, lögregluvaröstjóri á
Siglufirði, í samtah við DV í gær-
kvöldi er mesta óveðrið var gengið
yfir þar i bæ.
„Það var ýmislegt lauslegt á
fleygiferð um allan bæ í dag og
ekkert vit í því að fólk væri utan-
dyra. Þess vegna var m.a. brugðið
á það ráð að keyra alla nemendur
í skólanum heim fyrir hádegi,“
sagði Ólafur.
Það er óhætt að segja að Siglfirð-
ingar hafi öðrum fremur fengið að
vita af austanáttinni í gær. Veður-
hamurinn var mikill á Siglufirði
og snetnma í gærmorgun tóku þök
að losna á húsum og spýtnabrak
og báruiám að fjúka um bæinn.
Mjög fjölmennur hópur manna
vann við það fram á kvöld að bjarga
eignum hæjarbúa og aðstoða þá
setn þurftu hjálp en veðriö fór að
ganga niður um kvöldmatarleytið.
Áfram var þó hvasst og t.d. voru 9
vindstig af austri á Sauðanesvita í
morgun.
„Það liafa verið um 50 manns sem
voru að störfum þegar allt er talið,
lögreglumenn, slökkviliðsmenn og
björgunarsveitarmenn, og það er
búið að vera nóg að gera. En nú
er þetta gengið niður og vonandi
er þetta veður búið,“ sagði Sigurð-
ur Stefánsson, formaður björgun-
arsveitarinnar Stráka, er DV ræddi
við hatm í gærkvöldi.
Það fer að styttast i þorrablótin og því ástæða til að prófa hvort bragðið af súrsaða hvalnum sé ekki orðið eins og
það á að vera. Það er Finnur Pálsson, fisksali í Fiskbúðinni okkar, sem hér gæðir sér á þessum vinsæla þorra-
mat. Súr hvalur hefur ekki fengist um hríð en Finnur hefur náð sér í hrefnurengi. DV-mynd BG
Skipstjórinn á Goðanum:
Kjarkur og
æðruleysi
Emil Thoiarensen, DV, Eslrifirði:
Þegar brotið reið yfir Goðann
snemma í gærmorgun voru ekki allir
skipveijar vaknaðir, að því er Kristj-
áns Sveinsson skipstjóri sagði í sam-
tali við DV í morgun. Hann dvaldi á
Eskifirði í nótt ásamt þremur úr
áhöfninni.
Skipstjórinn vill koma á framfæri
þakklæti til allra sem unnu að björg-
unarstörfum og ekki síður til skipsfé-
laga sinna sem hann sagði hafa sýnt
mikinn kjark og æðruleysi.
Þetta hafi verið barátta í tíu
klukkustundir frá því að brotið reiö
yfir og þar til björgun átti sér stað.
SVRhf.:
Vagnstjórar
boðaverkfall
Stjórn Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar og fulltrúar starfs-
manna SVR hf. samþykktu á fundi
sínum í gær að boða til verkfalls
vagnstjóra hjá SVR hf. sem hefst kl.
24 mánudaginn 17. janúar. í tilkynn-
ingu Starfsmannafélags Reykjavík-
urborgar segir að verkfall sé boðað
þar sem allar tilraunir til að knýja
SVR hf. til samninga hafi reynst ár-
angurslausar og þar sem VSÍ, fyrir
hönd SVR hf., hafi í gær neitað við-
ræðum með milligöngu ríkissátta-
semjara.
-hlh
LOKI
Verða grænfriðungar ekki
súrirviðaðsjá þetta?
Veðriðámorgun:
Heldurfer
að kólna
Það verður hvöss norðaustan-
átt og sixjókoma á Vestíjörðum
en hægari austlæg átt í öðrum
landshlutum. Rigning eða slydda
austanlands og á stöku stað fyrir
norðan, dálítil rigning eða skúrir
sunnanlands er úrkomulítið við
Faxaflóa og Breiöafjörð. Heldur
fer að kólna en þó verður líklega
frostlaust um allt land fram eftir
degi.
Veðrið í dag er á bls. 28
s. 814757
HRINGRÁS
ENDURVINNSLA
Kaupum góðmálma
t.d.ál,kopar# eir, rústfr.
ÞREFALDUR 1. vinningur