Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Blaðsíða 30
42 MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1994 Afmæli Bæring Þ Bæring Þorbjörn Þorbjörnsson, fyrrv. sjómaöur, Hrafnistu í Hafnar- flröi, verður níræöur á morgun. Starfsferill Bæring fæddist aö Steig í Veiði- ieysufirði í Grunnavíkurhreppi. Hann flutti þaðan fjögurra ára með foreldrum sínum til Bolungarvíkur. Eftir rúmt ár í Bolungarvík var hann sendur til fóðurafa síns, Guð- mundar Þorvaldssonar, og konu hans, Svanborgar, að Kjaransvík á Ströndum en stuttu síðar komu for- eldrar Bærings að Kjaransvík og bjuggu þar í tvíbýli með Guðmundi og Svanborgu. Á tíunda árinu fór Bæring til Hesteyrar til hjónanna Eiríks Benjamínssonar og Elísabet- ar Halldórsdóttur. Þar ólst hann upp og gekk í skóla til fimmtán ára ald- urs. Frá Hesteyri flutti Bæring svo til foreldra sinna að Steinólfsstöðum í Veiðileysufirði en þangað fluttu þau frá Kjaransvík. Eftir rúmt ár á Steinólfsstöðum missti hann móður sína og flutti þá til Hnífsdals með foðurömmu sinni og systkinum. Hann var þar í eitt ár og fór síðan í vinnumennsku til Einars Guð- laugssonar að Kolsá í Jökulfjörðum þar sem hann var í þrjú ár. Hann fór svo aftur til Hnífsdals og þaðan til Frímanns Haraldssonar á Horni þar sem Bæring var í önnur þrjú ár. Hann bjó síðan í Hnífsdal næstu tíu árin og stundaði sjóinn á árabát- um og stærri bátum. Bæring keypti sér árabát 1928 sem hann nefndi Unu, setti í hann vél og sótti fast á honum öll vor, sumur og haust, allt til ársins 1986. Á stríðs- árunum sótti hann allan ársins hring. Fjölskylda Bæring kvæntist 30.3.1929 Ólöfu Jakobsdótturfrá Aðalvík, d. 10.10. 1989. Þau hófu sinn búskap í Hnífs- dal og bjuggu þar til 1939 en fluttu þá til ísafjarðar. Þar vann Bæring við fiskverkun á vetuma, lengst af í Hraðfrystihúsi Norðurtangans. Þau hjónin fluttu síðan til Hafnar- . Þorbjömsson fjarðar 1974 þar sem hann er enn búsetturídag. Bæring og Ólöf eignuðust fjögur börn: Guðrúnu, f. 24.12.1928, hús- móður í Hafnarfirði, ekkju eftir Halidór Einarsson netagerðar- mann, d. 16.4.1979; Margréti, f. 13.7. 1931, húsmóður í Bandaríkjunum, ekkju eftir Tom Lawler, d. 1981; Kristin, f. 12.7.1937, rafvirkjameist- ara í Svíþjóð, kvæntan Bryndísi Sig- urðardóttur sjúkraliða; og Ólaf, f. 9.10.1943, d. 20.11.1982, sjómann, átti Öldu Aðalsteinsdóttur hjúkrun- arfræðing sem búsett er í Garðabæ. Stjúpsonur Bærings er Ásgeir Val- hjálmsson, f. 16.6.1927, fram- kvæmdastjóri í Garðabæ, kvæntur Sigurlínu Kristjánsdóttur ljósmóð- ur. Bæring átti sex alsystkini, þrjá bræður og þijár systur. Systkini hans: Guðmundur Páll, f. 8.6.1906; Jón Marías, f. 22.4.1907; Stefán Pét- ur, f. 12.1.1910: Sigríður Bjargey, f. 12.9.1914; Elín Guðmundína Frið- gerður, f. 18.5.1915; Friðrikka Betúelína, f. 14.6.1918. Þá á hann tvo hálfbræður, samfeðra, Albert og Sigurð. Systkinin eru öll á lífi nema Elín, Jón og Guðmundur Páll. Foreldrar Bærings voru Þorbjörn Guðmundsson, f. 1882, b. í Kjarans- vík og að Steinólfsstöðum, og kona hans, Guðrún Albertína, f. 22.11. 1880, húsmóðir. Ætt Þorbjörn var sonur Guðmundar, b. í Kjaransvík á Ströndum og á Álfsstöðum, Þorvaldssonar, b. á Hrafnsfjarðareyri, Jónssonar, Gíslasonar. Guðrún var dóttir Jens, b. í Tröð í Álftafirði og á Eiði, Kolbeinssonar, b. í Þemuvík og á Galtarhrygg, Magnússonar, á Garðsstöðum, Kol- beinssonar. Móðir Jens var Guð- björg Einarsdóttir, vinnumanns í Vigur og í Þemuvík, Jónssonar, b. að Laugabóli í Ögurhreppi, Bárðar- sonar í Amardal, Illugasonar, for- fóður Amardalsættarinnar. Móðir Guðbjargar var María Svarthöfðadóttir, b. á Garðsstöðum, Bæring Þorbjörn Þorbjörnsson. Hallgrímssonar, Jónssonar, bróður Ólafs, lögsagnara á Eyri í Skutuls- firði, ættfóður Eyrarættarinnar og langafa Jóns forseta. Hallgrímur var sonur Jóns, b. að Skarði í Skötu- flrði, Sigurðssonar. Móðir Guðrúnar Albertínu var Guðríður Torfadóttir, b. á Kerlinga- stöðum í Grunnavík, Torfasonar. Bæring tekur á móti gestum á morgun, afmælisdaginn, í Gaflinum í Hafnarfirði frá kl. 18. Friðrik Pétursson Friðrik Pétursson sérkennari, Borg- arholtsbraut 20, Kópavogi, varð sjö- tugur á laugardaginn var. Starfsferill Friðrik fæddist í Skjaldar-Bjarna- vík í Ámeshreppi í Strandasýslu og ólst þar upp til tíu ára aldurs en flutti þá í Reykjarfjörð í sömu sveit. Hann vandist öllum almennum sveitastörfum, stundaði nám við Héraðsskólann í Reykholti í tvo vet- ur, stundaði nám við KÍ 1944^58 og síðan í sérkennslufræðum 1968-69. Friðrik var leiðbeinandi við Barnaskólann að Finnbogastöðum 1943-44, stundaði kennslu í Vest- mannaeyjum 1948-68 með smá hlé- Halla Sjöfn Hallgrímsdóttir, vökukona á Efli- og hjúkranar- heimilinu Garðvangi, tfl heimilis að Valbraut 3, Garði, er fertug í dag. Starfsferill Halla fæddist í Reykjavík og ólst þar upp og í Garðabæ. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræða- skólanum í Garðabæ og stundaði nám við Húsmæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði 1971-72. Halla var gangastúlka á Reykja- lundi 1972-76, stundaði saltfisk- verkun hjá Andra í Njarðvik 1976-78, var aöstoðarstúlka í eld- húsi á Hótel Borg frá 1978 auk ann- arra starfa en hefur verið vöku- um og hefur stundað sérkennslu í Reykjavík og Kópavogi síðustu tvo áratugina. Friðrik starfaði í mörg sumur við skógrækt. Hann sat um árabil í stjórn Skógræktarfélags Kópavogs, var umsjónarmaður skógræktar- stöðvarinnar Svörtuskóga sem Skógræktarfélag Kópavogs rak. Þá var hann stofnandi Félags vélbáta- eigenda í Kópvogi og formaður þess fyrstu árin. Fjölskylda Friðrik kvæntist 10.9.1958 Jó- hönnu H. Sveinbjörnsdóttur, f. 16.1. 1929, húsmóður. Hún er dóttir Ág- ústs Sveinbjörns Benónýssonar og kona á Garðvangi frá 1985. Fjölskylda Hallagiftist 22.12.1979 Jóhanni Sigurði Víglundssyni, f. 23.1.1954, handavinnukennara við Gerða- skóla. Hann er sonur Víglundar Guðmundssonar, lengi trésmiðs hjá B.Ó. Ramma í Njarðvík, og Ól- afar Karlsdóttur sem starfaði við Sjúkrahús Keflavíkur. Böm Höllu og Jóhanns Sigurðar eru Guðmundur Örn Jóhannsson, f. 16.2.1983; Rakel Sólrós Jóhanns- dóttir, f. 2.8.1987; Andri Þór Jó- hannsson, f. 27.7.1988. Systkini Höllu era Soffía Sandra Presnel, f. 27.9.1946, búsett í Banda- Hinriku Helgadóttur í Vestmanna- eyjum. Böm Friöriks og Jóhönnu eru Rósa, f. 15.12.1957, hjúkrunarfræð- ingur, og Ríkharður Helgi, f. 5.11. 1960, tónlistarkennari, í sambúð með Svanhildi Bogadóttur borgar- skjalaverði og eiga þau tvær dætur. Friðrik átti fimm systkini. Systk- ini hans: Guðmundur, f. 1918, vél- stjóri; Guðbjörg, f. 1920, húsmóðir; Jóhannes, f. 1922, kennari; Matthías, f. 1926, skrifstofustjóri; Jón, f. 1929, bifvélavirki. Foreldrar Friðriks voru Pétur Friðriksson, f. 1887, d. 1979, b. í Reykjarfirði, og kona hans, Sigríður E. Jónsdóttir, f. 1892, d. 1984, hús- ríkjunum; Fríða Kristin Elísabet Guðjónsdóttir, f. 22.2.1949, búsettí Hafnarfirði; Sonja Guðbjörg Guð- jónsdóttir, f. 26.11.1951, búsett í Hafnarfirði; Guðmundur Kristinn Guðjónsson, f. 5.2.1953, d. 25.4.1979; Anna Lýdía Hallgrímsdóttir, f. 9.6. 1955, búsett í Reykjavík; Sigríður Hallgrímsdóttir, f. 10.12.1959, bú- sett í Hrútafirði; Sveinn Hallgríms- son, f. 23.6.1961, búsettur í Hafnar- firði; Elsa Halldís Hallgrímsdóttir, f. 6.8.1963, búsett í Svíþjóð. Foreldrar Höllu: Hallgrímur Val- geir Guðmundsson, f. 5.10.1930, rafvirki með eigin rekstur, og El- ísabet Sveinsdóttir, f. 8.9.1926, d. 20.8.1989, húsmóðir. Friðrik Pétursson. móðir. Friðrik verður að heiman á af- mælisdaginn. Halla Sjöfn Hallgrímsdóttir. Til hamingju með afmælið 11. apríl Ásgerður Ágústa Pétursdóttir, Árskógum 8, Reykjavík. 70 ára Þóra Helgadóttir frá Merkigarði, Lerkihlíð 9, Sauðárkróki. Húneraðheiman. 60 ára Halla HelgaSkjaldberg, Hávallagötu 22, Reykjavík. Hrafnhiidur Kristinsdóttir, Álftahólum 6, Reykjavík. Óskar Veturliði Grímsson, Njarðvíkurbraut 12, Njarövik. 50ára Hallgrímur Sigurðsson, fyrrv. bóndi á Hólavatni í A-Landeyjum, Hólavangi 20, Hellu. Hann er að heiman á afmælisdag- inn en tekur á móti gestum á heim- ili sínu laugardaginn 16.4. Jóhann Alexandersson, Fagraholti 12, ísafirði. Jón G. Sigurðsson, Hlíðarbyggð 27, Garðabæ. Gunnar Halldórsson, Tungusíðu 13, Akureyri. BjamiÞ. Hagen, Stóra-Sandfelli 2, Skriðdalshreppi. Halla Sjöfn Hallgrímsdóttir Erlendur Sigurðsson Erlendur Sigurðsson, vörubíl- stjóri og nú starfsmaður í Áburðar- verksmiðju ríkisins, Búðagerði 7, Reykjavík, verður sjötugur á morg- un. Fjölskylda Erlendur er fæddur í Reykjavík ogólstþarupp. Erlendur kvæntist 26.1.1946 Önnu Clöra Sigurðardóttir, f. 26.5. 1927, húsmóður. Foreldrar hennar: Sigurður Jónsson, bifvélavirki í Reykjavík, og Guðrún Ágústa Jó- hannsdóttir. Böm Erlends og Önnu: Þórir, f. 24.3.1945, múrari, hann á tvö börn; Guðmundur, f. 10.2.1952, mat- reiðslumaður, hann á fimm börn; Marólína Guðrún, f. 2.1.1955, sjúkraliði og húsmóðir, hún á fjög- ur börn; Olga Dagmar, f. 7.5.1958, nemi og húsmóðir, hún á þrjú böm. Systkini Erlends: Elín, f. 7.8.1920, húsmóðir, maki Magnús Berg- steinsson húsasmíðameistari; Hall- dór Grétar, f. 12.10.1921, stýrimað- ur, maki Ingibjörg Marteinsdóttir, f. 2.6.1927; Jóna Lísbet, f. 8.8.1925, verkakona; Halldór Oddgeir, f. 7.2. 1932, húsasmiður, maki Sigríður Bjömsdóttir, f. 6.4.1935; Margrét, f. 26.5.1944, bankastarfsmaður og húsmóðir, maki Þór Ingi Erlings- son, f. 18.8.1940, offsetprentari. Foreldrar Erlends: Sigurður Halldórsson, f. 11.8.1884, d. 16.3. 1978, verkstjóri, og Marólína Er- lendsdóttir, f. 13.11.1900, d. 23.5. 4073, húsmóöir, þau bjuggu að Hopi í Grindavík. Ætt Sigurður var sonur Halldórs Sig- urðssonar, verkstjóra í Reykjavík, og Margrétar Jónsdóttur, húsmóö- ur. Marólína var dóttir Erlends Oddssonar, f. 1.8.1852, d. 20.5.1907, kennara, og Lisbetar Guðmunds- dóttur, f. 24.6.1877, d. 23.4.1961. Erlendur tekur á móti gestum í Oddfellow-húsinu frá kl. 18-20 á afmælisdaginn. Erlendur Sigurðsson. Guðný Jónsdóttir, Holtsgötu 12, Njarðvík. Þorsteinn Jónsson, Háaleitisbraut 123, Reykjavík. Hallfriður Alfreðsdóttir, Grettisgötu 47, Reykjavík. Þorsteinn Pálsson, Skógarási 3, Reykjavík. Ingibjörg A. Guðlaugsdóttir, Logafold 155, Reykjavík. Óskar Sveinbjörn Ingvarsson bif- reiðarstjóri, Krókamýri 24, Garðabæ. Hanneraðheiman. Guðrún Sigríður Vignisdóttir, Engjavegi 24, Selfossi. Tómas Tryggvason, Laugarvatni, Fenjum, Laugardals- hreppi. Guðmundur S. Kristjánsson, Fífuseli 32, Reykjavík. Sigurður S. Jóhannsson, Keilufelli 1, Reykjavík. Jens Sigurðsson, Þórufefli 6, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.