Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1994, Síða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 1994
Fréttir
Skarð Sigurðar Einars-
sonar verður vandfyllt
Prófkjör sj alfstæöismanna 1 Vestmannaeyjum:
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins, vegna bæjarstjórnarkosninganna í vor, verður á laugardag og sunnudag. Mynd-
in er frá höfninni í Vestmannaeyjum. DV-mynd GVA
Óraar Garðarsson, DV, Vestmaimeyjum;
Afdráttarlaus ákvörðun Sigurðar
Einarssonar, efsta manns á lista
sjálfstæðismanna í Vestmannaeyj-
um og forstjóra ísfélagsins, að
draga sig út úr bæjarpólitíkinni
setur sjálfstæðismenn í Eyjum í
vissan vanda. Þeir gera sér grein
fyrir því að skarðið sem hann skil-
ur eftir er vandfyllt.
Óumdeilanlega hefur hann,
ásamt Guðjóni Hjörleifssyni bæjar-
stjóra, borið hitann og þungann af
starfi meirihlutans á kjörtímabil-
inu og nú standa sjálfstæðismenn
frammi fyrir því að fylla þetta
skarð. Nöfn manna eins og Amars
Sigurmundssonar og Gísla Geirs
Guðlaugssonar, sem báðir hafa set-
ið í bæjarstjóm, hafa heyrst nefnd.
Margir bíða líka eftir því hvað
Guðjón gerir. Flestum finnst það
fýsilegur kostur að bjóða hann
fram sem pólitískan bæjarstjóra og
þá annað hvort í 1. eða í 4.sætið.
Það er baráttusætið vegna fækkun-
ar bæjarfulltrúa úr níu í sjö.
Flokkurinn vann stórsigur í síð-
ustu kosningum. Fékk sex af níu
fulltrúum. Sigurður Jónsson, sem
skipaði efsta sætið þá, hætti fljótlega
eftir að hafa orðið undir í baráttu
um að fá stöðu bæjarstjóra. Þess í
stað var Guðjón Ujörleifsson ráðinn
bæjarstjóri og núverandi lista sjálf-
stæðismanna skipa Sigurður Ein-
arsson, Bragi I. Ólafsson, Georg Þór
Kristjánsson, Sveinn R. Valgeirs-
son, Ólafur Lámsson, Októvía And-
ersen, sem em aðaifuiltrúar í bæj-
arstjóm, Guðrún Jóhannsdóttir,
Grímur Gíslason, Þórunn Gísladótt-
ir, Magnús Kristinsson, Auróra
Friðriksdóttir, Inda Marý Friðþjófs-
dóttir, sem em varafulltrúar, og
Stefán Geir Gunnarsson, Andrea
Atladóttir, Jóhann Friðfinnsson og
Sigurgeir Ólafsson. Þetta em 16
manns. Sigurður Jónsson og Geir
Jón Þórisson, sem vom á listanum,
era fluttir úr bænum.
Af þeim sem vitað er að hætta
skal fyrsta telja Sigurð, Braga og
Svein sem era aðalfulltrúar í bæj-
arstjóm. Varabæjarfulltrúar, sem
hafa tilkynnt að þeir æfii að hætta,
era Guðrún Jóhannsdóttir, Þórunn
Gísladóttir, Auróra Friðriksdóttir
og Inda Marý Friðþjófsdóttir.
Grímur Gíslason hefur ekki enn
sagt hvað hann ætlast fyrir en telur
þó htlar líkur á að hann sækist eft-
ir sæti á Ustanum. Sama gildir um
Magnús Kristinson sem telur mjög
ólíklegt að hann haldi áfram.
Georg Þór segir meiri líkur á því
en ekki að hann haldi áfram setu
í bæjarstjóm og sama máU gegnir
um Ólaf Lárasson. Ekki náðist i
Októvíu og því ekki vitað hvað hún
ætlar sér.
Guðrún Jóhannsdóttir, sem er
fyrsti varamaður flokksins, er
Fréttaljós
Ómar Garðarsson
ákveðin í að hætta. Grímur Gísla-
son segir frekar Utlar líkur á að
hann haldi áfram og það sama seg-
ir Magnús Kristinsson. Auróra
Friðriksdóttir, Þórann Gísladóttir
og Inda Marý Friðþjófsdóttir era
aUar ákveðnar í aö gefa ekki kost
á sér áfram. Ástæðuna segja þær
einfaldar; - starfið í bæjarstjórn
taki einfaldlega of mikinn tíma frá
heimiU og þeim störfum öðram
sem þær sinna.
Ef þetta gengur eftir gæti svo far-
ið aö aðeins tveir af núverandi að-
al- og varabæjarfuUtrúum Sjálf-
stæðisflokksins gefi kost á sér í
næstu bæjarstjómarkosningum.
Þrýstingur á Guðjón bæjarstjóra
að gefa kost á sér í prófkjör er mik-
iU. En vandinn sem Guðjón stendur
frammi fyrir er hveija hann fær
með sér. Hann er því nokkuð tví-
stígandi. Sjálfur segir hann Utið en
fólk sem stendur honum nærri tel-
ur að framboð hans ráðist af því
hvort tekst að fá mann sem hann
telur að geti fyllt skarð Sigurðar
Einarssonar. Sumir ganga svo
langt að segja að hann sé jafnvel
farinn að svipast um eftir annarri.
vinnu.
Guðjón og Sigurður hafa náð
mjög vel saman á kjörtímabilinu. í
upphafi naut Guðjón reynslu Sig-
urðar en eftir því sem lengra hefur
Uðið á kjörtímabUið hefur hann
axlað meiri og stærri byrðar.
Það er ekki nokkur vafi að eining
veröur um Guðjón ef hann ákveður
að slá til. Yrði það þá í fyrsta skipti
í áratugi sem flokkur tefldi fram
póhtískum bæjarstjóra í kosning-
um í Vestmannaeyjum. Spurningin
er hvort hann yrði í fjórða sæti og
stæði og félU með því hvort flokk-
urinn næði meirihluta eða ekki eða
hann leiddi Ustann sem efsti mað-
ur. Skoðanir um það era nokkuð
skiptar en þó telja flestir að sterk-
ara yrði að hafa hann í baráttusæt-
inu.
Sjálfstæðismenn eiga svo sem
menn sem geta tekið við af Sigurði
en spumingin er hvort þeir eru til-
búinir í prófkjörsslaginn? Svo er
líka spurning hvernig þeim vegn-
aði í prófkjöri því reynslan sýnir
að ekki fara aUtaf saman geta og
vinsældir. Svo gæti jafnvel farið að
sjálfstæðismenn féUu á eigin bragði
- að fækka bæjarfulltrúum úr níu
í sjö - því maður sem taka á viö
hlutverki Sigurðar gæti aUt eins
lent í fimmta sæti. Þyrftu sjálfstæð-
ismenn því að ná fimm af sjö bæjar-
fulltrúum tU að koma honum í
bæjarstjórn. Það verður að teljast
mjög ólíklegt.
Hveijir gefa kost á sér í slaginn
kemur í ljós í kvöld en þá rennur
út frestur fil að tilkynna framboð
í prófkjöri sem á að fara fram helg-
ina 12. og 13. mars n.k. Prófkjör fer
fram með þeim hætti að atkvæða-
seðlum er ekið í hús og þeim síðan
safnað saman. Þetta fyrirkomulag
var haft á fyrir kosningamar 1986
og 1990 og þótti reynast vel. Hafa
1400 tU 1600 manns tekið þátt í próf-
kjöri sjálfstæðismanna.
Halastjama mun rekast á Júpíter í júlí:
Gíf urleg orka
mun leysast
úr læðingi
Gifurleg orka mun leysast úr læðingi þegar halastjarnan Shoemaker-Levy
9 rekst á reikistjörnuna Júpíter i júlí næstkomandi.
„Þetta verður einstæður atburður
þar sem menn hafa aldrei orðið vitni
að svona árekstri. Áreksturinn mun
reyndar gerast á þeirri hhð Júpíters
sem snýr frá jörðu en það verður
engu aö síöur fylgst mjög vel með
#ví sem gerist í kjölfarið. Gífurleg
orka mun leysast úr læðingi og það
verður mjög forvitnUegt að sjá hvaða
áhrif áreksturinn hefur á svo stóra
reikistjörnu. Svona árekstur mundi
öragglega hafa gífurleg áhrif á jörð-
ina,“ sagði Þorsteinn Sæmundsson
stjörnufræðingur í samtah við DV.
Vísindamenn hafa reiknað út að 21.
j-óU í sumar muni halastjaman Shoe-
maker-Levy 9 rekast á reikisfjömuna
Júpíter. Halastjarnan, sem nefnd er
í höfðuðið á þeim sem sáu hana fyrst,
hefur verið á braut umhverfis Júpít-
er. í júU 1992 fór halastjaman fúns
vegar það nærri yfirborði Júpíters
að þyngdarafl reikistjörnunnar
sundraði henni og breytti braut
hennar. Þess vegna er áreksturinn
óumflýjanlegur.
Samkvæmt tímaritinu The Planet-
ary Report er stærsta brot hala-
stjömunnar um 2,5 kílómetrar í
þvermál. Eftir fyrstu útreikninga
töldu menn hins vegar að stærsta
brotið væri 10 km í þvermál, álíka
stórt og það brot sem á að hafa rek-
ist á jörðina fyrir 65 mifljónum ára
og taUð er að hafi stuðlað að útrým-
ingu risaeðlanna. En það er hinn
mikiU hraði halastjömunnar sem
leysa mun gífurlega orku úr læðingi.
Samkvæmt tímaritinu er hraðinn
216.000 kílómetrar á klukkustund.
Fylgst verður með þessum atburði,
aðdraganda og afleiðingum, frá jörðu
á mörgum stöðum. Hér á landi eiga
menn þess ekki kost að sjá hvað ger-
ist, auk þess sem hér verður bjart
næraUansólarhringinn. -hlh
Selfoss:
Lögreglan í Ámessýslu fær á
hveijum degi fjölmargar sím-
hringingar þar sem borgararnir
eru aö spyijast fyrir um færð á
vegum, einkum þó Hellisheíði.
Fyrirspumir koma jafht frá fólki
beggja megin heiðarinnar. Sím-
hringingar vegna þessa hafa
komist upp í fjögur hundrað á
tólf tíma vakt, Fynrspurnir þess-
ar geta truflað stórlega störf Iög-
reglu vegna t.d. slysa.
Vegna þess viU lögregla benda
á að fólk leiti frekar upplýsinga
um færð og ástand vega til Vega-
gerðar ríkisins i símum 98-21290,
99-6215 Og 99-6316.