Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1994, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1994, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1994 3 Fréttir Prófessor Þorvaldur Gylfason um efnahagshorfumar: Fjarstæða að kreppunni sé lokið hér á landi - stjómvöld veröa fyrst að uppræta hinn heimatilbúna vanda Þróun nokkurra hagstærða í aðildarríkjum OECD árið 1995 JP .£* d <o <• Heimild: OECD Economic Outlookjúní 1994 uxa? „Kreppunni lýkur ekki fyrr en ís- lensk stjórnvöld vega aö rótum efna- hagsvandans sem er heimabakaður aö mestu leyti. Aö halda því fram aö kreppunni sé lokið er fjarstæða," segir Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði við Háskóla íslands. í vikunni boðaði Davíð Oddsson forsætisráðherra til blaðamanna- fundar til að kynna mat Þjóðhags- stofnunar á efnahagshorfunum hér á landi. í drögum að nýrri þjóðhags- áætlun fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að landsframleiðslan standi í staö í ár en síðan taki við nokkurra ára samfellt hagvaxtartímabil. Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi aukist um 0,1 prósentustig og verði 5,3 pró- sent. Falsmynd á kosningaári Þorvaldur hefur takmarkaða trú á útreikningum Þjóðhagsstofnunar og bendir á að undanfarin ár haíi stofn- unin nánast undantekningarlaust spáð hagvexti innan þriggja ára. Raunin hafi hins vegar verið sú að landsframleiðsla á mann hafi stöðugt dregist saman undanfarin sjö ár. Blaðamannafund Davíðs segir Þor- valdur bera keim af því að kosningar séu í nánd. Slíka blaðamannafundi séu menn jafnvel hættir að halda í Kreml. Þorvaldur tekur undir það áht Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) að nú sé byrjað að rofa til í efnahagslifi Bandaríkjanna og Evrópu. í því sambandi bendir hann á að í Bandaríkjunum sé starf- andi góð ríkisstjórn með góða efna- hagsráögjafa. Fyrir vikið hafi stjórn- völd öðlast tiltrú manna í einkageir- anum og eflt bjartsýni meðal fólks. Réttmæt bjartsýni ytra Að sögn Þorvalds er svipað upp á teningnum í Evrópu. Innan Evrópu- sambandsins hafi einstök aðildar- ríki, ásamt framkvæmdastjórn ESB, byrjað að takast á við djúpstæðan skipulagsvanda sem valdið hefur miklu og langvinnu atvinnuleysi og litlum hagvexti innan sambandsins. Jafnframt fari skilningur manna dagvaxandi á því að taka þurfi á landbúnaðarvandamálinu. Og í Austur-Evrópu segir Þorvaldur að menn hafi hrundið í framkvæmd róttækum efnahagsumbótum, til dæmis í Rússlandi þar sem um 70 prósent af atvinnulífinu eru komin í hendur einkaaðila. Veikt haldreipi „Bæði vestanhafs og í Evrópu hafa menn réttmæta ástæðu til þess að vera bjartsýnir. Því miður á ekki það sama við hér á íslandi. Að vísu mun nýtt góðæri í Evrópu og Ameríku getað orðið okkur nokkur lyftistöng en það þarf miklu fleira að koma til. Við verðum að horfast í augu við að aðalástæða þeirrar djúpu og lang- vinnu efnahagslægðar sem við höf- um átt við að glíma undanfarin sjö ár er heimatilbúinn vandi. Það er ekki fyrr en við erum tilbúin að tak- ast á við þennan vanda að við getum fyllst réttmætri bjartsýni aftur.“ Þorvaldur segir það veikt haldreipi fyrir íslenska stjórnmálamenn, sem auðveldlega geti slitnað, að einblína á efnahagsbatann úti í heimi. Nær væri að takast á við rót vandans hér heima. í því sambandi nefnir hann margra ára ábyrgðarleysi í hagstjórn og margþættan skipulagsvanda í rík- isfjármálum, í bankamálum, á vinnumarkaði og síðast en ekki síst í landbúnaðar- og sjávarútvegsmál- um. Kyrrstaða getur leynt á sér „Á þessum vanda þarf að taka ef við ætlum að hætta að dragast aftur úr öðrum þjóðum. Kyrrstaða getur leynt á sér ef heimurinn í kringum okkur stendur kyrr líka. En þegar heimurinn í kringum okkur er kom- inn á fleygiferð, og þá er ég ekki bara að tala um uppganginn í Bandaríkj- unum og Vestur-Evrópu heldur líka þær róttæku efnahgasumbætur sem verið er að hrinda í framkvæmd í Austur- Ewrópu, verður kyrrstaða okkar þeim mun hættulegri." Verð frá 1.290.000 kr. á götuna! SCOUPE TÚRBÓ ...og gamanið hefstfyrir alvöru Láttu drauminn rætast - fáðu þér fallegan sportbíl og njóttu þess að vera úti að aka. Hyundai Scoupe er hannaður fyrir þá sem hafa yndi af akstri og þora að vekja athygli. Útlitið er ferskt og sportlegt og þýður akstur bílsins í samræmi við mjúkar bogadregnar línur hans. • Álfelgur • Vindskeið með bremsuljósum • Útvarp, geislaspilari og 4 hátalarar • Leðurklætt stýri • 1500 cc • 116 hestöfl i HYunona ...tíl framtíðar ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.