Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 11. APRIL 1994 11 ? Fréttir Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2 Sími: 67 48 48 Opið laugardag 10-17 Þorleifur Ingólfsson, útvegsbóndi í Skagafírði: Betraútlit með veiðar á grásleppunni Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauöárkróki: „Miðað við árstíma lítur þetta ágætlega út svo framarlega sem menn komast til að vitja um. Það eru bölvaðar ógæftir og ég hef ekki einu sinni komist til að fara í fyrstu lögn hjá mér. Það eru um 40-50 grásleppur í neti og mér heyrist að þetta sé svona svipað fyrir öllu Norðurlandi. Sem sagt betra útlit en síðasta vor enda var þá mjög léleg vertíð,“ sagði Þorleifur Ing- ólfsson, útvegsbóndi á Þorbjargar- stöðum í Skefilsstaðahreppi í Skagafirði, í samtali við DV. Þorleifur, sem hefur ásamt syni sínum fengiö fimm tunnur á þess- um tveimur dagstundum sem þeir hafa komist á sjó, segir að gráslepp- an lítí mjög vel út. „Mér sýnist ástandið í náttúrunni og lífríkinu til sjávarins vera þann- ig að grásleppan hrygni með fyrra fallinu núna. Vertíðin gætí því ver- ið búin um miðjan maí. Þvi ríður á að gæftimar lagist. Mér sýnist þetta vera mjög svipað og á minni fyrstu vertíð, fyrir sjö árum. Hún byijaði svona en síðan var ekkert að fá nema hrygndar grásleppur um 20. maí,“ sagði Þorleifur. Verð á grásleppuhrognum er gott um þessar mundir. Rúmlega 50 þúsund krónur greiddar fyrir tunnuna. Það er heldur betra en í fyrra. Þá var líka vöntun á hrogn- um og sökum þess að síðasta vertíð brást hefur eftirspumin aukist enn frekar. Jónas Kristjánsson bilstjóri, Hrönn Káradóttir, formaður Slysavarnadeildar kvenna, og Guðmundur Salómonsson við nýja bilinn. Húsavík: Björgunarsveitin fær bíl Jöhannes Sigurjónsson, DV, Húsavítc Björgunarsveitin Garðar á Húsa- vík hefur fest kaup á nýrri bifreið fyrir starfsemina. Bíllinn er af gerö- inni Ford Econoline, splunkunýr, árgerð 1994, og sá fyrsti sinnar teg- undar sem kemur tÚ landsins. Þetta er þriðji bíllinn sem sveitín eignast og allir hafa þeir verið sömu tegund- ar. Kaupverð bílsins er um 4,2 millj- ónir. Bíllinn kom tíl landsins um áramót en hefur verið syðra vegna breytinga á honum hjá Bílabúð Benna. Hann er mjög vel tækjum búinn og á stór- um vetrardekkjum, þannig að það á að vera hægt að komast á honum við mun erfiðari aðstæður en fyrri bílar Garðars komust. Aíkoma Marels: Ellefu pró- senta minni hagnaður - þrátt fyrir veltuaukningu Marel hf. skilaði ríflega 18 millj- óna króna hagnaði á síðasta ári sem er um 3,2% af tekjum. Þetta er verri afkoma en árið áður þeg- ar hagnaðurinn nam 20,5 milljón- um og 4,6% af tekjum, eða sam- dráttur um 11 prósent milli ára. Á síðasta ári var lögð áhersla á aukna markaðssókn til þess að ná þeim markmiðum sem sett höfðu verið árið áður, þ.e. að tvö- falda veltu Marels á þremur til fimm árum. Árið 1992 voru rekstrartekjumar um 444 millj- ónir króna og jukust rnn nær þriðjung á síðasta ári í 562 millj- ónir. Áætlanir fyrirtækisins í ár gera ráð fyrir 15% aukningu á tekjum þannig að í árslok 1994 ættu þær að nema um 650 millj- ónum króna. Nálgast þá mark- miðin um tvöfoldun á veltu. Heildareignir Marels í árslok 1993 voru rúmar 400 milljónir króna sem er 43% aukning frá fyrra ári. Skuldimar vom 246 milljónir, eða 74% meiri en árið 1992. Eigið fé í árslok var 156 milljónir og eiginfjárlilutfallið 39%, nokkm minna en árið 1992 þegar það var 50%. Starfsmenn Marels em um 70, eða 22 fleiri en fyrir ári. Hjá dótt- urfyrirtækjum erlendis störfuðu 5 manns. Á aðalfundi fyrirtækisins 14. apríl nk. verður lagt til að greiða hluthöfum 6% arð og að hlutafé verði aukið um aUt að 20 milljón- irkróna. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.