Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1994, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1994, Side 14
14 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGOLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Staða seðlabankastjóra Umsóknarfrestur rennur út 4. marz fyrir tvær stööur seölabankastjóra. Umsækjendur veröa vafalaust margir. Hætt er viö, að áfram veröi látin gilda sú aöferö, að Fram- sóknarflokkurinn veröi talinn „eiga“ annan þessara stjóra og Alþýðuflokkurinn hinn. í umræðunni er taliö líklegast og nánast gefið, aö Steingrímur Hermannsson, formaöur Framsóknarflokksins, taki aðra stöðuna, en stór hluti bankaráðs bankans virðist andvígur því og vill ráöa seðlabankastjóra á faglegum grundvelli. Þaö er mikiö óráö aö úthluta bankastjórastööum meö þessum hætti eftir póhtískum línum. Efnahagsmál okkar væru betur komin, ef þau sjónarmið réöu, aö stöðumar færu eftir faglegri hæfni þeirra, sem sækja um. Nú bætist viö, aö tahö er, aö ýmsir í forystuhði Sjálf- stæðisflokksins hugsi sér stöðuveitingu Steingríms sem „leikfléttu“. Ætlunin væri þá, aö Steingrímur settist í Seölabankann og hætti formennsku í Framsóknarflokkn- um. Þessir menn eru langþreyttir á stj ómarsamstarfmu viö Alþýðuflokkinn. Aö Steingrími frágengnum mundi Hahdór Ásgrímsson taka viö formennsku, og sjálfstæðis- menn telja sig eiga betra meö aö semja við Hahdór um nýtt stjómarmynstur. Steingrímur hefur ekki lýst því yfir, að hann muni sækja um stööu seðlababnkastjóra, þegar þetta er skrif- aö, en líkurnar em miklar. Formaöur bankaráðs Seölabankans, alþýöuflokk's- maðurinn Ágúst Einarsson, sagði í viðtali viö DV: „Póh- tískar skipanir á mönnum til aö leysa einhverjar póhtísk- ar fléttur er algjörlega hðinn tími. Þaö er tímaskekkja að verzla með háar stöður í bankakerfmu á þann hátt... Bankinn er sérhæfö stofnun í okkar þjóðfélagi meö afmörkuö verkefni á sviöi peningastjómunar...“ Ágúst er talinn munu segja af sér, veröi Steingrímur ráðinn. Sumir sjálfstæðismenn era uggandi vegna ráöagerð- anna um ráðningu Steingríms Hermannssonar í Seðla- bankann. Á sameiginlegum fundi kjördæmisráös sjálf- stæðisfélaganna á Reykjanesi og formanna fulltrúaráöa flokksins í kjördæminu, kjördæmi Steingríms, var fyrir viku ákveöið að vara Davíð Oddsson forsætisráöherra sérstaklega viö því að stuðla aö ráöningu Steingríms. Tónninn á fundinum var sá, að menn heföu slæma reynslu af afskiptum Steingríms af efhahagsmálum þjóö- arinnar. Mergurinn málsins er, að gengið veröur fram hjá ýmsum hæfum umsækjendum, sem hafa þekkingu á efnahagsmálum er Seðlabankinn fjahar um, fái Stein- grímur Hermannsson stööuna. Viö verðum þá enn sem fyrr ofurseld póhtískum hrossakaupum 1 þessum efnum. Faglegu sjónarmiöin veröa látin víkja fyrir samtryggingu flokkanna. Máhö er, aö viö töpum miklu sem þjóð við þær aðferöir, í staö þess aö færastu menn stjómi efna- hagsmálunum. Steingrímur sagði í viðtali viö DV, að Seðlabankinn ætti aö vera „póhtísk stofnun, sem vinnur náið með stjómvöldum". Hiö rétta er, aö bankinn á ekki aö vera hlaupatík flokka. Málum okkar veröur betur komiö, ef Seölabankinn veröur sem óháðastur stjómvöldum og efnahagsleg sjónarmið látin ráöa, ekki flokkspóhtísk. Seðlabankinn á að vera stjómtæki 1 nútíma hagkerfi, enda er þróunin í átt til aukins sjálfstæðis bankans. Auk þess er rétt, að menn þekkja, aö Steingrímur Hermanns- son hefur ekki aö jafnaði sýnt mikinn skilning á efna- hagsmálum. Haukur Helgason Grikkland þjarmar að Makedóníu til að létta á Serbum Makedónía er fjallaland á miöjum Balkanskaga, umlukið Grikklandi að sunnan, Albaníu að vestan, Serbíu að norðan og Búlgaríu að austan. Þegar Balkanríki börðust um reytur Tyrkjaveldis á skagan- um í Blakanstríöunum 1912 og 1913 var Makedónía eitt helsta þrætu- eplið. Mestur hluti Makedóníu féll loks í hlut Júgóslavíu, varð eitt af sam- bandslýðveldum hennar eftir síð- ari heimsstyrjöld og lýsti yfir sjálf- stæði 1991, þegar Júgóslavía leyst- ist upp vegna yfirgangs Serbíu- stjórnar. Lýðveldið Makedónía hefur átt erfitt uppdráttar á alþjóðavett- vangi, bæði gagnvart Sameinuöu þjóöunum og Vesturlöndum. Astæðan er fjandskapur Grikk- lands, sem vefengir rétt Makedón- íumanna til að nefna ríki sitt þess sögulega og rétta nafni. Telja Grikkir sig eiga einkarétt á nafn- inu. Filippus Makedóníukóngur lagöi Grikkland undir sig í fomöld, son- ur hans Alexander mikh varð mestur herkonunga á sinni tíð og á tímum eftirmanna hans varð grísk hámenning ríkjandi á víð- lendu flæmi við austanvert Mið- jarðarhaf. En söguleg rök hníga að því að Hellenar hinir fornu hafi ekki htið á þá feðga og þeirra landa sem hluta af sínum hóp, heldur hálfbarbara norðan úr fiöllum. Engu að síður er þaö stórveldis- tími Grikkja undir forustu Make- dóníukonungs og arftaka hans sem veldur því að gera má afstöðuna til nútíma Makedóníu að æsingamáli af hálfu Grikkja dagsins í dag. Und- ir býr svo landvinningadraumur, nú þegar hilla þykir undir nýskipt- ingu landa á Balkanskaga. Frá upphafi yfirgangs Serba gagnvart öðrum þjóðum í fyrrum Júgóslavíu, hefur stjórn Svobodans Milosevics í Belgrad átt hauk í horni í Aþenu, jafnt á vettvangi SÞ, Evrópubandalagsins og NATO. Gildir þá einu hvort stjórn íhalds- flokks eöa sósíahsta situr að völd- um í Grikklandi. Mestu varðar að Grikkland hefur með ráðum og dáð hjálpað Serbíu- stjórn við að fara fram hjá við- skiptabanni SÞ. Þetta hefur Grikk- landi haldist uppi vegna þess að bandamenn þess í NATO hafa skirrst viö aö bera einn af félögun- um sökum. Þrátt fyrir þvergirðing Grikkja og málaflækjur fer þeim ríkjum smátt og smátt fiölgandi sem viður- kennt hafa Makedóníu og tekið upp við hana stjórnmálasamband. Til að reyna að friða Grikki er þá ein- att í milhríkjaskjölum rætt um „Fyrrum júgóslavneska lýðveldið Makedóníu". Fyrir rúmri viku viðurkenndi Bandaríkjastjórn Makedóníu með þessum hætti. Á undan voru geng- in flest önnur ríki NATO, nema auðvitað Grikkland. Eina banda- ríska friöargæsluhðið á Balkan er 300 hermenn í Makedóníu. Andreas Papandreou forsætis- ráðherra kallaði þá saman auka- fund í grísku ríkisstjórninni. Á Erlend tídindi Magnús Torfi Ólafsson miðvikudaginn greip hann svo til aðgerða. Saloniki í Grikklandi er eðlileg aðdrátta- og útflutningshöfn Make- dóníu, sérstaklega eins og nú er komið, þegar leiöin um Serbíu til norðurs má heita lokuð. Fangaráð Papandreou er að skera á þessa líf- æð Makedóníumanna, banna öll- um varningi frá landinu og til þess aðgang að Salonikihöfn. Eina und- antekningin er „mannúðarsend- ingar“ sem Grikkir ætla sér sjálfir að skilgreina. Svo var lokaö ræðis- mannsskrifstofu Grikklands í Skopje, höfuðborg Makedóníu. Ekki kemur á óvart að til þessara fiandskaparaðgerða við Makedó- níu er gripið rétt eftir að gríski ut- anríkisráðherrann kom heim frá Belgrad, þar sem hann ráðgaðist viö Milosevic. Papandreou er að opna nýjar vígstöðvar í suðri gagn- vart nýfrjálsum fyrrum Júgó- slavíulýðveldum, einmitt nú þegar þrýstingur er í hámarki á Serba fyrir framferði þeirra í Bosníu, jafnvel yfirvofandi loftárásir NATO á serbnesk fallbyssuvirki við Sarajevo. Makedónía er fátækt land og byggö fólki af mörgum þjóðernum, þótt flestir tah slavneskt mál, einna skyldast búlgörsku. Furðu gegnir hve núverandi stjórn hefur tekist vel að halda innanlandsfrið þau misseri sem hún hefur borið ábyrgð á stjórn landsins. Friðurinn gæti þó skjótt orðið úti takist Grikklandssfiórn að valda neyðarástandi meðal Makedóníu- manna með því að banna þeim flestar bjargir til viöskipta viö um- heiminn. Þá þættust þeir Milosevic og Papandreou eiga leik á borði að réttlæta íhiutun í því skyni að skipta landinu milli Serbíu og Grikklands. Andreas Papandreou á þingfundi í Aþenu. Skoðanir annarra Taka verður á vandanum „Enginn veit h'versu langt má ganga á efnahaginn áður en hann bókstaflega hrynur. Það eru fáir í dag sem efast um þá staðreynd að Bandaríkin hafi á síð- ustu áratugum skapað tekjuhaha sem orðinn er að umtalsverðu vandamáh. Þjóðartekjur hafa þurft að gjalda þess dýru verði að tekjuhahi og skuldir þjóðar- búsins eru svona gífurlegar og þetta hefur einnig orðið th þess að mihjónir manna hafa misst vinnu sína. Það versta er samt eftir ef ekki veröur tekið á vandanum." Úr leiðara USA Today, 16 febrúar. Veltur allt á Bosníumönnum „Fyrr eða síðan mun stríðið í Bosníu, sem hefur nú staðið í um 22 mánuði, taka enda. Baráttan fyrir þvi að friður náist er líkleg th að verða nánast eins blóðug og stríðið sjálft hefur verið. Sú von um að friður náist loks hlýtur að hggja hjá Bosníumönnum sjálfum sem einnig eiga í baráttu sín á mihi. Ef stjóm Chntons eöa NATO ætla að koma í veg fyrir að Bosn- íumenn nái sjálfir að koma málum sínum á hreint eru þeir að bjóða hættunni heim.“ Úr leiðara The New York Times, 13. febrúar. Viðskiptabannið gegn Kúbu „Bandaríkin hafa nýlega aflétt viðskiptabanninu á Víetnam og er nú ekki kominn tími th að aflétta viðskipta- og samskiptabanninu sem hefur ríkt gagn- vart Kúbu sl. 30 ár? Kúba er kommúnistaríki en þaö er Víetnam líka. Kastró er hættur að styðja vinstri- sinnaða skæruhða í Suður-Ameríku og í Afríku. Kalda stríðið er löngu afstaðið og hvaða rök eru þá fyrir því aö Bandaríkin aflétti ekki banninu?" Úr leiöara febrúarheftis The Economist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.