Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Page 2
2
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1994
Fréttir
Bankastjóramál Seðlabankans:
Birgir í útlöndum og því
bankastjóralaust í bili
- Sighvatur bíður enn eftir umsögnum bankaráðsins
ur Björgvinsson viðskiptaráð-
„Það er náttúrlega slæmt að það
skuli einungis vera starfandi einn
bankastjóri í Seðlabankanum
þessa dagana en fyrir því eru hins
vegar fordæmi. Ég vonast til að fá
umsagnir bankaráðs í vikunni.
Þegar þær berast mun ég ekki taka
langan tíma í að ganga frá ráðningu
nýrra bankastjóra," segir Sighvat-
herra.
Jón Sigurðsson hóf í dag störf
sem aðalbankastjóri hjá Norræna
fjárfestingabankanum í Finnlandi.
Birgir ísleifur Gunnarsson er nú
eini bankastjóri Seðlabankans en
Tómas Ámason lét af störfum sem
bankastjóri um áramótin fyrir ald-
urs sakir. Birgir er nú erlendis og
því enginn starfandi seðlabanka-
stjóri á landinu þessa dagana.
Bankaráðið auglýsti stöður Jóns
og Tómasar lausar til umsóknar
um miðjan janúar. í kjölfarið barst
fjöldi umsókna.
Bankaráðið hefur undanfamar
vikur farið yfir umsóknimar og er
gert ráð fyrir að umsögn þess um
umsækjendur berist ráðherra síðar
í vikunni. Fullvíst er tahð að Stein-
grímur Hermannsson hreppi aðra
stöðuna þrátt fyrir andstöðu í
bankaráðinu. Meiri óvissa er um
hver verði ráðinn í hina stöðuna.
Samkvæmt heimiidum DV er
Magnús Pétursson ofarlega á óska-
hstanum hjá Sighvati sem banka-
stjóri. Fleiri koma hins vegar til
áhta, einkum þó þeir Guðmundur
Magnússon, Ásmundur Stefáns-
son, Eiríkur Guðnason, Ingvi Öm
Kristinsson, Már Guðmundsson og
Ingimundur Friðriksson.
-kaa
Sendimaður í Kína:
Pétur Gunn-
arfbor-
steinsson
líklegurí
starfið
Utanríkisráðuneytið hefur gert
samkomulag viö sænska utanrík-
isráðuneytið um afnot af sendi-
ráði Svíþjóðar í Kína. í byijun
næsta árs tekur íslenskur sendi-
fuhtrúi til starfa í sendiráðinu.
Hann verður án sendiherratitils.
Að ári hönu veröur síðan tekið
til athugunar hvort þörf sé á þvi
aö opna íslenskt sendiráö í Pek-
ing.
Samkvæmt heimildum DV þótti
það ekki fýsilegur kostur að
semja við Norðmenn eða Dani um
afnot af sendiráðum þeirra þar
sem viðskiptahagsmunir gætu
skarast. Enn hefur ekki verið
gengiö frá því hver taki aö sér
stöðu sendifulltrúa. Nafn Péturs
Gunnars Thorsteinssonar, sendi-
fulltrúa á viðskiptaskrifstofú ut-
anríkisráðuneytriins, hefur þó
einkum heyrst nefnt í þessu sam-
bandi
Innan ríkissljómarinnar og á
Alþingi virtist það koma mönn-
um í opna skjöldu þegar Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráöherra tilkynnti kínverskum
sfjómvöldum í siðustu viku að
það stæði til aö opna íslenskt
sendiráð í Kína. Þó máhð hafi
verið kynnt lauslega á fundi rík-
isstjómar og í utanríkisnefrid
telja margir brýnna aö opna
sendiráö í Japan. Samkvæmt
heimildum DV er forsætisráð-
herra í þeim hópi. -kaa
íslandsmeistarar i parasveitakeppni, frá vinstri eru Ragnheiður Tómasdóttir, Þröstur Ingimarsson, Jón Hersir Elías-
son og Guðrún Jóhannesdóttir. DV-mynd ÞÖK
íslandsmótið í parasveitakeppni í bridge:
Óvæntur sigur
sveitar Guðrúnar
Úrsht urðu nokkuð óvænt á ís-
landsmótinu í parasveitakeppni í
bridge sem fram fór um helgina.
Sveit Guðrúnar Jóhannesdóttur náði
að tryggja sér íslandsmeistaratitilinn
í lokaumferðinni með góðum sigri á
sveit Ljósbrár Baldursdóttur, 18-12.
Fyrir lokaumferðina áttu þrjár sveit-
ir möguleika á sigri.
Fyrirfram var búist viö aö sveitir
Ljósbrár Baldursdóttar og Suður-
landsvideó myndu beijast um sigur-
inn en sveit Ljósbrár hafnaði í 4.
sæti og Suðurlandsvídeó í 9. sæti.
Nýir íslandsmeistarar auk Guðrúnar
em Jón Hersir Ehasson, Ragnheiður
Tómasdóttir og Þröstur Ingimarsson.
Keppnisstjóri á mótinu var Kristján
Hauksson. Atján sveitir spiluðu í
mótinu eftir Monrad-kerfi og lokast-
aða efstu sveita varð þairnig:
1. Sveit Guðrúnar Jóhannesdóttur 137
2. Sveit Önnu ívarsdóttur 131
3. Sveit Grethe Iversen 124
4. Sveit Ljósbrár Baldursdóttur 120
-ÍS
Þyrlukaupamálið vefst fyrir rlMsstjórninni:
Segja tilboð Bandaríkja-
manna „hlægilega“ lágt
- Þorsteinn Pálsson vill kaupa notaða Super Puma-þyrlu nú þegar
„Það væri stórfurðulegt ef menn
gæfu sér ekki tíma til að kanna til
hhtar nýjasta tilboð Bandaríkja-
manna. Þeir hafa yfir að ráða öflug-
asta her veraldar og því ætti að vera
hægt að treysta því að þeir hefðu
yfir að ráða nothæfum þyrlum. Ég
er að láta kanna tilboðið en við fyrstu
sýn virðist það mjög athyghsvert,"
segir Sighvatur Björgvinsson, starf-
andi utanrikisráðherra.
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra lagði til á ríkisstjómarfundi
fyrir helgi að keypt yrði átta ára göm-
ul Super Puma þyrla á 700 mihjónir.
í ljósi þess að fyrir hggur nýtt tilboð
frá Bandaríkjunum um þrjár nýlegar
Sikorsky-þyrlur ásamt ýmsum sér-
búnaði var ákveðið að fresta ákvörð-
un um kaupin fram á ríkisstjómar-
fund sem haldinn verður á morgun.
Ósk þessa efnis kom frá Sighvati og
Friðriki Sophussyni fjármálaráð-
herra.
Samkvæmt heinúldum DV er til-
boð Bandaríkjamanna margþætt og
mun hagstæðara en fyrra tilboð
þeirra. íslendingum er gefinn kostur
á að velja um fjölda þyrlna á lágu
verði og að auki bjóðast Bandaríkja-
menn til að þjálfa áhafnir og viðgerð-
armenn. „Þetta verð er svo hlægilega
lágt að ég trúi varla að það sé rétt,“
sagði háttsettur aöili í Stjómarráð-
inu.
Innan ríkisstjómarinar leggur Þor-
steinn Pálsson mikla áherslu á að
gengið verði sem fyrst frá kaupunum
á Super Puma-þyrlunni. -kaa
Stuttar fréttir
Samstarf við Kínverja
íslendingar hafa lagt drög að
menningarsamningi við Kín-
verja. í honum er kveðið á um
rannsóknaverkefni og gagn-
kvæm stúdentaskipti. RÚV
greindi frá þessu.
Áhugi fyrir tryggingum
Fjögur erlend tryggingafélög
hafa tilkynnt Tryggingaeftirht-
inu að þau hyggist hefja starfsemi
hér á landi. Tilkynningamar hafa
enn ekki verið afgreiddar enda
ekki búið aö breyta lögum til
samræmis við EES. Morgunblað-
ið skýrði frá þessu.
Sölufélag skilar hagnaði
Hreinn hagnaður af Sölufélagi
garðyrkjumanna nam 30 milijón-
um króna á síðasta ári. Á tveimur
árum hafa skuldir fyrirtækisins
lækkað um 400 mihjónir. RÚV
greindi frá þessu.
Konuríræstíngum
Konur eru 5% prófessora við
Háskóla íslands en'93% ræstinga-
fólks. Alls em 673 starfsmenn við
skólann, þar af 230 konur. Mbl.
greindi fiú þessu.
Umdeild forgangsröðun
Útgjöld vegna glasafijóvgana
og matar á sjúkrahúsum mættu
helst lækka en síst hátækniað-
gerðir. Þetta kemur fram i könn-
un landlæknisembættisins varð-
andi forgangsröðun í heilbrigðis-
þjónustunni. Sjónvarpið greindi
frá þessu.
Forystumenn í byggingariönaði
telja frumvarp um skattaafslátt
af viöhaldi húsa til bóta. Sam-
kvæmt Mbl. er tahð að svört við-
skipti rayndu mínhka stórlega
verði frumvarpið samþykkt.
Sviptíng veiðileyfa
Eigendur sex báta sem búnir
eru með kvótann verða sviptir
veiðileyfi í dag verði þeir sér ekki
úti um aukinn kvóta. Sjónvarpið
greindi frá þessu.
MagakveisaíKína
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra fékk i magann
meðan hann dvaldi í Kína á dög-
unum. Aðstoðarmaður ráðherra
telur veikindin ekki alvarleg.
Tíminn greindi frá þessu.
Vetnierframtíðin
Vetnið verður arðbær orka upp
úr aldamótum. Þessi skoðun
Steingríms Hermannssonar kom
framíTimanum. -kaa