Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1994, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1994, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994 Fréttir Útifundur á Austurvelli gegn atvinnuleysi 1 gærdag: Atvinnuleysi er þjáning sem línurit lýsa ekki - sagði Ingibjörg R. Guðmundsdóttir við á annað þúsund fundarmenn „Viö megum ekki umbera langvar- andi atvinnuleysi vegna þeirra sem þaö bitnar á. Langar ítarlegar skýrsl- ur og litfógur línurit mega ekki leiða athygli okkar frá því aö atvinnu- lausar systur okkar og bræður eru holdi klæddar verur. Atvinnuleysi er þjáning og henni lýsir ekkert línu- rit. Engar prósentur eöa línurit skýra örvæntinguna sem fylgir fjöl- skyldum atvinnulausra," sagði Ingi- björg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands íslenskra verslun- armanna, á útifundi gegn atvinnu- leysi sem haldinn var á Austurvelli siðdegis í gær. Til fundarins var boðað af verka- lýðsfélögunum í Reykjavík og Hafn- arfirði. Þrátt fyrir hörkufrost mætti á annað þúsund manns á fundinn. í lok fundarins gengu þau Sigríður Kristinsdóttir, formaður Starfs- mannafélags ríkisins, og Guömund- ur J. Guðmundsson, formaður Dags- brúnar, á fund Þorsteins Pálssonar, starfandi forsætisráðherra, og af- hentu honum samþykkt fundarins. í samþykktinni er þess krafist að stjómvöld grípi tafarlaust til aðgerða í atvinnumálum sem létti af því at- vinnuleysi sem leggi í rúst lífsmögu- leika þúsunda launamanna og heim- ila þeirra. Fram kemur að verkalýðs- félögin eru reiðubúin til þátttöku í slíkum aðgerðum. í ræðu Ingibjargar kom fram að sá hópur atvinnulausra fari stækkandi Að meðaltali missir einn launþegi vinnuna í Reykjavík á tólf minútna fresti. Atvinnuleysið eykst með hverjum deginum og í Dagsbrún er nánast fimmti hver félagsmaður án atvinnu. Hlutfall þeirra sem eru án atvinnu í lang- an tíma hefur aukist að undanförnu og engar vísbendingar uppi um að þar verði breyting á. Vegna þessa ástands boðuðu verkalýðfélögin á höfuðborgarsvæðinu til útifundar á Austurvelli í gær. Þar var samþykkt áskorun til stjórn- valda um að gripa strax til ráðstafana gegn atvinnuleysinu. Á annað þúsund mgnns mætti á fundinn þrátt fyrir mikinn kulda. DV-mynd BG sem er án atvinnu í lengri tíma. í þvi sambandi benti hún á að af þeim 970 félagsmönnum Verslunarmannafé- lags Reykjavíkur sem nú eru at- vinnulausir hafi 359 verið án atvinnu í meira en sex mánuði og 125 í meira en heilt ár. Samhliða þessari þróun hafl þeim fjölskyldum farið fjölgandi sem búi við örvæntingu og sálarang- ist. Afleiðingin sé sú að óregla og afbrot far í vöxt, börn flosni úr skól- um og heimili leysist upp. „Það er lífsspursmál að tafarlaust verði gripiö til aðgerða gegn atvinnu- leysi. Okkur er ljóst að þjóðin á í verulegum fjárhagslegum erfiðleik- um en atvinnuleysið kostar margfalt meira en við höfum ráð á. Við höfum ekki ráð á öðru en að gera nú þegar allt sem við getum til að útrýma at- vinnuleysinu." Guðmundur J. Guðmundsson tók í svipaðan steng og benti á að innan skamms tíma myndu hundruð íbúða lenda á uppboði vegna þess tekju- missis sem atvinnulausir verða fyrir. Þá sagði hann það skrýtna hagfræði að borga fólki atvinnuleysisbætur í stað þess að láta það vinna og fram- leiða. „Þetta land á ærinn auð. Við höfum orðið sjálfbjarga af því að hafa unn- ið; karlmenn, konur, unglingar og jafnvel börn. Hin gamla góða hag- fræði er að vinnan skapar verðmæt- in - atvinnuleysið skapar þau ekki.“ -kaa Böl atvinnúLeysisins: Fjárhagur fólks kominn í rúst Á útifundinum á Austurvelh í gær voru rakin dæmi um áhrif atvinnu- leysis á fjárhag fólks og fjölskyldna. Fram kom að það bitnaði beint og óbeint á tugum þúsunda fólks um þessar mundir, bæöi efnahagslega og sálrænt. Hundruð fjölskyldna kunna að missa íbúðir sínar vegna þessa á næstunni. Á fundinum var meðal annars sagt frá einstæðri móður með eitt barn. í sinni fyrrverandi vinnu hafði hún um 86 þúsund krónur í laun á mán- uði en í atvinnuleysisbætur fær hún 48.200 krónur. Við atvinnumissinn minnkuðu ráðstöfunartekjur þessar- ar konu um 23.400 krónur. Konan leigir húsnæði fyrir 35 þús- und krónur á mánuði en getur ekki staðið í skilum. Fyrstu þrjá mánuð- ina tókst henni semja við leigusalann og aöra lánardrottna en nú eftir sjö mánaða atvinnuleysi stendur hún frammi fyrir því að skuldahalinn er orðinn hátt í 200 þúsund krónur. Engin vinna er í sjónmáh fyrir þessa konu og fljótlega verður henni og barninu-úthýst. Annað dæmi úr hversdagslífinu snertir hjón sem eiga tvö börn og standa í íbúðarkaupum. Þau eru nú bæði atvinnulaus og fá samtals 96.500 krónur í atvinnuleysisbætur. Áður en atvinnuleysið knúði dyra hjá þeim höfðu þau um 186 þúsund krónur í laun á mánuði. Tekjumissirinn er því 54 þúsund krónur á mánuði. Um mitt síðasthðið ár voru hjónin komin í veruleg vandræði vegna aiborgana á lánum. Nú, 11 mánuðum seinna, sjá þau ekki fram á annað en að þau tapihúsnæðinu. -kaa Feeney í Fayetteville í Bandaríkji breyttur á geita- og hross mum: sakjöti „Þaö er stórkostlegt að vera kom- um dæmda bar nsræningja .á iiiii iitfiiu. iíig mdKKa lii dö id ötutan priðjuddg. H&nn uj og góðan málsverð. Ég er orðinn blaðsins um að ei þreyttur á geita- og hrossakjöti,“ manns sætu í fang sagöi Donald M. Feeney þegar bar því ekki slæma hann steig út úr flugvél í bænum þar á bak við lás Favettville í Bandaríkiunum. nv- saoðí a/s híáifnn iplýsti lesendur nungis um 200 jlsi á Íslandí og söguna að sitja og slá. Feeney kominnúrafplánunsinniáíslandi. hemum hefði hjá Þessi ummæh hefur blaöið Fay- hann sat í gæsluvai Ipað sér þegar ettevUÍe Observer-Timos eftir hin- ífangelsinuálitlaJ Irauni. -Ótt Þorsteinn Pálsson, starfandi forsætisráðherra, tók á móti samþykkt útifund- arins á Austurvelli í gærdag. Við það tækifæri kvaðst hann vona að stjórn- völdum og verkalýðshreyfingunni tækist i sameiningu aö vinna bug á at- vinnuleysinu. DV-mybnd BG Þorsteinn Pálsson: Stjórnin með áhyggjur af atvinnuleysinu „Ríkisstjórnin deihr vonandi sömu áhyggjum og þið vegna allra þeirra sem eru atvinnulausir. Við höfum haft það að markmiði með okkar aðgerðum að reyna að treysta at- vinnulífið," sagði Þorsteinn Pálsson, starfandi utanríkisráðherra, þegar hann veitti viðtöku samþykkt úti- fundar gegn atvinnuleysi sem hald- inn var á Austurvelli í gær. Þorsteinn sagði ríkisstjórnina hafa átt gott samstarf við verkalýðshreyf- inguna um að setja fjármuni í at- vinnuskapandi verkefni og flýta op- inberum framkvæmdum. Hann von- ast til að samstarfið haldi áfram enda sé það sameiginlegt verkefni stjórn- valda og verkalýðshreyfingarinnar að vinna bug á atvinnuleysinu. -kaa Sjómenn á Flateyri bökkuðu Deilu sjómanna á Gylh ÍS frá Flat- eyri og fiskvinnslu- og útgerðarfyrir- tækisins Kambs hf. er lokið. Sjómenn á Gylli, sem boðað höföu verkfall vegna 20 prósenta lækkunar á fisk- verði, bökkuðu út úr öllu saman og gengu að fiskverðslækkuninni. Á Gylh ÍS er 15 manna áhöfn. Ekki eru þeir allir ánægðir með niður- stöðu deilunnar og munu einhverjir íhugaaðsegjaupp. -S.dór/RT Stuttar fréttir Borgarbræður gjaldþrota Matvælafyrirtækið Borgar- bræður er gjaldþrota. Samkvæmt fréttum Stöðvar tvö geta kröfur i þrotabúið numið allt að 100 millj- ónum króna. Mótmæla geislamengun íslensk stjómvöld mótmæla þeirri ætlun breskra stjórnvalda um að auka flæði geislavirkra efna í sjó fram frá Dounreay end- urvinnslustöðinni. íslendingaránlyfja íslendingar neyta minna af ró- andi lyfium og svefnlyfium en aðrir Norðurlandabúar. Neyslan hér á landi jókst þó árið 1992 og skýrir landlæknir aukninguna meö vaxandi atvinnuleysi. Skv. Stöð tvö nota konur meira af þessum lyfjum en karlar. Skotavínirmóðgaðir Edinborgarfélagið á íslandi hótaði að aflýsa árshátíö sinni um helgina vegna innflutningshanns Framleiðsluráðs á skoska þjóðar- réttinum haggis. Ráðið sagði nóg til af slátri í landinu. Innflutn- ingsheimild hefur nú verið veitt. Samkvæmt RÚV eru þeir Jón Baldvín Haimibalsson utanríkis- ráðherra og Sigurgeir Þorgeirs- son, aðstoðarmaður landbúnað- arráðherra, báðh' í félaginu. Kozyrev kemur i sumar Andrej Kozyrev, utanríkisráð- herra Rússlands, er væntanlegur í opinbera heimsókn til íslands í sumar, líklega um miðjan júní. Morgunblaðið gi'eindi frá jressu. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.