Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1994, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1994
Vísnaþáttur___________
Þegar
ég í ferðir
fer
- framhald
Hér á ströndinni var ágætisreið-
vegur, en undanfarin ár hefur
vegastjóri, Grímur á Tjörnum,
unnið að því aö malbika kafla af
þessum vegi. Því kvað ég nýskeð á
ferð út að Felii:
Tapast fáka tölt og skeiö,
tregöa hugann fyflir.
Víða grýtta gerir leiö
Grímur vegaspillir.
Fleiri spretta fyrr ég naut,
freistaði moldargatan,
en þessi hæflr hnullungsbraut
hjólaskrögg og Satan.
Meðan hestur manninn ber
margur yrði feginn,
að þess gætti Grímur hver
grýta ekki veginn.
Síðastliðið haust var ég á ferð á
Rauð (Þokka) mínum milii Fehs pg
Hofs. Þá geröi ég þessar vísur. Ég
held að ég hafi ekki sent þér þær
áður:
Þegar ég í ferðir fer
fjörs að liðnu vori,
gömlum hentar manni mér
mýkt og snerpa í spori.
Þokka tel ég það th lofs,
þó sé aldurhniginn,
frumlega mihi Fehs og Hofs
fumar götustíginn
Stælt er lyfting, töltið títt,
tignar höfuðburður,
fáar, þó að forum vítt, .
falla reiðar snuröur.
Mun þaö líkt um mann og hest,
margt á leiðum skeði.
Beggja hefur sinniö sezt
síðan æskan réði.
Óhna Jónasdóttir kvað til mín
eftir að hafa séð nokkuð af syrpu
minni:
Vinur góði, í hug mér hlýnar
heyri ég óðar fagurt spU.
AUar ljóða hndir þínar
lýsa gróðurmagni og yl.
Ég fékk að hta á kvæði Ólínu og
lét þessar stökur fylgja er ég skhaði
þeim:
Þú munt lifa, það er von,
þitt er vísnametið.
Og hann Þorstein Erhngsson
andlega hefur getið.
Óðar dísin oft mér brást,
okkar stopul kynni.
Nú hefur Lína ljóðaást
lætt að sálu minni.
Annað beinast inn á svið
ástarkenndir mínar.
Héðanaf mun ég halda við
hróðrardætur þínar.
Ef mitt þyrfti að gleðja geð,
glæða hugsun þröngu,
þeim ég vfldi vera með
vökukvöldin löngu.
Ólina er snihingur á fágaðar vís-
ur“.
Ásgeir Jónsson í Gottorp svaraði
þessu bréfi Jóns Péturssonar og
var utanáskriftin svohljóðandi:
Miðann færi máttug hönd
mínum gamla og trausta vini
norður að Hofi á Höfðaströnd
honum Jóni Péturssyni.
Þær stökur, sem fara hér á eftir,
fékk ég einnig hjá Steinþóri Ás-
geirssyni, mig minnir að þær hafi
einnig komið til Ásgeirs í Gottorp
frá Jóni Péturssyni á Nautabúi, vU
þó ekki fuhyrða að svo hafi verið,
því minni mitt er oft stopult. En
þær munu vera eftir Jón Ásgeirs-
son bónda á Þingeyrum (1839-1898):
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
Heyra brak og bresti má,
broddur klaka smýgur,
hófa-vakur haukur þá
Hrannar þakið flýgur.
Veikir tál þá létt er loft,
leikur þjálum fæti.
Kveikir bál á undan oft,
eykur sálarkæti.
Hugarglaður held ég frá
húsum mammonsvina.
Skuldafrí ég skelli á
skeið um veröldina.
Pétur kvaddur á þessa leið:
Svo að sloti sultinum
og sjáum þrotinn trega
mínum gota gullfógrum
gefðu notalega.
Þessu reiðast Rauður kann,
rýkur á skeið að vonum,
sporagreiður gerist hann,
gaufið leiðist honum.
Meðan ungur æddi jór
eyddi hann þungum kvíða,
stáls við sungu stinnir skór,
steinar sprungu víða.
Yndisfríði fákurinn
fagran býður þokka.
Hressir tíðum muna minn
mínum ríða Sokka.
Þessa vísu á Jón að hafa kveðið
er hann reið síðast frá Blönduósi
og heim tíl sín:
Veröld þjál ei viö mig er,
vekur sálar þrautir.
Ferðir strjálast fyrir mér
Fróns um hálar brautir.
Torfi Jónsson
Matgæðingur vikuimar _
Grænmetis -
réttir
- að indverskum hætti
„Ég býö gjarnan upp á indverska rétti þegar ég elda
fyrir vini og kunningja," segir Gunnvant Armanns-
son, sölumaður hjá fyrirtækinu íslenskt-franskt eld-
hús. Gunnvant er hálfindverskur og kveðst vera ahnn
upp við indverska matargerð.
Að sögn Gunnvants eru Indverjar upp til hópa græn-
metisætur en sjálfur borðar hann einnig fisk og kjöt.
Lesendum DV býður hann upp á indverska grænmetis-
rétti.
Baunasalat að indverskum hætti
250 g kjúklingabaunir
250 g svartaugabaunir
250 g niðursoðnar nýrnabaunir
1 hvítlauksgeiri, smátt saxaður
1 stór laukur, gróft saxaður
1 msk. sesamolía
1 tsk. malað indverskt kúmen (Jeera)
'A tsk. möluð kóríanderfræ
1 tsk. malaður svartur pipar
1 tsk. salt
2 græn fersk chihaldin, fínt söxuð
'Á bolli söxuð kóríanderlauf
safi úr 1 sítrónu
Kjúkhngabaunir og svartaugabaunir eru lagðar í
bleyti yfir nótt. Soðnar í 1 'A klst. Gæta þarf þess að
þær ofsjóöi ekki.
Kryddi og lauk blandað saman og sett út í olíúna.
Ahar baunategundir settar út í. Sítrónusafinn er
kreistur yfir og skreytt með kóríanderlaufunum. Látið
standa 2 til 3 klst. í ísskáp. Þetta er mjög matarmikih
réttur, að sögn Gunnvants, og nóg að bera einungis
fram brauð með honum.
Blómkáls- og kartöflukarrí
1 htið blómkálshöfuð
800 th 900 g kartöflur
soyaoha
2 laukar
1 tsk. chihduft
1 tsk. engifer
2 msk. kóríanderfræ
4 dl vatn
2 tsk. salt
Gunnvant Ármannsson.
1 A tsk. Garam Masala (indv. kryddblanda)
Kartöflumar afhýddar hráar og skomar í bita. Blóm-
káhð tekiö sundur í htla bita. Laukamir skomir í
þunnar sneiðar og steiktir í olíunni í 2 til 3 mínútur
við vægan hita. Chihdufti, engifer og kóríanderfræjum
hætt út í og steikt í 2 mínútur í viðbót. Kartöflum og
blómkáh bætt út í og velt vel upp úr kryddblöndunni.
Vatn og salt sett á pönnuna og aht látið krauma í 10
mínútur. Garam Masala látið út í og rétturinn látinn
krauma í 5 mínútur th viðbótar.
Með þessu ber Gunnvant Jram hrísgijón og ind-
verskt brauð. Hveiti í það og úppskrift fæst í Kryddkof-
anum.
Gunnvant skorar á Styrmi Guðlaugsson, blaðamann
og knattspyrnukappa, að vera næsti matgæðingur.
Hinhliðin
Brosið er best
- segir Ragnar Om Pétursson, veitingamaður í Keflavík
Ragnar Öm Pétursson í Keflavík
sýnir á sér hina hhðina að þessu
sinni. Ragnar Öm hefur nóg að
snúast þessa dagana en fyrir stuttu
var hann endurkjörinn formaður
íþróttabandalags Keflavíkur, ÍBK,
með rússneskri kosningu. Ragnar
Öm er einnig fréttaritari Ríkisút-
varpsins, varaformaður barþjóna-
klúbbsins og varabæjarfuhtrúi í
Keflavík.
Fullt nafn: Ragnar Örn Pétursson.
Fæðingardagur og ár: 8. maí 1954.
Maki: Sigríður Sigurðardóttir.
Börn: Fjögur böm, tveir strákar og
tvær stelpur.
Bifreið: Mercury Sable ’87.
Starf: Veitingamaöur og frétta- og
dagskrárstjóri útvarps Bros í
Keflavík.
Laun: Þokkaleg.
Áhugamál: íþróttir, laxveiði og
stjórnmál.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Þijár.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að vera í góðra vina hópi að
veiða lax.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að gera ekki neitt.
Uppáhaldsmatur: Lambahryggur.
Uppáhaldsdrykkur: Mjólk.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur i dag? Jón Kr.
Gíslason, körfuknattleiksmaður úr
Keflavík.
Uppáhaldstímarit: Sportveiðiblað-
ið.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Leik-
konan Rachel Ward.
Ertu hlynntur eða ándvigur ríkis-
stjórninni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Elton John og Rachel Ward.
Uppáhaldsleikari: Jack Nicholson.
Uppáhaldsleikkona: Rachel Ward.
Uppáhaldssöngvari: Elton John.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Dav-
íð Öddsson frændi.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Fred Fhnstone.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir og
íþróttir.
Uppáhaldsmatsölustaður: Hótel
Óðinsvé.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarhðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Brosið á Suðurnesjum.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Kristján
Jóhannsson á Brosinu.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Jafnt á báðar stöðvar.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Her-
mann Gunnarsson og Bjami Fel.
Uppáhaldsskemmtistaður: Veiði-
húsið við Miðfjarðará.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Kefla-
vík.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Lifa lífinu lifandi.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Ég vinn öh sumur i Flugstöð
Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflug-
vehi þar sem ég er með rekstur.
ÆMK, Keflavík