Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Page 6
6
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1994
Fréttir
fbúar í Hafnarfirði létu til sín taka úti á götum og í heimahúsum:
Bylgja óspekta og
ölvunar í bænum
- spádómar fyrir helgi um lognið á undan storminum rættust
Ungmenni í Hafnarfiröi létu veru-
lega til sín taka á götum úti aöfara-
nætur laugardags og sunnudags og
haföi lögreglan í nógu aö snúast. Ölv-
unin í Hafnarfirði var ekki eingöngu
bundin við ungmenni í miðbænum
því einnig þurfti að hafa töluverð
afskipti af fullorðnu fólki í heima-
húsum.
Ölvun og ólæti voru mikil og hefur
lögreglan enga skýringu á þessari
bylgju aöra en þá að það er farið að
vora og veður að batna fyrir útiveru.
„Þetta er oft rólegt í langan tíma en
svo sprettur þetta bara allt í einu
upp,“ sagði talsmaður lögreglu í sam-
tali við DV. Fyrir helgi var mjög ró-
legt hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu en þá höfðu menn einmitt á
orði að „þetta væri lognið á undan
storminum".
Aðfaranótt fóstudags var m.a. brot-
in rúða í útihurð í Sparisjóði Hafnar-
fjarðar og einnig var brotist inn í fjöl-
marga bíla. Að sögn lögreglu var
ekki miklu stolið úr bílunum en
greinilegt að þeir sem þarna voru að
verki voru „leitandi" þó að ekki hefði
mikið hafst upp úr krafsinu. Ekki
þurfti að brjótast inn í alla bílana því
sumir þeirra höfðu verið skildir eftir
ólæstir. Lyklar voru i einum bílnum
og var þeim stolið úr honum. Þeir
náðust þó aftur þegar hafðist uppi á
pilti sem þar var að verki.
Auk þess var mikið kvartað um
helgina, bæði í Hafnarfirði og víðar,
um að verið væri að stela bensíni af
bílum.
-Ótt
Óskar Bjartmarz, formaður Lögreglufélags Reykjavikur, bendir á skemmdina á húddinu á bíl sinum um helgina
en allur bilinn er stórskemmdur. Tvisvar hefur billinn verið rispaður á stuttum tíma. DV-mynd G. Bender
„Risparinn“ stórskemmir fjölda bíla
Fékk hnefa-
högg í andlit-
iðátvftugs-
afmælinu
Tvítugur karlmaður var sleg-
inn hnefahöggi í andlitiö á Akrat-
orgi á Akranesi aöfaranótt
sunnudagsins. Taisvert blæddi
úr manninum en hann vildi þó
ekki leita læknisþjálpar á sjúkra-
húsinu eftir atvikiö þegar lög-
regla bauðst til að aka honum
þangað.
Samkvæmt upplýsingum DV
var árásin tilefnislaus en þaö var
hraustlegur ungur maöur sem
vék sér að umræddum manni,
sem er af höfuðborgarsvæðinu,
og gaf honum hnefahögg.
Maöurinn var aö halda upp á
tvítugsafmælið sitt á Akranesi
umkvöldið. -Ótt
Fékk skíða-
staf í brjóstið
14 ára piltur var fluttur meö
sjúkrabíl úr Bláíjölium tii
Reykjavíkur um helgina eftir að
hafa fengið skiðastaf í bijóstið.
Til að byxja með var álitiö að
meiðslin væru mjög alvaríeg og
stóð þá til að ræsa út þyrlu til að
ná í piltinn. Horfið var frá því og
sótti bíll piitinn. Meiösl hans voru
minni en taiið var í fyrstu og eru
ekki talin alvarleg.
Að sögn læknis á Borgarspíta-
lanum var taisvert um aö fólk
kæmi á slysadeild með meiðsl
eftir skíða- eða vélsleðaferðir.
Taisvert margir komu en enginn
reyndist vera alvarlega slasaður.
-Ótt
Reyöarfjörður:
Ölvaður
braustinní
íbúðarhus
Ungur maður var handtekinn
eftir aö hafa brotist inn í íbúöar-
hús á Reyðarfirði aöfaranótt
sunnudagsins. Maðurinn var
greinilega ölvaður og var heldur
óljóst hver tilgangurinn var með
þvi að fara inn í húsið.
Enginn var heima þegar maö-
urinn fór inn en þegar hann varð
þess áskynja hélt hann á brott.
Lögreglan handtók manninn
skömmu síðar og var hann látinn
gistá fangageymslur á Eskifirði
þaðsemeftirvarnætur. -Ótt
„Þetta er í annað sinn á stuttum
tíma sem bíllinn minn er rispaður
með RLR stöfunum um allan bílinn.
Fyrst var það hhðin, svo núna að
framan og aftan,“ sagði Óskar
Bjartmarz, formaður Lögreglufélags
Reykjavíkur, í samtah við DV en tvi-
svar á stuttum tíma var bíh hans ri-
spaður.
„Þessi rispari hefur mest verið að
rispa jeppa hef ég frétt en minn hefur
hann sem sagt rispað tvisvar og þetta
er það slæmt að það verður að
sprauta allan bílinn," sagði Óskar.
Heilmildir DV segja að „risparinn"
hafi nú þegar skemmt á mihi 60 og
70 bíla víða um Reykjavík en ekkert
gengur að hafa hendur í hári hans.
Þetta er tjón upp á nokkrar mihjónir
og ekki sér fyrir endann á þessari
skemmdarstarfsemi. G. Bender
Sandkom r>v
Trúarbrögðin
Jóhannesí
Bónusierósátt-
ur við gengi
verslunarsinn-
aráAkureyri.
endastaðreynd
aðfleiriversla
hjáaðí'lkeppi-
nautnum,
KEA-NETTÓ,á
degihveijum. Jóhannes sagði í Degi
það hafa sýnt sig að Bónus hefði ver-
ið meö lægsta vöruverðið á Akureyri
frá upphafi og hann segir að Bónus
eigi í trúarbragðastríði á Akureyri
en ekki í verslunarstríði. Þar fyrir
utan hafi hann ekki mikla ly st á aö
þurfa að kaupa lykilvörur, s.s. mjólk,
frá samkeppnisaðilanum. Hann seg-
ist ekki hafa gert sér grein fyrír þvi
að fólk á Akureyri væri svo vel stætt
aö það þyrfti ekki að spara og gaf í
skyn að svo kynni að fara að hann
teldi atorku sinni og fjármunum bet-
ur variö annars staðar.
Hestamennskan
JóhannesSig-
mjónsson, rit-
stjóriVíkur-
blaðsinsá
Húsavík.varað
geraþvískóna
íblaðisinuað
eftirkosning-
arnarívor
_________________ munduhesta-
menn taka völdin þar í bænum.
Ástæðan er ekki síst sú að efstu menn
á listum Sjálfstæðisflokks, Fram-
sóknarflokks og Alþýðuflokks eru
allir yfirlýstir hestamenn, Kristján
Ásgeirsson, oddviti Alþýðubanda-
lagsins, hefur hins vegar, að sögn,
aidrei í hnakk komið. Ritstjórinn sér
framtíðina í bænum þannig fy rii- sér
að reiögötur vorði lagðar meðfram
öllum götum og gangstéttarlagðar
niður, íjárframlag til íþróttafélagsins
Völsungs flyst til Hestamannafélags-
ins Grana, maiarvellinum verður
breyttí skeið völ! og hrossum beitt á
grasvöll bæjarins.
Leðjuslagur
Þeirsemáttu
leiöum ná-
grenni Sana-
vallarinsáAk-
ureyriádögnn-
umrákuúpp:
stóraugu.enda
engulíkaraen
aðþarværu
bæjarbúar
farnir aö stunda leðjuslag. Þegar bet-
ur var að gáð kom í Ijós að þarna
voru knattspymumenn KÁ og Þórs
að spiia æfhigaleik við aðstæður sem
bæjaryfirvöldum þykja boðlegar til
slíkrar athafnar árið 1994. Mörgum
fmnst það með ólíkindum að knatt-
spymumenn á Akureyri skuli á und-
irbúningstíma sínum fyrir knatt-
spyrnuvertiðina h vert ár þurfa að
leggja sig í lífshættu í snjóskðflum
eða á flughálum malarvelli sem líkist
engu öðm en skautas velli þar til
hlákan nær yfirhöndinni og „skauta-
svelhð“ breytist i drullusvað. Ein-
hverjir hafa gaman af að horfa áþann
leðj uslag sem þarna er stundaður á
hveiju voriog í kaldhæðni sinni kalla
sumir bæjarbúar þetta vallarsvæði
aldrei annað en „Sana-Wembley“.
Ekki handbolti
PéturGuð-
mundsson
' kúiuvarpari
varaðkvarta
yfirþvííTím- ;
anurn að brons-
s verðlaun hans
á Evrópumút-
inuinnanhúss
hefðu ekki vak-
ið athyglífjölmiðla hér og sagði að
ef um hefði verið að ræða brons á
Evrópumóönu í handbolta væri
eílaustbúið að sýna allt mótið í sjón-
varpi. Pétur er annars kokhraustur
og hyggst bæta íslandsmetiö utan-
húss í sumar. Gott hjá honum að til-
kynna það ekki oins og kiinglukast-
arinn okkar sem keppti á ólympíu-
leikunum í Seoul 1988. Sá missti með-
vitund þegar kringlukastskeppnin
hófst ogkomst ekki til hennar aftur
fyrr en keppnin var afstaðin og hann
með síðustu mönnum. Á heimleið-
inni varð kappinn eftir í Bandaríkj-
unum og k vaddi með þeim orðum að
hann kæmi ekW til íslands fyrr en
hann væri búinn aö setja íslandsmet
sem hann hefur ekki gert ennþá.
Umsjón: GyHI Kristjánsson