Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1994, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994
Kvikmyndir_________________________________
LivUllmann leikstýrir Kristínu Lafranzdóttur:
Dýrasta kvikmynd sem
Norðmenn hafa gert
- Karl Júlíusson sér um sviðsmyndina
Liv Ullmann og Svend Nykvist fyrir framan sviðsmynd sem hönnuð er
af Karli Júlíussyni.
Norðmenn eru nú að gera sína
langdýrustu kvikmynd, er það
kvikmynd eftir hinni frægu skáld-
sögu Kristín Lafranzdóttir eftir
Sigrid Undset. Margir hafa haft hug
á að kvikmynda þessa stórfenglegu
sögu en það hefur alltaf strandað á
kvikmyndréttinum sem var seldur
í kringum 1930 til Hollywood og
hafa í áraraðir staðið deilur
norskra og bandarískra um réttinn
á bókinni. Það var síðan sænski
framleiðandinn Ingmar Ejve sem
gat keypt kvikmyndaréttinn með
samþykki allra aðila.
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
Hin kunna leikkona Liv Ullmann
leikstýrir myndinni og skrifar hún
auk þess handritið. Þetta er önnur
kvikmyndin sem Ullmann leikstýr-
ir. Fyrsta kvikmynd hennar, Sofie,
hlaut góðar viðtökur og hefur hún
verið sýnd hér á landi. Leikarar í
myndinni eru aö mestu norskir en
einnig sænskir.
í tækniliðinu eru Svíar fjölmenn-
astir en íslendingar eiga einn full-
trúa, Karl Júiíusson, sem sér um
sviðsmyndina, en Karl hefur orðið
töluverða reynslu í kvikmyndum
af þessum toga og hefur vegur hans
farið ört vaxandi og er hann í dag
þekktur um öll Norðurlönd fyrir
einstakar sviðsmyndir við myndir
Hrafns Gunnlaugssonar.
Þekktastur í fríðu hði tækni-
manna er kvikmyndatökumaður-
inn heimsfrægi Sven Nykvist,
margfaldur verðlaunahafl og nán-
asti aðstoðarmaður Ingmars Berg-
mans í flestum kvikmynda hans.
Kvikmyndin er tekið á sömu slóð-
um og vetrarólympíuleikarnir fóru
fram og var áætlað að hefja tökur
í lok maí. Aðalhlutverkin leika El-
isabeth Matheson og Bjorn Skage-
stad.
Liv Ullmann er ekki ókunnug
Kristínu Lafranzdóttur og er það
langþráður draumur hennar að fá
að gera kvikmynd eftir þessu mikla
skáldverki. Þegar Ingmar Bergman
var að leiða þær saman Liv Ull-
mann og Ingrid Bergman var þaö
draumur þeirra að gera mynd eftir
sögu þessari. Liv átti að leika Krist-
ínu þegar hún var ung og Ingrid
Bergman þegar hún var eldri, en
vegna deilna um kvikmyndarétt
varð þetta aðeins draumur sem
aldrei varð að veruleika. Þegar Liv
Ullmann er nú spurð hvort hún
hafi ekki löngun til að leika í mynd-
innni segir hún það miklu meiri
áskorun að fá að leikstýra Kristínu.
-HK
The Crow er væntanleg í bíó:
Fantasía íyrir
nútímafólk
Laugarásbíó mun taka til sýning-
ar fljótlega bandarísku kvikmynd-
ina The Crow sem hefur verið sýnd
við mikla aðsókn í Bandaríkjunum
að undanfórnu. The Crow er kvik-
mynd sem jafnvel átti að hætta við
þótt tökur væru nánast búnar.
Ástæðan var að aðalleikari mynd-
arinnar, Brandon Lee, lést af voða-
skoti á milli tökuatriða. Þessi
dramatíski dauðdagi riflar upp
minningar um föður Brandons,
Kung Fu hetjuna Bruce Lee sem
einnig lést ungur að árum vegna
höggs sem hann fékk. Það var hik
á aðstandendum myndarinnar
lengi, en um síðir var myndin klár-
uð og hefur aðsóknin farið fram
úr björtustu vonum.
The Crow er byggð á teikni-
myndasögum sem komu út í
Bandaríkjunum og höfðu töluvert
fylgi og er myndin fantasía um
venjulegan gítarleikara sem ásamt
unnustu sinni er drepinn af glæpa-
gengi. Ári síðar er hann vakinn til
lífsins svo að hann geti leitað
hefnda.
The Crow var siöasta myndin sem Brandon Lee lék í. Með honum á myndinni er Rochelle Davis.
Nordisk Panorama '94 verður í Reykjavík í haust:
Fjórar íslenskar keppa um bestu
stuttmynd og heimildarmynd
Nordisk Panorama, sem er árleg
stuttmynda- og heimildarmynda-
hátíð Norðurlanda, verður haldin
í fimmta skiptið 21.-25. september
í Reykjavík og er það í fyrsta skipt-
ið sem hún er haldin hér á landi.
Hátíð þessa sækir flöldi fólks úr
kvikmyndageiranum og er von á
300 erlendum gestum vegna henn-
ar.
íslensk dómnefnd, sem hafði yfir
140 myndir til að velja úr í keppn-
ina, hefur valið flórar íslenskar
myndir; Húsey, kvikmynd Þorf-
inns Guðnasonar, fer í keppni í
flokki heimildarmynda og Debut-
anten eftir Sigurð Hr. Sigurðsson,
Matarsýki eftir Amar Jónasson og
Reyni Lyngdal og Ertu sannur? eft-
ir Jóakim Reynisson og Lýð Árna-
son fara í flokk stuttmynda.
Aðalhluti kvikmyndahátíöarinn-
ar er keppni um bestu stuttmynd
og bestu heimildarmynd og eru
vegleg peningaverölaun í boði. {
heild eru það 56 myndir sem taka
þátt í keppni þessari, flestar eru frá
Noregi eða 21. Svíþjóð á 12 myndir,
Finnland 10 og frá Danmörku koma
9 myndir. Samkvæmt reglum há-
tíðarinnar verður sýnt í átján
klukkustundir en margt fleira
verður að gerast í kringum hátíð-
ina. Ymis málþing verða fyrir við-
komandi fagfólk en umfangsmest
er þó hklega svokallað Forum for
Co-Financing of Documentaries
þar sem rætt verður um flármögn-
unar- og dreifingarmöguleika á
heimildarmyndum og sjónvarps-
myndum. Þingið sækja alhr helstu
dreifingaraðilar á sjónvarpsefni á
Norðurlöndum og víðar.
Konungur Ijónanna getur borið höfuðið
hátt.
Konungur
ljónanna
slær í gegn
Vinsælasta kvikmyndin í Bandaríkj-
unum þessa dagana er nýjasta Dísney-
teiknimyndin Tlie Lion King. Þaö tók
myndina aðeins 19 daga að komast yflr
100 milljóna dollara markið og sló hún
þar með öllum öðrum kvikmyndum
sumarins við af þeim sem búið er að
frumsýna. The Lion King er aðeins önn-
ur kvikmyndin sem fer yfir 100 milljón
dollara sem er orðið að nokkurs konar
viðmiðun þegar Kaninn talar um mikið
sóttar myndir. Hin myndin er The
Flintstones, en það tók hana 31 dag að
ná 100 milljóna dollara markinu. Þótt
vinsældir The Lion King séu miklar á
skömmum tima þá er hún aðeins hálf-
drættingur á við Jurassic Park, en í fyrra
náði hún 100 milljóna dollara markinu
á aðeins níu dögum.
Vérðurframhald
afBlúsbræðrum?
Eftir áralangar ákvarðanir og frestan-
ir lítur út fyrir að framhald verði á hinni
stórgóöu gamanmynd The Blues Broth-
ers, þrátt fyrir aö annar blúsbræöranna,
John Belushi, sé látinn. Dan Aykroyd
er búinn að gefa John Landis, sem leik-
stýrði fyrri myndinni, grænt ljós á að
hann sé th og nú er bara að finna rétta
meðleikarann. Þótl ekki hafi neitt verið
ákveðið enn þá er mikih áhugi á að fá
John Goodman til að leika á mót Aykroyd.
Þátttaka hans veltur á því að kvikmynda-
takan skerist ekki á við tökur á binum
vinsæla sjónvarpsþætti Roseanne, en eins
og kunnug er leikur Goodman eiginmann
Roseanne. John Landis er einnig sagður
áhugasamur um það að bróðirinn, James
Belushi, fylli í þaö tóma skarð sem John
heitinn skildi eftir sig.
Hopkinsgerir
kvikmynd í Wales
Síðastur í röð þekktra leikara til að
bregða sér bak við myndavélina er Ant-
hony Hopkins, en hann undirbýr nú tök-
ur á Scenes From Country Life og er
myndin byggð á leikriti Chekhov, Vanja
frændi. Það kemur engum á óvart að
hann velur heimaslóðir í Wales fyrir
sviðsmyndina ogsjálfur mun hann leika
aðalhlutverkið. Af öðrum leikurm má
nefna Kate Burton, dóttur Richards, en
Richard Burton var ehis og Hopkins
ættaður frá Wales.
Hverer
JeremyLeven?
Jeremy Leven, ltver er nú það? Þessi
spuming kemur sjálfsagt upp í huga
margra sem lesa það að Leven hafl feng-
ið Marlon Brando til að leika í kvikmynd
sem hann leikstýrir. Og er ekki nema
von aö spurt sé, því Jeremy Leven er
sálfræðingur sem ákvað einn daginn að
verða kvikmyndaleíkstjóri. Hann skríf-
aði handrit aö kvikmynd sem nefnist
Don Juan De Marco and the Centrefold,
fór með það til vina sinna, sem sjálfsagt
hafa verið í sófanum hjá honum og fékk
grænt ljós. Fékk hami síðan Johnny
Depp til að leika aðalhlutverkið og loks
það ómögulega að fá Marlon Brando til
að leika á ný. Og Leven þessi er alls
ekki búinn aö segja sitt síöasta. Hann
er þegar búinn aö skrifa handrit að
næstu mynd sinni, Double, og búinn að
tryggja sér Anthony Hopkins í aðalhlut-
verkið. Þama er greinilega maður sem
kann aö koma ár sinni vel fyrir borö,
svo er bara að sjá hvort hann getur gert
sýningarhæfar kvikmyndir.