Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1994, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 1994
5
dv Fréttir
Talsvert uppistand hefur orðið þegar sendibilstjórar hafa verið að veita
leigubílstjórum eftirför eða hafa afskipti af þvi þegar þeir eru að fara með
bréf eða pakka. Lögreglan hefur þurft að skakka leikinn eins og t.d. gerðist
á Sóleyjargötunni. DV-mynd Sveinn
Sendibílstjórar kæra leigubílstjóra:
Veita leigubfl-
stjórum eftirför
með myndband
- aöilar virði starfssvið hvor annars, segir lögregla
Nokkrir sendibílstjórar með
myndbandsupptökutæki hafa veitt
leigubílstjórum eftiríor að undanf-
ömu og freistað þess að festa á filmu
þegar þeir em að sendast með bréf
eða böggla. Sendibílsfjórar vilja með
þessu færa sönnur á að leigubílstjór-
ar gangi með þessu inn á þeirra verk-
svið. Að sögn Ingólfs Finnbjömsson-
ar, framkvæmdastjóra Trausta,
liggja nú þegar nokkrir tugir kæra
fyrir hjá félaginu en talsverður fjöldi
þeirra er þegar kominn tll lögreglu.
Að sögn lögreglu hafa myndbands-
spólur þó ekki borist þangað ennþá.
„Þetta er tilkomið út af því að leigu-
bOstjórar og stjóm Frama hafa verið
að magna lögregluna upp í aðgerðir
gegn sendibílstjórum og sendibíla-
stöðvum með kærnr og djöfulgang.
Þessar aðgerðir sendibílstjóra em
ekki á vegum félagsins en menn em
að svara fyrir sig og benda lögregl-
unni á aö það er verið að bítast um
vinnuna á krepputímum og það era
ekki bara sendibílstjórar sem era
brotlegir, þó það beri meira á því,“
sagði Ingólfur.
Omar Smári Ármannsson aðstoð-
aryfirlögregluþjónn segir að leigubíl-
stjórar hafi einnig kært sendibíl-
stjóra en þá fyrir að hafa gengið inn
á verkssvið þeirra fyrmefndu með
því að flytja fólk. Ómar segist telja
að reglur í þessum efiium séu nokk-
uð skýrar - sendibílstjórar eigi að
flytja vörur en leigubílstjórar far-
þega, nema í undantekningardlfell-
um.
Ómar segist telja að lausn í þessu
máli felist helst í því að forsvars-
menn þessara aðfia setjist niður og
ræði saman til að freista þess að
komast að samkomulagi.
„Kjami þessa máls er að hvor um
sig virði starfssvið hvor annars sam-
kvæmt þeim reglum sem era í gOdi.
Reglumar era nokkuö skýrar," sagði
Ómar.
-Ótt
Bíllinn er gjörónýtur eftir aó eldur kom upp í honum nálægt Höskuldarvöll-
um. DV-mynd ÆMK
Keflavik:
Bíllinn ónýtur
eftirbruna
um en vegurinn hggur ‘frá Reykja-
nesbrautinni við Kúagerði.
Að sögn lögreglunnar í Keflavöc
drapst á bílnum og þegar ökmnaður-
inn ædaði að athuga hver orsökin
væri gaus upp eldur þegar vélarhlíf-
in var opnuð. Bfllinn brann á stutt-
um tíma og er gjörónýtur.
Ægir Már Kárason, DV, Keflavik:
SlökkvOiðið í Keflavik fékk tfl-
kynningu á laugardaginn um aö bfll
væri að brenna. Þegar slökkviliðið
kom á vettvang var bfllinn orðinn
gjörónýtur enda tók það slökkvfliðið
nokkum tíma að komast á staðinn.
Bfllinn var á leið að HöskuldarvöU-
BONUS
Áskriftar-
getraun DV
gefur skil-
vísum áskrif-
endum, nýjum
og núverandi, möguleika á
óvenjulega hagkvæmum
vinningum að þessu sinni enda
eru vinningarnir hið besta
búsílag. Hvorki meira né
minna en sex körfur í
mánuöi, fullar af heimilisvör-
um að eigin vali, aö verömæti
30.000 krónur hver. Febrúar-
körfurnar koma frá verslunum
Bónuss og verða þær dregnar
út föstudaginn 4. mars.
DV styður ávallt dyggilega við
bakið á neytendum með
stöðugri umfjöllun um
63 27 00
neytendamál enda er DV
lifandi og skarpskyggn fjölmiðill
jafnt á þeim vettvangi sem
öðrum. Daglega flytur DV
lesendum sínum nýjustu
fréttir innanlands og utan. í
aukablöðunum eru einstök
málefni krufin til mergjar og
smáauglýsingar DV eru
löngu orðnar landsmönnum
hreint ómissandi. Það er allt að
vinna með' áskrift að DV.
DV hagkvæmt blað.