Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1994, Side 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1994
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvaemdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNUSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð I lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Páfi skiptir um trú
Bankastjóri og helzti málsvari Landsbankans sagöi í
ræöu á aðalfundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á
fóstudag, að kreppan á íslandi stafaði af óráðsíu, offjár-
festingu og gegndarlausri eyðslu vegna kunningsskapar,
fyrirgreiðslu og atkvæðakaupa stj ómmálamanna.
Það eru ekki nýjar fréttir, að kreppan á íslandi sé fram-
leidd af stjómmálamönnum. Þessu hinu sama hefur til
dæmis verið haldið fram í leiðurum DV um langt skeið.
Það er hins vegar nýtt, að helzti málsvari langstærsta
viðskiptabanka landsins komist að sömu niðurstöðu.
Það er ekki lengur sérvizka utan úr bæ, að íslenzka
kreppan sé heimatilbúin. Þeirri skoðun er nú einnig
haldið fram innan úr kerfmu sjálfu og það af manni, sem
hefur áratuga reynslu af stjómmálum sem þingmaður
og ráðherra, er fékk að lokum bankastjórastól í verðlaun.
Hinn harðorði bankastjóri er Sverrir Hermannsson,
sem á stjómmálaferh sínum var einn þekktasti fulltrúi
póhtíska fyrirgreiðslu- og atkvæðakaupakerfisins. Að
einmitt hann skuh nú hafa tekið rétta trú, jafngildir því,
að páfinn í Róm fari skyndilega að boða Lúterstrú.
Aður en Sverrir varð ráðherra, var hann um langt
skeið forstjóri viðamestu fyrirgreiðslustofnunar stjórn-
málanna, Byggðastofnunar. Hann var í senn þingmaður
og Byggðastofnunarstjóri og þannig einn af valdamestu
mönnum landsins á sviði úthlutunar til gæluverkefna.
Hvaða augum sem menn líta á stjómmálaferil banka-
stjórans, þá fer ekki hjá, að þeir taki effir, að einn helzti
fuhtrúi kerfisins prédikar skyndilega, að kerfið sé svo
óalandi og óferjandi, að það sé nánast búið að koma í
veg fyrir rekstur sjálfstæðs þjóðfélags á íslandi.
Eitt sérkenna íslendinga er, að þeir hneigjast margir
til að hafa meiri áhuga á, hver segir hvað, en hvað er
sagt. Þess vegna hljóta kenningar utankerfismanna um
stjómmálaóreiðu að öðlast aukið vægi við, að hinar sömu
kenningar koma nú innan úr herbúðum kerfisins sjálfs.
Sverrir Hermannsson sagði líka í ræðunni, að stanz-
laust góðæri gæti verið á íslandi, ef þjóðin lærði af mis-
tökunum. Samkvæmt því verður þjóðin þá fyrst fullnuma
á þessu sviði, þegar hún hættir að endurkjósa stjómmála-
menn, sem hafa stundað fyrirgreiðslu og atkvæðakaup.
Efþjóðin leggur niður þá, sem stundað hafa vitfirringu
í efnahagspóhtík, skiptir um fólk á Alþingi og ríkissljórn-
um, fær sér nýja leiðtoga, sem ekki þurfa að hafa mikið
annað til brunns að bera en að hafna fyrirgreiðslu og
atkvæðakaupum, þá fer aftur að vora í efnahagslífinu.
Það er gott, að helzti talsmaður stærsta bankans skuh
vera kominn á þessa línu. Það leiðir vonandi til þess, að
starfsbræður hans í valdakerfi efnahags- og fjármála
færi sig opinberlega á hina sömu línu og fari að segja
þjóðinni og póhtískum leiðtogum hennar til syndanna.
Þjóðin hefur hingað til ekki viljað hlusta á sjónarmið-
in, sem komu fram í ræðu Sverris Hermannssonar á
áðalfundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Hún hefur
til dæmis látið gott heita, að árlega em brenndir til ösku
tæpir tveir tugir mihjarða króna í landbúnaði einum.
Staðreyndin er nefnilega sú, að hér væri gósenland
með nóg af arðvænlegum verkefnum fyrir komandi kyn-
slóðir, ef peningar fengju eðlilega framrás og væru ekki
fiskaðir upp til fyrirgreiðslu, atkvæðakaupa, gæluverk-
efna og annarrar óráðsíu á vegum póhtíkusa.
Ábyrgðin hvílir á herðum kjósenda, því að það er í
umboði þeirra, sem stjómmálamenn stunda ijármála-
sukkið, er trúskiptingurinn lýsti í ræðu sinni.
Jónas Kristjánsson
„OK er vitnað til viðáttu fiskveiðilögsögu og þar með reynt að gera lítið úr hættu á ofveiði", segir m.a. í greininni.
Fiskstof num slátrað
Undanfarið hefur nokkuð verið
rætt og ritað um afdrif fiskstofna
við strendur Kanada. Nefndar eru
ástæður eins og kaldur sjór, fæöu-
skortur og sjálfsát. Umhverfisþætt-
ir eiga e.t.v. nokkurn hlut að máli
en aö mati heimamanna er helsta
ástæðan tvímælalaust gegndarlaus
rányrkja, fyrst og fremst Spánverja
og Portúgala í skjóli EB. Ur vörpu
spænsks togara var tekið handa-
hófskennt 275 fiska úrtak. Heildar-
þyngd reyndist vera um 50 kg sem
er að meðaltali 180 grömm og með-
allengd var 17 cm. Ætíð má búast
við að ókynþroska undirmálsfisk-
ur komi á króka en hér er um að
ræða kennslubókardæmi í slátrun
fiskstofna.
Kanadíska landgrunnið
Nú er vitað að kanadíska land-
grunnið nær langt út fyrir 200
mílna fiskveiðilögsögu, samanber
Flæmska hattinn og hluta af Mikla-
banka. Þar eð fiskstofnar eru á ferð
um landgrunn, ýmist innan eða
utan fiskveiðilögsögu, ákvað Norö-
ur-Atlantshafsfiskveiðinefndin
aflamörk fyrir hinar ýmsu fiskteg-
undir undan ströndum Kanada.
Flestir aðilar virtu þær reglur
sem settar voru nema EB enda lýsti
Manuel Marin, fiskimálastjóri EB,
því yfir að viðhorf hans væru önn-
ur en Norður-Atlantshafsfiskveiði-
nefndarinnar. Reyndin var sú að
aflamark fyrir kola, sem EB tók sér
árið 1988, var átjánfalt úthlutað
aflamark. Á timabilinu frá árinu
1986 til ársins 1989 fengu EB-löndin
78.200 tonna aflamark, skömmtuöu
sér 540 þúsund tonna aflamark og
náðu að veiða 410 þúsund tonn.
Virðist því ekki þurfa frekari vitn-
anna við.
Því meiri styrkir...
Sú stefna sem EB og síðar ESB
hefir rekið, því ekki verður vart
við stefnubreytingu þrátt fyrir
nafnabreytingu, bæði varðandi
málefni sjávarútvegs og landbún-
aðar hefir einkennst af óráðsíu og
bruðli þar sem við blasir vítahring-
Kjallarinn
Kristjón Kolbeins
viðskiptafræðingur
ur styrkja og óhagkvæmni. Því
meiri styrkir þeim mun óhag-
kvæmari rekstur sem kallar á enn
meiri styrki.
Hagsmunir komandi kynslóða
eru látnir víkja fyrir stundarhags-
munum ákveöinna þrýstihópa.
Stefnunni er haldið til streitu þrátt
fyrir þá alkunnu staðreynd aö eitt
besta ráðið gegn ofveiði er að fella
niður styrki til sjávarútvegs. Að
mati Johns Crosbies, þáverandi
viðskiptaráðherra Kanada, varð
framferði EB til þess að torvelda
alla stjóm á skynsamlegri nýtingu
fiskstofna við Kanada, auk þess
sem rányrkja af hálfu þess hefir
skaðað mikilvæga auðlind.
Sagt er að refurinn bíti sjaldan
nærri greni sínu enda báru fisk-
veiðar EB þess keim. Þótt um-
gengni EB um eigin mið hafi veriö
slæm var hún þó hálfu verri þegar
um fjarlæg mið var að ræða. Að
síðustu brutu veiðar EB í bág við
allar hugmyndir um sjálfbæra þró-
un að mati Johns Crosbies, bæði
vegna veiða umfram aflamörk og
veiða á undirmálsfiski á uppeldis-
stöðvum.
Samkvæmt framansögöu verður
því hrun fiskveiða við Kanada fyrst
og fremst rakið til óskynsamlegra
veiða þar sem algjört ósamræmi
hefir verið á milli afrakstursgetu
fiskstofna og afkastagetu þess flota
sem veiðarnar stundaði.
Síðutogarar - skuttogarar
Oft er vitnað til víðáttu fiskveiði-
lögsögu og þar með reynt aö gera
lítið úr hættu á ofveiöi. Þeir sem
til þekkja vita að fiskur heldur sig
á ákveðnum miðum í aðgreindum
torfum þótt þéttleiki uppsjávar-
fiska sé meiri en botnlægra teg-
unda og þeir þvi auðveldari bráð
samkvæmt trektarkenningunni.
Mönnum hættir stundum til að
setja jafnaðarmerki á milli gamalla
síðutogara og nýlegra skuttogara
þegar breyting á sókn er metin.
Slíkt ber vott um annað af tvennu,
vísvitandi blekkingar eða fádæma
glópsku.
(Heimild: Fishing News Intemational)
Kristjón Kolbeins
„Hagsmunir komandi kynslóða eru
látnir víkja fyrir stundarhagsmunum
ákveðinna þrýstihópa. Stefnunni er
haldið til streitu þrátt fyrir þá alkunnu
staðreynd að eitt besta ráðið gegn of-
veiði er að fella niður styrki til sjávar-
útvegs.“
Skoðanir annarra
Leigukostnaður - leigutekjur
„Leigukostnaður hefur lengi verið svo hár há,
að fólk hefur af þeim sökum lagt út í fiárfestingu,
sem það hafði tæpast efni á. En þótt leigukostnaður
hafi verið hár hefur hann engan veginn verið nægi-
lega hár til þess að standa undir fiárfestingu og öðr-
um kostnaði við fasteignir. Þess vegna m.a. er það á
almanna vitorði, að leigutekjur hafa skilað sér illa
til skátts. Það er þess vegna framfaraspor, aö þingið
hefur nú ákveðið aö gera leigutekjur undir 300 þús-
und krónum á ári skattfrjálsar."
Úr forystugrein Mbl. 8. maí.
Skuldafíkn
„Fáir íslendingar hafa uppgötvaö að þeir eru
haldnir þessum „sjúkdómi" og flestir eru ennþá
blússandi virkir. Skuldafíkillinn finnur sér tilgang í
því að vera ekki fyrr búinn að greiða fyrir eitthvað
en hann kemur sér í skuldir að nýju. Bankarnir eru
meðvirkir í þessu sambandi og stefna að því að
hjálpa skuldsjúkum til að lifa í skuldaneyslu fram
að gjaldþroti með þvi að bjóða upp á ráðgjöf við að
halda uppi þessum óskunda.“
Dóra Takefusa í Eintaki 6. maí.
Vorkoman í efnahagslífinu
„Vorkoman í efnahagslífinu, sem forsætisráð-
herra gumaði svo fiálglega af í ræðu sinni í eldhús-
dagsumræðunum er varla til nema í hans sinni og
hjá einstaka stórfyrirtækjum, sem birta skýrslur um
stórgróða og boða miklar arðgreiðslur til eigenda
sinna... Vöxtur heimilisskuldanna er slíkur að eitt-
hvað hlýtur undan að láta; lánakerfin bresta og
heimihn splundrast og stórskuldugir þrotamenn fyll-
ast örvinlan. Vorið hans Davíðs Oddssonar er langt
undan hjá því fólki, sem ber sínar eigin byrðar og
annarra." Úr forystugrein Tímans 7. maí.