Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1994, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1994
21
Fan, í miðju, eftir að henni var bjargað.
Kína:
Glæpaklíkur
ræna ungum
stúlkum og selja
Fan Xianxiu, sextán ára kínversk
stúlka, var auðveld bráð mann-
ræningja þegar hún fór að heiman
til að leita gæfunnar í Chengdu sem
er höfuðborg Sichuanhéraðs.
Nokkrum dögum eftir komu sína
til borgarinnar gáfu tvær konur sig
á tal við hana, buðu henni heim og
keyptu á hana föt.
Aðstoðarkona
í viðskiptaferð
Þær réðu hana sem aðstoðarkonu
í viðskiptaferð til Innri-Mongólíu.
Tveimur vikum seinna voru þær
búnar að selja hana hónda fyrir
rúmlega 30 þúsund krónur.
Bóndinn lofaði að kvænast Fan
en nauðgaði henni stöðugt frá þeim
degi sem hann keypti hana. Fan
ásakaði sig fyrir hvað hún hefði
verið einföld aö treysta konunum
sem seldu hana en hún huggaöi sig
við að bóndinn skyldi ekki berja
hana.
Fan var bjargað eftir að lögregla
á staðnum hóf herferð gegn mann-
ræningjum og mönnum sem höfðu
keypt sér konur. Bóndinn neyddist
til að sleppa Fan sem nú dvelur í
húsEikynnum hins opinbera meðal
50 annarra kvenna sem einnig
höfðu verið seldar. Þar er þeim
haldið þar til þær hafa hafa náð
sambandi við fjölskyldur sínar.
Þúsundum rænt
á hverju ári
Á hverju ári er þúsundum
kvenna rænt í Sichuan og þær seld-
ar í hjónahönd. Ástæðan er sögð
einföld. Það er ódýrara fyrir bónda
að kaupa sér konu en að eyða öllu
sparifé fjölskyldunnar í heiman-
mund og brúðkaupsveislu.
Mannræningjarnir leita uppi
ungar stúlkur í atvinnuleit. Þeir
bjóða þeim ritarastörf, þjónustu-
störf og verksmiðjustörf eða upp á
máltíð og gefa þeim lyf í leiðinni. Á
einangruðum svæðum ráðast þeir
með byssum gegn langferðabifreið-
um og skipa ungum stúlkum að
stíga út.
Óðrum til viðvörunar útvarpa
yflrvöld fregnum gegnum hátalara
af stúlkum sem hafa verið seldar.
Það eru þó ekki margir sem leggja
við hiustir.
Blómleg verslun
í skýrslum yfirvalda segir frá því
að 65 þúsund meðlimir 9 þúsund
glæpagengja hafi verið handteknir.
Samt blómstrar enn verslunin með
ungar stúlkur, og jafnvel drengi við
og við. Hjón,. sem enga erfingja
eiga, eru reiöubúin að kaupa
drengi sem geta tekið við búi
þeirra.
ií Hvaö eru raunvextir?
Hvaö eru veröbréj?
■ Hvernigget églátiö
peningana endast betur?
Ókeypis
fjármálanámskeid
fyrir unglinga
Nœstu námskeiö veröa haldin
3. og 10. febrúar fyrir unglinga 12-13 ára og
1. og 7. febrúar fyrir unglinga 14 ára og eldri.
Námskeiðin hefjast klukkan 15:30 og eru haldin
í Búnaðarbankanum Austurstræti 5, (aðalbanka), 3. hæð.
Innritun og nánari upplýsingar eru í síma 603267
(fræðsludeild).
Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið.
Hægt er að panta tíma fyrir nemendahópa.
Upplýsingar um námskeið fyrir unglinga utan Reykjavíkur
veita útibú Búnaðarbankans á viðkomandi stöðum.
Þátttakendur fá fjármálahandbók og viðurkenningarskjal.
Boðið er upp á veitingar og bankinn skoðaður.
Námskeiðin eru ókeypis og opin öllum unglingum.
BÚNAÐARBANKINN
- Traustur banki
30 þúsund hver. 632700
Kentucky Fríed Chicken
«fúap
5 daga kjúklingaveisla is tns'
ABrwtara
Venjulegip bitar, barbecue bitar og kryddvængir - Verð áður 165 kr.
Kentucky Fríed Chícken
Faxafeni 2 • S: 680588
Hjallahrauni 15 • S: 50828
Shellskálanum Selfossi • S: 98-23466
Opið frá 11-22
II Rl tlril
Kentucky Fríerí Chicken
Kentucky Fríerí Chicken Kentucky Fríerí Chicken____Kentucky Fríerí Chicken___Kentucky Fríerí Chicken