Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Side 4
4
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1994
Fréttir
DV
Sameining Vopnaflarðar og Skeggj astaðahrepps felld:
Vonbrigði með niðurstöðuna
- segir Vilmundur Gíslason, sveitarstjóri Vopnaflarðar
„Eg varð fyrir vonbrigðum með
þessa niðurstöðu," sagði sveitar-
stjórinn á Vopnafirði þegar fyrir lá
að sameining Vopnaíjarðar og
Skeggjastaðahrepps hafði verið felld
í kosningu á laugardag. Vopnfirðing-
ar samþykktu sameiningu með 181
atkvæði gegn 110. Það dugði ekki til
því íbúar Skeggjastaðahrepps höfn-
uðu henni með 43 atkvæðum gegn
34. Kjörsókn var mjög góð í Skeggja-
staðahreppi eða 82 prósent. í Vopna-
firði var hún 48 prósent.
Þetta er í annað sinn sem kosið er
um sameiningu þessara staða því að
áður hafði slík kosning farið fram 20.
nóvember sl. Þá var sameining felld
á jöfnu í Skeggjastaðahreppi, 34 með
og 34 á móti, en þijú utankjörstaðaat-
kvæði komust ekki til skila í tæka
tíð. Úrslit í Vopnafirði voru hins veg-
ar svipuð þá og nú.
„Ég held að svæðið í heild hefði
komið sterkara út hefði orðið úr sam-
einingu,“ sagði Vilmundur.
„Skeggjastaðahreppur er svo lítil
eining að ég held að það verði mjög
erfitt að halda uppi viðhlitandi þjón-
ustu á svæðinu. En auðvitað geta
forsvarsmenn hreppsins gert það í
samstarfsverkefni. Við hefðum vfijað
sjá sameiningu út úr þessu úr því að
við vorum plataðir í aðra kosningu,
ef svo má segja. En þetta er endanleg
niðurstaða."
„Það var nauðsynlegt að fá þetta af-
gerandi niðurstöðu fyrir lok kjör-
tímabils þessarar sveitarstjórnar.
Ella hefði þetta mál legið í loftinu
sem óútkljáð,“ sagði sr. Gunnar Sig-
urjónsson, oddviti á Skeggjastöðum.
Hann sagðist persónulega hafa verið
fylgjandi sameiningu. „Eg tel að hún
hefði styrkt þetta stjómsýslustig. Ef
það er markmið sveitarstjórnar-
manna að reyna að ná frekari verk-
efnum til sveitarfélaganna og vera
betur í stakk búnir til að sinna auk-
inni þjónustu þá þurfum við að
styrkja þetta stjómsýslustig.
En niðurstaðan er fengin, allur
vafi tekinn af og ég er mjög sáttur
við þaö. Menn velkjast þá ekki í vafa
um framhaldið og við leysum úr
þeim málum sem þarfnast úrlausnar
á öðrum grundvelli."
-JSS
Þyrla Landhelgisgæslunnar var send til að ná í konuna þar sem ófært þótti að senda hana með bil á sjúkrahús.
Meiösl hennar reyndust ekki alvarleg. DV-mynd Sveinn
Fjóröa vélsleöaslysiö á rúmri viku:
Hlaut bakmeiðsl í vélsleðaferð
Kona hlaut bakmeiðsl eftir að hafa
fallið aftur fyrir sig á vélsleða norð-
austur af Miklafelli á Síðumannaaf-
rétti á laugardag. Hún var þar á ferð
ásamt fleira fólki á vélsleðum.
Meiðsl konunnar vom þess eðlis
aö ekki þótti heppilegt að senda bíl
frá Kirkjubæjarklaustri til að ná í
hana til að koma henni á sjúkrahús
þar sem ástand vega var slæmt. Það
kom þó fljótlega í ljós að konan var
ekki beinbrotin.
TF-SIF, þyrla Landhelgisgæslunn-
ar, var send af stað og tók um 40
mínútur að fljúga á slysstað þar sem
þyrlan lenti. Farið var með konuna
á Borgarspítalann. Samkvæmt upp-
lýsingum læknis vom meiðsl kon-
unnar ekki talin al varleg og þarf hún
ekki að hggja á sjúkrahúsinu eftir
slysið.
Þetta er fjórða vélsleðaslysið þaö
sem af er aprílmánuði þar sem Land-
helgisgæslan eða lögregla koma við
sögu. Mun fleiri hafa leitað læknisað-
stoðar eftir vélsleðaferðir á þessu
tímabih en þar hefur verið um að
ræða meiðsl sem talin em minni
háttar.
-Ótt
Maður fékk heilahristing og áverka á háls eftir líkamsárás:
Kýldur utan í bíl á ferð
Maður á þrítugsaldri fékk heila-
hristing og áverka á háls eftir að
hafa fengið hnefahögg í andlitið með
þeim afleiðingiun að hann skall á bíl
við Lækjargötu og féll við það í göt-
una aðfaranótt sunnudagsins. Árás-
armaðurinn náðist ekki en hann hélt
af vettvangi upp Bankastrætið, að
sögn vitna. Samkvæmt upplýsingum
lögreglu var ekki búið að leggja fram
kæm vegna málsins í gær.
Mennimir vom að rífast á mótum
Austurstrætis og Lækjargötu þegar
atvikið varð. Annar þeirra sló þann
fyrrnefnda síðan í andhtið. Maður-
inn féh utan í bh sem var á hægri
ferð eftir Lækjargötunni og síöan
skah hann í götuna. Ekki Uggur ljóst
fyrir hvort heilahristingurinn orsak-
aðist af hnefahögginu eða falhnu á
bílinn og síðan í götuna.
Maðurinn lá talsverða stund í göt-
unni áður en hann var fluttur með
sjúkrabíl á slysadeUd. Hann var með
meðvitund þegar sjúkraflutninga-
menn komu á vettvang. Maðurinn
var á Borgarspítalanum það sem eft-
ir var nætur en fékk síðan að fara
heim í gær. Meiðsl hans era ekki
talinalvarleg. -Ótt
Landmælingar til Akraness?
Að undanfömu hafa staðið yfir
viðræður milU bæjaryfirvalda á
Akranesi og umhverfisráðuneytis
um aö flytja Landmælingar ríkisins
tU Akraness. Samkvæmt heinúldum
DV myndi starfsemin þá verða stað-
sett í nýja stjómsýsluhúsinu á staðn-
um.
„Jú, þetta hefur borið á góma en
þaö hefur engin ákvöröun verið tek-
in,“ sagði GísU Gíslason, bæjarstjóri
á Akranesi, við DV. „Við vitum um
áhuga umhvefisráðherra á að flytja
þessa stofnun út á land. Við þessa
stofnun starfa rúmlega 30 manns og
myndi á aUan hátt verða mjög góð
viðbót viö bæinn, þó svo að gert sé
ráð fyrir að starfsmenn fylgi, sem
eðhlegt er. En í kringum slíka stofn-
un em aUtaf töluverð umsvif og til-
koma hennar myndi auka breiddina
í bæjarflórunni. Út frá ýmsum sjón-
armiðum er þetta mjög æskUegt að
mínu mati.“
GísU sagði aö ákvörðunin um flutn-
ing stofnunarinnar væri einungis í
valdi ráðuneytisins. Ef til kæmi þá
væra bæjaryfirvöld á Akranesi tilbú-
in til að ræða útfærslu á málinu.
Ekki náðist í Össur Skarphéðins-
son umhverfisráðherra vegna þessa
máls. -JSS
í dag mælir Dagfari____________________________
Minn pabbi er stæiri en þinn
Kosningabaráttan í Reykjavík er
aö komast á flug og taka á sig mynd.
Reyndar era það mest frambjóö-
endumir sjálfir sem hafa sig í
frammi en kjósendur halda sig til
hlés og bíða átekta. Enda fer vel á
því. Kosningabarátta er kjósendum
yfirleitt óviðkomandi alveg eins og
framboðin sjálf em kjósendum að
mestu leyti óviðkomandi.
Var það ekki einmitt þannig að
R-Ustinn var settur saman í höfuð-
stöðvum nokkurra flokka, sem
ákváðu að kjósendur þessara sömu
flokka ættu ekki að fá að kjósa
þann flokk sem þeir aöhyllast held-
ur einhveija samsuðu sem fram-
bjóðendumir komu sér saman um.
Það er að segja eftir að þeir komu
sér saman um að það væri pláss
fyrir þá alla á Ustanum. Fyrr var
ekkert samkomulag um sameigin-
legan Usta og kjósendur vora aldrei
spurðir áUts og heldur ekki á list-
anum sjálfiun því hann kom ma-
treiddur út úr minniháttar flokksk-
líkum sem ekki eru nema nokkur
hundmð manns í.
Til þess er hins vegar ætlast að
tugþúsundir Reykvíkinga faUist á
þessi vinnubrögð og kjósi eins og
þeim er sagt að kjósa, hvort sem
þeim líkar betur eða verr.
Það sama má segja um Sjálfstæð-
isflokkinn og D-Ustann. Flokkur-
inn efndi til prófkjörs og tókst að
gabba nær níu þúsund manns til
að halda að þeir heföu einhver
áhrif á uppstilUngu. Þannig var
sjálfstæðisfólki sagt aö kjósa Mark-
ús Öm Antonsson í fyrsta sæti af
því að Markús væri svo góður
maður. Ekki var þetta prófkjör fyrr
afstaðið en uppstiltinganefnd nok-
kurra manna og kvenna innan
flokksins fór að hræra í úrsUtunum
og fann það auðvitað út að fólk sem
haföi sjálfviljugt gefið kost á sér til
starfa fyrir Sjáflstæðisflokkinn en
ekki náð neinu af efstu sætunum,
því þau vom frátekin samkvæmt
formúlunni, þetta fólk væri flokkn-
um til óþurftar og kæmi ekki til
greina á listann.
Þannig var útkoma prófkjörsins
að engu höfö nema í efstu sætin og
ekki einu sinni það. Markús Öm
fann þaö út aö það heföi verið rangt
og vitiaust að halda því fram að
hann væri heppUegasti maðurinn
til að leiða Ustann og sagði af sér.
Annar maður var settur í efsta
sætið sem aldrei hefur verið í það
kosinn og svo er haldiö út í kosn-
ingabaráttu með Usta sem enginn
veit hvemig var samansettur og af
hveiju.
Nei, það er von að kjósendur vUji
ekki hafa mikU afskipti af kosn-
ingabaráttunni og telji það óþarft
að skipta sér af einhverju sem því
kemur ekki við. Það segja flokkam-
ir lika. Þess vegna em það þeir sem
heyja kosningabaráttu og eru nú
komnir í hár saman um það hver
hafi betri Usta og betri stefnu.
Það sem af er má helst álykta að
listamir báðir hafi sömu stefnu.
Að minnsta kosti gengur málflutn-
ingur frambjóðenda ekki út á það
að útskýra fyrir kjósendum hver
munurinn sé heldur að útskýra
hver hafi verið á undan að koma
með sömu stefnuna og hinn Ustinn
hafi. R-Ustinn segir að stefna D-
listans sé stolnar fjaðrir. D-Ustinn
segir að R-Ustinn hafi ekki fylgst
með borgarstjómarmálum ef R-
Ustinn haldi að stefnumál hans séu
ný af nálinni. Þau séu öU á mál-
efnaskrá D-Ustans og hafi verið það
lengi.
Minn pabbi er stærri en þinn,
segja börnin. Minn pabbi er stærri
en þinn, segja frambjóðendur. Ég
pant’eiga, segja börnin. Ég var
fyrstur til að sjá hann, segja fram-
bjóðendur.
Það er sem sagt verið að rífast
um það hver hafi fyrstur fundið
upp á því að hafa atvinnumálin
efst á forgangshsta.
Stundum era menn að rífast um
það hver hafi fundið upp hjóhð og
það er meira að segja algengast að
menn séu að finna upp hjólið alveg
fram á okkar daga. Það em engin
takmörk fyrir uppfinningum
stjómmálamanna og svo er um at-
vinnumálin í kosningabaráttunni í
Reykjavík. Ég var á undan, nei, ég,
nei, ég, það var víst ég, ég var fyrst-
ur og svo fer aUt í bál og brand og
svo þarf víst ekki að taka það fram
að þegar kosningamar em afstaðn-
ar er auðvitað ekki lengur spurt
um það hver hafi verið fyrstur til
að finna um atvinnustefnuna og
það þarf heldur ekki að spyija um
neina framkvæmd á atvinnu-
stefnu. Hún mun gleymast í sig-
urvímunni.
Dagfari