Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1994, Page 5
FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1994
5
DV
Fréttir
Hæstiréttur mildar refsingu árásarstúlkunnar í Austurstræti úr 5 í 3 ára fangelsi:
Stúlkan fær reynslu-
lausn á næsta ári
- Hjörtur Torfason hæstaréttardómari vildi hafa refsinguna skilorðsbundna
Hæstiréttur mildaði í gær refsingu
Heiðu Bjarkar Hjaltadóttur, 16 ára
stúlkunnar sem réðst ásamt 14 ára
vinkonu sinni á 15 ára stúlku í miðbæ
Reykjavíkur aðfaranótt 2. október,
úr 5 ára fangelsi niður í 3 ár. Einn
af fimm dómurum, Hjörtur Torfason,
skilaði sératkvæði og vildi skilorðs-
binda þá refsingu sem eftir er af af-
plánunartíma sakborningsins.
Fyrir Hæstarétt voru lögð fram ný
gögn, læknisvottorð sérfræðings á
heila- og taugaskurðlækningadeild
Borgarspítalans, svo og barnalæknis
á Landspítalanum, varðandi áverka,
endurhæfingu og meðferð fórnar-
lambsins. Sá fyrmefndi telur að
stúlkan muni búa við verulega var-
anleg örkuml vegna árásarinnar en
barnalæknirinn telur ekki hægt að
fullyrða á þessu stigi um bata henn-
ar. Útlit sé þó fyrir að hún muni búa
við verulega fötlun eftir áverkann.
í dómi Hæstiréttar segir að sér-
fræðingur telji ógerning að fullyrða
hvort höfuðáverki fórnarlambsins
hafi stafað af einu höggi eða fleiri.
Hugsanlegt sé að slíkur áverki komi
af litlum höggum eða höggi í „niður-
andlit“ þótt hann orsakist venjulega
af miklum höfuðhöggum.
Dómurinn taldi sannað að Heiða
Björk hefði veist að fórnarlambinu
með barsmíðum og staðfesti sakfell-
ingu héraðsdóms en komst að þeirri
niðurstöðu að þriggja ára refsing
væri hæfileg. í því sambandi var sér-
staklega litið til ungs aldurs.
Hjörtur Torfason segir í sérat-
kvæði sínu að ákærða sé unglings-
stúlka, eigi sér enga sögu um afbrota-
hneigð en hafi löngum búið við erfið-
ar heimihsaðstæður og verið í mis-
jöfnum félagsskap. „Hún þarf nú að
horfast í augu við þá þungbæru stað-
reynd að hafa lagt framtíð rúmlega
15 ára stúlku nánast í rúst í einu
vetfangi án þess að ætlandi sé að hún
hafi í raun viljað vinna henni varan-
legt mein,“ sagði í sératkvæði Hjart-
ar.
Hjörtur taldi að brot stúlkunnar
yrði að meta þannig að þau vörðuðu
þungri refsingu og var sammála öðr-
um dómendum um þriggja ára fang-
elsisákvörðun. Hjörtur taldi á hinn
bóginn að löng fangelsisvist gæti
reynst henni skaðleg og torveldað
henni að takast á við vanda sinni í
framtíðinni. Hjörtur taldi vegna
þessa að refsinguna ætti að skilorös-
binda.
Miðaö við þennan dóm má ætla að
stúlkan verði búin að afplána og fái
reynslulausn á árinu 1995 - á átjánda
aldursári sínu. Aðrir dómendur en
Dómur Hæstaréttar yfir manni sem stakk flýjandi mann í bakið:
Fimmtán mánaða
fangelsi nær allt
gert skilorðsbundið
Hæstiréttur dæmdi í gær þrítug-
an Reykvíking í 8 mánaða fangelsi,
þar af 6 mánuði skilorðsbundið,
fyrir að hafa stungið karlmann á
fimmtugsaldri í bakið þegar hann
reyndi að komast undan hinum inn
í bíl við Bankastræti aðfaranótt
sunnudagsins 16. ágúst 1992. Hér-
aðsdómur Reykjavíkur dæmdi
manninn hins vegar í 15 mánaða
fangelsi í októher síðastliönum.
Kunningi mannsin,s sem tók við
hnífnum af árásarmanninum á
vettvangi, var dæmdur til að greiða
30 þúsund krónur í sekt til ríkis-
sjóðs fyrir að hafa tekið við hnífi
sem notaður var viö atlögu að
manni.
Atvikið varð með þeim hætti að
maður var að koma út af veitinga-
húsinu Borgarvirki við Þingholts-
stræti og var sestur inn í bíl fyrir
utan þegar ölvaður karlmaður lét
sig detta utan í búinn. Hann fór út
og ræddi við manninn og kom þá
til einhverra átaka. Maðurinn úr
bílnum bar aö hinn heföi komið
framan að sér, tekið með annarri
hendi aftur fyrir háls á honum og
lagt brugðinn hníf þéttingsfast að
hálsinum framanverðum. Þegar
hnífamaðurinn Unaði takið sló bíl-
eigandinn hann í andlitið með glasi
og flúði síðan. Hinn elti hann um-
hverfis bíhnn.
Um það bil sem sá fyrrnefndi var
að komast inn í bílinn náði hinn
að stinga hann í bakið. Nokkru síð-
ar var hnífamaðurinn handtekinn.
Áður hafði hann náð að koma
hnífnum undan til kunningja síns
en vopnið, 17,8 sm að lengd, fannst
þó síðar í Bólstaðarhhð. Maðurinn
sem varð fyrir stungunni fór með
lögreglu á slysadeild. Hann reynd-
ist vera með 5 sm langt, skeifulaga
en grunnt sár á vinstra herðablaði.
Hæstiréttur tók mið af því að
fórnarlambiö hafði slegið hnífa-
manninn áður í andlitið með glasi
og að árásarmaðurinn hefur ekki
hlotið refsingu áður. Framkoma
hans við rannsókn og meðferð
málsins hefði einnig verið óað-
flnnanleg og hefði hann m.a. reynt
að hafa samband við bheigandann
og bjóða honum bætur. Að þessu
virtu var refsingin færð niður og 6
mánuðir af henni skilorðsbundnir.
-Ótt
Hjörtur í máhnu voru hæstaréttar-
dómararnir Hrafn Bragason, Harald-
ur Henrysson, Pétur Kr. Hafstein og
Ingibjörg Benediktsdóttir, settur
dómari. -Ótt
Framlengt
gæsluvarðhald
- á meintum höftipaur
Héraðsdómur Reykjavíkur
framlengdi í gær gæsluvarð-
haldsúrskurð sinn yfir Ólafi
Gmmai'ssyni, meintum höfuð-
paur í stóra iíknieíhamálinu,
fram til 20. apríl næstkomandi.
Ólafur hefur verið í haldi í sam-
tals 154 daga. Þegar gæsluvarð-
haldstíminn verður hðinn hefur
Ólafur hins vegar setiö í haldi í
237 daga eða í tæpa 8 mánuði.
Lögmaður Ólafs hefur kært
gæsluvarðhaldsúrskurðinn til
Hæstaréttar. -pp
Reykjarvíkurvegi 72
Hafnarfirði