Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1994, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1994, Blaðsíða 30
42 FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1994 Afmæli Pétur Sigurgeirsson Pétur Sigurgeirsson biskup, Hjálm- holti 12, Reykjavík, er sjötíu ogfimm áraídag. Starfsferill Pétur fæddist á ísafirði. Hann lauk stúdentsprófi frá MR1940, guð- fræðiprófi frá HÍ1944, framhalds- prófi í guðfræði frá prestaskólanum Mt. Airy Seminary í Fílaladelfíu 1945 og stundaði framhaldsnám í blaðamennsku og biblíufræðum við Stanfordháskóla í Kaliforníu 1945. Pétur starfaði á vegrnn Hins evangelíska-lútherska kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi sumarið 1945, vann við ritstjórn Kirkjublaðs- ins í Reykjavík 1946-47, kennari við gagnfræðaskólann á Akureyri 1947- 01, sóknarprestur á Akureyri 1948- 81 með aukaþjónustu í Gríms- ey 1953-81, vígslubiskup Hins forna Hólabiskupsdæmis 1969-81 og bisk- upíslands 1981-89. Pétur var formaður Æskulýðs- sambands kirkjunnar í Hólastifti 1959-69, formaður Barnavemdar- nefndar Akureyrar um skeið, for- maður Prestafélags hins forna Hóla- stiftis 1970-81, sat í Kirkjuráði hinn- ar íslensku þjóðkirkju frá 1970, for- seti Kirkjuráðs 1981—89, forseti Hins ísl. biblíufélags 1981-89 og hefur set- iö í stjórn Listasafns Einars Jóns- sonarfrál981. Pétur samdi bækurnar Litli-Hár- lokkur og fleiri sögur, barnabók, 1952, og Grímsey, 1971, ritstýrði Sunnudagaskólablaðinu 1948, Æskuiýðsblaðinu 1949-60, í útgáfu- stjóm 1963-65, í Áfengisvörn 1956, í ritnefnd Tíðinda Prestafélags hins foma Hólastiftis 1971, gaf út Söng- bók sunnudagaskóla Akureyrar- kirkju 1948 og Unga kirkjan, sálmar ogmessuskrá, 1967. Fjölskylda Pétur kvæntist 3.8.1948 Sólveigu Ásgeirsdóttur, f. 2.8.1926, húsmóð- ur. Foreldrar hennar voru Ásgeir Ásgeirsson, kaupmaður í Reykja- vík, og kona hans, Kristín Mattiiías- dóttirhúsmóðir. Börn Péturs og Sólveigar eru Pét- ur, f. 19.2.1950, doktor í félagsfræði og guðfræði, prófessor við HÍ, kvæntur Þuríði Jónu Gunnlaugs- dótturfótasérfræðingi; Guðrún, f. 25.5.1951, d. 27.3.1986, stúdent og flugfreyja; Kristín, f. 31.5.1952, hús- móðir á Akureyri, gift Hilmari Karlssyni, lyfjafræðingi; Sólveig, f. 21.6.1953, phil.cand. við háskólann í Uppsölum, gift Borgþóri Kær- nested, framkvæmdastjóra Norr- æna flutningasambandsins. Systkini Péturs em Sigurður, f. 6.7.1920, d. 9.11.1986, deildarstjóri í Útvegsbankanum í Reykjavík; Svanhildur, f. 18.3.1925, fyrrv. fuil- trúi í utanríkisráðuneytinu; Guð- laug, f. 16.2.1927, næringarráðgjafi við Landspítalanri í Reykjavík. Foreldrar Péturs voru Sigurgeir Sigurðsson, f. 3.8.1890, d. 13.10.1953, biskup íslands, og kona hans, Guð- rún Pétursdóttir, f. 5.10.1893, d. 20.7. 1979, húsmóðir. Ætt Sigurgeir var sonur Sigurðar, regluboöa Góðtemplarareglunnar Eiríkssonar, b. á Ólafsvöllum, Ei- ríkssonar, dbrm. á Reykjum, bróður Katrínar, ömmuÁsmundar Guð- mundssonar biskups og ömmu Sig- ríðar, móður Ólafs Skúlasonar bisk- ups. Eiríkur var sonur Eiríks, ætt- fóður Reykjaættarinnar Vigfússon- ar. Móðir Sigurgeirs var Svanhildur Sigurðardóttir, formanns í Neista- koti á Eyrarbakka, Teitssonar. Móð- ir Sigurðar var Guðrún, systir Ólaf- ar, langömmu Jóns, fóður Hannesar Jónssonar sendiherra. Guðrún var dóttir Sigurðar, b. á Hrauni í Ölf- usi, Þorgrímssonar, b. í Holti í Stokkseyrarhreppi, Bergssonar, ættfoður Bergsættarinnar, Stur- laugssonar. Guðrún var systir Sigurðar, föður Péturs, forstjóra Landhelgisgæsl- Pétur Sigurgeirsson. unnar. Guðrún var dóttir Péturs, oddvita í Hrólfsskála á Seltjamar- nesi, Sigurðssonar. Móðir Péturs var Sigríður Pétursdóttir, b. í Eng- ey, Guðmundssonar, foður Guð- finnu, ömmu Bjarna Jónssonar vígslubiskups. Önnur dóttir Péturs í Engey var Guðrún, langamma Bjarna Benediktssonar forsætisráð- herra. Móðir Guðrúnar var Guðlaug Pálsdóttir, b. í Hörgsdal, Pálssonar, prófasts í Hörgsdal, Pálssonar, fóð- ur Valgerðar, ömmu Sigurðar Páls- sonar vígslubiskups. Pétur og Sólveig eru stödd hjá dóttur sinni og tengdasyni í Uppsöl- um. Ólafur Guðmundsson Ólafur Guðmundsson, fyrrv. lög- reglumaður og starfsmaður við RUV, til heimilis að Bergþórugötu 57, Reykjavík, er áttræður í dag. Starfsferill Ólafur fæddist að Sörlastöðum í Fnjóskadal og ólst upp í Fnjóska- dalnum, á Akranesi og í Borgar- firði. Hann var í barnaskóla á Akra- nesi, við Héraðsskólann á Laugar- vatni og stundaði nám við lögreglu- skóla í Stokkhólmi 1946. Á unglingsárunum stundaði Ólaf- ur landbúnaðarstöð, fiskvinnslu og byggingarvinnu, auk þess sem hann var til sjós í fjögur ár. Hann hóf fyrst lögreglustörf 1930, varð lögreglu- maður í Reykjavík 1937, annaðist umferðarfræðslu í skólum um fimmtán ára skeið eftir strið og var lögregluvarðstjóri 1960-67 er hann lét þar af störfum. Þá var Ólafur starfsmaður Ríkisútvarpsins í sext- án ár frá 1967, auk þess sem hann var gæslumaður í þjóðgarðinum við Skaftafell fjögur sumur. Ólafur gegndi ýmsum trúnaðar- störfum fyrir Lögreglufélag Reykja- víkur, söng meö Lögreglukómum og var ritari hans um árabil en Ólaf- ur átti stóran þátt í því að kórinn gekk í óformlegt samband við lög- reglukóra höfuðborgar Norður- landa. Olafur varð heiðurfélagi kórsins 1989. Fjölskylda Ólafur kvæntist 1.10.1939 Guð- rúnu Einarsdóttur frá Hemru í Skaftártungum, f. 17.6.1914, d. 31.12. 1993, húsmóður. Hún var dóttir Ein- ars Bárðarsonar og Jóhönnu Jóns- dóttur, bændafólks, síðast að Mýr- umíÁiftaveri. Böm Ólafs og Guðrúnar eru Bjarni Einar Ólafsson, f. 10.8.1941, flugvirki í Garðabæ, kvæntur Guð- rúnu Árnadóttur hárgreiðslumeist- ara og eiga þau þrjár dætur, Þor- björgu, f. 26.3.1969, Hildi. f. 31.10. 1972, og Elínu, f. 11.2.1983; Guð- mundur Ólafsson, f. 10.7.1944, versl- unarmaður á Seltjarnarnesi, kvæntur Maríu Ólafsdóttur húmóð- ur og eiga þau þrjú börn, Ólaf, f. 26.8.1965, Sigrúnu, f. 3.8.1968 og Björgu, f. 12.6.1975. Systkini Ólafs: Guðný, f. 7.9.1915, húsmóðir og ekkja í Hafnarfirði; Sigurður, fyrrv. húsgagnasmiður og lögregluþjónn á Akranesi; Guð- björg, f. 11.7.1920, nú látin, húsmóð- ir í Bandaríkjunum; Karl, f. 1.9.1924, verkfræðingur; Bjöm, f. 22.8.1928, klæðskeri í Reykjavík; Ingólfur, f. 22.11.1930, prestur og lektor við KHÍ. Ólafur Guömundsson. Foreldrar Ólafs voru Guðmundur Ólafsson frá Sörlastöðum, f. 11.2. 1885, d. 16.5.1958, lengst af kennari við Héraðsskólann á Laugarvatni, og kona hans, Ólöf Sigurðardóttir, f. 21.4.1890, d. 11.1.1976, húsmóðir. Til hamingju með afmælið 2. júní 90 ára Jón Guðmann Jónsson, fyrrv.véiaeftir- litsmaður, Dalbraut27, Reykjavík, verðurníraíður ámorgun. JónGuðmann tekur á móti gestum á Hótel Borg á morgun frá kl. 14.30.-17.00. Margrét P. Einarsdóttir húsmóó- ír frá Þórustöðum í Bitrufirði, Hrafnistu við Kieppsveg, Reykja- vík. Guðlaugur Guðjónsson, Hásteinsvegi64, Vestmannaeyjum. Stefán Þorsteinsson, Silfurteigi 6, Reykjavík. Trausti Guðmundsson, Hornbrekku, Ólafsfirði. : / Vesturvegi 11, Þórshöfn. Ágúst Jónsson, Sigtúni 55, Reykjavík. Sigurveig Sigurðardóttir, Suðurbyggðl7, Akureyri. Guðmundur Þorbjörnsson, Tómasarhaga 46, Reykjavík. Kristinn Guðmundsson, Háaleitisbraut 39, Reykjavík. Kristján össur Jónasson, Vesturbergi 49, Reykjavík. 50 ára Heiðar Alexandersson, Engjavegi71, Selfossi. Kristin Waage, Sólvallagötu 58, Reykjavik. Sesselja Berndsen, Blikanesi 26, Garðabæ. Torfhildur Pálsdóttir, Huldulandi 5, Reykjavík. Gísli Kjartansson, Austurholti 7, Borgamesi. 40ára Ari Berþór Fransson, Sogavegi 133, Reykjavík. Ólafur ÞórhalÍRSon, fyrrv.bóndiá Ánastöðum, Vatns- nesi, nú til heimilis að Neshaga 14, Reykjavík. Ólafiireraðheiman. Guðný Haiigrímsdóttir, Hraunbæ 103, Reykjavík. 60 ára Grímur Guðbjörn Jóhannsson, Ivor Don Aubrey, Dvergabakka 16, Reykjavík. Friðbert A. Sanders, Faxabraut 40 B, Keflavík. Helgi Halldórsson, Bjarnarstig 9, Reykjavík. Helga Árnadóttir, Hátúni 10A, Reykjavík. Foreldrar hennareru ÁrniJónsson ogSólvcigEg- gerz Péturs- dóttir. Kristín Benediktsdóttir, Fífuseli 36, Reykjavík. Ragnhildur I. Benediktsdóttir, Amórsstöðura, Jökuldalshreppi, Jósef R. Gunnarsson Jósef Rafn Gunnarsson (fæddur Csillag Jóseí), starfsmaður hjá Héðni í Garðabæ, Möðrufelli 7, Reykjavík, er sextugur í dag. Starfsferill Jósef er fæddur í Veröce Maros í Ungverjalandi og ólst þar upp ásamt þremur systkinum sínum. Hann lærði jámiðnaðarmennt í heima- landi sínu. Árið 1956 flúði fiölskylda hans í skjóli nætur til flóttamannabúða í Austurríki og um jólin sama ár kom hann tii íslands. Jósef hefur starfað viö járniðnaðarstörf frá því hann kom til íslands. Jósef er nú starfs- maður hjá Héðni í Garðabæ. Jósef gegndi herþjónustu um tveggja ára skeið í heimalandi sínu. Fjölskylda Jósefkvæntist 11.1.1958RósuLár- usdóttur (fædd Szatmári Rózalia), f. 25.9.1937. Foreldrar hennar: Szat- mári Lajos, d. 1972, og kona hans, Erdös Róza, en hún er búsett í Ajka íUngverjalandi. Dætur Jósefs og Rósu: Annabella, f. 3.4.1959, starfsstúlka á leikskóla, gift Ellert Sigurðssyni, þau eru bú- sett í Reykjavík og eiga tvö börn; Elísabet Katrín, f. 8.7.1963, snyrti- sérfræðingur, gift Rafni Þorsteins- syni, þau eru þúsett í Kaupmanna- höfn og eiga tvö börn; Rósa, f. 14.1. 1969, verkstjóri, búsett í foreldra- húsum. Systkini Jósefs: Marteinn Hannes- son, látinn, var búsettur í Dan- mörku; Georg Jósefsson, látinn, var búsettur í Reykjavík; María Antons- Jósef R. Gunnarsson. son, búsett í Bandaríkjunum. Foreldrar Jósefs: Csillag Jósef og kona hans, Németh Anna. Þau em bæðilátin. Ingibjörg Þ. Ingólfsdóttir Ingibjörg Þóra Ingólfsdóttir kenn- ari, írabakka 30, Reykjavík, er fer- tugídag. Fjölskylda Ingibjörg er fædd í Reykjavík og ólst þar upp, fyrst í Efstasundi 10 og síðar í Njörvasundi 11. Hún lauk gagnfræðaprófifrá Vogaskóla 1971, stúdentsprófi frá KHÍ1977 og kenn- araprófi frá Kennaraháskóla ís- lands 1980. Ingibjörggiftist 20.12.1980 Snorra Steindórssyni, f. 4.7.1954, bifreiða- smíðameistara. Foreldrar hans: Steindór Reynir Jónsson flugvirki og Ingigerður Ágústsdóttir fóstra. Þau eru búsett í Reykjavík. Böm Ingibjargar og Snorra: Steindór Ingi, f. 27.12.1976, nemi; Eva Rún, f. 9.4.1982; Björgvin Atii, f.27.8.1990. Bræður Ingibjargar: Öm, maki Gerður Baldursdóttir; Guðmundur, maki Kristín Júlíusdóttir; Sigþór, maki Sólveig Kristjánsdóttir; Jósep Gunnar. Foreldrar Ingibjargar; Ingólfur Guðmundsson, f. 15.2.1907, d. 27.8. 1983, bakarameistari, og Þórey Sig- urðardóttir, f. 30.6.1907, húsmóðir. Þau bjuggu lengst af í Njörvasundi 11. Ætt Ingólfur var sonur Guðmundar Einarssonar sjómanns og konu hans, Guðrúnar. Ingibjörg Þ. Ingólfsdóttir. Þórey er dóttir Sigurðar Jónsson- ar, hreppstjóra í Grafningi, og konu hans, Ingibjargar Jónsdóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.