Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1994, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 1994
Stuttarfréttir
Særðum hjúkrað
Bandarískir herlæknar í
Þýskalandi geröu að sárum
manns frá Sarajevo og fleiri eru
á leiðinni.
Tyrkir í brúarsmíði
Tyrkir ætla að endurbyggja
sögufræga brú í Mostar.
Juppé vill úrslitakosti
Alain Juppé,
utanríkisráö-
herra Frakk-
lands, segist
fremur heföi
viljaö að EB
setti Serbum
viö Sarajevo
úrslitakosti en
EB-ráðherrar lýstu aðeins yflr
stuðningi við Ioftárásir.
EB veikt fyrir Úkraínu
Evrópubandalagið vill nánari
tengsl við Úkraínu.
ÁmótiEMsabetu
Flestir Ástralir vijja losa sig við
Elísabetu Englandsdrottningu og
gera landið að lýðveldi.
Gáfustupp
Geimfarar í geimskutlunni eru
hættir við að setja gervitungl á
baug umhverfis jörðu.
CUntonogfjáriögin
Clinton
Bandarikjafor-
seti sendi þing-
inu fjárlög sín
fyrír fjárhags-
árið 1995 og
hljóða þau upp
á 1,518 trilljónir
dollara
og er ætlað aö draga úr (járlaga-
halla.
Baliadurdalar
Vinsældir Edouards Balladurs,
forsætisráðherra Frakklands,
hafa dalað aö undanfómu.
Snoöinkollardæmdir
Tveir þýskir snoðinkollar og
bareigandi -voru dæmdir til
fangavistar fyrir að myrða mann
sem þeir töldu gyðing.
SprengtíPerú
Tveir fórust í bílasprengju maó-
ista við bækistöðvar flughersins
í Lima í Perú.
Skjálftinn stærri
Styrkleiki jaröskjálftans í Los
Angeles hefur verið endurmetinn
og var hann 6,7 stjg.
AurskriðuríLA
Aurskriður féllu 1 Los Angeles
i gær og færðu heimfli á kaf.
Forsetikvaddur
Leiötogar Frákklands og Afr-
íkuríkja fylgdu forseta Fílabeins-
strandarinnar til grafar í gær.
Flugeldardrepa
Þijár óskyldar flugeldaspreng-
ingar grönduðu 22 í Kína.
Söngleíkur bannaður
Breskur dómstóil bannaði
flutning söngleiks um íjölmiöla-
kónginn Maxwell.
PeresogArafat
Shimon Per-
es sagði
klukkustund-
arfund hans og
Yasser Arafats
í Kairó, þar
sem rætt var
um sjálfstjórn
Palestinu-
manna,
lofa góðu.
Sprengjaíbanka
Sprengja sprakk í banka í Kaíró
og lögreglan aftengdi tvær aðrar
sprengjur í bönkum.
Engarlausnir
Zeroual Algeríuforseti sagöí
erfitt að leysa deilur landsins
nema allir aðilar ræddust við.
Keuter
Utlönd
Fómarlömb voðaverksins í Sarajevo borin til grafar:
Ekki fleiri innantóm-
ar hótanir um árásir
- segir Bill Clinton Bandaríkjaforseti
Kona í Sarajevo fórnar höndum til himins þegar hún fylgist með sjúkraliðum SÞ flytja illa særðan eiginmann hennar
á brott. Eiginmaðurinn var einn þeirra tvö hundruð sem slösuðust í árásinni á markaðstorgið á laugardag.
Símamynd Reuter
Það var grátur og gnístran tanna í
Sarajevo í gær þegar 59 fómarlömb
blóðbaðsins á aðalmarkaðstorgi
borgarinnar um helgina voru borin
til grafar, bæði múslímar og Serbar.
Margar fiölskyldnanna biðu þar til
skuggsýnt var orðið tfl að verða ekki
fyrir barðinu á serbneskum leyni-
skyttum.
AUs fórust 68 manns og um tvö
hundruð hlutu sár í árásinni sem er
blóðugasta grimmdarverkið í gjörv-
öllu borgarastríðinu í Bosníu.
Serbnesku útfarirnar voru fá-
mennar fiölskylduathafnir í litlum
kirkjugörðum á meðan útfarir mús-
límanna drógu að sér mun fleiri
syrgjendur, allt að tvö hundruð
manns í einu tflviki.
Sex íslamskir karlmenn og ein
kona voru grafin í Kovaci-kirkju-
garðinum sem áður fyrr var bara
venjulegur almenningsgarður. Serb-
ar hafa margoft skotið úr byssum
sínum á syrgjendur í kirkjugarðin-
um.
Blóðbaðið á markaðstorginu hefur
vakið mikinn óhug um heim allan
og stuðningur um að gera Sarajevo
að herlausu svæði hefur aukist til
muna. Þá eru vesturveldin nær því
en nokkru sinni að skerast í leikinn
í Bosníu.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti lýsti
yfir stuðningi sínum við beiðni Sam-
einuðu þjóðanna um að NATO undir-
byggi loftárásir við Sarajevo ef þörf
krefði og varaði enn einu sinni við
því að bandalagið bæri fram „innan-
tómar hótanir".
„Ég tel ekki að við ættum að bera
fram fleiri innantómar hótanir,"
sagði Clinton viö fréttamenn í Hous-
ton.
Bosníu-Serbar, sem vilja reyna að
koma í veg fyrir að loftárásir verði
gerðar á stöðvar þeirra umhverfis
Sarajevo, féllust á að semja um frið
í borginni sem yrði utan við heildar-
samninga um frið í borgarastríðinu
sem hefur staðið í 22 mánuði.
Yashushi Akashi, sérlegur sendi-
maður SÞ í fyrrum Júgóslavíu, sagði
að Slobodan Milosevic Serbíuforseti
væri fylgjandi því að allar hersveitir
yrðu fluttar frá Sarajevo.
Andrej Kozyrev, utanríkisráð-
herra Rússlands, varaði við því í gær
að loftárásir yrðu gerðar og sagði
þær ekki myndu leysa deiluna. Hann
sagði að ofbeldið myndi aðeins fær-
ast í aukana. Reuter
Norræn dagblöð um finnsku forsetakosningamar:
Finnar vildu heldur gráan jafn-
aðarmann en litríka hægrikonu
„Finnskir kjósendur vildu heldur
fá gráan embættismann úr röðum
jafnaðarmanna en litríka og frjáls-
lynda hægrikonu fyrir forseta sinn
næstu sex árin.“
Þetta sagði norska blaðið Dagblad-
et í forystugrein í gær þar sem fiallað
var um úrslit forsetakosninganna í
Finnlandi á sunnudag þegar Martti
Ahtisaari sigraði Elísabetu Rehn.
Blaðið telur að Sem forseti muni
Ahtisaari fara nokkuð svo troðnar
slóðir, auk þess sem hann hafi litla
reynslu af sfiómmálum og sé ekki
um of bundinn á flokksklafann.
Dönsk blöð túlkuðu mörg hver kjör
Ahtisaaris sem upphaf nýrra tíma í
Finnlandi.
„Hinn 56 ára gamli Martti Ahtisa-
ari markar einmitt nýtt upphaf. Það
sýndi sig að vera kostur fyrir hann
að vera ekki stjórnmálamaður og
koma nú heim eftir tuttugu ára þjón-
ustu í útlöndum," sagði í grein í Jyl-
lands-Posten.
Blaðið Politiken kallaði kjör
Ahtisaaris „klárt stílbrot" miöað við
fyrirrennara hans í forsetaembætt-
inu og sagði að það sýndi að finnskir
kjósendur vildu nýja krafta án
tengsla við hiö hefðbundna flokka-
kerfi.
Dagens Nyheter í Stokkhólmi segir
að heiðviröur borgari án mikillar
reynslu af stjómmálum verði tíundi
forseti Finnlands en ástæða sé til að
ætla að hann muni láta að sér kveða
á alþjóðavettvangi.
Kosningasérfræðingar í Finnlandi
vom sammála um það í gær að Elísa-
Martti Ahtisaari, nýkjörinn forseti
Finnlands. Símamynd Reuter
bet Rehn heföi goldið þess að vera
sænskumælandi og það eigi sinn þátt
í því að hún tapaði fyrir Ahtisaari.
Finnska blaðið Helsingin Sanomat
sagði að Rehn mætti hins vegar vera
ánægð með sinn hlut þar sem hún
hefði brotið blað í sögu Finnlands.
„Enginn hefði geta spáð fyrir um þaö
fyrir tveimur mánuðum að kven-
framhjóðandi tungumálaminnihlut-
ans ætti eftir að komast áfram í aðra
umferð kosninganna. Rehn sannaöi
aö hvorki tungumálamúrinn né kyn-
ferðið eru lengur hindrun fyrir.að
komast í forsetaemhættið," sagði í
Helsingin Sanomat.
Ahtisaari sagði í gær að hann
mundi leggja áherslu á sköpun nýrra
atvinnutækifæra, í samvinnu við
ríkissfiómina. ntb, Ritzau, TT, fnb