Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1994, Síða 47
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1994
59
Sviðsljós
Fjölmenni var á blótinu. DV-myndir Sigursteinn Melsted, Breiðdalsvik
Þorrablót í Breiðdal
Dansinn dunaði - þrjár nikkur, gítar og bassi.
Þorrablóð
Breiðdælinga var
haldið laugar-
daginn 12. febrú-
ar og var mjög
fjölsótt.
Skemmtidagskrá
var öll heimatil-
búin og þótti
skemmtileg. Þá
var dansað af
miklum krafti
langt fram eftir
nóttu.
Ingólfur Arnarson, til vinstri, afhendir Eiríki Stefánssyni, form. VSF, fundar-
hamarinn að viðstöddum stjórnarmönnum VSF. DV-mynd Ægir
Frá afmælishátiðinni. Hilmar Jónsson ásamt krökkum sem taka virkan þátt í hreyfingunni,
f B M 1 BH ; JMmk’ • *wKmSm
f&'
Afmælishátíð 1 Keflavík
Ægir Mar Kárason, DV, Suðumesjum;
Bamastúkan Nýársstjarnan í Keflavík hélt
upp á 90 ára afmæh sitt 29. janúar en hún
varð 90 ára 1. janúar. Fjöldi, bæði börn og
fuhorönir, kom saman í göngugötunni við
bæjarbókasafniö þar sem æðsti temlar og
gæslumaður stúkunnar, Hilmar Jónsson,
bauð gesti velkomna.
í bókasafninu var sett upp sýning í thefni
afmæhsins og vakti hún mikla athygh við-
staddra. Guðleifur Sigurjónsson, forstöðu-
maður byggðasafnsins, undirbjó hana og var
sýningin um bindindishreyfmguna í Keflavík.
Hilmar Jónsson hefur unnið frábært starf sem gæslumaður barna-
stúkunnar og hefur hann stjórnað henni siðan 1970.
DV-myndir Ægir Már
Fundarhamar gefinn í
minningu formanns
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði;
Verkalýðs- og sjómannafélagi Fá-
skrúðsfjarðar barst nýlega að gjöf
fagurlega útskorinn fundarhamar
sem hjónin Þórhhdur Guðlaugsdótt-
ir og Ingólfur Arnarson, sem búsett
eru í Svíþjóö, gáfu í minningu Guð-
laugs Guðjónssonar, fóður Þórhhd-
ar.
Guðlaugur var formaður verka-
lýðsfélagsins í mörg ár og gegndi auk
þess mörgum trúnaðarstörfum fyrir
það. Sat meðal annars í hreppsnefnd
þegar félagið bauð fram og fékk tvo
menn í hreppsnefndina.
Hamarinn er hin mesta völundar-
smíð, fagurlega útskorinn af Hlyni
Halldórssyni frá Miöhúsum á Hér-
aði. Formaður félagsins veitti gjöf-
inni viðtöku og þakkaði þeim hjón-
um hina höfðinglegu gjöf.
Meiming
BíóborgiiySaga-bíó - Hús andanna: ★ ★ ★ XA
Suðrænn tilfinningahiti
Meryl Streep og Jeremy Irons leika hjónin Clöru og Esteban en saga þeirra er rakin í
Húsi andanna.
Þegar í hlut eiga kvikmyndir sem byggöar
eru á þekktum og viðurkenndum bók-
menntaverkum er stundum betra að koma
ferskur að kvikmyndagerð verksins, vera
ekki bundinn i báða skó af textanum. Kvik-
myndin Hús andanna (The House of the Spi-
rits) er gerð eftir mjög þekktri skáldsögu Isa-
bel Allende, sögu sem margir hafa tekið ást-
fóstri við. Því verður úrvinnsla sögunnar í
knappt handritsform sjálfsagt alltaf umdeh-
anleg. En hvaö sem hður fylgni við uppruna-
legan texta hefur danska leikstjóranum Bhle
August tekist að gera magnaða kvikmynd
KvLkmyndir
Hilmar Karlsson
sem þrungin er miklum tilfinningahita, ep-
íska kvikmynd af bestu gerð. Hús andanna
gerist í Suður-Ameríku og þótt Chhe sé aldrei
nefnt á nafn leynir sér ekki hvar sagan á að
gerast. Bylting herforingjanna er stór vendi-
punktur í myndinni og afgerandi fyrir fram-
rás sögunnar.
Hús andanna spannar á fimmta áratug.
Sögumaður er Blanca (Winona Ryder). í
byrjun fylgjumst við með henni aðstoða
gamlan foður sinn um ættaróöahð, sem er í
niðumíðslu, og hún byijar aö rifja upp sögu
foreldra sinna.
Esteban Trueba (Jeremy Irons) er fátækur
ævintýramaöur sem er ákveðinn í að koma
undir sig fótunum. Með hörku og þrjósku
byggir hann upp mikið veldi í búskap þar
sem algjört einræði ríkir. Hann htur á þjón-
ústuhð sitt nánast sem þræla. Það þarf því
engan að undra að á miöjum aldri gerist
hann þingmaður fyrir hægri öfhn. Einkalíf
hans er ekki farsælt og konurnar í lífi hans
þurfa að höa mikið af hans völdum, hvort
sem það er eiginkonan Clara (Meryl Streep),
systir hans Feriha (Glenn Close) eða dóttir
hans Blanca. Sjálfstæðar ákvarðanir þeirra
þohr hann ekki. Ahar verða þær á einhvem
hátt fyrir miskunnarleysi Estebans sem á
endanum verður táknrænn fyrir þau aftur-
haldsöh sem stjórna landinu.
Hús andanna er óvenju innihaldsrík kvik-
mynd sem að vísu er stundum full meló-
dramatísk en sleppur ávaht við væmnina.
Óneitanlega minnir myndin nokkuð á stór-
virki David Leans, Doctor Zhivago, þótt aðal-
persónurnar gætu ekki verið ólíkari.
Það er skhjanlegt að Bhle August skuli
hafa fengið shkar stórstjömur í leikarastétt-
inni til liðs við sig. Hlutverkin eru mjög bita-
stæð fyrir metnaðarfuha leikara ög stjörnu-
hö Augusts kemst vel frá sínu. Mest mæðir
á Jeremy Irons sem getur státað af mörgum
góðum hlutverkum en hefur ekki verið betri.
Esteban verður mjög htrík og sterk persóna
í meðförum hans. Meryl Streep og Glenn
Close em leikkonur sem ávaht er hægt að
treysta og þótt leikur Close sé áhrifameiri
þá ber þess að geta að Clara er flóknasta
persónan í myndinni. Winona Ryder fer
einnig vel með hlutverk Blöncu en skortir
þó enn þann þroska sem eldri leikaramir
hafa.
Bhle August á svo sannarlega hrós skihð
fyrir Hús andanna. Myndin lætur engan
ósnortinn sem fer að sjá hana með jákvæðu
hugarfari.
Hús andanna (The House ol the Spirits).
Lelkstjóri og handrltshölundur: Bille August.
Tónlist: Hanz Zimmer.
Aóalhlutverk: Jeremy Irons, Meryl Streep, Glenn
Close, Winona Ryder, Antonio Banderas og Va-
nessa Redgrave.