Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1994, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994
Fréttir
Hrun blasir hvarvetna við á Vestfjörðum:
Bankarnir hvetja fyrir-
tæki til nauðasamninga
- mun þýða ^öldagjaldþrot þjónustufyrirtækja
Hrun sjávarútvegsfyrirtækja
á Vestfjörðum
Suðureyri
Flateyri
A fimm árum
hafa verið seldir í
burtú sjö ísfisk-
simnan
Isafjarðardjúps.
„Bankamir hvetja fyrirtæki til
nauðasamninga og ef sú leið verður
farin mun það leiða til flöldagjald-
þrota hjá þjónustufyrirtækjum á
Vestfjörðum. Þetta mun leiða til
keðjuverkunar þar sem þjónustufyr-
irtækin em það illa farin vegna gjald-
þrota undanfarinna ára,“ sagði
áhrifamikili ráðamaður á Vestfjörð-
um í samtali við DV.
Byggðavandi á Vestfjörðum er að
taka á sig skýra mynd. í fjórðungn-
um er varla hægt að finna fyrirtæki
sem skilar hagnaði. Almennt er ekk-
ert hinna stærri fyrirtækja, sem em
bæði i útgerð og vinnslu, rekið með
hagnaði. Flest fyrirtækjanna em í
alvarlegum rekstrarerfiðleikum,
sum eru þegar lokuð, önnur í
greiðslustöðvun. Öll eiga við ein-
hvem rekstrarvanda að stríða, allt
frá Patreksfírði í vestri að Hólmavík
í austri.
Þau fyrirtæki sem best standa em
augljóslega þau sem eingöngu eru
með útgerð á sínum snæmm. Þar ber
hæst góða afkomu Hránnar h/f sem
á aflaskipið Guðbjörgu ÍS. Togaraút-
gerð ísafjarðar hefur líka skilað
góðri afkomu en það fyrirtæki á
rækjufrystiskipið Skutul. Hólma-
drangur h/f á Hólmavík, sem á sam-
nefndan frystitogara, hefur líka að
mestu staðið af sér þá kreppu sem
virðist nú ætla að gera út af við all-
flest fyrirtæki á Vestflörðum. Gunn-
vör h/f á ísafirði, sem rekur frystitog-
arann Július Geirmundsson, virðist
einnig standa sæmilega þrátt fyrir
eitthvert tap sl. ár.
Ef htið er yfir svæðið í heild má
strax sjá þá þróun að ísfisktogaraút-
gerð er að hverfa. Fyrir fimm ámm
var togarútgerð á öllum helstu þétt-
býlisstöðum á Vestfjörðum. Nú er
enginn ísfisktogari utan ísafjarðar-
djúps og reyndar aöeins tveir frysti-
togarar; Hólmadrangur og Sléttanes.
Það síðamefnda í eigu Fáfnis, sem
situr á þeirri tímasprengju sem
greiðslustöðvun hlýtur að teljast. Þar
ræðst á næstu vikum hvort tekst að
aftengja sprengjuna eða gjaldþrot
verður sem kallar á brottnám togar-
ans. Þar með færi síðasti togarinn
af svæðinu frá Patreksfirði að ísa-
fjarðardjúpi. Ef nánar er skoðaö
ástandið á einstökum stöðum þá
kemur í ljós að hrun atvinnufyrir-
tækja er fremur regla en undantekn-
ing.
Patreksfjörður
Tveir togarar hafa veriö seldir í
burtu; Sigurey til Hafnarfjarðar og
Látravík til Ísaíjarðar. Stærstu fyrir-
tæki staðarins em Oddi h/f og
Straumnes h/f. Bæði þessi fyrirtæki
hafa að undanfomu verið rekin með
tapi. Veruleg bátaútgerð er frá Pat-
reksfiröi en kvótaskeröingar á
þorski era verulegar.
Bíldudalur
Togarinn Sölvi Bjamason hefur
verið seldur og Sæfrost h/f, stærsta
fyrirtækinu á staðnum, lokaö vegna
rekstrarerfiðleika.
Tálknafjörður
Togarinn Tálknfirðingur hefur
verið seldur með helming af kvóta.
Stærstu fyrirtækin em Hraðfrysti-
hús Tálknafjarðar og Þórsberg h/f,
bæði rekin með tapi.
Þingeyri
Togarinn Framnes hefur verið
seldur. Eftír stendur frystitogarinn
Sléttanes. Fáfnir h/f, stærsta og eina
sjávarútvegsfyrirtækið, í greiðslu-
stöðvun með 130 milljóna króna tap
í fyrra.
Flateyri
Togarinn Gyllir hefur verið seldur.
Stærstu fyrirtækin, Hjálmur h/f og
Kambur h/f, voru rekin meö tapi sl.
ár. Hjálmur er hættur fiskvinnslu og
Kambur tekinn við.
Suðureyri
Togarinn Elín Þorbjamardóttír
hefur verið seldur. Stærsta fyrirtæk-
ið, Fiskiðjan Freyja h/f, var rekin
með tapi sl. ár.
Bolungarvík
Gjaldþrot Einars Guðfinnssonar
h/f er tiltölúlega nýafstaðið. Tvö fyr-
irtæki spmttu úr rústunum; Þuríður
h/f, sem yfirtók húsakost fyrirtækis-
ins, og Ósvör h/f sem keypti togarana
Dagrúnu og Heiðrúnu. Fyrirtækin
hafa ekki unnið saman og hefur
stærstur hluti afla skipanna farið í
Fréttaljós
burtu. Minni fyrirtæki eru í alvarleg-
um vanda. Djúpfang h/f er komið í
þrot og nýir aðilar hafa tekið við
rekstri þess. Fiskverkun Magnúsar
Snorrasonar er í greiðslustöðvun.
Fiskvinna á Bolimgarvík er ekki
nema svipur hjá sjón miðað viö það
sem áður var.
Hnífsdalur
Hraðfrystihúsið h/f og Miðfell h/f,
sem eru rekin sameiginlega og gera
út ísfisktogarann Pál Pálsson, eru
eftir því sem næst verður komist
einu fiskvinnslufyrirtækin sem skila
hagnaði á landvinnslu á Vestfjörð-
um. Þá er í Hnífsdal rækjuverksmiðj-
an Bakki h/f sem talin er í þokkaleg-
um rekstri. Leiti h/f, sem er lítið fisk-
vinnslufyrirtæki, lagði niður fisk-
vinnslu á síðasta ári og við tók Fisk-
verkun Ásbergs sem rekin er af sömu
aðilum.
ísafjörður
Almennir erfiðleikar era í fisk-
vinnslunni. Tvö stærstu fyrirtækin;
Noröurtanginn h/f og íshúsfélag ís-
firðinga h/f, eiga í erfiðleikum. Ekki
mun það létta á erfiðleikum íshúsfé-
lagsins að ný Guðbjörg, sem væntan-
leg er, mun verða frystískip. Guð-
björgin hefur séð íshúsfélaginu fyrir
hráefni undanfarin ár. Almennt mun
þetta nýja frystiskip setja strik í
reikninginn hvað varðar land-
vinnslu á ísafirði þar sem 4000 tonna
kvóti flyst á haf út. Sama sagan er i
rækjuvinnslunni, þar em erfiðleikar
en þó mismunandi milli fyrirtækja.
Umræða hefur verið um sameiningu
annars vegar íshúsfélagsins og
rækjuvinnslunnar Rits h/f og hins
vegar Norðurtangans, Freyju h/f á
Suðureyri og Frosta h/f í Súðavík.
Súðavík
Frosti h/f er langstærsti atvinnu-
rekandinn á Súðavík. Það fyrirtæki
á í erfiðleikum og hefur verið rekið
með tapi. Samstarf er milli Frosta
og Norðurtangans og landar Bessi,
togari Frosta, bolfiski til vinnslu í
Norðurtanganum. Guðbjartur, ann-
ar tveggja togara Norðurtangans,
veiðir rækju fyrir Frosta.
Hólmavík og Drangsnes
Þessir staöir skera sig úr á Vest-
fjörðum þar sem jafnvægi virðist
ríkja í rekstri sjávarútvegsfyrirtækj-
anna. Rækjan er stór þáttur í at-
vinnulífinu og báðir staðimir byggja
að miklu leyti á bátaútgerð. Samein-
ing Kaupfélags Steingrímsfjarðar,
Hraðfrystihúss Drangsness og
Hólmadrangs h/f er í umræðunni en
þetta em stærstu fyrirtækin á stöð-
unum.
Það virðist sama hvar borið er nið-
ur á Vestfjöröum, alls staðar blasir
við hrun sjávarútvegsfyrirtæKja.
Leiðir til lausnar virðast fáar og eng-
in sársaukalaus. Verði farin Þingeyr-
arleiðin mun það þýða gjaldþrot
þjónustufyrirtækja, leið undanskot-
anna, þ. e. nýtt nafn og númer mun
hafa sömu afleiðingar. Vestfjarðaað-
stoðin er ekki líkleg til að duga nema
takmarkað og gjaldþrot mun leiða til
þess að skip og kvóti verða seld í
burtu.
Lögreglan berst gegn ólöglegri garöaúöun:
Skemmdarverk
unninábílog
eiturtanki
- sakamenn frægir fyrir vatnsúðun, segir Grímur Grímsson
„Ég vinn við garðaúöun og keyri
pickup-bíl með eiturtank í afturdragi
milli garða. Aðfaranótt sunnudags
var skoriö á leiðslumar frá eitur-
tankinum, slöngumar sem ég nota
við úðunina og stungið á afturdekkin
á bílnum. Það vildi svo vel til aö tank-
urinn var tómur því að annars hefði
getað orðið umhverfisslys. Þegar ég
kom út um morguninn var búið að
skrúfa fyrir tankinn en ég hafði skil-
ið hann eítir opinn kvöldið áður. Ég
óttast að samkeppnisaðili minn hafi
gert þetta því ég sá hann sniglast við
heimili mitt um kvöldið," segir Grím-
ur Grímsson garðaúðunarmaður.
Grímur varð fyrir fjárhagslegu
tjóni upp á tugi þúsunda þegar
skemmdarverkin vora unnin á bíl
hans og eiturtanki þar sem hann stóð
í Þingholtunum á sunnudagskvöldið
en Grímur var frá vinnu í tæpa tvo
daga á eftir eða þar til búið var að
gera við skemmdimar. Hann kærði
skemmdarverkið til lögreglunnar en
hún hefur ekkert getað gert í málinu.
„Það er hörð samkeppni í garðaúð-
uninni og nokkrir sakamenn sem em
frægir fyrir að úða vatni. Lögreglan
er á eftir þeim til að reyna aö stoppa
þá og það er sennilega þess vegna
sem þeir hafa gripið til þessa örþrifa-
ráðs. Garðaeigendur athuga ekki að
fá að sjá skírteini þessara manna og
kanna ekki hvort þeir skilja eftir
nöfn og heimilisfóng í göröunum,
eins og þeir eiga að gera,“ segir Grím-
ur.
Grímur Grímsson garðaúðunarmaður varö fyrir tjóni upp á tugi þúsunda þegar skorið var á slöngur og hjólbarða
á pickup-bil hans i Þingholtunum um siðustu helgi. Grimur var frá vinnu i tæpa tvo daga vegna þessa og telur
að samkeppnisaðili hafi gripið til þessa örþrifaráðs. DV-mynd Sveinn