Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Blaðsíða 26
38 MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1994 Fréttir Fyrsta bílauppboðið: Gengið frá einni sölu „Fólk var aö bjóða langt fyrir neðan það lágmarksverð sem við höfðum sett á bílana. Það voru hreinlega engir kaupendur þama. Því er ekki búið að ganga frá nema einni sölu. En við erum raunar með tíu sölur sem þarf að fá staðfest- ingu á, þar sem boðið var undir lágmarksverði." Þetta sagði Hilmar Kristjánsson, eigandi Krónu hf., sem efndi til bílauppboðs um helgina. Er það fyrsta uppboð þeirrar tegundar sem fram fer hér á landi. Hilmar sagði að tæplega 100 bílar hefðu verið skráðir. Ekki hefði reynst fært að hafa þá til sýnis dagana fyrir uppboðið, eins og gert hefði verið ráð fyrir, því allur und- irbúningur hefði verið á síðustu stundu. „Það kom gífurlegur mannfjöldi til okkar. Við vorum með þjú hundruð sæti og þau vom öll full- skipuð. Þá var fjöldi fólks þarna úti um allt og við áætlum aö það hafi mætt svona um 500-600 manns. En það voru mjög fáir sem skrásettu sig sem kaupendur. Fólk var meira aö skoða og forvitnast um hvemig þetta færi fram, þannig að boðin vom ekki góð. En það komu nokkrir eftir boðið og sýndu áhuga á að gera tilboð í bíla.“ Hilmar sagðist ekki taka það al- varlega þótt salan hefði gengið hægt í fyrstu tilraun. Það tæki tíma fyrir fólk að kveikja á því sem þama færi fram. Sumir virtust hafa haldiö að þeir gætu fengið þama bíl fyrir sama og ekki neitt. „Aðalmálið er að sá mikli mann- flöldi sem mætti til okkar gefur til kynna að það er grundvöllur fyrir uppboðum af þessu tagi,“ sagði Hilmar. „Við munum því halda áfram með þau og verður hið næsta næstkomandi laugardag." -JSS Grindavlk: 4 Smáauglýsingar - Sími 632700 Þverholti 11 Jlgi Kerrur Geriö verðsamanburö. Ásétning á staðn- um. Allar gerðir af kerrum, allir hlutir til kerrusmíða. Opið laugard. Víkur- vagnar, Síðumúla 19, s. 684911. Sumarbústaðir RC húsin eru íslensk smíöi og löngu þekkt fyrir fegurð, smekklega hönnun, mikil gæði og óvenju góða einangrun. Húsin eru ekki einingahús og þau eru samþykkt af Rannsóknastofnun bygg- ingariðnaðarins. Stuttur afgreiðslu- frestur. Hringdu og við sendum þér upplýsingar. Islensk-Skandinavíska hf., Síðumúla 31, s. 91-685550. Bátar Þessi bátur er til sölu. Plastbátur, 6 tonn, vél Volvo penta, 136 hestöfl, árg. 1988, vel búinn tækjum. Skipti koma til greina, t.d. á Sóma 800. Skipasalan Bátar og búnaður, Tryggvagötu 4, sími 91-622554. 32. Bílartilsölu Magirus Deutz ‘81, vél Deutz loftk., 6 cyl., 164 Din, framdrif - spl. afturdrif, vökvaknúið 12 tonna spil sem hægt er að fjarstýra - alþjóðl. dráttarkrókur - loftúttak fyrir dráttarvagn - 3 Kw Eberspecher olíumiðstöð, sæti f. 11 manns. Ástand mjög gott, ek. 112 þ. km. Tilvalinn fyrir bæjar-, sveita- eða ferðafélög. Verð 1.550 þ., skuldabréf- skipti eða góður stgrafsl. S. 91-689086. Nissan Sunny 1,6 SLX, árg. ‘92, með öllu, ekinn 14.000, mjög vel með farinn. Verð 1 milljón. Ekta frúarbíll. Uppl. í síma 91-673942 eða 985-22760. MMC L 300,4x4, árg. 1988, ekinn 82 þús. km, verð 880 þús. stgr. Uppl. í s. 91-874669 og 91-41237 eftir kl. 18. Jeppar Mazda B 2600, árg. ‘89, 4x4, cab plus, rauður, ekinn aðeins 49, þús. km. Glæsilegt eintak, sem nýr. Álfelgur, 31” dekk o.fl. Einnig Mazda B 2000, cab plus, árg. ‘86, sk. ‘95, á krómfelgum. Góður bíll. Nýja Bflahöllin, sími 91-672277, og á kvöldin í síma 91-679350. Suburban 20 Silverado, árg. ‘87, sætl fyrir 8 manns, 350 EFI vél, ný 36” dekk, ekinn aðeins 85 þús. km. Athuga skipti. Upplýsingar í símum 91-641475 og 91-621492 eftirkl. 18 MMC Pajero, árg. ‘92, 3ja dyra, 6 cyl., 5 gíra, ekinn 45 þús. Upplýsingar í síma 91-658868. Land-Rover 1966 til sölu. Upplýsingar á Bflasölu Garðars, Nóatúni 2, sími 619615. Pallbílar Mazda E-2200 dísil, árg. 1985, með krana. Upplýsingar gefur Klemens hjá Landvélum hf., Smiðjuvegi 66, Kópa- vogi, sími 91-76600 frá kl. 8-18. Hópferðabílar Til sölu Benz rúta ‘77,52 saeta. Upplýsingar í símum 91-78762 og 985-23011. Vörubílar Íslandsbílar auglýsa: M. Benz 1619, árg. ‘80, á grind, mjög góður miðað við aldur. Einnig efnispall- ur, 5,70 m, á 10 hjóla bfl með hlið-' arsturtu, loftvör og loftopnun á skjól- borðum. Einnig tveir pallar fyrir krók- heisi. íslandsbflar hf., sími 91-682190. Skemmtanir. Félag íslenskra hljómlistarmanna útvegar hljóðfæraleikara og hljóm- sveitir við hvers konar tækifæri: sígild tónlist, jazz, rokk og öll almenn danstónlist. Uppl. í síma 91-678255 alla virka daga frá kl. 13-17. Lifandi tónlist - Lifandi fólk. ✓ 0 eftit í&lte kamut íutnl Forsetinn í afmælisheimsókn Ægir Már Kárasan, DV, Suðumesjum: Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, kom í opinbera heimsókn til Grindavíkur á laugardag í tilefni 20 ára afmælis Grindavikurkaup- staðar. Vigdís sat hátíðarfund bæjar- stjómar en þar var Svavar Ámason, fyrrverandi oddviti og forastumaður sveitarstjómarmála í bænum í 40 ár, kosinn fyrsti heiðursborgari Grinda- víkur. Eftir fundinn vom sýnd verk Gunnlaugs Schevings, sem tengdust búsetu hans í Grindavík, og einnig bækur grindvískra skálda ásamt myndverkum grunnskólabama. Há- degisverður var í veitingahúsi Bláa lónsins, hátíðarmessa í kirkjunni og bæjarbúum boðið í kafB í félagsheim- ilinn Festi. Þar lauk heimsókn for- seta. Ungir framsóknarmenn: Tekist á um formann og stjórnarmenn Hörð átök urðu um kosningu for- manns og stjómar á þingi Sambands ungra framsóknarmanna sem haldið var rnn helgina. Guðjón Ólafur Jónsson vann yfir- burðasigiu- á G. Valdimar Valdimars- syni í baráttunni um formannsstól- inn. Að ósk nýja formannsins sam- þykkti þingið róttækar breytingar á stjórninni. Einungis tveir úr fyrri stjórn náðu endurkjöri. Enginn úr framkvæmdastjóm náði kjöri í stjómina né heldur Valdimar. -kaa Meiming________________________________ Brahms í Nor- ræna húsinu Tónleikar vora í Norræna húsinu á fostudagskvöld. Vienna Clarinet Trio lék. Á efnisskránni vora verk eftir Jóhannes Brahms. Tónleikarnir vora haldnir í boði austurríska menntamálaráðuneytisins í tilefni af þýskukennaradögum sem stóðu nú um helgina á vegiun ýmissa aðila sem tengjast þýsku og þýskri menningu. Það er vel til fallið að leika tónlist eftir Jóhannes Brahms í tengslum við þýskukennaradaga. Þótt hún höfði auðveldlega til fólks af öllu þjóð- emi er hún eins þýsk og orðið getur. Þama vora leikin þijú verk sem öll teljast með þvi betra sem Brahms skildi eftir sig af kammertónlist; sónata fyrir selló og píanó, í e moll op. 38, sónata fyrir klarínettu og píanó, í Es dúr op. 120, og tríó fýrir klarínettu, selló og píanó í a moll op. 114. Tónlist Finnur Torfi Stefánsson Þessi verk eru öll samin í þeirri virðingu fyrir klassískum formum sem einkennir kammertónlist Brahms. Tærleiki hugmynda og úrvinnslu er óvenjulega mikill. Þessi tónlist er eins óhlutkennd og hugsast getur, eins konar óður til fagurrar og agaðrar hugsunar. Hún er einnig mikil spilara- tónlist og eins og sniðin til þess að leyfa hljóðfæraleikurunum að njóta sín. Hinir austurrísku tónlistarmenn léku verkin yfirleitt mjög vel þótt þeir hefðu að sumu leyti ólíkan stíl. Píanóleikarinn Adrian Cox, sem mun vera fæddur í London en hefur starfað lengst af í Vín, sýndi mjög góðan og nákvæman leik. Sellóleikarinn, Adalbert Skocic, var að sumu leyti mistækari, lék t.d. ekki alltaf nógu hreint. Margt gerði hann þó einkar fallega. Klarínettuleikarinn, Helmut Hödl, hafði sérlega mjúkan og litrík- an tón sem naut sín vel. Aðsókn að þessum tónleikum var mjög mikil og vora ekki sæti til fyrir alla en allir áttu þama ánægjulega kvöldstund.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.