Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1994, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 1994
23
Fréttir
Prófkjör sjálfstæöismanna í Grindavík:
Margrét Gunnarsdóttir
líkleg í fyrsta sæti
Sjálfstæðismenn í Grindavík
ganga að kjörborðinu á laugardag til
að velja menn á lista flokksins fyrir
sveitarstjómarkosningamar í vor.
Fyrirsjáanlegt er aö Margrét Gunn-
arsdóttir bæjarfulltrúi nái kjöri í
fyrsta sætið á listanum. Tvísýn bar-
átta verður hins vegar um annað og
þriðja sætið. Af þeim sem stefna í
annaö sætið þykir Halldór Halidórs-
son viðskiptafræöingur líklegastur
til aö ná kjöri eftir harða baráttu við
Kristin Benediktsson framkvæmda-
stjóra og Ólaf Guðbjartsson skrif-
stofumann. Þá þykir sennilegt að
Ólöf Þórarinsdóttir húsmóðir beri
sigur úr býtum í baráttunni um
þriðja sætið.
Þetta er í fyrsta skipti í tólf ár sem
haldið er prófkjör hjá Sjálfstæðis-
flokknum í Grindavík og er því tals-
verður hugur í mönnum þó að próf-
kjörsbaráttan hafi verið tíðindalítil
fram að þessu.
Ljóst er að talsverð endumýjun
verður á framboðslistanum því að
einungis tveir af fjórum aðal- og
varabæjarfulltrúum flokksins gefa
kost á sér til endurkjörs, þau Margr-
ét Gunnarsdóttir og Ólafur Guð-
bjartsson varabæjarfulltrúi. Oddviti
flokksins, Eðvarð Júlíusson forstjóri,
hættir eftir tólf ára setu í bæjar-
stjóm.
Málefnaumræða hefur ekki verið
mikil í prófkjörsbaráttunni í Grinda-
vík það sem af er þó að segja megi
að atvinnumálin séu mál málanna
eins og víðar á Suðumesjum. Próf-
kjörsbaráttan hefur einkum farið
fram gegnum greinaskrif í staöar-
Þetta er i fyrsta skipti í tólf ár sem haldið er prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum i Grindavík og er því talsverður hugur
í mönnum þó að prófkjörsbaráttan hafi verið tiðindalítil.
blöðum. Þar hefur komið fram að
brýnt þykir að vinna af krafti að
nýsköpun í atvinnumálum, auk þess
sem leggja verði áherslu á hafnarmál
fyrir utan bæjarmál almennt. Búast
má viö að baráttan harðni á loka-
sprettinum.
Opið prófkjör
Frambjóðendur í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins em: Guðmundur
Einarsson fiskverkandi, Halldór
Halldórsson endurskoðandi, Jón
Emil Halldórsson tæknifræðingur,
Kjartan Adolfsson skrifstofumaður,
Kristinn Benediktsson fram-
kvæmdastjóri, Margrét Gunnars-
dóttir bæjarfulltrúi, Ólafur Guð-
bjartsson varabæjarfulltrúi, Ólöf
Fréttaljós
Guðrún Helga
Sigurðardóttir
Þórarinsdóttir húsmóðir og Þorgerð-
ur Guðmundsdóttir skrifstofum^-
ur. Fljótlega kemur út rit með kynn-
ingu á frambjóðendum í Grindavík.
Prófkjör sjálfstæðismanna í
Grindavík er opið óflokksbundnum
jafnt sem flokksbundnum sjálfstæð-
ismönnum og verður kosið í Verka-
lýðshúsinu við Víkurbraut á laugar-
dag frá klukkan 10 til 22. Talning
atkvæða hefst að kjörfundi loknum
og er búist við aö úrshtin veröi ljós
kringum miönætti.
HótelLoftleiðir:
Bridgehátíð
Flugleiða
Bridgehátíð Flugleiða verður haldin helgina 11.-14.
febrúar og skiptist hún í tvímenning, sem spilaður
verður 11. og 12. febrúar, og sveitakeppni sem spiluð
verður 13. og 14. febrúar. Spilað er á Hótel Loftleiðum.
Tvímenningurinn hefst klukkan 19 fostudaginn 11.
febrúar. Þess er krafist að keppendur í tvímenningnum
verði spariklæddir, karlmenn í jakkafötum með hál-
stau og konur í viðeigandi klæðnaði.
Sveitakeppni Bridgehátíðar hefur aldrei verið fjöl-
mennari, hvorki meira né minna en 80 sveitir keppa
að þessu sinni og komast þó færri að en vilja. Sveita-
keppnin hefst sunnudaginn 13. febrúar klukkan 13.
Búið er að ganga frá þátttökuhsta keppenda í tvímenn-
ingi Bridgehátíðar (48 pör) og listinn er þannig:
Keith Singleton-Robin Burns
Heidi Lihis-Michael McGlouchhn
Even Ulfen-Tor Eivind Hoyland
Harald Skæran-John Hahvard Skoglund
Zia Mahmood-Russ Ekeblad
Mark Molson-Bart Bramley
Linda Lángström-Catarina Midskog
Lisa Áström-Bim Ödlund
Geir Helgemo-Tor Helness
Glenn Grötheim-Teije Aa
Roy Christiansen-Thor Erik Hoftaniska
Aðalsteinn Jörgensen-Björn Eysteinsson
Anton Haraldsson-Pétur Guðjónsson
Bjöm Theódórsson-Gísh Hafliðason
Bragi L. Hauksson-Sigtryggur Sigurðsson
EgiU Guðjohnsen-Sverrir Kristinsson
Eiríkur Hjaltason-Ragnar Hermannsson
Guðlaugur Nielsen-Eggert Bergsson
Guðmundur Sveinsson-Sigurður Vilhjálmsson
Guðmundur Páh Amarson-Þorlákur Jónsson
Haukur Ingason-Jón Þorvarðarson
Helgi Jóhannsson-Guömundur Hermannsson
Hermann Lámsson-Ólafur Lámsson
Hjalti Ehasson-Páh Hjaltason
Hjördís Eyþórsdóttir-Ásmundur Pálsson
ísak Örn Sigurðsson-Hahur Símonarson
Jakob Kristinsson-Matthías Þorvaldsson
Jón Baldursson-Sævar Þorbjörnsson
Jón Hjaltason-Jón Ingi Bjömsson
Jón Sigurbjömsson-Asgrímur Sigurbjömsson
Karl G. Karlsson-Karl Einarsson
Kjartan Ingvarson-Jón Hersir EUasson
Kristján Haraldsson-Amar Geir Hinriksson
María Haraldsdóttir-Ólöf Þorsteinsdóttir
Páh Valdimarsson-Ragnar Magnússon
Pálmi Kristmansson-Guttormur Kristmannsson
Ragnár T. Jónasson-Tryggvi Ingason
Rúnar Magnússon-Jónas P. Erlingsson
Sævin Bjarnason-Ragnar Bjömsson
Sigurður B. Þorsteinsson-Gylfi Baldursson
Sigurður Sverrisson;Hrólfur Hjaltason
Símon Símonarson-Óh Már Guðmundsson
Stefán Guðjohnsen-Guðmundur Pétursson
Steinar Jónsson-Kristján Blöndal
Sveinn R. Eiríksson-Hrannar Erlingsson
Sverir Ármannsson-Karl Sigurhjartarson
Valur Sigurðsson-Valgarð Blöndal
Öm Amþórsson-Guðlaugur R. Jóhannsson
-ÍS
Ramvilltur í svarta-
myrkri á Lágheiði .
Öm Þórarinsson, DV, Fljótum:
Ungur maður á vélsleða, á leið yfir
Lágheiði 4. febrúar, vihtist af leið en
fannst eftir nokkra leit fótgangandi
upp við kletta í dal sem hggur suð-
vestur af Lágheiði.
Maðurinn - frá Hofsósi - lagði af
stað að kvöldi til úr Fljótum. Þegar
hann var ekki kominn til Ólafsfjarð-
ar tveim tímum seinna var haft sam-
band við Jón Númason á Þrastastöð-
um. Sá bær er næstur heiðinni og
Jón var beðinn að svipast um eftir
manninum. Hann fór á vélsleða og
rakti slóð eftir sleða upp á heiði.
Jón fór þá heim en þegar ljóst var
að maðurinn skhaði sér ekki tíl Ól-
afsfjarðar hélt hann aftur af stað og
fylgdi slóðinni. Þá kom í ljós að ferða-
langurinn hafði ekki getað fylgt veg-
inum upp á heiði vegna mikUs hhð-
arhaUa og sveigt undan brekkunni.
Þama vUltist hann og hélt í suður í
stað austur, ók fram Hvarfdal, sem
er óbyggður dalur fremst í Austur-
Fljótunum, aht í átt tU byggðar.
Jón sá tU mannsins vegna ljós-
bjarma af sleðanum og var hann þá
hátt uppi í fjaUshhð, ramviUtur og
búinn að vera á gangi hátt í klukku-
stund. Jón ók með hann til Ólafs-
fjarðar um nóttina og var hann að
vonum feginn enda hlýtur að fylgja
því ónotaleg tilfinning að vera rafK1
vUltur í svartamyrkri um hánótt.
Til sölu SCANIA 111 með búkka
árg. 1980, með plastkassa og lyftu, tilvalinn í fiskflutninga.
Góður bíll. Verð kr. 1.250.000 án vsk.
Bílaumboðið hf. Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 91-686633