Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1994, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1994, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994 Fréttir Sögulegt flokksþing Alþýðuflokksins í vændum: Leikf létta Jóns Baldvins virðist ætla að mistakast Því hefur veriö haldiö fram opin- berlega að Jón Baldvin Hannibals- son, formaður Alþýðuflokksins, hafi flýtt flokksþinginu fram til 10. júní til þess að tryggja stööu sína sem formaður. Þeim sem hefðu hug á að fara fram gegn honum gæfist lítill sem enginn tími til þess vegna sveit- arstjórnarkosningánna. Þessu hefur Jón Baldvin ekki mótmælt. Ýmsum þótti leikfléttan snjöll alveg eins og fyrir tveimur árum. Þá lék Jón sama leikinn. En nú er útlit fyrir að leik- fléttan geti mistekist. Hnífjöfn staða Þegar verið var að ræða þann möguleika snemma í vor að Jóhanna Sigurðardóttir færi í formannsslag við Jón Baldvin töldu fróðir menn um málefni krata stöðu Jóhönnu vonlitla. Þeir sögöu að staðan væri 60:40, Jóni Baldvin í vil. Þessir sömu menn segja nú að allt annaö sé uppi á teningnum. Staðan sé hníflöfn og útilokað að spá fyrir um úrsÚt. Nið- urstaða sveitarstj órnarkosninganna um síðustu helgi, og sú slæma út- koma sem flokkurinn fékk í þeim, hafi breytt miklu. Staða Jóhönnu sé nú allt önnur og sterkari en fyrir kosningar. „Þegar rætt var um það fyrir flokksþing fyrir tveimur árum að Jóhanna færi fram gegn Jóni Baldvin voru allt aðrar aðstæður en nú. Þá sagði fólk að Jóhanna mætti ekki fara fram gegn formanninum. Ekki mætti koma upp óeining og að fólk ætti að styðja Jón Baldvin til for- mennsku og það varð. Nú aftur á móti liggja úrslit sveitarstjórnar- kosninganna fyrir. Þar kom fram ákall um félagslegar áherslur um allt land, svo ekki sé minnst á það sem gerðist í Reykjavík. Jóhanna - úrslit sveitarstjomarkosninganna breyta miklu Sigurðardóttir er eina manneskjan innan Alþýðuflokksins sem getur svarað þessu kalli. Jón Baldvin og Sighvatur Björgvinsson hafa ekki þá fortíð að þeir geti það,“ sagði alþýðu- flokksmaður, sem um árabil hefur starfað í flokknum, í samtali við DV. Annar kunnur alþýðuflokksmaður sagði að Jóhanna Sigurðardóttir væri afburða stjórnmálamaður og ráðherra. Hún hefði hins vegar hvorki þaö skapferli né klókindi sem þarf til aö halda saman stjómmála- flokki. Ekki síst flokki eins og Al- þýðuflokknum sem virðist hafa það Fréttaljós fyrir siö að líta á formenn sína hveiju sinni eins og tískuflík sem lögð er til hliðar þegar fólk hefur fengið leið á henni. Stuðningsmenn Jóns Baldvin benda á að hann sé mun klókari póli- tíkus en Jóhanna. Hann kunni alla þá pólitísku klæki sem þarf til að vera formaöur stjómmálaflokks og hafi sýnt ótvíræða foringjahæfileika sem formaður flokksins. Þeir vilja ekki kenna Jóni Baldvin og málflutn- ingi hans um slæma útkomu í sveit- arstjórnarkosningunum um síöustu helgi. Þetta em rökin sem heyrast með og á móti þeim Jóni Baldvin og Jó- hönnu. Þriðji maðurinn Síðustu daga hefur verið um þaö rætt meöal ýmissa alþýðuflokks- manna að reyna að lægja öldumar í flokknum með þvi að fá þau Jón Baldvin og Jóhönnu bæði til að draga sig í hlé. Reyna beri að fá þriðja manninn til að taka við formennsk- unni. Þriðji maðurinn er Sighvatur Jón Baldvin Hannibalsson, formað- ur Alþýðuflokksins, á í vök að verj- ast eftir dapurt gengi flokksins víð- ast hvar í sveitarstjómarkosningun- um. Björgvinsson iönaðar- og viðskipta- ráðherra. , Hann er þaulreyndur stjómmála- maður sem kann stjómmál vel en er umdeildur 1 flokknum. Sighvatur er í hugum flestra sá sem ber ábyrgð á þeirri miklu skerðingu sem orðið hefur í heilbrigðiskerfinu. Hann er því ef til vill ekki vinsælasti stjóm- málamaðurinn meðal almennings. En Sighvatur er mjög hæfur og því er þessi möguleiki ræddur 1 fullri alvöru. Sighvatur hefur neitað því að hann hafi hug á formannssætinu, hann hafi þegar lýst yfir stuðningi við Jón Baldvin. Þá hefur það líka heyrst að ef til vill fari Jón Baldvin ekki í neinn for- mannsslag við Jóhönnu. Hann ein- faldlega dragi sig í hlé áður en til formannskosninga kemur. Menn sem DV hefur rætt við segja að sjái Jóhanna Sigurðardóttir hefur aö sögn kunnugra aldrei haft sterkari stöðu gegn formanni flokksins en nú. Jón Baldvin fram á það að tapa fyrir Jóhönnu muni hann draga sig í hlé. „Jón Baldvin tekur aldrei meiri áhættu en hann þolir,“ sagði sam- verkamaður hans til margra ára í samtali við tíðindamann DV. Varaformaður DV hefur fyrir því ömggar heim- ildir að Rannveig Guðmundsdóttir gefi ekki kost á sér sem varaformaö- ur flokksins áfram. Hún tók sem kunnugt er við þegar Jóhanna Sig- urðardóttir sagði af sér varafor- mennskunni vegna deilna við Jón Baldvin. Nái Jóhanna kjöri sem formaður verður það eflaust karlmaður sem reynt verður að fá í varaformanns- sætið. Margir tala þá um Guðmund Áma Stefánsson heilbrigðis- og tryggingaráðherra. Hann hefur ekki neitaö því enn þá að þessi möguleiki sé fyrir hendi. Verði Jón Baldvin kjörinn formað- ur aftur verður reynt aö finna konu í varaformannssætið. Það getur orð- ið nokkuð erfitt því Jón Baldvin þyk- ir ekki sýna konum í varaformanns- sætinu mikla pólitíska virðingu. Hvað gerir sá sem tapar? Fólk, bæði utan Alþýðuflokksins sem innan, spyr að sjálfsögðu: Hvað gerir sá sem tapar? Alþýðuflokks- maður sem DV ræddi við sagði að Jóhanna yrði án efa spurð að því hvað hún gerði ef hún tapaði. Hann sagðist ekki trúa öðru en að frá því yrði gengið aö hún hætti ekki og segði sig úr flokknum ef hún tapaði. Annar alþýðuflokksmaður sagði að ef Jóhanna tapaði fyrir Jóni Baldvin ætti hún ekki nema tveggja kosta völ: að hætta í pólitík eða ganga úr flokknum með stuðningsmönnum sínum og stofna nýjan flokk eða sam- tök. „Ef Jón Baldvin tapar fyrir Jó- hönnu verður hann að muna sína forsögu. Hann kom öllum á óvart á sínum tíma, bauö sig fram og felldi Kjartan Jóhannsson. Þá treysti Jón Baldvin á það eitt að Kjartan væri svo góður flokksmaður að hann myndi hanga áfram í flokknum. Það var svo ekkert fyrir Kjartan gert eft- ir að hann féll. Þaö var ekkert fyrir hann gert fyrr en mörgum árum síð- ar að hann fékk starf hjá EFTA og síðan sendiherrastarf," sagði alþýðu- flokksmaður í samtali við DV. Nú er aðeins rúm vika til flokks- þingsins sem haldið verður í Suður- nesjabæ. Eins og málin standa í dag er útlit fyrir fiörugt átakaflokksþing í skugga kosningaósigurs Alþýðu- flokksins í flestum höfuðvígjum sín- um. í dag mælir Dagfari_____________ Tilvistarkreppa Fátt er nú orðið eftir til að gleðjast yfir hér á landi. Hvert reiðarslagið af fætur öðru ríður yfir og skammt stórra högga á milli. Þó eru ekki nema nokkrar vikur síðan forsæt- isráðherra hélt merka ræðu á Al- þingi og hélt því fram að vorið væri að koma. „Það er að vora í íslensku samfélagi," sagði Davíð og þjóðin vildi trúa honum. Menn taka mark á forsætisráðherra. Enda þótt lóan sé komin og grundimar gróa og vorið geri vart við sig í veðráttunni hefur pólitíska og efnahagslega vorið sem forsæt- isráðherra boðaði því miður hvorki verið sjáanlegt né finnanlegt. Fyrst er þaö áfallið í borginni. Borgin féll í kosningunum í hendur dulbúinna frambjóðenda og ógnar- tímar eru fram undan í höfuðborg- inni. Jafnvel þótt fyrrverandi borg- arsljóri biði eftir kraftaverki á kosninganótt og stappaði stáli í sitt fólk kom allt fyrir ekki og Ingibjörg vann. Það fara erfiðir tímar í hönd. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki leng- ur við völd en hann er eini flokkur- inn, hinn útvaldi flokkur, sem er fær um að stjóma borginni. Það fór fram valdarán í Reykjavík og Reyk- víkingar eiga eftir að súpa seyðið af því. Það em myrkir dagar fram undan. Ekki vorar við það. Helstu tíöindi í kosningaúrslitum utan Reykjavíkur var sókn Al- þýðubandalagsins í kaupstöðum landsins. Varla vorar við það í huga forsætisráðherra? Ekki er kosningunum fyrr lokið en Hafró leggur fram tillögur um ennþá meiri niðurskurð á þorsk- kvótanum sem er nú kominn niður í 130 þúsund tonn og enda þótt rík- isstjórnin ætli að syndga upp á náöina og bæta við tuttugu þúsund tonnum þá er þetta eins og upp í nös á ketti. Kreppan heldur áfram og samdrátturinn. Það er ekki nóg með að kjósendur yfirgefi sinn út- valda flokk heldur er þorskurinn lika á fönun. Það bólar ekki á vor- inu úti á sjó. Eftir að Norðurlandabúar gerðu okkur þann grikk að leita eftir inn- göngu í Evrópusambandið erum við íslendingar að einangrast á efnahgssviðinu. Það er sviöin jörð fram undan þar sem við emm skildir einir eftir, íslendingar, og samkvæmt því sem The Wall Street Joumal segir kyrjar utanríkisráð- herra íslands óhugnanlegar vísur um „ræningja" sem „slátra frið- sömum kúabændum á meginlandi Evrópu". Hann getur fátt annað, blessaður maðurinn, eftir að vera skilinn eft- ir afsíðis og utangátta í þeirri Evr- ópu sem er að sameinast án ís- lands. Það vorar kannski hjá þeim suöur í Evrópu en' það vor sést ekki frá íslandsströndum. Og nú ætla Alþýðflokkurinn og Jóhanna að láta kné fylgja kviði og fella Jón Baldvin sem formann í flokknum. Hvemig verður ástandið þá eftir að Jón hverfur á braut og fær ekki lengur tækifæri til að kyija söngva og leggjast í vík- ing? Er Jóhanna það sem koma skal? Er 'þetta vorið sem forsætis- ráðherra bíður eftir? Áður vom Kanamir búnir að af- skrifa okkur með hjálp Rússa sem lögðu niður kalda stríðið. Kanarnir nenná ekki lengur að veija landið og bánna okkur að veiða hval og era hættir að taka mark á kvörtun- um okkar og kveini. Við eram bún- < ir að glata sérstöðu okkar í kalda stríðinu og Nató af því að kalda stríðið hvarf. Verðbólgan er horfin og atvinnu- leysi hefur haldið innreið sína. Gamla góða verðbólgan, sem skap- aði þenslu og atvinnu og gerði okk- ur að heimsmeisturum í efnahags- málum, er langt undan. Jafnvel verkalýðshreyfingin hefur koðnað niður í leiðindum og sorg eftir frá- fall verðbólgunnar. Verkalýðs- hreyfingin hefur lagt niður alla kjarabaráttu en semur um sex þús- und króna eingreiðslu einu sinni á ári í sárabætur. Nokkurs konar fátækrastyrkur til að seðja mesta hungrið. Varla var sú ölmusa vor- boði forsætisráðherra. Já, það ætlar seint að vora og til- vistarkreppa íslendinga heldur áfram eins og sjá má af þeim móðu- harðindum sem á okkur dynja. Bæði náttúran, efnahagurinn og kjósendur hafa lagst á eitt um að hindra vorkomuna og þegar er- lendar þjóðir bætast í hópinn með þvi að einangra ísland og þorskur- inn fer í stræk þá er fokið í flest skjól. Kúri ég í kulda og trekki. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.